Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1998, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1998, Blaðsíða 23
0 o Snorri Sturluson, tónlistarmaður og heimspekinemi „Ég bý í miðbænum. Það er himnaríki í mínum augum. Héma í Árbænum líður mér eins og fanga. Þetta var skárra þegar ég var að alast upp hérna. Þá vom krakkar úti um allt en nú er allt dautt. Eins og í þessum botn- langa, sem er kjörinn til að leika sér í, sjást ekki krakkar í leikjum eða neitt. En annars hef ég sömu skoðun og Curtis Mayfield hvað helvíti varðar: „Dont worry, if there is hell below, we are all gon'a go.“ Við erum öll þrælsynd- ug og á beinni leið til helvítis.“ Arbærinn „Þetta er með forboðnari stöðum sem til em í heimin- um,“ segir Snorri þrátt fyrir að hafa alist upp í Árbænum. „Þetta er bara ómögulegur staður til að vera á. Ég er að passa hús þama núna og er al- veg innilokaður í þessari auðn. Það er ekkert þama. Maður sér ekki einu sinni hús- in fyrir trjánum. Fólkið lokar sig inni í þeim ásamt börnunum og lítur varla út um gluggann. Passar sig á að hlaupa beint út í bíl og bruna í burtu ef það neyð- ist til að fara í vinnu eða til lækn- is eða eitthvað." Hvar býröu þegar þú ert ekki að passa hús? Magnús Sigurðsson myndlistarmaður Gryfjan í Nýlistasafninu „Fyrir mér er helvíti frekar já- kvæður og skemmtilegiu- staður," segir Magnús Sigurðsson og bætir við að þess vegna telji hann helvíti vera að finna í Nýlistasafninu við Vatnsstíg, ef einhvers staðar. „Ný- listasafniö er svo anarkískt. Þetta er safn sem gefúr ungum lista- mönnum tækifæri og er því oft á jaðrinum. Er líka að breytast í stofnun og að reyna að sigla mitt á milli. Útkoman úr þeirri siglingu verður aldrei neitt annað en djöful- leg.“ Hvaö er í gangi í helvítinu þessa dagana? „Það býr fúllt af fólki þama núna og minnir það óneitanlega á vist í helvíti. Þetta fólk er íslendingar, Austurríkismenn og Ungverjar. Þau eru að undirbúa frekar kaó- tíska sýningu og Nýlistasafnið veit- ir rétta andrúmsloftið." Hvar á safninu er maöur næst djöflinum sjálfum? „í Gryfjunni býr djöfullinn. Það er heitasti punktur þessa helvítis og þegar fólk er að vinna við að setja upp eitthvað í Gryfjunni verð- ur það nánast undantekningarlaust frekar helvískt. Bruni BB var til dæmis með tónleika þama og líka hljómsveitin Vonbrigði. Mjög kaó- tískir hlutir þarna og bestu tón- leikaupplifanir mínar hafa einmitt komið úr Gryfjunni. Jú, svo var In- j Magnús Sigurðsson stendur í Gryfj- unni í Nýlistasafninu. Djöfullinn hlær að öllu saman fyrir neðan hann. femo 5 með djöfullegan gjöming þama á sínum tíma. Gryfjan gerir bara þær kröfur til listamanna að þeir geri svoldið helvíska hluti.“ ástæður fyrir því hvers vegna ættí að veita áfengi á vinnustöðum 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. Það er góð ástæða fyrir að mæta yfirleitt til vinnu. Áfengi dregur úr stressi og spennu - eða virðist gera það. Áfengi gerir öll samskipti opinskárri. Þegar fólk er góðglatt kvartar það síður yfir lágum launum. Fjarvistum vegna timburmanna fækkar. Starfsmenn segja yfirmönnum sínum hvað þeim finnst, ekki það sem þeir vilja heyra. Fólk þarf ekki að leita að bílastæði þar sem enginn kemur á bíl til vinnu. Fundir verða ef til vill ekki árangursrikari en hins vegar miklu skemmtilegri. Það eykur starfsgleði fólks. Þeir sem eru í vondu starfi láta sér það í léttu rúmi liggja. 10. Fridögum fækkar þar sem fólk vill heldur mæta í vinnuna en hanga heima. 11. Samstarfsfólkið lítur betur út. 12. Maturinn í mötuneytinu virðist bragðast betur. 13. Yfirmenn eru ósparir á launahækkanir þegar þeir eru í því. 14. Aukin bjartsýni eykur tiltrú fólks á fyrirtækið. 15. Það er ekki jafn pínlegt að ropa á fundum. 16. Starfsmenn vinna lengur þar sem það er engin ástæða til að kíkja inn á barinn á leiðinni heim. 17. Starfsfólkið er ófeimnara við að viðra hugmyndir sinar. 18. Fólki finnst vinnan verða léttari eftir að það hefur fengið sér einn tvo drykki. 19. Minni líkur á að fólk helli sig fullt í hádeginu. 20. Auknar likur á að þú sjáir yfirmann þinn nakinn. 21. Bætt samskipti við Rússa. 22. Ræstingarskápurinn verður loksins að einhverju gagni. 23. Fólk þarf ekki lengur að notast við kaffi til að láta renna af sér. 24. Það þykir ekki lengur djarft að sitja á Ijósritunarvélinni. 25. Það er ekkert óvanalegt við að vera þvoglumæltur. V- 18. september 1998 f ó k u s 23 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.