Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Page 14
14 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 J3"V Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn. skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11, 105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblaö 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Lffrænn sýndarveruleiki Bændasamtökin hafa komið sér upp nýrri vottunar- stofu fyrir lífrænt ræktaðar afurðir til þess að koma fleiri bændum gegnum nálaraugað. Kröfur hinnar nýju vottunarstofu eru minni en annarra og byggjast ein- göngu á stuttri reglugerð frá ráðuneytinu. Áður var vottað hér á landi í samræmi við fjölþjóðlega staðla, sem bændasamtökunum þótti of strangir. Þess vegna gældu þau lengi við þá hugmynd að búa til nýtt hugtak, svonefndan vistvænan landbúnað, sem sparaði mönnum að gera miklar búskaparbreytingar. Mikið grín er búið að gera að hugmyndum ímyndar- fræðinga Bændasamtakanna um að búa til nýtt og séríslenzkt hugtak vistvæns landbúnaðar og reyna að selja venjulega búvöru á hliðstæðu yfirverði og lífrænt ræktaðar landbúnaðarafurðir hafa aflað sér. Bændasamtökin fengu kvartmilljarðs króna styrk frá skattgreiðendum til að reyna að búa til sjónhverfingu vistvæns landbúnaðar. Þetta virðist ekki hafa tekizt nógu vel, því að samtökin eru nú aftur farin að tala um lífrænt ræktaðar fremur en vistvænar afurðir. Nú hefur verið ákveðið að leysa málið með því að búa til sérstakar og auðveldar reglur um lífræna ræktun fyr- ir ísland og skófla á þann hátt umtalsverðum hluta land- búnaðarins inn undir hugtak lífrænnar ræktunar. Reiknað er með, að neytendur láti blekkjast. Búast má við, að margir bændur fari auðveldu leiðina í von um að fá verðmætisaukann, sem reynslan sýnir, að fylgir vottun um lífræna ræktun. Þess vegna mun nýja vottunin fara sigurför um landbúnaðinn, en gamla vott- unin áfram verða vettvangur sérvitringa. Þetta skiptir að því leyti litlu, að ekki er ætlazt til, að útlendingar taki mark á nýju vottuninni. íslenzk búvara er ekki samkeppnishæf í útlöndum og þarf því ekki stimpla, sem útlendingar taka mark á. Það er nóg, að ís- lenzkir neytendur samþykki ódýru lausnina. Bóndinn getur valið um að fara eftir nákvæmum regl- um, sem taldar eru upp á meira en himdrað síðum eða fara eftir einfóldum reglum, sem rúmast fyrir í nokk- urra blaðsíðna reglugerð ráðuneytisins. Ekki þarf að spyrja að niðurstöðum í því vali, ef áhugann skortir. Verkaskiptingin verður því sú, að bændur, sem vilja af hagkvæmnisástæðum skreyta sig með fjöðrum líf- rænnar ræktunar, fara þægilegu leiðina, en hinir, sem fara út í lífræna ræktun af hugmyndafræðilegum ástæð- um, fara þá leið, sem alþjóðlega er viðurkennd. Vegna komu landbúnaðarkerfisins að málinu má strika yfir drauma sumra bænda um að koma vöru sinni á erlendan markað á forsendum sérstöðu íslands sem hreins og ómengaðs lands. Það má nefnilega alltaf búast við, að upp komist um strákinn Tuma. Þegar kemur í ljós, að íslendingar eru að reyna að koma vörum inn á útlendinga á fölskum forsendum, verður svarið hart. Miklu líklegra er, að værukærir neytendur á íslandi sætti sig við útþynnta útgáfu af líf- rænni ræktun. Þeir verða fórnardýr nýja kerfisins. Neytendur munu sjálfsagt bregðast við á misjafnan hátt eftir þeirri áherzlu, sem þeir leggja hver fyrir sig á lífræna ræktun. Sumir munu kjósa ódýrari vöru,. sem lítið hefur verið fyrir haft, og aðrir munu kjósa dýrari vöru, sem mikið hefur verið fyrir haft. Þegar mismunandi reglur um vottun eru samhliða í gangi, er mikilvægt fyrir neytendur að átta sig á, hvort veruleiki eða sýndarveruleiki er að baki stimpilsins. Jónas Kristjánsson Jafnaðarmenn verða fyrir áfalli í Hamborg Um síðustu helgi urðu þýskir jafnaðarmenn fyrir miklu áfalli í kosningum í Hamborg. Voru úr- slitin hin verstu fyrir flokk þeirra, SPD, frá því að fyrst var kosið til borgarstjómar þar eftir síðari heimsstyrjöldina, árið 1946. Fylgi SPD minnkaði um 4,2% í 36,2% en kjósendur hópuðust til helsta keppinautarins, kristilegra demókrata, CDU, sem fékk 30,7% fylgi og bætti stöðu sína um 5,6%. Sigurinn var kærkominn fyrir Helmut Kohl, kanslara og leiðtoga kristilegra demókrata, sem hefur átt undir högg að sækja. Afsögn borgarstjórans Þegar úrslitin lágu fyrir að kvöldi sunnudagsins 21. septem- ber tilkynnti Henning Voscherau, sem gegnt hefur embætti borgar- stjóra í níu ár, tafarlausa afsögn sína og sagðist ekki mundu taka frekari þátt i stjórn borgarinnar. Hafði hann í kosningabaráttunni beitt svipaðri aðferð og jafnaðar- maðurinn Thorbjörn Jagland í Noregi. Báðir hótuðu þeir afsögn, ef þeir fengju ekki sama eða meira fylgi og flokkar þeirra höfðu í næstu kosningum á undan. í hvor- ugu tilvikinu náðist markið. Sýndu úrslitin í Hamborg, að bylgja jafnaðarmennskunnar er síður en svo óstöðvandi í Evrópu. Þýskir jafnaðarmenn hafa ekki haft burði til að knésetja Helmut Kohl og samsteypustjórn hans með frjálsum demókrötum, sem setið hefur við völd síðan 1. októ- ber 1982. Hefur hann síðan sigrað í sambandskosningum 1983, 1987, 1991 og 1994. Fyrir síðustu kosn- ingar gaf Kohl til kynna, að hann yrði ekki í framboði í þingkosn- ingunum 1998. Hann hefur fyrir nokkru skipt um skoðun og telur nú úrslitin í Hamborg til marks Erlend tíðindi Björn Bjarnason um velgengni flokks síns á næsta ári þvert á spár þeirra, sem rýna í þróun stjómmála og telja sig hlut- lausa. Samsteypustjórn í Hamborg eiga þrír flokkar fulltrúa í borgarstjóminni. Fyrir utan stóru flokkana tvo náðu græningjar einnig að fá menn kjörna. Aðrir smáflokkar, meðal annars flokksbrotið, sem jafnaðar- menn unnu með á síðasta kjör- tímabUi, náðu ekki að komast yfir 5% markið og þar með menn í borgarstjómina. Um tima á sunnudag var talið, að öfgafuUur hægriflokkur næði 5% markinu, hópaðist þá fólk saman tfl mót- mæla og hafði lögreglan mikinn viðbúnað til að koma í veg fyrir átök. Þegar öU atkvæði höfðu ver- ið talin fékk þessi flokkur hins vegar 4,9% atkvæða og engan mann. Líklegt er, að SPD og græningj- ar taki höndum saman um stjórn Hamborgar. Kohl kanslari hefur hins vegar hvatt tfl samvinnu stóru flokkanna tveggja. Vandræði jafnaðar- manna Staðan í þýskum stjómmálum er flókin. Nokkurrar þreytu gætir í stjómarsamstarfinu. Innan flokks Kohls em ekki aUir á sama máli um áherslu hans á, að evr- ópska myntsambandið komi til sögunnar 1999, þótt líkur á því aukist frekar en hitt. Frjálsir demókratar standa höUum fæti. Þrátt fyrir vanda stjómarflokk- anna hefur jafnaðarmönnum ekki tekist að skapa trúverðuga stjóm- arandstöðu. Flokkur þeirra er kloflnn, að minnsta kosti í tvær fylkingar, sem lúta annars vegar forystu Oskars Lafontaines, hins formlega flokksleiðtoga, og hins vegar Gerhards Schröders, en kannanir sýna miklar vinsældir hans í keppni um kanslaraemb- ættið við Kohl. í valdabaráttunni innan jafnað- armannaflokksins hefur ósigur- inn í Hamborg fremur verið tal- inn veikja Schröder, því að kosn- ingabaráttan var meira háð undir merkjum hans en Lafontaines. Er Schröder líkt við jafnaðarmann- inn Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, en Lafontaine við Lion- el Jospin forsætisráðherra Frakk- lands. TU dæmis þykja kosning- arnar í Hamborg sýna, að áhersla á lög og rétt og ráðstafnir til að stemma stigu við glæpum höfði ekki mikið tU kjósenda jafnaðar- manna. Henning Voscherau, sem gegnt hefur embætti borgarstjóra í Hamborg síðastliðin níu ár, sagði strax starfi sínu lausu þegar úrslit kosninganna lágu fyrir. skoðanir annarra Að losna við leiðtoga „Kröfumar um að reka leiðtoga Hægriflokksins vegna slæms gengis í kosningunum hafa aftur kom- 1 ið fram, rétt eins og í hvert einasta skipti sem ji Hægriflokkinum hefúr gengið verr en búist var viö í kosningum síðastliðin 14 ár. AUir hafa þó séð að | ekkert hefur skaðað Hægriflokkinn meira en tíð 1 leiðtogaskipti. Það er engin tilviljun að þeir tveir | stjórnmálamenn sem nutu mests trausts í kosning- um, Kjell Magne Bondevik og Carl I. Hagen, hafa verið i forystu flokka sinna í meira en tuttugu ár. Jan Petersen hefur þar að auki ekki gert neitt ann- að en að fylgja ákvörðunum landsfundar Hægi'i- flokksins." Úr forystugrein Várt Land 23. september. Deilt um grundvallaratriðin „DeUurnar bæði á Norður-írlandi og í Mið-Aust- urlöndum snúast um þjóðerni og trú, mál sem ■ ■ • : miklu erflðara er að semja um en deUur um stjóm- mál, hugmyndafræði eða völd. Stjómmál snúast um málamiðlanir en það er erflðara viðureignar þegar sjálfsvitund þjóða er í húfi. Þegar tveir hóp- ar lýsa yfir sögulegum rétti tU yfirráða yfir sama landi, er erfitt aö finna mUliveginn. En það er ekki alltaf útUokað.“ Úr forystugrein New York Times 25. sept. Eilífðarválin Kohl „Fylkiskosningarnar i Hamborg á sunnudag minntu áþreifanlega á það að aUt of margir hafa aflt of lengi verið uppteknir við að afskrifa Helmut Kohl sem kanslara eftir þingkosningarnar á næsta ári. Jafnaðarmenn fengu hroðalegustu útreið sína frá styrjaldarlokum í þessu höfuðvígi. Leiðtogi þeirra, hinn virti og dáði Henning Voscherau, sá enga aðra lausn en að segja af sér. KristUegir demókratar Kohls juku hins vegar fylgi sitt.“ Úr forystugrein Jyllands-Posten 23. september. I I I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.