Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Blaðsíða 35
JLlV LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
gienning
Voces Thules flytja Þorlákstíðir um hvítasunnuna:
Tónlistaruppgröftur
- rætt við forsprakka hópsins, Sverri Guðjónsson kontratenór
Félagar í Voces Thules flytja Porlákstíöir í Kristskirkju um hvítasunnuna. Hér
eru þeir á kirkjutröppunum, frá vinstri: Sverrir Guöjónsson, Eggert Pálsson,
séra Kristján Valur Ingólfsson, Guðlaugur Viktorsson, séra Jakob Rolland,
Siguröur Halldórsson, Einar Jóhannesson og Eiríkur Hreinn Helgason.
Fjölmargt á dagskrá Listahátíðar
um helgina ber þess keim að hvíta-
sunnuhátíð gengur í garð. Atriði
tengd trúar- og tónlistararfi íslend-
inga eru áberandi. í Þjóðarbókhlöð-
unni verður opnuð sýningin „Trú og
tónlist í íslenskum handritum fyrri
alda“ og hefst hún með flutningi á
kirkju- og trúartónlist. Sönghópur-
inn Voces Thules flytur Þorlákstíðir
í Kristskirkju á hvítasunnudag og 2.
í hvítasunnu og í tengslum við flutn-
inginn hefst sýning í Ámastofnun á
handritum Þorlákstíða auk þess sem
fyrirlestur verður fluttur í klúbbi
Listahátíðar í Iðnó um innihald og
umgjörð tíðagjörðarinnar.
í tilefni þessa fengum við Sverrir
Guðjónsson, forsprakka Voces Thu-
les, til að fræða okkur örlítið um
flutning Þorlákstíða. Verkið verður
flutt í fimm hlutum og tímasetning-
in er miðuð við fornar tíðir. Fyrst
er aftansöngur kl. 18 á hvítasunnu-
dag, síðan óttusöngur á miðnætti,
þá dagtíðasöngur kl. 12 á hádegi á 2.
í hvítasunnu, aftansöngur II er kl.
18 á 2. í hvítasunnu og loks það sem
nefnist „in missa“ kl. 20. Hver flutn-
ingur tekur u.þ.b. klukkustund.
800 ára dánartíð
Þorláks helga
„Hugmyndin kviknaði fyrst fyrir
fimm árum þegar var 800 ára dánar-
tíð Þorláks helga. Þá höfðum við í
huga að flytja úr handritinu heila
tónleika. Við vorum með ritgerð dr.
Róberts A. Ottóssonar til hliðsjónar
og sáum, þegar við fórum að kafa
ofan í verkið, að þetta var heilmikið
mál. Ýmsar tilvísanir í handrit sem
syngja átti eftir komu í ljós sem við
vissum varla hvar við áttum að leita
að. Við fengum síðan aðstoð við það.
Þetta er nokkurs konar tónlistarupp-
gröftur," sagði Sverrir en handrit
Þorlákstíða er frá öndverðri 14. öld.
„Textinn í handritinu fjallar um
heilagleika Þorkáks. Það sem er at-
hyglisvert við þetta er að á þessum
tíma voru allt aðrar aðstæður en
eru í dag. Þegar fólk var að heita á
dýrlinga þá gátu alls konar hvers-
dagslegir hlutir skipt miklu máli,
t.d. að veðrið yrði gott á ákveðnum
tíma, heilsan myndi haldast og bú-
skapurinn gengi vel. Fólk fór í píla-
grímsgöngur vegna áheita á Þorlák
helga. Hann er síðan lögtekinn sem
dýrlingur árið 1198 á Alþingi. Þess
vegna tókum við stefnuna á flutning
verksins árið 1998.“
Leitað til sárfræðinga
Sverrir sagði sönghópinn hafa
þurft að leita til ýmissa sérfræðinga
á æfmgatímanum, t.d. vegna fram-
burðar á miðaldalatínu og að lesa
forna nótnaskrift. Þetta væri án efa
stærsta verkefni hópsins til þessa en
hann var stofnaður fyrir sjö árum.
„Ég held að við hefðum ekki lagt
út í þetta hefðum viö áttað okkur á
umfangi verksins. Við stukkum út í
laugina og héldum áfram að synda
þar til bakka var náð. Tókum á
þeim vandamálum sem upp komu
hverju sinni," sagði Sverrir en þess
má geta að Voces Thules stefnir að
upptöku á Þorlákstíðum, væntan-
lega í Skálholtskirkju næsta haust.
Verkið kemur til með að fylla fjórar
geislaplötur.
Sverrir sagðist finna fyrir mikl-
um áhuga á tónleikunum i Krists-
kirkju. Þar gæfist fólki gott tæki-
færi til að kynnast tilbeiðslu- og
hugleiðslutónlist kaþólsku kirkj-
unnar um leið og það gæti róað sig
niður á hvítasunnunni.
Þorlákur fylgist með
Aðspurður hvort þeir félagar
hefðu fundið fyrir anda Þorláks
helga við undirbúning og æfingar
verksins sagðist Sverrir ekki getað
neitað því.
„Ég hef margsinnis fundið mjög
sterkt fyrir því á þessum tíma að það
væri eins og verkinu væri stýrt. Ým-
islegt hefur gerst sem við getum ekki
eingöngu skýrt sem tilviljun,“ sagði
Sverrir og tók sem dæmi þegar boð
kom frá Bretlandi fyrir tveimur árum
um að syngja á listahátíð i Lincoln-
shire. Lincoln er þar skammt frá en
þar gekk Þorlákur einmitt í skóla.
Steindur gluggi með honum er þar á
einni kapellu ásamt nokkrum öðrum
dýrlingum. Sverrir minnti líka á að
það var Þorlákur helgi sem kom hand-
höfum forsetavalds til bjargar í lyftu
Biskupsstofu hér um árið þegar bók
Þorláks var notuð til að spenna upp
lyftuhurðina. Dýrlingurinn kemur því
víða við í nútímanum!
Prestar fengnir í hópinn
Sverrir sagði Voces Thules hafa
orðiö til vegna áhuga á flutningi á
bæði fornri og nýrri tónlist. Að ná
saman þessum tveimur pólum tón
listarsögunncir.
„Við byrjuðum á endurreisnartón
list, madrígölum og þess háttar, og
færðum okkur síðan yfir í miðalda-
tónlist og nýja tónlist. Við höfum
jöfnum höndum flutt veraldleg og
kirkjuleg verk,“ sagði Sverrir sem
hefur verið í sönghópnum frá upp-
hafi. Lengi vel voru 5 í hópnum en
við flutning Þorlákstíða eru 8 söngv-
arar. Hópurinn fékk tvo presta sér-
staklega til liðs við sig nú, þá Krist-
ján Val og Jakob Rolland, prest í
Kristskirkju, en aðrir eru Sigurður
Halldórsson, Eiríkur Hreinn Helga-
son, Eggert Pálsson, Guðlaugur Vikt-
orsson og Einar Jóhannesson.
Að loknu þrekvirkinu um helgina
munu félagarnir í Voces Thules
væntanlega „anda léttar“ eins og
Sverrir komst að orði og taka sér
stutt hlé. Síðan tekur við Skálholts-
hátíð í sumar sem tileinkuð verður
Þorláki helga. Þann 20. júlí nk.
verða nákvæmlega 800 ár liðin frá
því Þorlákur var tekinn í dýrlinga-
tölu. -bjb
iiaag! MJá,halló.“
y
SIMTALSFLUTNINGUR SIMANS
gerir þér kleift að svara símanum heima
þótt þú sért í fríinu innanlands.
Með símtalsflutningi getur þú vísað öllum símtölum sem l
z
beint er í síma þinn í annan síma, hvar sem er á landinu, l
o
hvort sem það er í venjulegan síma, farsíma eða boðtæki. f
Faðu frekari upplýsingar um símtals-
flutning í gjaldfrjálsu númeri 8oo 7000
eða í Símaskránni á bls. 20-21.
WÓNUSTUMIÐSTÖÐ SÍMANS
PHH17QOO
SIMINN
47
Afmæli h|á
Börnunum er boðið í
afmælisveislu með Afa á
Mallorca
SamviMiufeplir
Lantlsýn
Austurstræti 12:569 1010 • Hótel Saga vlð
Hagatorg: 562 2277 • Hafnarljörður: 565 1155
Ketlavlk: 421 3400 • Akranes: 431 3386
Akureyri: 462 7200 • Vestmannaeyjar: 481 1271
Isafjörður: 456 5390 • Einnig umboðsmenn um lanrf allt
30. júní - 13. júlí