Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1998, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
11
DV
Fréttir
Málverkafalsanirnar:
Nautshausinn ókærður
„Myndin er í annarra eigu. Þaö
hefur enn ekki verið kært vegna
hennar og Jónas Freydal verður að
bíða þess og þá hver niðurstaðan
verður á sama hátt og ég hef orðið
að bíða eftir því að aðrir menn svari
til um eigendasögu mynda sem ég
hef óskað eftir og er jafn mikilvæg-
ur þáttur i málinu,“ segir Ólafur
Ingi Jónsson forvörður í samtali við
DV.
Þetta var svar Ólafs Inga þegar
DV spurði hann hvort hann hygðist
leggja fram rannsóknagögn sín
varðandi umdeilda tússmynd með
nautshaussmótívi sem seld var ný-
lega í Danmörku og hann hefur
talið vera fölsun. Ásta Eiríksdóttur,
ekkja Svavars Guðnasonar, seldi
slíka mynd í Danmörku fyrir
nokkrum árum.
Mynd með sama mótífi var seld á
dögunum í Kaupmannahöfn ásamt
fleiri myndum sem sagðar voru all-
ar eftir Svavar Guðnason og Ólafur
Ingi telur vera falsanir. Jónas Frey-
dal telur sömu nautshausmyndina
og Ásta seldi vera meðal þessara
mynda. Hann hefur þvi kært hana
fyrir að selja falsmynd þó að hann
telji sig vita betur. Kæran er sett
trarn í þeim tilgangi að þvinga Ólaf
Inga til að láta af hendi rannsóknar-
gögn sín.
Ekki 80% allra mynda
Ekstrabladet í Kaupmannahöfn
segir í síðustu viku að um 80% allra
íslenskra og færeyskra málverka
sem seld eru á uppboðum í Dan-
mörku séu hugsanlega falsanir og
hefur þetta óbeint eftir Ólafi Inga.
Hann segir hins vegar tilgátu
blaðsins ekki frá sér komna: „Ég
nefndi töluna 80% en það var í allt
öðru samhengi." Blaðið hafi greini-
lega mistúlkað orð sín, enda sé það
augljóst að hann geti ekki haft ytlr-
sýn yflr hvað selt hafi verið af ís-
lenskri, hvað þá færeyskri myndlist
í Danmörku. -SÁ
Þetta er ein þeirra mynda sem lista-
verkasafnari keypti í Kaupmanna-
höfn á dögunum sem verk Svavars
Guönasonar. Eins og sjá má er hún
sláandi lík myndinni Fönsun. Ólafur
Ingi Jonsson og fleiri sem séö hafa
Ijósmyndina telja myndina vera
augljósa fölsun og stælingu á Föns-
un. Hún var seld undir nafninu Kom-
position og er 88x115.
Fönsun heitir þessi mynd Svavars Guðnasonar, máluö áriö 1941. Myndin er 58,5x79,3 sm. Mynd af henni er í minn-
ingabók Thors Vilhjálmssonar um Svavar Guðnason. Bókin heitir Svavar og var gefin út hjá bókaútgáfunni Edition
Blondal í ritröðinni Format, Röð um myndlist á Norðurlöndum.
Rangárvallasýsla:
Mikill meirihluti vill sameiningu
í viðhorfskönnun sem Gallup
gerði um hug íbúa Rangárvalla-
sýslu til sameiningar sveitarfé-
laga í sýslunni kemur fram að
mikill meirihluti er fylgjandi
sameiningu.
Spurt var hvort fólk væri
hlynnt eða andvígt sameiningu og
af þeim sem svöruðu voru 77%
hlynnt sameiningu, 13% andvíg
og 10% hlutlaus. Þá var einnig
spurt hvernig sameiningarmynst-
ur fólk sem væri hlynnt samein-
ingu kysi. Af þeim sem tóku af-
stöðu til þeirrar spumingar vildu
44,4% sjá Rangárvallasýslu sem
eitt sveitarfélag, 46,6% tvö sveit-
arfélög og 9% eitthvert annað
mynstur. Ekki var marktækur
munur á þeim sem völdu eitt eða
tvö sveitarfélög.
Héraðsnefnd Rangæinga mun,
eftir að hafa kynnt sér niðurstöð-
urnar, að öllum likindum koma
saman til fundar til að ákveða
hvert framhaldið verður. -sm
|/ Klossar i/ Festingasett |/ Boröi
•/ Diskar i/ Handbr barkar $/ Skáls
✓ Slöngur mmmmmmmm ^ Dælu
skálar og diska, allar stæröir. Allar álímingar.
©
ÁLÍMINGAR Smiöjuvegi 20 (græn gata)
Sími 567 0505
o.
Málningardeild
20% afsláttur af
Nordsjö gæða-
málningu
Dæmi:
580 kr. Itr.
Nordsjö innimáln-
ing í 10 Itr. dós.
AJvgSúc-t
Parketdeild
18% afsláttur:
Dæmi: Eik rustic
13,5 mm
kr. 2.480 m2
Þú gerir ekki betri kaup
Ó.M. Búðin Grer
Flísadeild
10 - 30% afslátt-
ur af gólf- og
veggflísum."
Dæmi:
Vegaflísar á bað
kr. 1.250 m2
Teppadeild
Filtte
CnPÍ
295 m2
Hreinlætistækjadeild
10 - 20% afsláttur
Dæmi:
wc/m/setu kr. 11.951
bæði í vegg og gólf.
Dúkadeild
30 - 50%
afsláttur af
heimilisdúk-
um.
Dæmi:
parketdúkur,
breidd 3m.
kr. 475 ma.
við seljum ódýrt það er pottþétt,
ásvegi 14 sími 56S 1 1SO