Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Side 5
MIÐYIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
5
DV
Fréttír
Auknar vinsældir
Skoöanakönnun DV á fylgi ríkisstjórnarinnar:
11/5 '95
Svör allra
Óákv./sv. ekkl
Fylgi ríkisstjórnarinnar •;
7/2 '98
DV
Andvígir
Andvígir
Fylgjandi
Funk-listinn fær hægt andlát
Býður ekki fram í
kosningunum í vor
- boöa framhaldslíf aö námi loknu
Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hefur síðan á
hveitibrauðsdögunum vorið 1995
ekki verið jafh vinsæl og nú ef
marka má niðurstöður skoðana-
könnimar DV sem gerð var um
síðustu helgi. Nærri sjö af hverj-
inn tíu kjósendum sögðust vera
fylgjandi ríkisstjóminni. Þetta er
töluvert meiri stuðningur en í síð-
ustu könnun DV í október sl. þeg-
ar stjómin naut stuðnings um sex
af hverjum tíu kjósenda.
Úrtakið í könnuninni var 1200
manns, jafnt skipt á milli höfuð-
borgarsvæðis og landsbyggðar
sem og kynja. Spurt var: „Ertu
fylgjandi eða andvígur ríkisstjóm-
inni?“ Markaðsdeild Frjálsrar fjöl-
miðlunar framkvæmdi könnunina
sem fram fór sl. fostudag og laug-
ardag, áður en heit lagasetningar-
umræða í tengslum við sjómanna-
verkfallið fór af stað.
Miðað við svör allra í könnun-
inni sögðust 59,8 prósent vera fylgj-
andi ríkisstjóminni, 27,3 prósent
vom henni andvíg, 10,8 prósent
vora óákveðin í afstöðu sinni og 2,2
prósent vildu ekki svara spuming-
unni. Alls tók því 87,1 prósent að-
spurðra afstöðu sem er svipað hlut-
fall og í síðustu könnun.
Sé miðað við þá sem afstöðu
tóku vora 68,7 prósent fylgjandi
stjórninni og 31,3 prósent andvíg.
Bondevik
kosinn
biskup
DV, Hvammstanga:
Odd Bondevik verður næsti
biskup í Ósló. Hann er 56 ára að
aldri og frændi Kjells Magne
Bondeviks, forsætisráðherra Nor-
egs. Bondevik er biskup á Mæri en
færir sig nú um set þegar Andreas
Aarflot lætur af störfum sökum
aldurs.
Næstur Bondevik að atkvæðum
var Gunnar Staalsett sem verið hef-
ur einn af framkvæmdastjórum Lút-
erska heimssambandsins. Óslóar-
biskup er ekki biskup yfir Noregi en
hann hefur það hlutverk gagnvart
hinum biskupunum að kalla saman
biskupafundi og stýra þeim. Ellefú
sjálfstæð biskupsdæmi eru í land-
inu. -GHB
Funk-listinn á ísafirði, sem kom,
sá og sigraöi í siðustu bæjarstjóm-
arkosningum, mun ekki bjóða fram
að þessu sinni. Sitjandi bæjarfull-
trúum hans, þeim Kristni Her-
mannssyni og Kristjáni Frey Hall-
dórssyni, ber reyndar ekki saman
um hvort listinn sé allur, þó þeir
séu sammála um að af framboði
verði ekki nú. „Við dóum út svona i
rólegheitum upp úr jólum. Mínum
ferli í bæjarstjóm er lokið í bili,“
sagði Kristinn í samtali við DV.
Hann kvaðst reyndar ekki vita hvað
hinn fulltrúi listans ætlaðist fyrir.
„Þetta er svo fullkomlega anarkiskt
fyrirbæri að ég veit hreinlega ekki
hvað Kristján ætlast fyrir."
Kristján Freyr vildi hins vegar
ekki viðurkenna að það væri búið
að blása listann af. „Við ætlum ekki
að bjóða fram núna, en starfseminni
verður haldið áfram með öðrum
hætti. Við erum ungt fólk á uppleið
og erum á leið í nám áður en við
komum aftur og tökum við stjóm-
inni.“ Hann taldi að fulltrúar list-
ans hefðu staðið sig vel í bæjar-
stjóminni og komið ýmsum málum
áfram. „Við skiljum a.m.k. eftir okk-
ur 18% gat, sem hinir flokkarnir
verða að bítast um, svo það er ekki
hægt að segja annað en við höfum
skilið eitthvað eftir okkur,“ sagði
Kristján.
-phh
Miðað við síðustu könnun hefur
fylgið aukist mn 10,1 prósentustig.
Líkt og í síðustu könnun virðist
búseta ekki skipta nokkra um af-
stöðu kjósenda. Innan raða fylgj-
enda og andstæðinga er nokkuð
jööi skipting á milli höfúðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar.
Sömu sögu er að segja um skipt-
ingu á milli kynja. Það er breyting
frá síðustu könnim þegar karlar
vora fleiri en konur í hópi fylgj-
enda og öfugt var farið í hópi and-
stæðinga. -bjb
Keflavíkurflugvöllur:
Slökkviliðið
heiðrað
DV, Suðumesjum:
Slökkviliðið á Keflavíkurflug-
velli fékk verðlaun nýlega fýrir að
hafa ekki misst mannslíf í eldi síð-
an 1970. Haraldur Stefánsson
slökkvihðsstjóri veitti verðlaunun-
um viðtöku.
Athöfriin fór fram í Bandaríkj-
unum og var á vegum Alþjóðasam-
taka slökkviliðsstjóra.
Slökkviliðið hefúr fengið marg-
ar viðurkenningar á undanfómum
árum. Haraldur segir ástæðuna
fyrir að ekki hafi verið fleiri slys
vera að þeir séu með gríðarlega öfl-
ugar forvamir og eftirht. -ÆMK
Björgvini EA
breytt
DY Dalvík:
Gagngerar breytingar á frysti-
togaranum Björgvini EA 311 frá
Dalvík hófúst í vikunni sem leið og
munu þær taka um tvo mánuði.
Kostnaður við þær verða um 70
mihjónir króna og era unnar á
Dalvík og í Shppstöðinni á Akur-
eyri. Meðal annars verður allur
vinnslubúnaður endumýjaður.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar
yfirvélstjóra verður rækjulína sem
verið hefur í skipinu tekin burt og
í staðinn sett upp flakalína af fúh-
komnustu gerð. Eftir breytingar
munu bolfiskveiðar og vinnsla því
verða aðalviðfangsefhi skipveija á
Björgvini auk þess sem unnt verð-
ur að heilfrysta grálúðu og karfa
svo sem verið hefur. -hiá
SUZUKI
BALENO WAGON GLX: 1.445.000 KR. • WAGON GLX 4x4: 1.595.000 KR.
Kynnstu töfrum Suzuki
Finndu hve rýmið er gott
Baleno Wagon er aflmikill og hagkvæmur í rekstri,
hefur einstaklega góða aksturseiginleika
og býður upp á allt að 1.377 lítra farangursrými]
ALLIR
SUZUKI BÍLAR
ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS-
LOFTPÚÐUM.
flTlð SUZUKI BfLAR HF
ArL OG
skeifunni 17. Sími 568 51 00.