Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1998, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1998, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 1998 13 Fréttir Hvalfj arðargöngin: Einstæð fjármögnun DV, Akranesi: Bandaríska líftryggingafélagið John Hancock annast stærstan hluta langtímafjármögnunar Hval- íjarðarganga þegar sjálfum fram- kvæmdatímanum lýkur og mann- virkið verður tekið i notkun. Félagið kaupir skuldabréf fyrir 2.600 millj. króna og innlendar íjár- málastofnanir sjá um langtímafjár- mögnun að öðru leyti, einkum líf- eyrissjóðir. Landsbréf hf. sjá um skuldabréfasölu til 15 íslenskra líf- eyrissjóða fyrir 1.800 milljónir króna. Bréf bandaríska fyrirtækisins verða á 1. veðrétti til 20 ára. Bréf ís- lensku lífeyrissjóðanna verða á 2. veðrétti. Samningar sem tókust um fjármögnun ganganna eru einstæðir hérlendis og þykja raunar svo merkilegir að um þá hefur verið fjahað í erlendum fjármálatímarit- um. Fjármagnið í upphafi er fram- kvæmdalán til þriggja ára upp á 64,6 milljónir dollara, 4,3 milljarða króna. Landsbréf og Landsbankinn koma mjög við sögu í fjármögnun- inni. Landsbankinn tekur þátt í að veita Speli hf. framkvæmdalán upp á 4,3 milljarða króna. 60% lánsins koma frá Enskilda Banken í Sví- þjóð. Áhætta á framkvæmdatímanum hvilir öll á verktakanum, Fossvirki, og fjármálalegum bakhjörlum hans. síðan bankana af hólmi, að uppfyllt- um ákveðnum skilyrðum, og fjár- magna verkið til langs tíma. Skil- yrðin lúta að því að gangagerðinni verði lokið innan tiltekins tíma. Göngin hafi verið notuð í tvo mán- uði og staðist ítarlegar prófanir. Er- lend langtímalán verða til 20 ára frá því rekstur ganganna hefst. Gert er ráð fyrir að innlend skuldabréf verði greidd upp innan 15 ára frá sama tíma. -DVÓ Verktakinn fjármagnar verkið allt þar til því er skilað til verkkaupans fullbúnu eftir 2ja mánaða reynslu- tíma ganganna. Bandaríska trygg- ingafyrirtækið, íslensku lífeyris- sjóðirnir og fleiri fjárfestar leysa Akranes: •• Oflug ferðaþjónusta Sigurður Sverrisson á skrifstofu sinni. DV-mynd Daníel EskiQöröur: Sól á ný DV, Eskifiröi: Sólin sást 16. janúar á Eski- firði eftir liðlega árvissa mánað- aríjarveru. Þá var glampandi sólskin en þar sem yfirráðskon- an var í frii vildi Þórdís Sigur- jónsdóttir ekki gefa sólarkaffi fyrr en 18. janúar eftir að hafa fengið leyfi hjá yfirráðskon- unni. Þá voru líka bakaöar 120 rjómapönnukökur sem runnu út með það sama. Voru eldri borgarar mjög ánægðir með þann gamla, góða sið að drekka sólarkaffi og borða rjómapönnu- kökur með og fagna þar með komu sólarinnar. Ragna Guðmundsdóttir er yfirráðskona í Hulduhlíð og lík- ar okkur ágætlega við hana og það indæla starfsfólk eldhússins sem þar vinnur og útbýr hinn góða mat sem á borðum er hverju sinni. Reglna DV, Akranesi: „Við á Pésanum tókum við um- boði fyrir Úrval-Útsýn fyrir 2 árum og fyrir ári bættust Plúsferðir við. Jafnframt seljum við allar ferðir með Flugleiðum, jafnt áætlunar- sem pakkaferðir. Okkur hefur verið mjög vel tekið og það lætur nærri að salan hafi aukist hátt í 200%'á þessum tima,“ sagði Sigurður Sverrisson, sá kunni íjölmiðlamað- ur á Akranesi. „Viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum. Ég leyfi mér að vona að þær megi rekja til þess að við veitum Skagamönnum og nær- sveitungum góða þjónustu. Við erum að fá viðskiptavinina til okk- ar aftur og það styrkir okkur í þeirri trú.“ Sigurður segir Skagamenn, eins og aðra íslendinga, dálítið fast- heldna í ferðavenjum. Kanaríeyjar eru vinsælasti staðurinn yfir vetur- inn en á haustin er Edinborg tromp- ið. Á sumrin eru það Portúgal og Mallorca sem hafa sérstöðu en Plús- ferðir hafa notið vaxandi vinsælda með Benidorn. -DVÓ Oddsskarð: Skíðasvæð- ið opnað DV, Esldfirði: Skíðamiðstöð Austurlands opnaði hið ágæta skíöasvæði við Oddsskarð 17. janúar. Eftir óvenjumikil hlýindi það sem af er vetri var skíðaáhugafólk far- ið að örvænta um sinn hag, enda engan snjó að sjá nema uppi í efstu fjallatoppum. En í síðustu viku tók Vetur konungur til sinna ráða. Stöðug norðanáttin hefur gert það að verkum að nægjanlegur snjór er á skíðasvæði nýja sameinaða sveitarfélagsins, Eskifiarðar, Neskaupstaðar og Reyðarfiarð- ar. Aðsóknin lofar góðu sem af er þrátt fyrir 12 til 13 gráða frost. Mjög gott skíðafæri var um helgina. Sveitarstjórnirnar þrjár, sem eiga og reka Skíðamiðstöðina, ákváðu nýlega að lækka að- gangseyrinn að svæðinu. Er það gert til að örva enn frekar áhuga, bæði ungra sem aldinna, á skíðaíþróttinni svo og hollri útiveru. Regína Húsavík: Atvinnu- leysið er að aukast DV, Akureyri: „Það má segja að síðasta ár hafi verið nokkuð gott og ívið betra en árið á undan. Hins vegar hefur ver- ið stígandi atvinnuleysi það sem af er árinu en það gerist reyndar alltaf í janúar. Það sem er verst er að svo virðist sem samdráttar gæti í nokkrum fyrirtækjum og því miður sé ég ekki að þar sé um tímabund- inn samdrátt að ræða,“ segir Aðal- steinn Baldursson, formaður Verka- lýðsfélags Húsavíkur. Við skráningu nú í vikunni reyndust 115 vera atvinnulausir á svæði verkalýðsfélags Húsavíkur sem reyndar nær yfir S-Þingeyjar- sýslu alla. 52 voru atvinnulausir á Húsavík en 63 annars staðar, þar af 23 í Mývatnssveit þar sem atvinnu- leysi er árvisst yfir vetrarmánuð- ina. Á síðasta ári voru greiddar 32,5 milljónir króna í atvinnuleysisbæt- ur í S-Þingeyjarsýslu á móti 37,5 milljónum króna árið áður. Aðal- steinn segir reyndar erfitt að bera þessar tölur saman þar sem lögum um greiðslur atvinnuleysisbóta hafi verið breytt um mitt siöasta ár og réttur til atvinnuleysisbóta hafi ver- ið þrengdur umtalsvert. -gk Lögreglan kom kettinum Kela til aðstoöar eftir að ekið var á hann í Mjóuhlíö. Keli særðist og skreið undir nálægan bíl. Lögreglumaðurinn á myndinni náði Kela undan bílnum og hlúði að honum. Keli var vel merktur og komst í hendur. eiganda síns sem fór meö hann á dýraspítalann til aðhlynningar. DV-mynd S Viltu auka atvinnumöguleika þína? Ökuskóli S.G. býður upp á nám til aukinna ökuréttinda, leigubifreiða- vörubifreiða-, eftirvagna- og hópbifreiðaréttinda. Ökuskóli S.G. á nú 5 ára starfsafmæli og vill af því tilefni bjóða upp á sérstakan afmælisafslátt!! Næsta námskeið hefst í Reykjavík mánudaginn 26. janúar. Kynnið ykkur hvað í boði er á fundi sem haldinn verður í húsnæði skólans að Suðurlandsbraut 16 þann 24. janúar kl. 14.00. Konur, ath.! Nú er nýlokið sérstöku kvennanámskeiði sem tókst frábærlega vel og staðfestir að þessi námskeið henta konum ekki síður en körlum. GSM: 892 4124 ÖKUSKÚLI SIMI 5811 919 LEICUBIPREID - VÖRUBIFREIÐ • HÚPBIFREID og 898 3810

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.