Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1997, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMÉER 1997
J
Fréttir
DV
Punktasöfnun veldur hækkun flugfargjalda innanlands:
Fargjaldahækkun
um þúsundir kröna
- íslandsflug hyggur á inngöngu í Vildarklúbb
Fargjaldahækkun um þúsundir króna verður tilkynnt á næstu vikum. ís-
landsflug hyggur á aðild að Vildarklúbbi Flugleiða þannig að farþegar
þeirra geti safnað punktum. Hækkun félagsins er m.a. til þess að mæta
þeim kostnaði sem fylgir aðildinni. DV-mynd
Fargjöld innanlands munu sam-
kvæmt heimildum DV hækka á
næstu vikum. íslandsflug er nú í
viðræðum við Vildarklúbb Flug-
leiða um aðild að klúbbnum og þeg-
ar og ef gengur saman með aðilum
mun verða tilkynnt um fargjalda-
hækkun félagsins. Þannig er líklegt
að lægstu fargjöld verði ekki undir
8000 krónum, fram og til baka á
áfangastaði á landsbyggðinni.
Hækkunin er talin óumflýjanleg til
að standa straum af þeim kostnaði
sem fylgir punktunum.
Ástæður þess að félagið hyggst
gripa til þess að bjóða vildarpunkta
til farþega sinna er sú að punkta-
veiðar flugfarþega eru m.a. taldar
hafa orðið til þess að félagið hefur
ekki náð þeirri markaðshlutdeild
sem það ætlaði sér þegar það reið á
vaðið með lækkun fargjalda sl. sum-
ar. Fyrir marga farþega hafa punkt-
amir vegið þyngra en fargjöld á
spottprís. Þannig hefur fólk í ein-
hverjum tiifellum flogið með Flugfé-
lagi íslands án þess að farmiðaverð
virtist skipta þar máli. Dæmi eru
um að fólk sem fer á kostnað þriðja
aðila velji hærri fargjöld og fái þar
með helmingi fleiri punkta. Eins og
DV hefur skýrt frá á almenningur
þess varla kost að safna punktum
með þeim árangri að þeir nái bónu-
svinningum. Ef tekið er dæmi af
einstaklingi sem tvisvar á ári ferð-
ast innanlands á afsláttarfargjaldi
þá blasir við að hann nær inneign
sem nemur 2 þúsund punktum á
ári. Þetta eru punktar sem ekki gefa
verðlaun og falla þar með dauðir.
Tálsýn?
Nótt á Flugleiðahóteli sem kost-
ar 10 þúsund punkta, bílaleigubíll
frá Herz á 20 þúsund punkta og
ferð innanlands á 12 þúsund
punkta reynast þá aðeins vera tál-
sýn ein svo ekki sé minnst á utan-
landsferð sem efst er á óskalista
punktaveiðaranna. Tveggja ferða
maðurinn hefur því ekkert upp
úr krafsinu og situr uppi eftir
fjögur ár með ónýta punkta og
mínus sem nemur 16 þúsundum
króna.
Talsmenn íslandsflugs vildu í
samtali við DV ekki staðfesta að
þessi hækkun væri ákveðin. Þeir
vísuðu til fyrri yfirlýsinga um að
hækkun væri yfirvofandi en vildu
að öðru leyti ekki tjá sig um mál-
ið.
Thor Ólafsson, markaðsstjóri
Flugfélags íslands, sagði við DV
að flugfélagið myndi ekki hækka
sitt verð fram að áramótum. „Við
tilkynntum í haust að þetta verð
okkar í innanlandsflugi yrði til
áramóta og við munum standa við
það hvað sem gerist. Þetta verð
sem hefur verið frá 1. júlí er þó
ekki komið til að vera. Það er ein-
faldlega of lágt til að tvö flugfélög
geti flogið á sömu áagtlunum á
þeim. Við munum éndurskoða
þetta verð okkar eftir áramót en
ekki fyrr,“ sagði Thor.
Punktaveiðar
Verðlaun Vildarklúbbsins
- ferðir eru reiknaðar báðar leiðir -
Almonn fargjöld Saga Class
Bandarikln/Kanada: 50.000 punktar 100.000 punktar
Evrópa: 36.000 punktar 72.000 punktar
Innanlands, aðra lelð: 12.000 punktar
Nótt á Ruglelðahótoll: 10.000 punktar
Bílalolgubíll Hertz, flokkur A, I 3 daga: 20.000 punktar
Innanlandsflug
2.000 pt
HX5P
Hraðamyndavélar:
Öruggt sönnunar-
gagn lögreglu
Margslungið bókmenntaverk
sést greinilega andlit ökumanna og
skráningarnúmer bifreiða en það
hefur verið strikað yfir það hér.
Myndir sem þessar eru því öruggt
sönnunargagn lögreglu. Hraða-
myndavélamar eru notaðar af lög-
reglu um allt land og ökumenn geta
því verið myndaðir hvar sem er á
landinu. Myndin er birt með góðfús-
legu leyfi dómsmálaráðuneytis og
lögreglu. -RR
Bókmenntaverðlaun Halldórs Lax-
ness vorú veitt í annað sinn i gær.
Þau hlaut að þessu sinni Eyvindur
Pétur Eiriksson, íslenskufræðingur
og rithöfundur, fyrir skáldsöguna
Landið handan fjarskans. Fyrir þaö
hlýtur hann 500.000 krónur auk
venjulegra ritlauna. Eyvindur hefur
áður sent frá sér ljóð, skáldsögur og
bamabækur.
.Saga Eyvindar var valin úr tæp-
lega 30 handritum sem voru send
forlaginu undir dulnefni. í dóm-
nefnd sátu Pétur Már Ólafsson, bók-
menntafræðingur og útgáfustjóri
hjá Vöku- Helgafelli, Ástráður Ey-
steinsson prófessor og Valgerður
Benediktsdóttir bókmenntafræðing-
ur. Sagði Pétur Már i ræðu sinni að
ekki þyrfti að óttast einsleitni í ís-
lenskum bókmenntum í framtíð-
inni, svo margvísleg hefðu verkin
verið sem úr var að velja. Hann
sagði að verðlaunasagan væri áleit-
in og áhrifamikil skáldsaga og eink-
ar margslungið bókmenntaverk.
„Já, ég er óneitanlega glaður og
stoltur," sagði Eyvindur Pétur.
„Mér á ekki eftir að hlotnast meiri
Eyvindur Pétur Eiríksson tekur við Bókmenntaverðlaunum Halldórs Lax-
ness úr hendi Ólafs Ragnarssonar útgefanda. DV-mynd Hilmar Þór
heiður en þessi.“ Nú um stundir
sagði hann að væra rituð mikil
verk um fólk sem fór vestur um haf
en söguhetja hans væri maður sem
sækti til íslands til að finna þar frið.
Eyvindur er frá Skjaldarbjamarvík
á Ströndum og sagðist sjálfur hafa
hrakist að heiman; en einmitt þar
væri landið handan fjarskans.
Skáldsaga Eyvindar kom út í gær
hjá Vöku-Helgafelli og er mikið
verk, 399 blaðsíður. -SA
123 km/h R DIR h min s DAT. CODE FOTO LIN070TPX
123 2 U 12:05:11 05.11.97 041 9017 002 RADAR
Hér til hliðar má sjá fyrstu
myndina sem birt er opinberlega úr
nýjum hraðamyndavélum lögregl-
unnar. Ökumaðurinn var myndað-
ur á 123 km hraða skammt frá Sel-
fossi og má búast við háum fjársekt-
um fyrir brot sitt. Á myndunum
Sprengjudrunur
DV, Akureyri:
„Við gáfum leyfi fyrir því að
þama yrði skotið upp flugeldum,"
segir Daníel Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri, en við
Múlasíðu þar í bæ var í fyrra-
kvöld haldin mikil flugeldasýning
í miðju íbúðahverfi auk þess sem
geysiöflugar sprengjur vora
sprengdar.
„Við vissum ekki hvaö um var
aö vera. Lætin byijuðu á ellefta
tímanum og þetta vora geysilegar
sprengingar. Þama var ekki
aðeins um það að ræða að verið
væri að skjóta upp flugeldum.
Gluggar í húsunum allt í kring
nötraðu og titraðu. Krakkar sem
vora famir að sofa vöknuðu upp
með andfælum. Ég hreinlega skil
ekkert í því að lögreglan skuli
gefa leyfi fyrir svona uppákomu,"
segir kona sem býr við Múlasíðu.
Konan sem ekki vildi láta nalns
síns getið sagði að þama væri ver-
ið að gefa fordæmi fyrir slíkum
uppákomum því það væri auðvit-
að erfitt að veita einum leyfi fyrir
svona látum en banna öðram.
Hún sagði að íbúar við Múlasíðu
hefðu rætt um það að halda fúnd
vegna þessa máls og mótmæla
formlega við yfirvöld. -gk
Stuttar fréttir
Betri afkoma
Afkoma ríkissjóðs vár hálfúm
milljarði betri á fýrstu 9 mánuðum
ársins en gert hafði verið ráð fyrir.
Skattatekjur ríkisins hafa aukist
verulega.
Fyrirsláttur
Tómas Ingi Olrich stjómarþing-
maður telur að stjómarfrumvarp
um 8% hámarkseign á kvóta sé fyr-
irsláttur.
Laxnessverðlaun
Bókmenntaverðlaun Halldórs
Laxness vora veitt í annað sinn í
gær. Þau hlaut Eyvindur P. Eiríks-
son rithöfúndur.
Betri tekjur
Dagur segir að úr óbirtum bú-
reikningum megi lesa 7-8% af-
komubata hjá sauðfjárbændum.
Sölvi Leví fundinn
Sölvi Leví Pétursson, sem björg-
unarsveitir hafa leitað að undan-
fama daga, birtist óvænt heima
hjá systur sinni í Hafnarfirði í
gærkvöldi heill á húfi.
Röng landhelgislína
Skipstjóri, sem ákærður er fyrir
veiðar innan við þriggja mílna
mörk frá fjöruborði, segir að land-
brot hafi fært landhelgislínuna inn-
ar en hún er samkvæmt sjókortum.
Morgunblaðið segir frá þesu.
Of dýr húshitun
Vamarliðið á Keflavíkurflug-
velli krefst lægra verðs fyrir heita
vatnið frá Hitaveitu Suðumesja.
Vamarliðið vill ekki lengur greiða
tvöfalt hærra verð fyrir hitann en
Suðumesjamenn þurfa að greiða.
Morgunblaðið sagði frá.
Kynjaskipting
Stöð 2 segir að til greina komi að
skipta í grunnskólabekki eftir
kynjum til að mæta mismunandi
þörfum kynjanna. Þingsályktunar-
tilaga um málið er á leiðinni.
-SÁ