Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1998, Síða 11
Thievery
Corporation
er dúett sem
er djarftækur til
verka annarra
tónlistarmanna.
Einka
gerist þjófur
Eric Hilton og Rob Garza: „Meö hljóösmölum geta
tónlistarmenn nú tekiö úr allri sögu hljóöritaörar tón-
listar og skapað eitthvaö nýtt. Þaö eina sem maöur
þarf aö hafa áhyggjur af eru lögfræöingarnir.“
Thievery Corporation - Þjófnað-
arfélagið - er dúett sem ber nafn
með rentu. Þeir eru hljóðrænir
þjófar, læðast i ólíkustu pokahom,
draga í bú eins og tónelskar krák-
ur og föndra í hægfljótandi
dansvænan eðal. Tvímenningamir
heita Rob Garza og Eric Hilton,
koma frá Washington D.C. en spila
evrópska tónlist; samlíkingar við
hina frönsku Air og gengið frá Vín,
Kmder og Dorfmeister og Sofa Sur-
fers em réttmætar. í hægri takt-
fastri tónlistinni hrærast
bossanóvataktar við döbbáhrif og
setustofugrúf. Rob trúir á mátt tón-
sýnanna; „Við vinnum út frá því
að öllum sé frjálst að taka hvaða
tónlist sem er og túlka hana upp á
nýtt. Með hljóðsmölum geta tónlist-
armenn nú tekið úr allri sögu
hljóðritaðrar tónlistar og skapað
eitthvað nýtt. Það eina sem maður
þarf að hafa áhyggjur af eru lög-
fræðingamir."
Félagarnir kynnstust 1995 og
fóru þegar að skapa, enda lágu
áhugasvið þeirra saman. Þeir tóku
að gefa út plötur á eigin merki,
sem þegar vöktu áhuga i dansund-
irheimunum. Þeir gáfu sjálíír út
stóm plötuna, Sounds from the
Thievery hi-fi, í Bandaríkjunum.
Platan gekk vel, ekki síst í Evrópu,
en þangað slæddust eintök og það
varð úr að Lundúnamerkið 4AD,
sama merki og gefur út Gusgus,
bauðst til að koma plötunni út á
meginlandinu.
Tvíeykið unir sér vel í Washint-
on og hefur nú komið þar á fót
skemmtistaðnum Eighteenth
Street Lounge (útgáfa þeirra heitir
það sama). Þar er leikin tónlist í
anda sveitarinnar; djass á einni
hæð, döbb á annarri og blandaðir
sérviskutaktar á þeirri þriðju.
Plötusnúðar úr danselítunni eru
tíðir gestir. Þá hefur dúettinn
rímixað fyrir David Byme, Black
Uhum, Pizzicato 5 og Gusgus.
Jakkafót í stíl eru vörumerki
Þjófnaðarfélagsins. „Þetta er ekki
ákveðin ímynd hjá okkur,“ segir
Rob. „Við vorum bara svona
klæddir þegar við komum úr vinn-
unni í hljóðverkið eða klúbbinn.
Þau störf sem við vorum í kröfðust
ákveðins klæðaburðar. Ég var
einkaspæjari hjá fyrirtæki sem
vann að upprætingu hryðjuverka
svo það var eðlilegt að ég væri í
jakkafötum."
-glh
Ameríska hrárokksveitin Royal Trux:
Kærustupanð Jennifer Her-
rema og Neil Hagerty stendur á
bak við Royal Trux, ameríska
hrárokksveit sem hefur rokkað í
hátt á tíunda ár. Þau em sjúskuð
mjög, fyllibyttur og uppþurrkaðir
heróínfíklar, en þó tónlistin sé
vissulega sjúskuð er hún um leið
stórskemmtileg; það mætti segja
„dmllugóð" og það hitti í mark.
Bandið hljómar ekki ósvipað og
Rolling Stones gerðu á sínu hráasta
skeiði á áttunda áratugnum (Exile
on Main Street) bara enn hrárri og
pönkaðri. Nýlega kom út Royal
Trux plata númer sjö, Accelerator,
sem sýnir bandið í algjörri upp-
sveiflu. Þetta er aðgengilegasta
plata þeirra og rokkið grípandi.
Næsta plata á undan var að vísu al-
gjört flipp, þau voru að reyna að
losna imdan plötusamningi svo þau
gerðu óskiljanlega hávaðaplötu og
höfðu ljósmynd af yfirfullu klósetti
á umslaginu.
Hjúin koma frá New York, og var
Neil áður í hljómsveitinni Pussy
Galore. Þar var einnig Jon
Spencer, sem leiðir hina frábæm
sveit, Jon Spencer Blues Explosion.
Jennifer var málari en komst að
því að hún gæti tjáð sig betur í
rokkinu. Þau em vitanlega orðin
kolmglið af öllu sukkinu og tala
eintóma steypu í viðtölum.
„Við erum spegill," segir Neil.
„Fólk sér sjálft sig í gegnum okkur
og stundmn bregst það við með of-
beldi af því að því líkar ekki það
Jennifer Herrema og Neil Hagerty:
„Viö erum sjöunda kynslóð af rokk-
inu. Okkar kynslóö er frjáls því hún
hefur verið kaffærð frá fæðingu með
áreiti."
sem það sér. Fólk treöur sínum
gildum upp á okkur og frnnst við
sjokkerandi og dónaleg. Ef fólk
horfði á okkur af hreinskilni myndi
það sjá hvað við erum: skemmtun.
Það myndi heyra tónlist sem er já-
kvæð og sterk.“
Jennifer heldur áfram í útskýr-
ingunum; „Framtíðin er þegar
komin. Við erum sjöunda kynslóð
af rokkinu. Okkar kynslóð er frjáls
því hún hefur verið kaffærð frá
fæðingu með áreiti. Við getum far-
ið fram úr því sem fyrri kynslóðir
sáu bara í hillingum. Okkar kyn-
slóð bregst ekki með ofbeldi við
Royal Trux, heldur segir fólk; Já,
ég heyri sannleikann líka.“
-glh
plötudómur
Fun lovin' Criminals - 100% Colombian: ★★★'i
Svöl molla og sveittur groddi
Frá New York koma þrír til-
reyktir gaurar, bassaleikarinn
Fast, trommarinn Steve og barka-
belgirinn Huey, og vilja vera kon-
ungar alheimsins. Þeir hafa horft á
margar töfiara- og mafíumyndir,
fundið sér fyrirmynd þar og lifa til
fulls i þeirri ímynd. Bandið tekur
hin sígildu bófa-element - að stela,
elska gullfallegar konur og
skemmta sér óhindrað - og þjappar
þeim saman í mollulegt og súper-
sexi sálarpopp með vænum
skammti af hipp-hopp töktum og
slettu af groddalegu rokki og blús.
Það er engin fúrða að Quentin Tar-
antino er aðdáandi bandsins,
töffaralegur. hljóðheimur FLC er
nákvæmlega I hans anda. 100%
Colombian er önnur plata tríósins
og hefur verðskuldað verið að fitna
vel á evrópskum vinsældalistum
síðustu vikumar.
Hér er að vísu ekkert „Scooby
Snacks“ - ekkert skjótfengið eyrna-
konfekt -en því betur venst tónlist-
in og eftir nokkur skipti ertu kom-
inn með mörg laganna á heilann.
„Love Unlimited" með Barry
White-textanum er fljótt að síast
inn og lætur þig vagga i hliðunum
eins og funheitan dólg á leið á
stefnumót. Hr. Ást, Barry White,
hlýtur að vera mikið átrúnaðargoð
Hueys, því bæði anda lögin af
ástríðu og maður heyrir í fjarska
hvar gullkeðjur strjúkast um loðna
bringu.
„Korean Bodega“ er hraðara
mollustuð, minnir á Clash í rokk-
uðum einfaldleika sínum, og er
gráupplagt til vinsælda. Groddinn
fær einnig útrás í „lOth Street" og
„Southside", en það er þó mollan
sem ríkir og svitinn beinlínis lekur
af lögum eins og „Up on the Hill“
og „Back on the Block“, þar sem
áhrif frá ofursvölu fönksáli Curtis
Mayfield og Isaac Hayes svífa
yfir vötnum. Smá kántrífúsk í lok-
in eyðileggur aðeins heildarsvip-
inn en það kemur ekki að sök,
þessi plata er eðal.
Giuinar Hjálmarsson
„Bandið tekur hin sígildu bófa-
element og þjappar þeim saman
í mollulegt og súpersexí sálar-
popp með vænum skammti af
hipp-hopp töktum og slettu af
groddalegu rokki og blús.“
popp
Klúbburinn. Nýr skemmti-
staftur sem ver&ur opnab-
ur annaö kvöld klukkan
ellefu. Hann er á efri hæö-
inni á gamla Ingólfskaffi.
Kostar ekkert inn en fólk
ver&ur að vera aö minnsta
kosti tuttugu ára. Is-
lensku R&B stelpurnar
Real Flavaz koma fram ásamt Robba Cronlc
og það verður líka boðið upp á Afródanssýn-
ingu með þekktum afrískum dönsum, eldspú-
ara, bongótrommur og eitthvert háerótískt
dæmi. Skífuþeytari kvöldsins verður Antonlo
Gonzalez.
Astró. Klukkan ellefu annað kvöld verður ný-
stárlegt sjónarspil á staðnum þar sem nýjustu
straumar og stefnur í hártískunni verða dregn-
ar fram. Tónlistarstjóri kvöldsins og diskótek-
ari er sem fýrr Áki Pain.
Broadway. Á morgun leikur SSSól ásamt hin-
um eina sanna dj. Alfred Moore úr Gus Gus-
flokknum. Nýhljómsveitin Ensíml kemur líka
fram og svo verður ABBA sýningin auðvitað á
sínum stað.
Kaffi Thomsen. 1 kvöld spilar Maggi Legó. Dj.
Árnl E. og Margeir verða svo á morgun en á
sunnudagskvöldið hefst stuðið fyrir alvöru
þegar fönksveitin Jagúar byrjar að spila.
Á flugvellinum. Skýlisball
hjá íslandsflugi og Flug-
leiðum verður haldið á
morgun en þar veröur það
hljómsveitin Skítamórall
sem leikur fýrir dansi.
Gullöldln. Svensen & Hallfunkel skemmta til
þrjú um helgina.
Café Romance. Liz Gammon verður á sínum
stað við píanóið sem endranær.
Álafoss föt bezt. Hið svokallaöa Creedence
Clearwater Revival kvöld verður endurtekið í
kvöld og gott ef ekki annað kvöld líka. Kostar
sexhundruðkall inn.
Kringlukráln. Hljómsveitin í hvitum sokkum
leikur alla helgina og meira að segia líka í
gær. Vlðar Jónsson leikur sér hins vegar !
Leikstofunni.
Fjaran. Jón Möller klikkar ekki með píanótón-
listina fýrir matargesti.
Catalína. Félagarnir Ari og Úlfar leika Ijúfa
tónlist.
Gaukur á Stöng. í kvöld spilar hin stórgóða
stuðgrúppa Irafár.
Felti dvergurlnn. Hinn
eini sanni Rúnar Júl leikur
í kvöld ásamt Tryggva
Húbner. Tvennir tímar
verða hins vegar við hljóð-
færin á morgun.
Café Amsterdam. í kvöld og annað kvöld
munu hinir síkátu Papar halda uppi írsk-ís-
lenskri stemningu.
Fógetlnn. Þar verður hljómsveitin Snæfríður
og Stubbarnlr fýrri tvö kvöldin en á sunnu-
dagskvöldið leika Maggi Einars og Tomml
Tomm.
Grand Hótel, við Sigtúnið. Gunnar Páll leikur
og syngur perlur fýrir gesti hótelsins.
Hótel Saga. Á Mímlsbar leika Stefán og Arna
lifandi tónlist f kvöld og annað kvöld en í
Súlnasalnum veröur hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar.
Næturgallnn. Þau Hllmar Sverris og Anna VII-
hjálms leika í kvöld og annað kvöld en á
sunnudagskvöldið mætir Hljómsveit Hjördísar
Geirs á staðinn með nýju og gömlu dansana.
Sir Ollver. Bítlarnlr leika öll þrjú kvöld helgar-
innar.
Kaffl Reykjavík. John Colllns og Stjörnuband-
Ið spila í kvöld og annað kvöld.
Naustið. Mávamlr leika fýrir dansi á efstu
hæðinni.
Naustkjallarlnn. Plötusnúðurinn Skugga-Bald-
ur þeytir skífur! kvöld og annað kvöld og á
fimmtudaginn er hægt að dansa Ifnudans fýr-
ir fimmhundruðkall.
í sveitinni
Akranes. Hljómsveitin Skítamórall ætlar að
bregða á leik! kvöld og spila á Hðtelinu gamla
góða.
Búðarklettur! Borgarnesi. Hljómsveitin Léttlr
sprettlr heldur uppi stemningunni um helgina.
Langisandur á Akranesi. Tvíhöfðl fer meö
gamanmál! kvöld klukkan tíu og klukkan ell-
efu tekur hljómsveitin Úlrik við.
Brúarás ! Borgarfirði. Stuðbandalagið leikur á
réttardansleik! kvöld frá ellefu til þrjú.
Krlstján Vllll í Grundarfirði. Hann Slggi Hösk.
verður þar annað kvöld.
Tjarnarlundur í Saurbæ. Réttarball með hljóm-
sveitinni Grelp á morgun.
Sveltasetrlð á Blönduósi. Rúnar Þór er ný-
kominn heim frá Spáni og ætlar ásamt félög-
um sínum að leika á hestamannaballi annað
kvöld.
Réttln í Úthiið. Lokadansleikur i Réttinni á
morgun meö Rúnarl Júl og hljómsveit.
Vlð Pollinn á Akureyri. Hljómsveitin Sín leikur
fýrir dansi i kvöld og annað kvöld.
ITnisfc j ra Á
a&^Tinmw* mStm «mss» %&&&* |
www.visir.is
18. september 1998
11