Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Blaðsíða 27
T~l~\7~ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
Gekkst
til þess
_________________________ fréttaljós
Fyrrverandi lífvörður Rússlandsforseta:
undir aðgerð á nefi
að þóknast Jeltsín
I rúmlega 10 ár gætti Al-
exander Korzhakov Boris
Jeltsíns Rússlandsforseta.
Korzhakov gaf forsetanum
góð ráð og þynnti vodkað
hans til þess að hann
stæði á fótunum. Árið 1996
rak Jeltsín Korzhakov í
beinni sjónvarpsútsend-
ingu án nokkurrar viðvör-
unar.
„Ég er ekki bitur maður.
Það er hins vegar skoðun
mín að rússneska þjóðin
eigi rétt á að vita sannleik-
ann um þá sem stjórna
henni,“ segir Korzhakov í
viðtali við danska blaðið
Jyllands-Posten um bók
sína sem fjallar um árin
með Jeltsín. Korzhakov
vísar því á bug að hann
hafi verið að hefna sín
með uppljóstrununum.
Núna situr Korzhakov á
rússneska þinginu. Auk
þingstarfanna veitir
Korzhakov auk þess ráð
sem sérstakur Jeltsín-sér-
fræðingur. Fáir þekkja
Rússlandsforseta jafnvel
og hann.
Mynd lífvarðarins fyrr-
verandi af Rússlandsfor-
seta er óhugnanleg. Hann
lýsir sjúkum, óábyrgum og
drykkfelldum þjóðhöfð-
ingja.
„Jeltsín er ekki í líkam-
legu ástandi til þess að
sinna starfi sínu. Áður fyrr þótti
honum gaman að fara á mannamót.
Nú gerir hann allt til þess að forðast
opinberar athafnir," segir
Korzhakov og spyr jafnfram hvenær
forsetinn hafi síðast heimsótt verk-
smiðju.
Ráðskast ----------------—
með for-
setann
Að sögn
Korzhakovs er 1P5~
Rússlandi stjórn-
að af valdaklíku.
Hún samanstandi
af dóttur Jeltsíns,
Tatjönu Datjenko, starfsmanna-
stjóra forsetans, Valentin Jumatsjov
og nokkrum áhrifamiklum fjár-
málafurstum. Korzhakov fullyrðir
að þessir aðilar ráðskist með hinn
veikgeðja forseta.
„Það er tómarúm í kringum
Jeltsín. Hann hittir engan og valda-
klíkan er búin að sía allar upplýs-
Borís Jeltsín skálar við Viktor Tsjernómyrdín, fyrrum forsætisráðherra sinn, í sextugsafmæli þess
síðarnefnda 9. apríl síðastliðinn. Jeltsín rak Tsjernómyrdín og alla stjórn hans 23. mars síðastliðinn.
Símamynd Reuter
Erlent
fréttaljós
ingar sem hann fær,“ segir
Korzhakov.
í bókinni lýsir Korzhakov Jeltsin
sem óstöðuglyndum, eigingjörnum,
yfirgangssömum, gráðugum og
lygnum. Enginn gagnrýnandi hefur
dregið í efa sannleiksgildi þessara
upplýsinga frá því að bókin kom út
í fyrra.
_____________ í henni segir
Korzhakov meðal
annars frá þvi þeg-
ar hann kvöld
nokkurt árið 1990
— var kvaddur á lög-
reglustöð í Moskvu
til þess að sækja yf-
irmann sinn. Jeltsín
var fullur, rennvot-
ur og hálfnakinn. Hann var í nær-
buxum einum klæða og hafði fengið
lánaðan jakka lögreglumanns til að
láta yfir axlirnar. Jeltsín, sem þá
var félagi í Æðsta ráðinu, hafði ver-
ið bjargað úr ísköldu vatni.
„Þegar hann sá mig brast hann í
grát,“ skrifar Korzhakov.
Samkvæmt frásögn Jeltsíns höfðu
nokkrir starfsmenn leyniþjónust-
unnar KGB hrint honum fram af
brú til þess að drekkja honum. Líf-
vörðurinn fyrrverandi telur hins
vegar líklegra að Jeltsín hafi sjálfur
stokkið í vatnið til þess að fyrirfara
sér. Korzhakov fuÚyrðir að Rúss-
landsforseti hafi nokkrum sinnum
reynt að svipta sig lifi. Til dæmis
hafi hann lokað sig inni í saunabaði
1992. Kveðst Korzhakov hafa komið
honum til bjargar með því að brjóta
upp dyrnar.
Fleygt fyrir borð
Forsetinn hefur einnig beint eyð-
ingaröflum sínum gegn öðrum.
Korzhakov segir frá siglingu á
Volgu árið 1996. Þá gramdist Jeltsín
meir og meir við blaðafulltrúa sinn,
Vjatsjeslav Kostikov. Að lokum
skipaði forsetinn mönnum sínum
að fleygja Kostikov fyrir borð. Skip-
uninni var hlýtt. Lögreglubátur,
sem sigldi á eftir, dró blaðafulltrú-
ann upp úr ánni.
Korzhakov starfaði í 9. deild KGB
þegar Jeltsín varð aðalritari Komm-
únistaflokksins í Moskvu 1985.
Korzhakov var gerður að
einkalífverði Jeltsíns og
sýndi honum mikla holl-
ustu. Þegar Jeltsín var
gagnrýndur sundur og sam-
an í miðstjóm flokksins
1987 var Korzhakov sá eini
sem stóð við hlið hans.
Þar með fékk lífvörður-
inn óvenjumikil pólitísk
áhrif. Þeir sem vildu ná
tali af forsetanum urðu
fyrst að snúa sér til
Korzhakovs. Samtimis
kom Korzhakov upp eig-
in leyniþjónustu sem
safnaði upplýsingum um
ráðherra, embættismenn
og herinn.
Á bak við tjöldin var
Korzhakov ásamt yfir-
manni leynilögreglunn-
ar, Mikhail Barsukov, og
aðstoðarforsætisráð-
herra, Oleg Soskovet, i
forystu svokallaðs striðs-
flokks sem tældi Jeltsin
til þáttöku í Tsjetsjeníu-
stríðinu 1995. Árið eftir
reyndu þeir að fá Jeltsín
til að aflýsa forsetakosn-
ingunum. Fylgi Jeltsíns
var lítið samkvæmt nið-
urstöðum kannana og
óttuðust Korzhakov og
félagar hans að Jeltsín
myndi tapa fyrir fram-
bjóðanda kommúnista,
Gennadíj Zjúganov.
Umbótasinninn
Anatolij Tsjúbaís mátti
ekki heyra á það minnst
að aflýsa kosningum.
Tsjúbais naut stuðnings
ríkustu manna Rúss-
lands og fékk ameríska
ráðgjafa í almanna-
tengslum til þess að
leggja linurnar fyrir baráttuna.
Valdabaráttan milli striðsflokks
Korzhakovs og hinna frjálslyndu
náði hámarki 19. júní 1996 þegar
tveir samstarfsmenn Tsjúbaís voru
stöðvaðir á leið út úr Hvíta húsinu
í Moskvu. Þeir voru sakaðir um að
hafa smyglað 500 þúsund Banda-
ríkjadölum út úr stjórnarbygging-
unni. Tsjúbaís sakaði strax
Korzhakov um að standa á bak við
aðgerðina. Hans menn hefðu í leyni
komið peningunum fyrir hjá mönn-
um Tsjúabaís. Tilgangurinn hefði
verið að skapa kreppuástand. Dag-
inn eftir skarst Jeltsín í leikinn og
Korzhakov varð að taka pokann
sinn. Sjálfur neitar hann að um
samsæri hafi verið að ræða.
í bók sinni segir Korzhakov frá
leynilegum samningaviðræðum við
kommúnista fyrir kosningarnar
1996. Tilgangurinn hafi verið aö
finna málamiðlun til að komast hjá
kosningum. Korzhakov kveðst hafa
rætt við marga leiðtoga kommún-
ista samkvæmt skipun Jeltsíns.
„Hann lék tveimur skjöldum. Hann
bað mig um eitt og Tsjúbaís um
annað. Jeltsín gat ekki ákveðið sig.
Hann vildi kannski ræða við komm-
únista en vildi undir engum kring-
umstæðum gera það sjálfur. Á þeim
tíma rak hann herferð gegn komm-
únistum í fjöimiölum," segir
Korzhakov.
Lagði nefið undir Orðaforðinn 200 nrð
Alexander Korzhakov með bók sina um Borís Jeltsín Rússlandsforseta.
Símamynd Reuter
Þjónustulund Korzhakovs
var meira að segja svo mik-
il að hann gekkst undir
ónauðsynlega lýtaaðgerð á
nefi til þess að sýna fram á
að hægt væri að gera sams
konar betrumbót á nefi
Jeltsíns.
„Ég trúði á hann. Ég var
viss um að hann gæti gert
eitthvað gott fyrir Rúss-
land,“ segir Korzhakov
núna.
Árið 1992 gerði Jeltsín
Korzhakov að yfirmanni ör-
yggisgæslunnar í Kreml.
Valdaklíkan kynnti Sergej Kírijen-
ko, nýjan forsætisráðherra Rúss-
lands, fyrir Jeltsín, að því er
Korzhakov fullyrðir. „Þau héldu að
þau gætu fengið Kíríjenko til að
gæta hagsmuna þeirra en þau mis-
reiknuðu sig. Þegar þeim var það
ljóst reyndu þau að koma í veg fyr-
ir að hann yrði forsætisráðherra.
En það var of seint. Jeltsín var þeg-
ar óður eins og naut og hélt fast í
frambjóðanda sinn.
„Jeltsín féll fyrir hátterni hans og
það mælsku hans. Það er auðvelt að
vekja aðdáun hjá forsetanum.
Fylgist maður með hans eigin máli
uppgötvar maður að daglegur orða-
forði hans er ekki nema 200 orð,“
segir Korzhakov.
Byggt á Jyllands-Posten.
8
VOCES THULES.
Þorlákstíðir
Kristskirkju, Landakoti,
su. 31/5 kl. 18 og 24.
Mánud. 1/6 kl. 12, 18
og 24.
GALINA
GORCHAKOVA
sópran
Háskólabíói þri. 2/6. kl.
20, uppselt.
SINFONÍUHLJÓMSV
EIT ÍSLANDS.
Hljómsveitarstjóri Yan
Pascal Tortelier.
Fiðluleikari Viviane
Hagner.
Háskólabíói fö. 5/6 kl.
20.
SEIÐURINDLANDS.
Indverskir dans- og
tónlistarmenn.
Iðnó lau. 6/6 og su. 7/6
kl. 20, uppselt.
POPP í REYKJAVÍK í
og við Loftkastalann
4.-6. júní.
Miðasala í
Loftkastalanum,
s. 552 3000.
CARMEN NEGRA og
ÍSLENSKI
DANSFLOKKURINN
(sjá sérauglýsingar).
KLÚBBUR
LISTAHÁTÍÐAR í
IÐNÓ.
í dag kl. 17: Dansarar
og listrænn stjórnandi
Nederlands Dans
Theater III eru gestir
klúbbsins, kynna starf
sitt og sitja fyrir svörum.
Sunnudagur-
hvítasunna: Iðnó lokað.
Annar í hvítasunnu:
Klúbbur Listahátíðar
lokaður.
MIDASALA í LJ|t|»lysiiigamiOstöö
ferðiimálu í Reykjavík, liiinkaslra'ti 2.
Sínii 552 8588.
Opið alla daga frá kl. 8.30—19.(10
n» á sýningarslað kliikkutiina
lyrir svniiign.
(»reiðsliikorla|ijónnsta.
IlÞildardagskrá liggur
franuni í iniðasiilu.