Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1997, Side 28
28
LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1997
Teiknar skemmtilegar myndir í nýja bók um Grýlu:
Vil gera
meira svona
- segir Þórarinn Gunnarsson Blöndal
„Þetta er fyrsta verkefnið mitt af
þessu tagi. Ég hef verið að vinna
með höfundinum, Gunnari Helga-
syni, í Hafnarfjaröarleikhúsinu og
hann kom til mín og bað mig að gera
þetta. Mér leist strax vel á hugmynd-
ina enda er Gunnar ákaílega hug-
myndaríkur og bókin skemmtilega
skrifuð. Ég hef haft gaman af þessari
vinnu. Ég gæti vel hugsað mér aö
gera meira af þessu," segir Þórarinn
Gunnarsson Blöndal sem teiknar
skemmtilegar myndir í nýja bók
Gunnars Helgasonar, Grýlu.
Þórarinn Gunnarsson Blöndal segist hafa ánægju af því aö teikna fyrir börn.
. DV-mynd GVA
Leyndardómar Vatnajökuls eftir
Hjörleif Guttormsson og
Odd Sigurðsson
RJjÍ
fyrir alla sem
unna íslenskri
náttúru
„ FJÖLL OG FIRNINDl Dreifing: 1
f MT J Sími: 567 1777
Þórarinn byrjaði í Myndlistar-
skólanum á Akureyri og segir til-
viljun kannski hafa ráðið því að
hann settist þar inn í byrjun. Hann
hafi alltaf eitthvað verið að teikna
sem ungur maður en þó kannski
ekkert meira en gengur og gerist.
Áhuginn kviknaði fyrir alvöru eft-
ir þriggja ára nám í Myndlistar-
skólanum á Akureyri. Fjórða og
síðasta árið tók hann síðan í mál-
aradeild Myndlista- og handíða-
skólans.
Viljtist í leikhúsin
„Ég fór síðan út til Rotterdam þar
sem ég var í eitt ár i svokallaðri fjöl-
tæknideild. Ég var ánægður úti en
aðstæöur mínar á þeim tíma hög-
uðu því svo að ég fór heim eftir eitt
ár.“
Eftir að heim kom hélt kappinn
áfram störfum sínum i leikhúsun-
um. Hann var sviðsmaður í Þjóð-
leikhúsinu í fimm ár en starfar nú í
lausamennsku sem tæknimaöur.
Það segir hann sérstaklega
skemmtilega vinnu. Honum þyki
gaman að smíða og búa til leik-
muni. Nú iðar hann í skinninu að
hefja vinnu við nýtt verk í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu, Siðasta bæinn i
dalnum, sem stefnt er að þvi að
frumsýna upp úr miðjum janúar.
Aðspurður hvemig hafi verið að
vinna Grýlu og jólasveinana sagði
Þórcuinn að sér hefði fundist sér-
lega gaman að fá að teikna þennan
mikla bamaskelfi. Hann hafi tekið
þann pól í hæðina að gera hana
tröllslega með mannlegu ívafi.
„Ég fór nokkuð klassíska leið
með jólasveinana. Að sumu leyti
poppa ég þá svolítið upp. Eftir að
þeir fara í bað um miðja bók sjást
þeir aldrei í öðra en þessum hefð-
bundnu amerísku búningum. Þar
sem ég hef ekki unnið svona vinnu
áður var ég smátíma að koma mér
niður á verklagið en síðan gekk
þetta vel,“ segir Þórarinn.
Einmanalegt að mála
Hann hefur þegar fengið annaö
verkefni af svipuðum toga. Þar
teiknar hann myndir með fimm sög-
um sem hagyrðingurinn góðkunni,
Kristján Hreinsson, hefur gert. En
er draumurinn kannski að snúa sér
alfarið að teikningunum eða mynd-
listinni?
„Nei, ég hef engin slík áform. Ég
held ég myndi aldrei nenna að
standa 8-10 tíma á dag við strigann.
Mér finnst leikhúsvinnan miklu
meira gefandi og mun skemmti-
legri. Myndlistin er oft á tíðum mun
einmanalegri en ég reyni þó að
sinna henni þegar tími gefst. Ég
myndi segja að ég væri listamaður i
tómstundum. Ég tek þátt í samsýn-
ingum og er svo sem ekkert meðvit-
að að skipta um gír þótt ég hafi
teiknað þessar myndir í bókina. Ég
hef gaman af því að teikna fyrir
böm og vona að framhald verði á
þessu,“ segir Þórarinn Gunnarsson
Blöndal, sem um þessar mundir
sýnir ljósmyndir á Café Karolínu á
Akureyri.
Leppur sporörenndi mús sem kötturinn vildi fá. Kötturinn sá þann kost
vænstan í stööunni aö sporörenna bæöi Lepp og músinni.
Teikningar Þórarins í bókinni eru sérlega vel útfæröar og skemmtilegar. Hér
ríður Grýla jólakettinum sem trúöi því í nokkurn tíma á eftir aö hann væri
hestur.
•sv
Þórarinn fór þá leiö aö gera „Grýlu tröllslega meö mannlegu ívafi