Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1998, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
Íafmælin
Til hamingju
með afmælið
Irn r r
.jum
80 ára
Ingibjörg Bogadóttir,
Hlíöarvegi 45, Siglufiröi.
Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Blesastöðum III, Skeiðahreppi.
75 ára
Helga Kristinsdóttir,
Miöleiti 7, Reykjavík.
Ásgeir Sæmundsson,
Fornhaga 11, Reykjavík.
Gunnhildur Sigurðardóttir,
Fjarðarstræti 2, ísafirði.
70 ára
Þóra Guðmundsdóttir,
Bólstaðarhlíð 29, Reykjavík.
Þuríður Bára
Halldórsdóttir,
Hrísateigi 23, Reykjavík.
Héðinn Ágústsson,
Skógarási 4, Reykjavík.
Sigríður Eiríksdóttir,
Víðivangi 5, Hafnarfirði.
Guðmundur Márusson,
Norðurbrún III, Seyluhreppi.
60 ára
Svanhildur HaUdórsdóttir,
Háaleitisbraut 30, Reykjavík.
Gunnsteinn Gunnarsson,
Stórahjalla 3, Kópavogi.
Sigurður Friðriksson,
Vörðubrún 4, Keflavík.
Hreinn Pálsson,
Brautarholti 7, ísafirði.
ÞórhUdur Vilhjálmsdóttir,
Hálsi, Ljósavatnshreppi.
Haraldur E. Logason,
Reyrhaga 18, Selfossi.
50 ára
Haraldur Haraldsson,
Sævarlandi 10, Reykjavík.
Guðný Sigurbjörnsdóttir,
Brekkuseli 3, Reykjavík.
Dagný B. Sigurðardóttir,
Lækjarbergi 7, Hafnarfirði.
Stephanie Scobie,
Sviðholtsvör 2,
Bessastaðahreppi.
Árni Anton Þorvaldsson,
Háalundi 8, Akureyri.
Rafh Haraldsson,
Bræðrabóli, Ölfushreppi.
40 ára
Linda Vilhjálmsdóttir,
Laugavegi 49, Reykjavík.
Hekla Karen Sæbergsdóttir,
Hjálmholti 10, Reykjavík.
Elín Guðbjörg Helgadóttir,
Víðihlíð 3, Reykjavík.
Jóhanna Th.
Sturlaugsdóttir,
Dalhúsum 60, Reykjavik.
Eva Daníelsdóttir,
Hveralind 13, Kópavogi.
Ámi Þór Lárusson,
Kjarmóa 2, Njarðvík.
Kristín Böðvarsdóttir,
Fagraholti 5, ísafirði.
Guðlaug I.
Sveinbjörnsdóttir,
Traðarlandi 10, Bolungarvik.
Hafdis Sveinsdóttir,
Jöklatúni 5, Sauðárkróki.
Ingibjörg Torfadóttir,
Svarfaðarbraut 4, Dalvík.
Bjami Pálsson,
Syðri-Gróf,
V illingaholtshreppi.
XJrval
-960síðuráári-
fróðleikur og skemmtun
sem lifir mánuðum og
árumsaman
Olafur Ingibjörnsson
Ólafur Ingibjörnsson læknir,
Æsufelli 4, Reykjavík, verður sjö-
tugur á annan í hvítasunnu.
Starfsferill
Ólafur fæddist á Flankastöðum á
Miðnesi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1949, embættisprófi í læknis-
fræði frá HÍ 1959 en almennt lækn-
ingaleyfi öðlaðist hann 1961. Ólafur
var námskandídat á Landspítalan-
um og Slysavarðstofunni í Reykja-
vík 1959-60, aðstoðarlæknir héraðs-
læknis í Akraneshéraði 1960, hér-
aðslæknir í Reykhólahéraði 1960-61,
aðstoðarlæknir á Royal Hospital for
Sick Children í Glasgow 1961 og á
Cumberland Infirmary í Carlisle i
Englandi 1961-62, læknir á Ayr
County Hospital í Ayr í Skotlandi, á
bæklunardeild og slysadeild,
1962- 63, deildarlæknir á Adelaide
Hospital í Dyflinni, á handlækn-
ingadeild og bæklunardeild,
1963- 64, og jafnframt aðstoðarkenn-
ari við Dyflinnarháskóla, læknir í
Keflavík og jafnframt aðstoðarlækn-
ir við sjúkrahúsið þar 1964-65,
deildarlæknir í bæklunar- og slysa-
lækningum við Ayr County Hospi-
tal 1965-66, yfirlæknir við St.
Franscisussjúkrahúsið í Stykkis-
hólmi 1966-67, var
sérfræðingur við
Slysavarðstofuna í
Reykjavík og Borgar-
spítalann, slysadeild
1967-75, en hefur ver-
ið með eigin læknis-
stofu í Reykjavík frá
1975.
Ólafúr var kennari
í handlæknisfræði við
Hjúkrunarskóla ís-
lands 1968-69, var
með klíniska kennslu
fyrir læknanema í sambandi við
störf á Borgarspitalanum, slysa-
deild, hefur verið ráðgefandi sér-
fræðingur í bæklunar- og slysa-
lækningum við hersjúkrahúsið á
Keflavíkurflugvelli, hefur haft um-
sjón með námskeiðum í sjúkraflutn-
ingum og skyndihjálp hjá Brunaliö-
inu í Reykjavík og Flugbjörgunar-
sveitinni á starfstíma hjá Borgar-
spítalanum, starfaði í ráðgefandi
nefnd fyrir Almannavarnanefnd
Reykjavíkur 1968-69, í hópslysa-
nefnd Borgarspítalans 1969-74 og i
sjúkraflutninganefnd Reykjavíkur
1970-74.
Ólafur og Björn Jónsson
flugstjóri hófu þyrlubjörgunarstörf
á vegum Landhelgisgæslunnar og
Borgarspitalans og áttu þátt í því að
skipuleggja það starf frá
upphafi.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 3.6. 1979
Helgu Kristínu Jónsdóttur,
f. 18.12. 1955, d. 30.5. 1996,
lyfjatækni og læknaritara.
Hún var dóttir Jóns Sveins-
sonar, skrifstofumanns í
Reykjavík, og k.h., Önnu
Guðrúnar Helgadóttur hús-
móður.
Dætur Ólafs og Helgu Kristínar
eru Lísa, f. 14.3. 1979,
menntaskólanemi; Linda, f. 8.11.
1981, nemi við FB.
Börn Ólafs af fyrri hjónaböndum
eru Ingvar Björn, f. 18.1. 1950,
aðstoðarforstöðumaöur við tækni-
deild VISA ÍSLAND, kvæntur Eddu
Loftsdóttur og eiga þau einn
kjörson; Jón Árni, f. 4.12. 1951,
rafeindavirki í Vestmannaeyjum,
kvæntur Kristínu Ásmundsdóttur
og eiga þau þrjú böm; Gunnar Þór-
arinn, f. 18.10. 1961, lífeðlis-
fræðingur í Edinborg, kvæntur
Paolu Ólafsson; Ólafur Patrick, f.
6.10. 1964, starfsmaður hjá
Securitas; Guðrún Mary, f. 5.7.1968,
túlkur í rússnesku hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna.
Systur Ólafs eru Halldóra, f. 1923,
fyrrv. yfirkennari Grunnskólans í
Garði; Sigríður, f. 1926, fyrrv. yfir-
kennari Grunnskólans í Njarðvíkum.
Foreldrar Ólafs voru Ingibjöm
Þórarinn Jónsson, f. 24.4. 1895, d.
1973, bóndi á Flankastöðum, og
k.h., Guðrún Ingveldur Ólafsdóttir,
f. 25.5. 1898, d. 1962, húsmóðir.
Ætt
Föðurforeldrar Ólafs voru Jón,
útvegsbóndi á Flankastöðum, Þórar-
insson, útvegsbónda þar Andreas-
sonar, og k.h., Halldóra Ásgrims-
dóttir, af skaftfellskum ættum.
Móðurforeldrar Ólafs vom Ólafur
Einarsson í Flekkudal í Kjós og k.h.,
Sigríður Guðnadóttir. Ólafur var
sonur Einars í Flekkudal, Jónsson-
ar, bróður Eysteins, föður Björns, b.
í Grimstungu, en Björn var afi
Björns á Löngumýri og prófessor-
anna Bjöms Þorsteinssonar og Þor-
bjarnar Sigurgeirssonar. Björn í
Grímstungu var einnig langafi Páls
Péturssonar á Höllustöðum. Systir
Björns var Ingibjörg, langamma
Friðriks Sophussonar, fyrrv. fjár-
málaráðherra.
Ólafur tekur á móti gestum á
Grand Hotel, á afmælisdaginn milli
kl. 16.00 og 18.00.
Ólafur Ingibjörnsson.
Elías Baldvinsson
Elías Baldvinsson, forstöðumaður
og slökkviliðsstjóri, Nýjabæjarbraut
8a, Vestmannaeyjum, verður sex-
tugur á annan í hvítasunnu.
Starfsferill
Elías fæddist i Þykkvabæ í Rang-
árvallasýslu en ólst upp í Vest-
mannaeyjum. Að loknu barnaskóla-
námi og tveggja vetra setu í Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja tóku við
ýmis almenn verkamannastörf sem
þá tíðkuðust í Eyjum. Hann hóf
nám I bifvélavirkjun hjá Hreggviði
Jónssyni bifvélavirkja í Vestmanna-
eyjum og lauk sveinsprófi í þeirri
grein 1959. Þá sótti hann skipstjórn-
arnámskeið í Eyjum einn vetur hjá
Guðjóni Pedersen.
Að námi loknu starfaði Elias m.a.
við iðn sína hjá Vélsmiðjunni Völ-
undi auk þess sem hann starfrækti
sitt eigið verkstæði. Þá stundaði
hann sjómennsku á árunum 1959-62
á fiskibátum, lengst af hjá Kristni
Pálssyni á Bergi VE-44. Sá bátur
sökk út af Öndverðarnesi er Elías
var þar háseti 1962 en mannbjörg
varð.
Elías var bifreiðaeftirlitsmaður í
Vestmannaeyjum 1963 og vann við
það til 1973. Hann gekk i Slökkvilið-
ið í Vestmannaeyjum 1962, varð
varaslökkviliðsstjóri 1973 og
slökkviliðsstjóri 1984. Þá tók hann
við stjórn Áhaldahússins í Vest-
mannaeyjum 1973 og er forstöðu-
maður þess síðan.
Elías er stofnfélagi Kiwanis-
klúbbsins Helgafells í Vestmanna-
eyjum, hefur gegnt ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir klúbbinn og var for-
seti hans 1990-91.
Fjölskylda
Elías kvæntist 6.6. 1959 Höllu
Guömundsdóttur, f. 4.12. 1939, versl-
unarmanni. Hún er dóttir Guð-
mundar Guðjónssonar, f. 28.1. 1911,
d. 18.12. 1969, verkstjóra, og k.h.,
Jórunnar Ingunnar Guðjónsdóttur,
f. 14.2.1910, d. 28.11.1995, húsmóður.
Böm Elíasar og Höllu era Þórunn
Lind, f. 13.6.1957, skipsþema í Vest-
mannaeyjum, var gift Sigurði Ein-
arssyni, starfsmanni við Vegagerð
ríkisins og eru synir þeirra Einar
og Elías; Unnur Lilja, f. 31.1. 1959,
kerfisfræðingur í Búðardal, gift
Gunnólfi Lárussyni byggingariðn-
fræðingi og eru börn þeirra Elías
Raben, Gyða Lind og Lárus; Kristín
Elfa, f. 25.6. 1960, skrifstofumaður í
Vestmannaeyjum, gift Sigurjóni H.
Adolfssyni bifvéla-
virkjameistara og eru
börn þeirra Adolf og
Ingunn Ýr; Guðmundur,
f. 13.3. 1962, verkfræð-
ingur á Hornafirði,
kvæntur Sæunni Ernu
Sævarsdóttur verslunar-
manni og eru böra
þeirra Sævar Örn, Agn-
es Lilja og Elías Skær-
ingur en áður átti Guð-
mundur Ríkharð Bjarka
með Magneu Richards-
dóttur bankastarfsmanni; Sigrún, f.
1.3. 1964, nemi í bókmenntafræði í
Reykjavík, gift Loga Friðrikssyni
tæknifræðingi og eru börn þeirra
Friðrik Máni og Halla; Eygló, f. 20.7.
1968, gift Viðari Sigurjónssyni stýri-
manni og skipstjóra og eru synir
þeirra Sigurjón og Eyþór;Elísa, f.
3.8. 1971, nemi í Reykjavík, gift
Magnúsi Benónýssyni nema og eru
dætur þeirra Anna Vigdís og Halla
Þórdís; Baldvin, f. 1.2. 1977, nemi í
Reykjavík.
Systkini Elíasar eru Kristín, f.
19.8.1936, búsett í Vestmannaeyjum;
Baldur Þór. f. 19.6. 1941, búsettur í
Reykjavík; Kristinn Skæringur, f.
29.6. 1942; Ragnar Þór, f. 31.12. 1945,
búsettur í Vestmannaeyjum; Birgir
Þór, f. 15.1. 1952, búsettur
í Mosfellsbæ; Hrefna, f.
23.1. 1954, búsett í Vest-
mannaeyjum; Baldvin
Gústaf, f. 30.8. 1957, bú-
settur í Hull; Hörður, f.
25.11. 1961, búsettur i
Swansea.
Foreldrar Elíasar:
Baldvin Skæringsson, f.
30.8. 1915, sjómaður og
smiður í Vestmannaeyj-
um og síðan í Mosfellsbæ
frá í gosinu 1973, og Þór-
unn Elíasdóttir, f. 1.12. 1916, d. 29.7.
1990, húsmóðir.
Ætt
Baldvin var uppalinn að Rauðfelli
undir Austur-Eyjaíjöllum, sonur
Skærings Sigurðssonar og Kristínar
Ámundadóttur sem þar bjuggu.
Þórunn var fædd í Reykjavík en
ólst að mestu leyti upp í Bala í
Þykkvabæ hjá foreldrum sínum, El-
íasi Nikulássyni og Kristinu Mens-
aldersdóttur.
Elías heldur upp á daginn i Þórs-
heimilinu í Vestmannaeyjum kl.
20.00 og eru vinir og ættingjar vel-
komnir.
Elías Baldvinsson.
Halldóra Helga Kristjánsdóttir
Halldóra Helga Krist-
jánsdóttir, Sæviðarsundi
28, Reykjavík, er sjötug í
dag.
Starfsferill
Halldóra fæddist í
Dalshúsum á Langanes-
strönd en ólst upp á
Vopnafirði. Hún lærði
fatasaum á sínum yngri
árum og vann við það í
nokkur ár.
Þá stundaði Halldóra
afgreiðslustörf í Reykja-
vik, þ.á.m. hjá Kaupfé-
lagi Reykjavíkur og nágrennis og
hjá bókaversluninni Mál og menn-
ingu í u.þ.b. ellefu ár.
Helga hóf nám í sjúkraþjálfun og
lauk prófum i þeirri grein 1974. Hún
stundaði síðan hjúkrun-
arstörf í u.þ.b. tuttugu og
fimm ár, lengst af á
hjartadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
Halldóra hefur verið
virkur félagi í stjórn-
málasamtökum og ýms-
um félögum, m.a. í
Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar um
árabil.
Nú hin síðari árin hef-
ur hún starfað í Sjúkra-
liðafélagi íslands. Hún
situr nú í undirbúnings-
nefnd félagsins sem vinnur að
stofnun eftirlaunadeildar Sjúkra-
liðafélagsins.
Fjölskylda
Halldóra giftist 22.1. 1949 Jón-
steini Haraldssyni, f. 4.3.1924, versl-
unarmanni. Hann er sonur Haralds
Frímannssonar og Sveinborgar
Björnsdóttur sem bæði eru látin.
Börn Halldóru og Jónsteins eru
Hafdis Jónsteinsdóttir, gift Ólafi
Emi Jónssyni og eru böm þeirra
Rósa Ólafsdóttir sem er látin, Hall-
dóra Ólafsdóttir sem á dótturina
ísold Braga Halldórsdóttur, og Ólaf-
ur Örn Ólafsson; Borgar Jónsteins-
son, kvæntur Þórunni Ingu Sigurð-
ardóttur en dóttir þeirra er Rebekka
Rut Borgarsdóttir.
Systkini Halldóru eru Þórdís
Guðrún; Hrefna; Ólöf Ágústa sem er
látin; Olgeir; Helga sem er látin;
Ruth; Ingibjörg; Þórunn Sigríður;
Ingólfur.
Foreldrar Halldóru voru Kristján
F. Friðfinnsson, klæðskeri frá
Vopnafirði, og Jakobína Gunnlaugs-
dóttir húsmóðir en þau eru bæði lát-
in.
Halldóra og Jónsteinn, eiginmaö-
ur hennar, bjóða ættingjum og vin-
um í tilefni dagsins, til kaffidrykkju
í Fóstbræðraheimilinu að Lang-
holtsvegi 109-111, þriðjudaginn 2.6.
kl. 16.00.
Það er eindregin ósk afmælis-
barnsins að þeir sem hyggjast
heiðra hana með skeytum, blómum
eða öðrum gjöfum láti andviröi þess
fremur renna til styrktar krabba-
meins sjúkum börnum.
Sími sjóðsins er 588-7555.
Halldóra Helga
Kristjánsdóttir.