Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Síða 9
X>V LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
9
ríkjunum að loknu starfsnáminu
hjá Mike Post í Hollywood. Framtíð-
in sé aö öðru leyti óráðin.
„Fyrir tveimur árum hefði líklega
aldrei hvarflað að mér að fara til
Hollywood. Núna er komin vísbend-
ing um að maður hafi eitthvað
þangað að gera. Ég verð að nýta
þann tíma mjög vel sem ég fæ hjá
Mike Post. Þarna fæ ég forskot á
marga aðra sem eru að reyna að
byrja í þessum bransa.“
„Þetta hefur gengið prýðilega hjá
mér. Orður og verðlaun eru í sjálfu
sér ágæt. Mestu skiptir hvað maður
lærir og hvaða tækifæri gefast til að
þróa listina," sagði Atli Örvarsson
tónlistarmaður í samtali við helgar-
blaðið frá borginni Winston-Salem í
Norður-Karólínu i Bandaríkjunum.
I dag, 30. maí, útskrifast hann með
bestu einkunn í mastersnámi í
kvikmyndatónsmíðum frá skóla þar
í borg er nefnist The North Carolina
School of the Arts. Ekki nóg með
það heldur hefur hann hlotið viður-
kenningu frá höfundarréttarsam-
tökunum BMI sem eru í líkingu við
STEF hér á íslandi. Viðurkenningin
færir honum bæði peningaverð-
launa og tímabundið starf í
Hollywood næsta haust í
hljóðsmiðju Mike Post. Post er einn
kunnasti höfundur tónlistar í
bandarískum sjónvarpsþáttum og
hefur komið nálægt þáttum eins og
Hill Street Blues, LA Law og NYPD
Blue. Allt þættir sem íslenskir sjón-
varpsáhorfendur ættu að kannast
vel við.
Atli var í hópi hundraða umsækj-
enda um styrkinn frá BMI og lenti í
hópi þriggja útvalinna tónskálda.
„Þetta er geysilega mikil viður-
kenning fyrir mig. Ég hef fengið
mjög jákvæð viöbrögð hér í skólan-
um. Heimur tónskálda í Hollywood
er harður, samkeppnin mikil og
erfitt að komast að. Flestir sem
fara þangað fara eiginlega út í
óvissuna. Þess vegna er
það mjög þýðingarmik-
ið að fá eitthvað
svona,“ sagði Atli.
Heiðursorða
í Berklee
Sumar með Sálinni
Áður en ævintýrið byrjar í
Hollywood í haust mun Atli eyða
sumrinu á Islandi og spila með Sál-
inni. Þar stendur mikið til. Auk
spilamennsku á sveitaböllum um
helgar er ætlunin að taka upp nýja
plötu í tilefni af 10 ára afmæli sveit-
arinnar á þessu ári.
„Ég hlakka mikið til að koma
heim og fá að slappa örlítið af eftir
strangt nám í vetur. Annars verður
nóg að gera. Hljómsveitin ætlar að
safna saman á eina plötu þeim lög-
um sem hafa verið á nokkrum safn-
plötum auk þess sem við ætlum að
taka upp nokkur ný lög. Platan
verður síðan gefin út fyrir jólin,“
sagði Atli, greinilega spenntur fyrir
sumarið með Sálinni.
Atli verður 28 ára í sumar. Hann
er fæddur og uppalinn á Akureyri,
sonur Hildar Svövu Karlsdóttur og
Örvars Kristjánssonar harmóníku-
leikara og þar með „litli bróðir"
Grétars í Stjórninni. Tónlistarhæfi-
leikarnir eru íjölskyldunni í blóð
bornir. Svo skemmtilega vill til að
Hildur Svava verður einmitt við-
stödd útskrift sonarins í dag og
tók með sér alnöfnu sína og 6
ára dóttur Atla, Hildi Svövu.
Þær geta svo sannarlega verið
stoltar af drengnum, sem og
aðrir í fjölskyldunni.
-bjb
innar hans Jóns míns. Þar hefur
hann leikið yfir sumartímann mörg
undanfarin ár en verið í tónlistar-
námi á veturnar. Að loknu námi við
Tónlistarskóla FÍH fyrir nokkrum
árum fór hann til Boston í Banda-
ríkjunum þar sem hann nam við
Berklee College of Music. Þar
lauk hann BM-gráðu í kvik-
myndatónlist árið 1996.
Hann hlaut heiðursorðu á
50 ára afmælishátíð skól-
ans fyrir afburða frammi-
stöðu í námi og að semja
hátíðartónlist fyrir þá
samkomu.
í kjölfarið var hann
valinn úr stórum hópi
umsækjenda til meist-
aranáms í kvikmynda-
tónsmíðum í fyrr- :
nefndum listaháskóla
í Winston-Salem. í
skólanum í vetur hefur
hann m.a. gert tónlist
fyrir lokaprófsmyndir
nemenda í kvikmynda-
leikstjórn. Sumar þeirra
mynda hafa hlotið mikla
athygli. Þannig var ein
stuttmynd verðlaunuð á
Hollywood Film Festival í
fyrra og önnur var
nýlega
keypt til sýninga hjá sjónvarpsstöð-
inni Canal+ í Frakklandi. Þá hefur
Atli
samið tónlist við Shakespeare-leik-
rit í uppfærslu hins kunna leik-, óp-
eru- og kvikmyndastjóra Geralds
Freemans sem m.a. leikstýrði fyrstu
uppfærslunni á söngleiknum Hár-
inu og var aðstoðarleikstjóri í
fyrstu uppsetningunni á West
Side Story á Broadway.
Með frábæra kenn-
„Leiklistardeild skólans
er talin sú besta í Banda-
ríkjumun ásamt Yale-há-
skóla. Gerald Freeman
stjórnar deildinni og það
hefur verið ómetanleg
í‘ reynsla að starfa með
honum, eiginlega meira
virði fyrir mig en ein-
hverjar medalíur. Ég hef
líka verið mjög heppinn að
læra hér i skólanum undir
leiðsögn Davids McHugh pró-
fessors. Þetta er einn af þeim
kennurum sem standa upp úr á
lífsleiðinni. Kennarar sem reka
mann áfram til betri verka,“ sagði
Atli en David hefur m.a. samið tón-
list við myndir eins og Moscow on
the Hudson og Mystic Pizza.
Atli sagðist reikna
með að dvelja
áfram í
Banda-
Margir kann-
ast eflaust við
Atla sem
hljómborðs-
leikara Sálar- Atli Örvarsson er að útskrifast í dag með mastersgráðu í kvikmyndatónsmíðum frá listaháskóla í Noröur-Karólínu í Bandaríkjunum.
Bergljót Arnalds:
í leikriti á
geisladiski
í Skotlandi
Bergljót
Arnalds,
leikkona og
rithöfundur
með meiru,
fer til Skot-
lands í
næstu viku
til að vera
viðstödd út-
gáfuhátíð
vegna sérstæðs geisladisks sem
er að koma út í Edinborg. Á
disknum eru upptökur af leik-
riti sem hún tók þátt í á Edin-
borgarhátíðinni 1994 og vakti
mikla athygli. Þar lék hún
titilhlutverkið í leikritinu er
nefnist Dóttir sjávarkonungs-
ins. Bergljót nam leiklist við
Queen Margaret-skólann í Edin-
borg á árunum 1991-1994.
Diskur af þessu tagi hefur
ekki áður komið út í Skotlandi,
að því er best er vitað. Fyrirtæk-
ið sem gefur diskinn út nefnist
Saltire Society og hefur það að
markmiði að standa vörð um
skoska menningu. -bjb
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bílasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakrínglan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011
Innifaiið í verði bílsins
/ 2.0t 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
/ Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
•/ Rafdrifnar rúður og speglar
/ ABS bremsukerfi
/ Veghæð: 20,5 cm
/ Fjórhjóladrif
/ Samlæsingar
/ Ryðvörn og skráning
/ Útvarp og kassettutæki
/ Hjólhaf: 2.62 m
/ Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíLL - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
Verð á götuna: 2.285.000.- með abs
Sjálfskipting kostar 80.000,-
EJ
HONDA
Sími: 520 1100