Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 8
8 sæjkerjnn
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Létt og gott á aðventu
- aðalráttur og ís á eftir frá Snörunum
„Okkur þykir rétt að bjóöa upp á
léttan matseðil nú fyrir jólin. Við
erum sjálfar á fullu að kynna nýju
plötuna, Eitt augnablik, og því þurf-
um við hollan og næringarríkan
mat. Upp á slíkt viljum við bjóða en
að sjálfsögðu með sælkeraívafi því
við erum miklir sælkerar,“ segja
Snörumar, Eva Ásrún Albertsdótt-
ir, Ema Þórarinsdóttir og Helga
Möller.
Litskrúðugt pasta
6 bollar litaðar pastaskrúfur
2 dósir túnfískur í vatni
500 g rækjur eða 300 g humar
sellerí eftir smekk
blaðlaukur eftir smekk, notið bæði
framan og aftan af blaðlauknum
1 lítil dós ananaskurl (ekki safinn)
1 lítil græn paprika
1 litil gul paprika
1 lítil rauð paprika
2 hvítlauksrif, pressuð
3 tsk. sítrónusafi
100 g smátt niðurskorið hjúpsúkk-
ulaði
Aðferð
Aðferð
Sása
1 litil dós léttmajones
V2 dl Virgin ólífuolía
1 tsk. salt
2 tsk. karrí (sterkt)
1 msk. hunang
Pastaskrúfurnar soðnar sam-
kvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Ef notaður er humar er hann steikt-
ur á pönnu og tekinn úr skel-
inni. Grænmetið er skorið í
strimla og öllu blandað
saman í skál. Sósan er lög-
uð og henni hellt yfir. Öllu
blandað vel saman. Skreytt
með svörtum og grænum
ólífum og fersk steinselja
klippt yfir. Gott er að búa sós
una til daginn áður.
Sælkeraís
6 eggjarauður
6 msk. flórsykur
1 msk. skyndi-
kaffi (duft) (in-
stant)
tæpur dl af
Amaretto-líkjör
ý2 lítri stífþeyttur
rjómi
100 g grófhakkað-
ar valhnetur
Eggjarauðurnar eru hrærðar
mjög vel með flórsykrinum. Kaffi-
duftið er leyst upp með líkjör og
eggjamassann, hrært vel. Rjóminn
er stífþeyttur, hnetunum og
súkkulaðinu blandað í rjómann og
honum síðan blandað varlega sam-
an við eggjáhræruna (í höndunum
eða með handþeytara). ísblandan er
sett í klemmutertuform og skreytt
með hnetum og
rifnu súkkulaði.
Skemmtilegt er
að rífa
súkkulaðið með
ostaskera. Fryst-
ið.
Snörurnar bjóöa upp á pastarétt og síöan ís á eftir.
DV-mynd
matgæðingur vikunnar
eftirréttur
Helgarblaðinu barst
gimilegur eftirréttir frá
Hassan Jamil Chahla, yf-
irmatreiöslumanni á Jón-
atan Livingston mávi. Um
er að ræða franska jóla-
köku, köku sem tilvalin er
fyrir þá sem vilja prófa
eitthvað nýtt fyrir jólin.
Anna Bragadáttir er matgæðingur vikunnar:
Býður upp á fisk í súrsætri sósu
Frönsk jálakaka
i (eftirréttur)
: 6 egg
200 g sykur
1 msk. vanilludropar
; 1 msk. ólífuolía
1 b. mjólk
200 g hveiti
1 msk. lyftiduft
750 g rúsínur
Þeytið saman egg og
sykur þar til þaö er orðið
að froðu. Bætið hveitinu
og lyftiduftinu út í og á
meðan hrært er er mjólk-
inni, ólífuolíunni og van-
illudropunum bætt var-
lega út í. Loks er rúsínun-
um blandað saman við
deigið þar til þær hafa
samlagast því vel. Bakið í
skúffukökuformi í miðjum
ofni við 195 gráða hita í 10
1 mín.
Kælið botninn lítillega
og setjið hann síðan á ál-
pappír. Smyrjið hann með
aprikósumarmelaði og
rúllið honum upp í
rúllutertu. Setjið kremið
! (sjá neðar) ofan á
rúllutertima og skreytið
með kókosmjöli og rifnu
súkkulaði.
„Þetta er mjög fljótlegur og góður
réttur. Ég ákvað að velja fiskrétt þar
sem jólin eru á næsta leiti. Þá eru all-
ir að borða svo mikið af þungum
mat,“ segir Anna Bragadóttir, mat-
gæðingur dagsins. Hún býður lesend-
um DV upp á ýsu í súrsætri sósu. Upp-
skriftin fer hér á eftir:
300 g ýsuflök
100 g rækjur
1 stór rauðlaukur
1 lítil græn paprika
1 lítil rauð paprika
100 g sveppir
1 krukka Uncle Ben’s súrsæt sósa
Aðferð
Kryddið hveiti eftir smekk, veltið
fiskstykkjunum og rækjunni upp úr
hveitinu og steikið
á pönnu, u.þ.b. 6 mín. á
hvorri hliö. Takiö fisk-
inn af aftur og steikið
grænmetið. Helliö
einni krukku af
sósu yfir grænmet-
ið og raðið síðan
fiskstykkjunum
ofan á. Berið
fram með hrís-
grjónum og rist-
uðu hvítlauks-
brauði.
Anna skorar á
Nick Carthcat-Jo-
nes að vera mat-
gæðingur næstu
viku.
Önnu Bragadóttur finnst
viö hæfi aö bjóöa upp á
fiskrétt nú þegar jólin
eru á næsta leiti og all-
ir boröa mikiö af
þungum mat.
DV-mynd Hilmar Þór
Krem:
100 g smjör
200 g brætt,
súkkulaði
dökkt
• V21 ijómi
Mars-konditori
heldur áfram
Mars-konditori uppskriftasam-
keppnin heldur áfram i morgun-
þætti Bylgjunnar í samvinnu við
helgarblað DV. Jón Arilíusson
konditormeistari hefur valið verð-
launauppskrift síðustu viku en
það eru Mars-toppar frá Sigrúnu
Baldursdóttur:
3 eggjahvítur
V2 tsk. cream of tartar (má sleppa)
2 dl sykur
150 g Snickers eða Bounty
Stífþeytið eggjahvítur meö
cream of tartar. Bætið sykrinum
smátt og smátt út í. Gott er aö
setja súkkulaöiö smástund í frysti
áður en það er brytjað niður.
Súkkulaðið er síðan hrært saman
við. Búið til kúlur og sefjið á bök-
unarplötu. T.d. með teskeið. Bak-
ið við 125 C í u.þ.b. 25 mínútur.
Súkkulaöi:
1 Mars Kingsize (100 g)
% dl mjólk
Brætt saman yfir vatnsbaði.
Látið þykkna áður en það er sett
yfir kökumar. Best er að dýfa
kökunum í súkkulaðið eða hella
því bráðnu yfir toppana.
Síðasti skiladagur fyrir upp-
skriftarkeppnina er n.k. mánu-
dagur, 8. desember. Uppskriftim-
ar þurfa að innihalda a.m.k. eina
gerð af Mars- sælgæti. í hverjum
þætti velur Jón eina vinningsupp-
skrift. Sendist til:
Mars konditori uppskriftir
Pósthólf 10093
130 Reykjavík
í þættinum í dag mun Jón taka
fyrir eftirfarandi uppskriftir:
Mars-rúlluterta
Uppskriftin á að duga í 3
rúllutertur.
5egg
12,5 g sykur
75 g hveiti
75 g kartöflumjöl
5 g lyftiduft
50 g hakkaðar heslihnetur
50 g fint hakkað Galaxy (hreint)
Egg og sykur þeytt saman. Öllu
hinu blandað varlega saman við.
Sett á pappír á 3 plötur. Bakað við
220 C í 8-10 mínútur. Kælt.
í kremiö fara 11 rjómi og 400 g
Mars sem er brætt út i og hrært
saman, kælt yfir vatni. Þeytt upp
þar til stífnar og smurt á botnana.
Tertunni rúllað upp. Kælt og
skreytt að vild.
Snickers-hátíðarterta
Marengsbotn
3 eggjahvítur
150 g sykur
Stífþeytið eggjahvítiu- og sykur.
Teiknið síðan 2 hringi á smjör-
pappír og smyrjið eggjablöndunni
inn í hringina. Bakist við 150 C
þar til marengsinn er orðinn
þurr, ca 1 klst. Best er að láta
kólna yfir nótt.
Kökufylling
3 eggjarauður
3 msk. sykur
2 stk. Snickers
(2x65 g)
1/2 1 rjómi
Þeytið eggja-
rauður og sykur vel saman og
blandið út í helming af ijóman-
um. Bræðiö síðan Snickers í
vatnsbaði og blandiö varlega sam-
an við eggjablönduna. Setjið það
sem eftir er af ijómanum ofan á
annan marengsbotninn, þá helm-
ing af eggjablöndunni, síðan hinn
marengsbotninn og að lokum af-
ganginn af eggjablöndunni.