Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1998, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1998 Útlönd Clinton og Netanyahu ræddu friðargjörð i Mið-Austurlöndum fram á nótt: Engin niðurstaða um heimkvaðningu Bill Clinton Bandarikjaforseti lagöi fram nýjar tillögur um heim- kvaðningu ísraelskra hermanna frá Vesturbakkanum á fundi með Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels, í gær. Ekki fékkst þó nein niðurstaða á tveimur fundum þeirra félaganna, að því er háttsett- ur bandarískur embættismaður sagði í morgun. Clinton lagði nýju hugmyndirnar fram á 90 mínútna löngum fundi með Netanyahu í gærmorgun. Þeir ræddu þær síðan á öðrum 90 mín- útna fundi sem stóð fram á nótt á heimili forsetans í Hvita húsinu. „Þetta bil hefur verið á milli þeirra í ár. Það verður ekki brúað á einni nóttu. Þetta voru góðar við- ræður en það er enn mikið verk óunnið,“ sagði háttsettur bandarísk- ur embættismaður við fréttamenn að síðari fundinum loknum. Embættismaðurinn vildi ekki greina frá hugmyndum Clintons. Einn maður sem fylgdist með við- ræðunum sagði aftur á móti að Clinton hefði lagt til að næsti áfangi brottflutnings ísraelskra hermanna yrði ekki tekinn í einu skrefi heldur mörgum smærri. Palestínumenn ættu í staðinn að grípa til ákveð- inna öryggisráðstafana, þar á meðal að deila upplýsingum með Israelum og ganga á milli bols og höfuðs á palestínskum skæruliðum. Samkvæmt friðarsamningunum sem voru undirritaðir í Ósló 1993 Benjamin Netanyahu yfirgefur Hvíta húsið eftir viðræöur við Clinton. bar ísraelsmönnum að skila aftur í þremur áfóngum hluta þess lands sem þeir hafa hertekið síðan í strið- inu 1967. Bandaríski embættismaðurinn sagði að Clinton mundi færa sömu mál í tal viö Yasser Arafat, forseta Palestínumanna, þegar hann kemur til fundar í Hvíta húsinu á fimmtu- dag. 1 viðtali við ísraelska útvarpið sagði einn af ráðgjöfum Netanyahus að von væri til þess að samningar tækjust á grundvelli viðræðna Clintons og Netanyahus. „Sú staðreynd að viðræðurnar voru lengri en til stóð sýnir að það er einhver von um að samkomulag takist," sagði ráðgjafinn. Reuter Sextuga mamman tók frjósemislyf Breska blaðið The Express hef- ur greint frá því að Elizabeth Buttle, sem eignaðist bam í nóv- ember síðastliðnum sextug að aldri, hafi tekið frjósemislyf. Samkvæmt frásögn blaðsins sagði Elizabeth læknum í London að hún væri 49 ára gömul ekkja. Kvaðst hún reiöubúin að greiða rúmlega milljón íslenskra króna fyrir að fá frjóvgað egg sett í sig. Fjölskyldu sinni hafði Elizabeth, sem býr í Wales, sagt að hún ætl- aði til London til að fá læknis- hjálp vegna hálsbólgu. Barnsfaðir Elizabeth er kvænt- ur maður og stakk af til eiginkon- unnar er hann komst að aldri hennar. Elizabeth átti eitt bam fyrir, 41 árs gamla dóttur. Götuvændi eykst gífurlega í Stokkhólmi Þrátt fyrir lagafrumvarp um að þeim sem kaupa þjónustu vændiskvenna verði refsað hefur götuvændi í Stokkhólmi aukist gífurlega að undanfömu. Hefur fiöldi þeirra kvenna, sem selja líkama sinn, tvöfaldast siðastlið- in 10 ár. Götuvændi er stundað í fiórum borgum í Svíþjóð; Stokk- hólmi, Gautaborg, Malmö og Norrköping, og hefur það aukist á öllum stöðunum. Það era fyrst fremst fikniefna- neytendur og konur af erlendu bergi brotnar sem bæst hafa í hóp kvennanna sem stunda götu- vændi. Götuvændið er talið vera einn fiórði hluti alls vændis sem stundað er í Svíþjóð. Líklegt þyk- ir að annað vændi en götuvændi hafi jafnframt aukist. Fella gleðitár vegna komu páfa Pilagrímar og kúbskir útlagar hafa streymt til Havana á Kúbu og fellt gleðitár vegna komu Jó- hannesar Páls páfa þangað í dag. Fjölskyldur, sem hafa verið að- skildar áratugum saman, hafa sameinast vegna komu útlag- anna. Um 3 þúsund fréttamenn og 10 þúsund pílagrímar eru væntanlegir til Kúbu vegna heimsóknar páfa. Reuter Kúbverjar eru í sannkölluðu hátíðarskapi þessa dagana og lái þeim hver sem vill. Jóhannes Páll páfi er væntanleg- ur til eyjar Castros í dag í fjögurra daga heimsókn. Pessar fimm ungu systur bíða greinilega eftir páfa meö óþreyju. I gær gátu þær ekki stillt sig um að veifa kúbska fánanum og mynd af hans heilagleika. Símamynd Reuter Færeyjar: Landstjórnin hafnar skaða- bótum Den Danske Bank Færeyska landstjórnin hefur ákveðið að hafna öllum skaðabóta- greiðslum frá Den Danske Bank vegna yfirtöku Færeyinga á Fær- eyjabanka árið 1993. Yfirstjóm Den Danske Bank samþykkti á neyðar- fundi á sunnudagskvöld að bjóða Færeyingxnn um 2,5 milljarða ís- lenskra króna í bætur. Fiármögnunarsjóðurinn frá 1992 krefst þess aftur á móti að Den Danske Bank greiði bætur. Sjóður þessi stjórnar þeim tugmilljörðum íslenskra króna sem Færeyingar þurftu að taka að láni til aö bjarga bankakerfi sínu. Knud Heinesen, formaður Fjár- mögnunarsjóðsins, segir í samtali við dönsku fréttastofuna Ritzau að hann vilji ekki tjá sig um hvemig bótakrafan á hendur Den Danske Bank komi til með að líta út. „En að sjálfsögðu verður Den Danske Bank Mogens Lykketoft verður undir smásjá danska þingsins í dag vegna Færeyjabankamálsins. að greiða skaðabætur vegna með- ferðar sinnar á Færeyjabankamál- inu,“ segir Heinesen. í skýrslu um bankamáliö, sem var birt í síðustu viku, kemur með- al annars frcim að forráðamenn Den Danske Bank sögðu ekki satt og rétt frá bágri fiárhagsstöðu dótturfyrir- tækis síns, Færeyjabanka, áður en landstjórnin yfirtók meirihluta hlutabréfa í honum. Danska þingið byrjar að ræða Færeyjabankamálið í dag og þann lærdóm sem af henni má draga. Þar mun fiármálaráðherrann Mogens Lykketoft verða undir smásjánni. Bæði vinstri- og hægrimenn í þing- inu hafa nefhilega mikinn áhuga á upplýsingum skýrslunnar um tengsl fiármálaráðuneytisins og bankaeftirlitsins. Lykketoft má eiga von á mörgum spumingum þar um, segir í frétt frá Ritzau. Stuttar fréttir :ov Verðfall á mörkuöum Verðfall á mörkuðum í Asíu í morgun vegna hruns gjaldmiðils Indónesíu. Hrunið varð vegna þess að indónesískir bankar keyptu alla dollara sem þeir komust yfir. Rafmagnslaust Stórir hlutai- borgarinnar Montreal í Kanada urðu raf- magnslausir á ný í gær. Röskun varð meðal annars á ferðum neð- anjarðarlesta sökum rafmagns- leysisins. Svaraði fyrir sig Það kom á óvart að Viktor Tsjernomyrdin, forsætisráðherra Rússlands, skyldi verja sfiórn sina frammi fyrir sjónvarps- myndavélum í kjölfar gagn- rýni Borísar Jeltsíns Rúss- landsforseta sem kominn er aftur til vinnu að loknu löngu leyfi. Jeltsín hóf störf með því að gagn- rýna stjómina fyrir að hafa mis- tekist að gera upp launaskuldir við opinbera starfsmenn. Við- brögð forsætisráðherrans þykja gefa til kynna að völd hans hafi aukist. Taívanar afþakka Yfirvöld í Taívan afþökkuðu í gær boð kínverskra yfirvalda um pólitískar viðræður án vissra skilyrða. 3 tonn af kókaíni Fyrrum yfirmaður í Califikni- efhahringnum í Kólumbíu, Hel- mer Herrera, hefur viðui'kennt að hafa smyglað 3,3 tonnum af kóka- íni til Bandaríkjanna. Amalgam heilsusamlegt Þeim, sem eru með margar amalgamfyllingar í tönnunum, líð- ur betur en þeim sem ekkert kvikasilfur hafa í munninum. Vís- indamenn í Gautaborg hafa komist að þessari niðurstöðu. Þeir töldu að niðurstaðan yrði þveröfug. Díönuveira á Spáni Tvö fyrstu erindin í minningai'- lagi Eltons Johns um Díönu prinsessu fylla nú tölvuskjái á Spáni. Veiran uppgötvaðist í siðustu viku og er talin hafa breiðst út með Netinu erlendis frá. Díönuveir- an veldur ekki varanlegum skaða en raskar venjulegri tölvuvinnslu. Þess vegna er unnið að því að fiar- lægja hana. Föngum sleppt Fimmtíu jórdanskir fangar, sem Saddam Husseins íraksfor- seti veitti sakaruppgjöf, héldu heim til Amman í morgun. Sue Ellen til SÞ Leikkonan Linda Gray, sem lék Sue Ellen i Dallassjónvarps- myndaflokknum, verður kvenrétt- indasendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum. Hún mun meðal ann- ars vekja athygli á vandamálum kvenna í þróunarlöndunum. Fengin til aö Ijúga Óháöur saksóknari rannsakar nú hvort Bill Clinton Bandaríkja- forseti og náinn vinur hans, Vernon Jordan, hafi skipað starfsmanni Hvíta hússins, Monicu Lewin- sky, að skýra ranglega frá meintu kynferðislegu sambandi sinu við forsetann. Biskupar biðja Yfir 50 kaþólskir biskupar í Bandaríkjunum hvetja Samein- uðu þjóðimar til að aflétta við- skiptabanni gegn írak. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.