Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
23
ÉSHLv
■^ímhP
■iÉÉfMfeái
Eiður Guðnason, sendiherra Islands í Noregi. Hann segir samskipti þjóðanna öll vera á kurteisisnótum þrátt fyrir að
oft hafi snurða hlaupið á þráðinn.
Annasamt hjá sendiráði Islands í Noregi:
Áhugi Norðmanna
á Islandi vaxandi
f' aMjjpwMM
mLi
Sanwist
Fjöískylduráðgjöf
Foreldrar
í Mosfellsbæ og
Reykjavíkurborg
Á vegum Samvistar - fjölskylduráðgjafar Mosfellsbæjar
og Reykjavíkurborgar verður haldið námskeið
um hlutverk og mikilvægi foreldra í nútímasamfélagi.
Námskeiðið hefst fimmtudaginn 9. október kl. 20.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 562 1266.
^SOOtHn^s^nin^arsalur
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
^ TM-HÚSOÖON
Síðumúla 30 -Sími 568 6822
vorur
i
Opið laugardaga
10-16
■ Derhúfur -
alpahúfur
f2 stærðir)
■ Hattar
HIH5ID
Mörkinni 6 ■ simi 588-5518
- segir Eiður Guðnason sendiherra
DV.Qsló:____________________________
„isíand hefur mjög mikla sér-
stöðu í hugum nær allra Norð-
manna. Þegar maður hittir fólk hér
og það veit að um islending er að
ræða þá segir það gjarnan að ísland
sé stórkostlegt land og þangað verði
það að koma. Ég verð var við að það
er mikill og vaxandi áhugi hjá fólki
að heimsækja landið," segir Eiður
Guðnason, sendiherra íslands í Nor-
egi, í samtali við DV. Hann segir
áhuga Norðmanna á íslandi eiga sér
sögulegar rætur og hann tengist
ekki endilega vaxandi áhuga ann-
arra þjóða á íslandi.
„Ég hef orðið var við áhuga ann-
arra þjóða í þessum efnum og það er
góð uppsveifla í þessum málum. Það
er auðvitað gaman að frétta af hlut-
um á borð við það að tvö þúsund
Japanar séu væntanlegir til íslands
að skoða norðurljósin. Það hefur þá
loksins ræst draumurinn frá því í
gamla daga um að selja norðurljós-
in,“ segir hann.
Erfitt að fá far háðan
Eiður segir að í Ósló starfi tvær
ferðaskrifstofur sem sérhæfi sig í ís-
landsferðum og hann viti ekki ann-
að en þeim vegni báðum vel.
„Það er mikið um að fyrirtæki
sendi hópa starfsfólks til íslands og
gefi þeim kost á að kynnast landinu.
Enda var það þannig í sumar að
mjög erfitt var að fá far héðan og
heim með skömmum fyrirvara og
mörg dæmi þess að fólk hafl þurft
að fara um Kaupmannahöfn," segir
hann.
Eiður hefur verið sendiherra ís-
lands með aðsetur í Ósló í hartnær
4 ár. Hann segir mikil verkefni vera
hjá sendiráðinu. Þau felist í þjón-
ustu við á 4. þúsund íslendinga sem
búsettir séu í Noregi auk þess að
sitja fundi fyrir íslands hönd í Nor-
egi. Við sendiráðið eru 4 starfsmenn
auk bílstjóra.
Laun hærri en heima
„íslendingar í Noregi er ákaflega
vandræðalítið fólk og við höfum
sem betur fer lítið af erfiðum mál-
um. Okkar helsta starf gagnvart
þeim er útgáfa vegabréfa og upplýs-
ingagjöf. Margt af þessu fólki hefur
verið hér mjög lengi. Það hefur ver-
ið hér gott atvinnuástand undanfar-
in ár og hingað hefur komið talsvert
af iðnaðarmönnum og einnig nokkr-
ir læknar auk námsmanna. Það er
skortur á vinnuafli auk þess að laun
eru hærri en heima en á móti kem-
ur að flest er dýrara. Það eru 43 er-
lend sendiráð hér í Ósló og af þeim
eru 22 sem hafa ísland á sinni
könnu. Það fer óneitanlega nokkur
tími í að sinna samskiptum við þau
þó við séum ekki með neitt forsvar
gagnvart þeim í sjálfu sér að öðru
leyti en því að vera íslenskt sendi-
ráð. Það þarf ekki að kvarta undan
verkefnaskorti hér og það hefur ver-
ið af nógu að taka.“
Ekki undan
neinu að kvarta
Fiskveiðideilur íslands og Noregs
hafa mætt mikið á sendiherra ís-
lands og mál á borð við Sigurðar-
málið í sumar, Hágangs- og Björg-
úlfsmál hafa öll komið til kasta
sendiráðsins. Eiður segist þó ekki
hafa undan norskum stjórnvöldum
að kvarta í þeim málum.
„Samskiptin hafa verið ágæt í
sjálfu sér. Menn hafa auðvitað hald-
ið sinum málum fram af festu á
báða hóga en þetta hefur verið allt á
nótum kurteisinnar. Það mæðir
auðvitað á sendiherra jafnt sem öðr-
um starfsmönnum sendiráðsins þeg-
ar einhverjar snurður hlaupa á
þráðinn. Þá þarf maður að vera vak-
inn og sofinn yfir þessu," segir Eið-
ur Guðnason sendiherra.
-rt
Opið alla daga til 21
jydHi