Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Blaðsíða 23
JL*"V LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
23
Aðeins 17 ára og útskrifast í dag sem stúdent á Akranesi:
Fékk inngöngu
í Princeton
□V. Akranesi:
brautaskólann.
Einkunnir Andreys eru glæsileg-
ar, svo ekki sé meira sagt. Hann er
til dæmis með 10 í stærðfræði,
efnafræði og tölvufræði og með
góðar einkunnir í öðrum fögum.
„Ég er enginn snillingur"
Andrey ætlar að leggja stund á
tölvufræði við háskólann í
Princeton. Námið tekur fjögur ár
og hann er mjög hógvær ungur
maður, viil lítið gera úr þessum
góða árangri sínum.
„Ég er enginn námssnOlingur.
Munurinn er bara sá að ég stund-
aði nám í Rússlandi áður en fjöl-
skyldan mín kom til íslands. Við
erum að tala um tvö mismunandi
skólakerfi og ég er viss um að ef
einhver annar sem var duglegur í
námi í Rússlandi kæmi hingað, þá
mundi hann lenda í sömu stöðu,“
sagði Andrey í samtali við helgar-
blaðið.
Hann hefur sjálfur hannað og
endurbætt nokkur forrit, svo sem
HTML Power
sem er
notað
við
gerð
vef-
síðna. Hann hefur einnig hannað
nokkrar vefsíður á Internetinu.
Nýjasta forritið sem Andrey hefur
hannað hefur fengið góða dóma og
hefur hann þegar selt það til
margra aðila. Forritið reiknar út
hvað það kostar að vera á Internet-
inu. Það mælir tímann og reiknar
út kostnaðinn í hvert skipti og þeg-
ar símareikningurinn kemur á eng-
um að koma á óvart hvað hann er
hár.
Liðtækur í körfubolta
Það hefur einnig verið talinn
kostur fyrir þá stúdenta sem fá inn-
göngu í háskóla í Bandaríkjunum
að vera liðtækir körfuboltamenn.
Andrey lék af og til á nýliðnum
vetri með meistaraflokki ÍA í
körfuknattleik. Meðal annars kom
hann inn á í eitt skipti fyrir karl
föður sinn og fórst það vel úr
hendi.
Þeim sem áhuga hafa á að eign-
ast forrit Andreys er bent á netfang
hans: ande@aknet.is -DVÓ
Andrey Ermolinskiy, 17 ára
Akurnesingur af rússnesku bergi
brotinn, útskrifast í dag sem
stúdent frá fjölbrautaskolanum. Hér
er mikiö efni á ferö sem hefur
fengiö inngöngu í Princeton, einn
virtasta háskóla Bandaríkjanna.
DV-mynd Daníel
Ungur námssnillingur frá Akra-
nesi, Andrey Ermolinskiy, hefur
fengið inngöngu í hinn virta
Princeton-háskóla í Bandarikjun-
um. Þar hyggst hann leggja stund á
tölvufræði og er einn þeirra 10%
umsækjenda sem fá inngöngu.
Andrey er aðeins 17 ára gamall og
er af rússnesku bergi brotinn.
Hann útskrifast frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi í dag á eðl-
isfræðibraut með glæsilegar ein-
kunnir og fær fjölda verðlauna frá
skólanum fyrir námsárangur sinn.
Foreldrar hans, Ludmila og Alex-
ander Ermolinskiy, fluttust til ís-
lands árið 1992 og þá lá leiðin til
Borgarness þar sem faðir hans
þjálfaði lið bæjarins í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik og móðir hans
vann hjá Afurðasölunni.
Fjórtán ára í fjölbraut
Eftir komuna til íslands stundaði
Andrey fyrst nám við Grunnskól-
ann í Borgarnesi. Þegar hann var
aðeins 14 ára hóf hann nám við
Fjölbrautaskóla Vesturlands og
sama ár fékk fjölskyldan islenskan
ríkisborgararétt. Þegar faðir hans
tók við úrvalsdeildarliði Akraness
fyrir tveimur árum flutti fjölskyld-
an á Skagann. Móðir hans fór að
kenna ensku við fjöl-
Myndarleg sýning
Komdu á skemmtilega Land Rover Ijósmyndasýningu í
sýningarsal okkar við Suðurlandsbraut 14. Sýndur verður
fjöldi frábærra Ijósmynda sem barst í Ijósmynda-
samkeppni sem haldin var í tilefni 50 ára afmælis Land
Rover. Opið 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga.
Suðurlandsbraut 14 • sími 575 1200
d r r r i i i
Kringlurmi 4 (áður Irland) s S88 1777
Nýjasti 03 heitasti
næturklúbbur á
íslandi í das
Diskótónlist
7unda til
9unda
áratusarins
meö Dj
Shane,
írlandi os Dj
T, Enslandi
Stórir „effekta"
tónlistarskjáir.
Ljósa-show.
Nýjar skreytinsar.
Hljómsveitin Papar kynda staðinn
laugardags- os sunnudasskvöld.
Húsið opnað kl. 22.30 lausardasskv. os sunnudasskv. Mætið tímanlesa