Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Page 48
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 JLlV
veiðivon
Laxveiðisumarið að hefjast annan í hvítasunnu
hjólmor
Það styttist verulega í að fyrstu
veiðiárnar verði opnaðar fyrir
veiðimönnum, ekki nema nokkrir
klukkutímar þangað til. Fyrstu
veiðimennirnir renna á mánu-
daginn, í Noröurá og Þverá í
Borgarfirði fyrir hádegi og eftir
hádegi í Laxá á Ásum. Spennan
hefur sjaldan verið meiri en nú.
Laxveiðiumræðan hefur sjaldan
verið eins heit og síðustu vikurn-
ar. Enda segja fróðir menn að
engir veiðimenn verði I brúar-
hyljum þetta sumarið. Það gæti
nefnilega einhver átt leið fram
hjá og spurt óvart hvort einhver
hefði boðið honum í laxveiðitúr-
inn. Og hver vill lenda í því?
Það er margt sem ergir veiði-
menn þessa dagana og það gæti
fleira orðið vandamál í sumar.
Þá sérstaklega þegar laxveiði-
árnar verða orðnar mjög vatns-
litlar. Snjórinn í fjöllum er eng-
inn. Við tókum nokkra kunna
veiðimenn tali og spurðum þá
um sumarið. -G.Bender
Opnir 09 lokciðir
Fróbær verð
Skútuvogi 12A, s. 568 1044
Gó&ur og ódýr kostur
„Mér líst feiknavel á þetta sumar í
veiðinni og þá sérstaklega í silungs-
veiðinni. Það er líka gott árferði í
hafmu og það hefur sitt að segja,“
sagði Jóhann Sigurðarson leikari.
„Maður er aðeins farinn að hugsa
um sumarið, enda styttist í að veið-
iámar verði opnaðar. Við opnum
Hörðudalsána i Dölunum og síðan
verður farið í júlí á urriðasvæðið á
Laxárdal í Þingeyjarsýslunni. Það
gæti orðið gott þar því fiskurinn er
vænn. Ég held að þetta verði mjög
gott surnar," sagði Jóhann í lokin.
Ispó er samskeytalaust
akrýlmúrkerfi.
flMj
„Svarið við spumingunni hvern-
ig veiðisumarið verður er já og nei.
Ég veit það ekki en ég fer ekki með
miklar væntingar til veiða á þessu
sumri,“ sagði Eggert Skúlason
fréttamaður og bætti við:
„Núna vil ég að sumarið komi
mér á óvart og verði skemmtilegt og
maður veiði vel. Þau hafa svo mörg
verið slöpp, en bulliö er alveg að
byrja. Ég er byrjaður að renna, fór í
Tungulæk fyrir skömmu og veiddi
15 fallega sjóbirtinga. Síðan veiddi
ég 7 punda urriða í Minnivallalækn-
um. Laxveiðin er ekki alveg komin
á hreint hjá mér í sumar, en ég á
von á að fá bankastjóradaga ein-
hvers staðar fyrir lítið."
Yfir 650 hús klædd á síðastliðnum
16 árum. 5 ára ábyrgð.
Gerum tilboð í efni og vinnu, þér
að kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiðsbúð 3 • 210 Garðabær
Simi 565 8826
„Fyrsti veiðitúrinn verður í
Brennuna 11. júní og það gæti orðið
gott þar, ég fer svo aftur þangað
seinna i júní. Mér líst vel á sumar-
ið, þýðir nokkuð annað en vera
bjartsýnn á veiðina,“ sagði Sigurð-
ur Garðars húsasmiður.
„Það verður farið víða í sumar,
Álftá á Mýrum verður heimsótt og
eitthvað fleira, eins og Elliðaámar.
Ég fór í Sogið í bleikjuna fyrir
skömmu og það var fint. Ég held að
þetta verði gott laxasumar."
„Ég er ekki alltof bjartsýnn á
sumarið, ég býst að vísu við tals-
verðri aukningu fyrir norðan og
austan, þar sem ástand sjávar og
seiðabúskapur hefur verið í góöu
lagi. En eitthvað gæti Eyjólfur þó
hresst hérna á suðvesturhorninu, til
dæmis í Laxá í Kjós, sem nýtur góðs
af netaupptökum," sagði Þórarinn
Sigþórsson tannlæknir.
„Annars er ég smeykur við yfir-
vofandi vatnsleysi. Það er enginn
snjór í fjöllum og jarðvatn stendur
með lægsta móti. Þetta gæti komið
illa niður á ám sem eru hreinar
dragár, eins og til dæmis Laxá í Döl-
um og Norðurá. En við skulum bara
spá rigningarsumri og þá verður
allt í sómanum. Ég byrja veiðisum-
arið með því að opna Laxá í Kjós og
þaðan verður farið í Kjarrá og síöan
heimsæki ég Norðvestur- og Norð-
urlandið, skemmtilegt start,“ sagöi
Þórarinn í lokin.
Nýtt Urval
á næsta
sölustað
„Eg held að þetta verði sumar sjó-
bleikjunnar því hún er í góðu formi.
Við erum að fara í Hópið um helg-
ina og það gæti gefið vel,“ sagði Lár-
us Guðjónsson í Veiðibúð Lalla.
„Það eru Haukar í Hópi sem eru
að fara í Hópið. Fjórar fjölskyldur
sem ætla að renna fyrir bleikjuna
og hafa gaman af. Við förum svona
túr á hverju ári þarna norður.
Veiðiskapurinn hefur verið heldur
risjóttur hérna í kringum mig eins
og i Hlíðarvatni í Selvogi. Ég frétti
af veiðimönnum sem voru þarna
fyrir fáum dögum og þeir gátu að-
eins veitt í tvo tíma. Það var svo
hvasst, en gekk vel þennan stutta
tíma sem hægt var að renna. Það
er ekki eins gott að segja til með
laxveiðina, hún er stórt spum-
ingamerki,“ sagði Lárus ennfrem-
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR