Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Page 28
28 helgarviðtalið
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
„Pétur Guðfinnsson útvarpsstjóri
hringdi í mig á milli klukkan tiu og
ellefu á miðvikudagsmorgun og bað
mig að hitta sig. Hann orðaði það
svo að við þyrftum að eiga saman
eilítið spjall. Ég var allan tímann
undir það búinn að hann segði mér
að Elín Hirst hefði fengið starfið. Ef
ég hefði átt að veðja allt fram undir
það síðasta þá hefði ég veðjað á
hana,“ sagði Helgi H. Jónsson, ný-
ráðinn fréttastjóri Sjónvarpsins,
þegar DV hitti hann aö máli á skrif-
■stofu fréttastjóra í vikunni.
Helgi hafði í nógu að snúast þeg-
ar blaðamann bar að garði. Útvarps-
stjórinn var sjálfur mættur og alls
staðar í þrengslunum var verið að
klippa, ljósrita, taka upp og skrifa
fréttir. Ókunnugum hraus hugur
við þrengslunum á hæðinni en þau
eru slík að jafnvel út úr því sem
virtist minnsti kústaskápur mátti
búast við manneskju með mynd-
bandsspólur eða pappíra undir
hendinni.
Óvanur stólnum
Skrifstofa fréttastjóra mun vera
eina eiginlega skrifstofan á frétta-
stofunni og þar fara fundir frétta-
manna fram. Undirritaður tyllti sér
á stól við skrifborðið gegnt frétta-
stjórastólnum og athygli vakti að
Helgi settist heldur við hlið blaða-
manns en í stjórastólinn sjálfan.
Hugsanlega hefur þetta verið stóll-
inn hans síðustu tólf árin og hann
því ekki alveg verið farinn að venj-
ast því að sitja hinum megin borðs-
ins.
Helgi játar að hann hafi verið
ákveðinn að sækja um allt frá því
að Bogi ákvað að fara. Hann segist
hafa verið starfsmaður Ríkisút-
varpsins, á fréttastofum útvarps og
sjónvarps, við innlendar og erlend-
ar fréttir, í um 20 ár, þar af um 12 ár
á Sjónvarpinu, lengst af sem vara-
fréttastjóri. Hann sótti líka um
starfið þegar Ingvi Hrafn hætti,
fékk þá ekki en hefur verið þess
fullviss að hann ætti fullt erindi í
það.
Óbeint játar Helgi því aðspurður
hvort það hafi verið vegna pólitík-
urinnar sem hann var þess fullviss
að Elín yrði ráðin. Hann segist hafa
verið viss um að hún fengi að
minnsta kosti þrjú atkvæði sjálf-
stæðismanna og síðan hugsanlega
eitt til viðbótar. Hefði svo farið
hefði útvarpsstjóri varla getað geng-
ið fram hjá henni.
Ekki flokkskandídatar
„Ég vil helst sem minnstan þátt
taka í þessari pólitísku umræðu.
Mér hefur fundist einkennilegt
hvemig við höfum verið dregin í
pólitiska dilka, hún í sjáifstæðis-
dilk, ég í framsóknardilk. Ég þekki
Elínu ekki neitt og minnist þess
ekki að hafa rætt við hana en ég
held þó að mér sé óhætt að mæla
fyrir munn okkar beggja og segja að
hvorugt okkar líti á sig sem
flokkskandídat. Við erum
atvinnufólk í greininni og
sóttum um þetta starf sem
við teljum okkur ráða
við.“
Helgi vill undirstrika
að hann er óflokksbund-
inn. Hvort hann, eða ein-
hver annar á fréttastof-
unni, hafi síðan ein
hverjar tilteknar skoð-
anir á einu eða öðra
finnst honum engum
koma við, að því gefnu
vitaskuld að þess sjáist
engin merki í starfinu.
„Ég fullyrði að
þannig er það. Af-
raksturinn af starfi
okkar er lagður fram
fyrir alþjóð til skoð-
unar á hverju einasta
kvöldi og það er al-
veg öruggt að við
höfum ekkert að
fela.“
Undirritaður vill
ekki losa Helga al-
veg strax við fram-
sóknarstimpilinn,
þair sem hann var
jú eitt sinn í fram-
boði fyrir flokk-
inn, og spyr því
hvort kona hans,
Helga Jónsdóttir
borgarritari, sé
ekki framsóknarmaður og í starfi
fyrir R-listann í borginni. Hvort það
setji hann ekki í óþægilega stöðu?
„Ég hef satt að segja ekki hug-
mynd um hvort hún er flokksbund-
in. Hún er embættismaður og hefur
því engra hagsmuna að gæta fyrir
Reykjavíkurlistann, nú eða Sjálf-
stæðisflokkinn." Það sé því af og frá
að hann sjálfur kunni að verða fyr-
ir einhverjum þrýstingi, frá vinstri
eða hægri, þegar nær dragi kosning-
um í borginni.
Eðlilegra að hætta
„Við tökum á öllum málum og
ekkert síður málum sem snerta
þessa stofnun. Við leggjum hlut-
laust fréttamat á allt. Við erum
þjónar almennings og
eigum að
Sem kunnugt er hefur Helgi að-
eins verið ráðinn til þess að gegna
starfi fréttastjóra meðan Bogi
Ágústsson er í leyfi í 16 mánuði.
Hann segir það orka tvímælis að
menn fái leyfi í svo langan tíma.
Miklu nær væri fyrir þá að hætta.
Mér finnst eðlilegra að menn geri
upp við sig hvort þeir vilji fara eða
vera. Það hefði gert ýmislegt
auðveldara hér ef Bogi
hefði ákveðið
enda og eftir að ljóst var hverjir um-
sækjendurnir væru barst út sá
kvittur að Helgi hefði ekki stuðning
innan fréttastofunnar. Hvað segir
hann um það?
Helgi Hörður Jónsson verður fréttastjóri rikissjónvarpsins a.m.k. næstu 15 mánuðina. Honum hefði fundist eðlilegra að Bogi hefði hreinlega I
hluti auðveldari á fréttastofunni og létt af nokkurri óvissu um framtíðina.
þjóna honum eins heiðarlega og vel
og við geturn," segir Helgi, greini-
lega orðinn þreyttur á þessu þvargi
um póli-tíska hagsmuni. Það eigi
bara ekki við þegar verið sé að tala
um fréttastofuna.
Hér gæti nýi fréttastjórinn verið að leggja Þór Jakobssyni veöurfræðingi línurnar um hvernig hann vildi hafa veður-
spána fyrir morgundaginn. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður og Vilhjálmur Þór Guðmundsson myndatöku-
maður viröast ánægð með niöurstöðu þeirra félaga.
hætta. Nú eru fimmtán mánuðir eft-
ir af ráðningartíma mínum og ég
hef ekki hugmynd um hvað tekur
við þegar honum lýkur. Það má
vera að Bogi komi aftur en geri
hann það ekki verður staðan aug-
lýst að nýju.“
Forneskjulegt
Helgi segir að önnur hlið þessa
máls sé sú staðreynd að þegar aug-
lýst er eftir mönnum í svo stuttan
tíma berist án efa færri umsóknir
en ella. Menn i þokkalegum stöðum
úti í bæ fari varla að sleppa þeim
fyrir 16 mánaða vinnu þar sem
framhaldið er alveg óvíst.
„Þar fyrir utan finnst mér fyrir-
komulagið í sambandi við þessar
umsagnir útvarpsráðs allt nokkuð
fomeskjulegt. Mér er sagt að ráðið
fái ekki að sjá þessi stöðluðu um-
sóknareyðublöð heldur aðeins fjór-
ar eða fimm línur um hvern og
einn. Mér hefði fundist eðlilegra og
nútímalegra að umsækjendurnir
hefðu verið kallaðir í viðtal þar sem
þeir gerðu grein fyrir umsókninni
og hvað þeir hugsuðu sér i sam-
bandi við starfið. Menn geta haft
ólíkar skoðanir á því hvort útvarps-
ráð á yfir höfuð að fjalla um þetta
en á meðan lögin kveða á um að
þannig eigi það að vera verða menn
að reyna að gera þetta af einhverri
alvöru."
Fimm starfsmenn fréttastofu
Sjónvarpsins voru meðal umsækj-
Studdur á fréttastofunni
„Ég held að það sé ekki rétt. Þetta
fólk héðan sem sótti um hefur án
efa allt átt sína stuðningsmenn í
starfið. Ég hef unnið með því mis-
lengi, sumu mjög lengi, og ég hef
ekki fundið annað en að fólkið hér
styðji mig. Það stefndi fljótt í að val-
ið myndi standa á milli mín og Elín-
ar Hirst og eftir að það varð ljóst
fullyrði ég að ég hafi haft eindreg-
inn stuðning manna hér innan-
húss.“
Aðspurður hvað hann hefði gert
ef einhver hinna hefði fengið starfið
segist Helgi í fullri hreinskilni ekki
sjá ástæðu til þess að ætla annað en
hann hefði haldið áfram að starfa á
fréttastofunni.
„Ég hefði örugglega orðið sár en
er jafnframt viss um að ég hefði get-
að unnið undir stjórn Elínar Hirst
eða hvers þess annars sem hefði get-
að fengið starfið. Það er kannski
auðvelt að segja þetta nú, úr því að
ég var ráðinn, en ég ætla að ég hefði
verið meðal fyrstu manna tU þess
að bjóða viðkomandi velkominn til
starfsins. Hollusta mín við stofnun-
ina er meiri en svo að ég hefði get-
að hætt rétt sísvona," segir Helgi.
Hann segist hafa unnið á frétta-
stofunni í öll þessi ár vegna þess að
hann vilji það sjálfur, ekki það að
hann hafi ekki getað farið eitthvað
annað. Hann segir hana hafa miklu
og merkilegu hlutverki að gegna og