Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Blaðsíða 54
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 017
> « tnyndbönd
I Know What You Did Last Summer:
Unglingahrollvekja frá Kevin Williamson
Helen, Barry, Julie og Ray eru
fjögur efnileg ungmenni í smábæn-
um Southport. Þau eru búin að
Ijúka prófum og stefna hvert í sína
áttina næsta vetur. Öll hafa þau
metnað til að gera stóra hluti í líf-
inu og stefna langt. Á þjóðhátíðar-
daginn keyra þau út á afskekkta
strönd og skemmta sér þar við
drykkju og hryllingssögur en á leið-
inni heim verða þau fyrir því
óhappi að keyra á
mann sem liggur
hreyfingarlaus eft-
ir. Þau sjá fyrir sér
hneyksli og jalhvel
ákærur fyrir
manndráp af gá-
leysi og ölvun við
akstur sem myndi
drepa í framavon-
um þeirra. Þau
ákveða því að losa
sig við líkið með
því að fleygja því í
sjóinn og segja ekki
nokkrum manni
frá atvikinu. Ári
síðar fær Julie bréf
sem í stendur „Ég
veit hvað þú gerðir
í fyrrasumar". Ein-
hver veit leyndar-
mál þeirra og hann
hefst nú handa við
að ásækja þau.
Hann ætlar að sjá
til þess að þau
gjaldi fyrir illvirki
sitt.
Rísandi
stjörnur
Það eru fjórar
rísandi stjörnur
sem leika aðalhlut-
verkin í myndinni.
Hin gáfaða og
metnaðarfulla
Julie er leikin af
Jennifer Love
Hewitt, sem slegið
hefur í gegn í hlut-
verki Sarah Reeves í sjónvarpsþátt-
unum Party of Five. Hún hefur m.a.
leikið í myndunum Trojan War,
Sister Act II og House Arrest og er
væntanleg í mynd sem heitir Tell-
ing You. Hún hefur einnig náð
frama sem söngkona og gefíð út
þrjár sólóplötur.
Sarah Michelle Geller leikur ljós-
hærðu fegurðardrottninguna Helen.
Hún er aðeins tvítug en hefur samt
stundað leiklist í fimmtán ár. Hún
leikur aðalhlutverkið í sjónvarps-
þáttunum Buffy the Vampire
Slayer, og hefur leikið í myndum
eins og Funny Farm, Over the
Brooklyn Bridge, High Stakes og
hinni nýútkomnu Scream 2.
Ryan Phillipe leikur ruðnings-
kappann Barry en hann hefur m.a.
leikið í White Squall, Studio 54 og
Nowhere. Þá eru ókomnar liingað
til lands nýjustu
myndir hans,
Homegrown og
Little Boy Blue.
Sá fjórði er svo
Freddie Prinze,
Jr., sem nýlega
lék í To Gillian on
Her 37th Birth-
day, og einnig í
The House of Yes,
sem sýnd var á
Sundance-kvik-
myndahátíðinni í
fyrra.
eiga von a
kvik-
mynd
upp
Ungu leikararnir fjórir sem leika aöalhlutverkin í I Know What You Did
Last Summer.
Heitur í
Hollywood
Kevin William-
son er einhver
heitasti handrits-
höfundurinn í
Hollywood um
þessar mundir eft-
ir velgengni Scr-
eam sem var afar
vel tekið, bæði af
gagnrýnendum
og áhorfendum,
en handritið
þótti alveg sér-
staklega
snjallt. Áður
hafði hann
selt handrit
að svartri
kómedíu
sem kall-
ast Kill-
ing Mrs.
Tingle, og
megum við
þvi
fljótlega. Nýjasta afurð hans,
Scream 2, er nýkomin í kvikmynda-
hús hérna en næsta verkefni hans
verður að spreyta sig í leikstjóra-
stólnum í vísindatrylli sem nefnist
The Faculty.
Leikstjóri myndarinnar heitir
Jim Gillespie og er hann nýgræð-
ingur í Hollywood. Hann hefur
undanfarinn hálfan annan ára-
tug unnið fyrir sér í Bretlandi
og hefur leikstýrt myndum og
þáttaröðum í skosku sjón-
varpi og einnig fyrir BBC.
Meðal aukaleikara eru
Muse Watson (Sommersby,
Something to Talk About,
Rosewood, The Assass-
ins, Lolita), Bridgette
Wilson (The Real
Blonde, Unhook
the Stars, Nixon,
Higher Learn-
ing, The Last
Action Hero)
og Johnny
Galecki (Dr.
Bean,
National
Lampoon’s
Christmas
Vac-
ation).
-PJ
Jennifer Lowe Hewitt
leikur hina gáfuöu og
metnaðarfullu Julie.
Styrkur til starfsrækslu
tónlistarhóps
Reykjavíkurborg mun styrkja tónlistarhóp til eins árs frá og með 1.
sept. næstkomandi. Þeir tónlistarhópar sem hafa áhuga sendi umsóknir
til menningarmálanefndar fyrir 17. júlí næstkomandi.
í umsókn skal tiltekið hvemig hópurinn verður skipaður og gerð grein
fyrir menntun og starfsreynslu hvers meðlims. Umsækjendur skulu
og gera eins nákvæma starfsáætlun og unnt er. Tónlistarhópurinn
skal hafa lögheimili í Reykjavík.
Styrkurinn nemur árslaunum tveggja listamanna sem þiggja starfslaun
Reykjavíkurborgar og verður hann greiddur í fjómm jöfnum útborg-
unum, 1. september, 1. desember, 1. mars og 1. júní á kennitölu tón-
listarhópsins.
Sérstök dómnefnd fer yfir umsóknimar og skilar til menningarmála-
nefndar tillögum en nefndin tekur ákvörðun um styrkveitingu.
Umsóknir sendist til menningarmálanefndar Reykjavíkur,
Kjarvalsstöðum, fyrir 17. júlí 1998. Niðurstöður verða kynntar 18.
ágúst. Allar nánari upplýsingar og reglur um starfsrækslu
tónlistarhópsins veitir menningarmálanefnd Reykjavíkur.
if
www.visiir.is
FVRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAH
Sölumyndbönd:
Þrjár nýjar frá
Disney
Mánaðarlega koma út nýjar Disn-
ey-teiknimyndir á sölumyndbönd-
um frá Sam-myndböndum og komu
síðustu þrjár út í síðustu viku. Ber
þar fyrst að nefna Svaðilfor
Bangsímons, teiknimynd sem er í
fullri lengd og tekur hún upp þráð-
inn þar sem Ævintýri Bangsímons
endaði en sú mynd fékk góðar við-
tökur. Svaiðitfór Bangsímons er
með íslensku tali. Á sama tíma
komu út tvö myndbönd í mynda-
flokknum Ævintýri í andabæ þar
sem sem Jóakim aðalönd og Ripp,
Rapp og Rupp fara á kostum, nýju
myndböndin heita Endur fyrir
löngu og Draugahótelið. Vert er
einnig að geta tveggja teiknimynda
um Bleika pardusinn, Töfrasprot-
ann og í flughemum, sem komu út
í lok april, en það eru fyrstu sölu-
myndböndin með Bleika pardusn-
um sem gefln eru út hér á landi.
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Snorri Jónsson, framkvæmdastjóri Undirtóna:
Einhenti
„Eg þyrfti eiginlega
að nefna nokkur þús-
und titla en stikla
kannski frekar á
því sem hefur
dvalið í tækinu hjá mér
undanfarna daga (fyrir utan
allt barnaklámið, að sjálf-
sögðu!). Félögum mínum tókst að
grafa upp alveg stórkostlega videó-
mynd fyrir norðan. Um er að ræða
Einhenta karatemanninn, ævagamla
mynd sem fannst í verbúðinni á Dal-
vík. í henni leika eingöngu óþekktir
austurlenskir leikarar og er myndin
alveg frábærlega illa talsett. Fátt
veit ég um myndina nema að leik-
stjóri hennar, Chang
Chong Ching Cheng,
eða hvað hann nú
heitir, hafði gert
nokkrar fleiri
myndir um
einhenta
menn sem lentu í krís-
um. Þessi mynd
um „einhenta
karatemanninn" líður þó
sérstaklega fyrir það að
í henni var enginn
einhentur karatemað-
ur... Annað skemmtilegt úr tæk-
inu hjá mér er hin sígilda mynd
Stevens Segals, Out for Justice. Ég
virðist bara ekki geta orðið leiður á
honum Segal þar sem hann ráfar um
gamla hverfið sitt í leit að kolgeggj-
uðum, morðóðum glæpóna sem hef-
ur skilið eftir sig blóði drifna slóð.
Þarna er hann ekkert að reyna að
leika of mikið, það er ekkert verið
að velta sér upp úr einhverjum
amerískum væmniklisjum, heldur
gerir hann bara það sem hann gerir
best, lemur mann og annan og segir
svo eitthvað gáfulegt á eftir. Frábær
mynd! Ef ég á að tína til eitthvað af
þeim myndum sem voru bara að
koma út þá er það engin
að mynd Dav-
ids Finchers, The
Game, er alveg brilliant
mynd sem ég steinlá
fyrir, og svo náttúrlega
Event Horizon. Það er
mynd sem ég á seint
eftir að gleyma. Þvflíka
og aðra eins geðveiki
hef ég ekki séð síðan í
The Shining eftir
Stanley Kubrick."