Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Blaðsíða 26
26
tglingar
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997 JLlV
Fullveldishátíð í Efstaleiti
Umsjónarmenn unglingaþáttar-
ins Hve glöó er vor œska, sem er á
dagskrá rásar 2 á mánudagskvöld-
um, þeir Arnaldur Máni Finnsson,
19 ára, og Andrés Jónsson, 20 ára,
efndu til fullveldishátíðar í kjallara
útvarpshússins í Efstaleiti að kveldi
1. desember sl. Við undirbúning
síðasta spölinn fengu þeir
nemendaráð 5. bekkjar MR til liðs
við sig. Hátt í 500 ungmenni mættu
á staðinn og skemmtu sér hið besta.
Bein útsending var frá upp-
ákomunni í þættinum.
Fullveldishátíðina nefndu þeir M-
ALLT, líkt og kynslóð þeirra hefur
verið kölluð.
„Við erum kynslóðin með allt.
Sundrungin sameinar okkur. Við
erum ekki hippar, bítl-ar eða
pönkarar. Við erum allt,“ sögðu
Arn-aldur Máni og Andrés í stuttu
spjalli við helgarblaðið. Þeir voru
býsna ánægðir með hvernig til
tókst, enda ku útvarpsráð hafa látið
i ljósi ánægju sína. Því er ekki loku
fyrir það skotið að hátíð sem þessi
verði haldin árlega - ef ekki oftar.
Gestir komu ekki að tómum
kjallaranum í Efstaleiti. Fjölmargir
listamenn tróðu upp, m.a. rapp-
sveitimar Subterranien og Quar-
ashi, kvintettinn Villtir svanir,
söngtríóið Utanbleikir, grínrapp-
hljómsveitin MITH (Mother
Fuckers in the House) og þrír
öflugir plötusnúðar. Einnig voru
kynnt úrslit í ljóða- og smá-
sagnasamkeppni sem fram hefur
farið í útvarpsþættinum í vetur.
Sigurvegari í smásagnakeppninni
var Guðrún Friðriks-dóttir af
Seltjamar-nesi og Ásgeir nokk-ur
frá Akureyri sendi inn bestu ljóð-in.
Þá voru tveir ungir rithöfundar
með kynningu á verkum sínum,
þeir Kristjón Kormákur og Mikael
Torfason. Gestum var siðan boðið
upp á harðfisk og malt, þjóðlegar
veitingar við hæfi á fullveldis-
daginn. Að skemmtun lokinni fengu
allir far heim með strætó. -bjb
Listaverkiö Graffiti varö til á
veggjum útvarpshússins á meöan
hátíðinni stóö. Gestir gátu lagt sitt
af mörkum og tekiö upp úðabrúsa.
Þessir ungu herramenn, Arnaldur Máni Finnsson og Andrés Jónsson, stóöu
fyrir uppákomunni í útvarpshúsinu. Framtakssamir menn og kynslóö sinni
til fyrirmyndar.
DV-mynd E.ÓI.
Vinkonurnar Elín Ósk Vilhjálmsdóttir og Auöur Sigbergsdóttir skemmtu sér
hiö besta í útvarpshúsinu. Hjá þeim sem öörum gestum ríkti fullveldisgleði,
svo mikil að útvarpsráö sá ástæöu til aö gefa uppákomunni bestu einkunn.
DV-mynd S
Meðal þeirra sem tróöu upp í kjallara útvarpshússins var söngtríóið
Utanbleikir. Einnig komu fram rappararnir Subterranian og Quarashi og
ýmsir fleiri fjölskrúöugir listamenn. DV-mynd S
Hátt í 500 ungmenni mættu í fullveldishátíöina M-ALLT sem stjórnendur
unglingaþáttarins Hve glöö er voræska stóöu fyrir í kjallara útvarpshússins
í Efstaleiti. DV-mynd S
hin hliðin
Eg er svo jákvæður
- segir Samúel Sveinsson, vinsælasti herrajsland
„Ég hef aldrei tekiö þátt í neinu
svona, hvorki keppni né sýningar-
störfum. Ég var beðinn að vera
með, sló til og sé alls ekki eftir þvi,“
segir Samúel Sveinsson sem kepp-
endurnir í Herra ísland völdu sjálf-
ir sem vinsælasta herrann. „Það
var mjög ánægjulegt að veröa fyrir
valinu,“ segir þessi vinsæli piltur í
samtali viö DV. Hann sýnir á sér
hina hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Samúel Sveinsson.
Fæðingardagur og ár: 26.11.
1972.
Maki: Agnes Björk Elfarsdóttir.
Böm: Engin enn þá.
Bifreið: Nissan Sunny 1992 og
Ford Cortina 1972.
Starf: Þjónn.
Laun: Ég er ekki ósáttur við
þau.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Ég spila stundum þeg-
ar ég man eftir því en vinn sjaldan
eöa aldrei.
Hvaö finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Þaö er svo margt, t.d.
vera á skíðum og svo finnst mér
gaman að vinna.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Ég er svo jákvæður mað-
ur. Mér finnst ekkert leiðinlegt.
Uppáhaldsmatur: Humarhalar.
Uppáhaldsdrykkur: Captain
Morgan í kók.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Maggi Ver er
flottur.
Uppáhaldstimarit: Séð og
heyrt.
Hver er fallegasta kona/karl
sem þú hefur séð (fyrir utan
maka)? Leikkonan Cameron Diaz
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjóminni? Ég hef lítiö fylgst
meö stjómmálunum upp á síökast-
ið.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Cameron Diaz.
Uppáhaldsleikari: Harrison
Ford.
Uppáhaldsleikkona: Ég held ég
verði aö segja pass.
Uppáhaldssöngvari: Fáir
söngvarar eru í uppáhaldi.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Davíö Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Chicken and Cow.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég
horfi nónast aldrei á sjónvarp.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Caruso og Naust-
ið.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Bókina um Magnús Leó-
poldsson í fangelsi.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? FM 957.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Gunni Gk. og vinur hans á FM.
Hverja sjónvarpsstöðina horf-
ir þú mest á? Stöö 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Svavar Öm í íslandi í dag.
Uppáhaldsskemmtistað-
ur/krá: Skuggabarinn og Tunglið.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
Liverpool.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Opna minn
eigin matsölustað.
Hvaö geröir þú í sumarfríinu?
Ég-tók ekkert sumarfrí frekar en
venjulega. Gaf mér ekki tíma til
þess. -sv
Samúel Sveinsson var valinn vinsælasti herrann f keppninni Herra fsland
á Hótel fslandl fyrlr rúmri vlku. DV-mynd ÞÖK