Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1998, Page 27
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 fnéttaljós 27 Ríkisendurskoðandí sakaður um að senda stofnunum prívatreikninga: Stendur stappi stóryrðum Meintar greiðslur rikisstofnana til ríkisendurskoðanda hafa enn komið til umræðu í kjölfar bréfs sem Tómas Ámason, tyrrverandi seðlabankasfjóri, sendi forsætisnefnd Alþingis á dögun- mn. Þar fuilyrðir Tómas að fyrrverandi ríkisendurskoðandi, Halldór heitinn Sigurðsson, og þáverandi vararikisend- urskoðandi, Sigurður Þórðarson, hafi sent Seðlabankanum prívatreikning upp á 480.00 krónur fyrir endurskoðun á reikningum bankans. Sá reikningur hefði verið endursendur eftir umræður í bankaráði og Halldór látið gott heita „enda einstaklega gætinn pg grandvar maður“ eins og segir í h”é£; 'júnasar til forsætisnefndar. Sig- _______________• urður Þórðarson, r.ú 1 ■ jl verandi ríkisendur- IHiliöHÍ skoðandi, hefur harð r *■ * , ■■ r neitað aö hafa fT6lt<llJ0S nokkru sinni sent prívatreikning til Seðlabankans. Seðla- bankanum hafl verið sendur reikningur í nafni stofhunar- innar. Tómas heldur hins vegar fast við fuilyrðingu sína um hið gagnstæða og heimtar úttekt á prívatreikningum ríkisendurskoðanda. Þetta mál er framhald umræðu frá því í vor þegar ríkisendurskoðandi var mjög í fréttum vegna bankamála. Þá birti DV frétt um að Sigurður Þórðar- son hefði frá árinu 1986 þegið árlega allt að 600 þúsund krónur i laun frá Búnaðarbankanum sem embætti hans endurskoðar eða jafhgildi launa banka- ráðsmanns. Sigurður sagðist aldrei hafa þegið verktakagreiðslur frá Bún- aðarbankanum, hann hefði einfaldlega þegið þar laun. Mátti skilja það svo að Búnaðarbankinn hefði beinlínis troðið peningum í vasa ríkisendurskoðanda. Spilin á borðið Með nýjum lögum um Ríkisendur- skoðun sem sett voru í fyrra var stofn- uninni gert að afla sértekna. Áður var henni gert að afla sér tekna samkvæmt ákvörðun i fjárlögum. Upplýst er að starfsmaður stofnunarinnar hefur feng- ið greitt fyrir að sinna sérstökum end- urskoðunarverkefnum fyrir Trygginga- stofnun ríkisins. Reyndar hefur mönn- um þótt lagaheimild til að rukka stofn- anir sérstaklega standa ótraustum fót- um. Hafa reikningar til Seðlabankans því verið greiddir með fyrirvara. Undrast hefur verið að ríkisendur- skoðandi hafi ekki opinberlega lagt fram öll gögn um persónulegar sér- greiðslur sínar og afgreitt þannig mál- ið. Guðmundur Ámi Stefánsson alþing- ismaður, sem sæti á í forsætisnefnd, sagði í mai að sér fyndist svör ríkisend- urskoðanda ekki fullnægjandi, hann hefði ekki svarað álitamálum um greiðslumar. Fátt hefur gerst til að breyta þessari afstöðu Guðmundar. En Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, segir ríkisendurskoðanda hins vegar hafa lagt öll spil á borðið. „Sigurður hefur gert fullnægjandi grein fyrir greiðslum sem hann fékk frá Búnaðarbankanum og greiðslum sem Halldór V. Sigurðsson heitinn fékk frá Landsbankanum og Jámblendifé- laginu. Einnig að Seðlabankinn hefði aldrei greitt til þefrra persónulega held- ur hafi greiðslur Seðlabankans farið til stofnunarinnar. Allt tal um að Ríkis- endurskoðun hafi síðan greitt honum af þessum peningum á ekki við nein rök að styðjast," segir Ólafur við DV. Tekjuhár Við fráfall Halldórs runnu greiðslur Landsbankans og Jámblendifélagsins beint Jg stofnunarinnar en Sigurður hélt s’- '.n til um síðustu áramót. ______________ „Sigurður fær þessa leninga ekki lengur ig frekari viðbrögð veröa ekki af okkar hálfu,“ sagði Ólafur við DV í maí. Þegar Sigurður var spurður út í auka- greiðslur I sjónvarps- viðtali í vor sagði hann eitthvað á þá leið að Kjaradómur úrskurðaði honum vart annað en fóst laun. Mátti skilja það svo að hann yrði því að bjarga sér með ýmsum aukagreiðslum. Samkvæmt sérriti Frjálsrar verslun- ar yfir tekjuhæstu íslendingana 1997 hafði Sigurður 690 þúsund krónur í tekjur á mánuði á síðasta ári, þ.e laun og aðra innkomu. Var hann 3. tekju- hæsti ríkisforstjórinn. í greinargerð Sigurðar frá í vor sagðist hann hafa 227.472 krónur í mánaðarlaun auk launa fyrir yfirvinnu. I fyrra fékk hann um 50 þúsund krónur á mánuði frá Búnaðarbankanum en eftir því sem DV kemst næst hefur Sigurður ekki bíl til umráða og því engar tekjur vegna slíks á síðasta ári. Kjaradómur úrskurðaði Sigurði laun í lok júní eftir að hann hafði ver- ið endurráðinn. Fær hann nú 312.520 krónur á mánuði auk 55 yfirvinnutíma vegna yfirvinnu og óreglulegs vinnu- tíma, alls um 490 þúsund krónur. Dómari í eiyin máli Kunnugir segja ríkisendurskoðanda hafa lækkað í launum. En meðan hann áður og embættið nú fá sérgreiðslur hefur komið upp spuming hvort Ríkis- endurskoðun sé i raun óháð stofnunum sem hún endurskoðar. Hvort ekki eigi sér stað hagsmunaárekstrar. Það þótti gefa slíkum vangaveltum byr undir báða vængi þegar í ljós kom að ríkisendurskoðandi hefði samþykkt ársreikninga bankanna þrátt fyrir mn- deilanlegan risnu- og laxveiðikostnað upp á milljónir sem kom síðar í ljós eins og frægt varð. Heimildir blaðsins benda hins vegar á að það hafi aldrei verið til þess ætlast og ríkisendurskoð- andi hefði ekki haft mannafla né pen- inga til að sefja í gang sams konar end- urskoðun og stjómskipaður endurskoð- andi bankanna framkvæmdi. Slíkt kostaði milljónir. í fyrrnefndri greinargerð Sigurðar segir hann; „Að minu mati gerir fram- angreind þóknun mig ekki vanhæfan til þess að sinna end- urskoðun í bankan- um.“ Enginn hefur haft neitt við þessi orð hans að athuga enda engin slík endurskoðun fram- kvæmd á hæfi ríkisendurskoðanda. Andmælaréttur og orðaskak Spjótum hefrn’ verið beint að ríkis- endurskoðanda vegna fleiri atriða. Hátt fer gagnrýni í þá vem að Ríkisendur- skoðun hafi ekki gefið mönnum tæki- færi til andmæla. Sverrir Hermanns- son fékk að sögn hálfan dag, nýkominn frá Svíþjóð. Ekki var haft beint sam- band við Tómas Ámason vegna skýrslu sem fjallaði um óæskileg hags- munatengsl í sölu á veiðileyfúm til Seðlabankans, jafiivel þótt nútima- tækni auðveldaði slikt og þar með hefði kannski mátt komast hjá rimmu Tómasar og Sigurðar. Þá var ekki tekið tillit til andmæla Ágústs Guðmundsson- ar, fyrrverandi for- stjóra Landmælinga ís- lands, við ásökunmn um óreiðu í bókhaldi og fjárreiðum Land- mælinga. Þriggja manna álitsnefnd slátr- aði síðar 9 af 12 ávirð- ingum í hans garð. í máli Ágústs þykir Rík- isendurskoðun hafa verið í dómarahlut- verki eða fengið það í hendur vegna skorts á sjálfstæðum ákvörðun- um umhverfisráðu- neytisins. Áhtsnefndin ítrekar að það sé dóm- stóla að úrskurða um hvort háttsemi Ágústs hafi verið refsiverð eða ekki sem síðan gæti leitt til embættismissis. Þá er ótalin gagn- rýni í þá veru að ríkis- endurskoðandi standi í stappi á opinberum vettvangi með stóryrð- mn, jafnvel vegna bréfa sem ekki hafi verið gerð opinber. Þau orða- skipti séu ekki endur- skoðunarleg né fagleg og ekki til að auka traust á embættinu. Er gjaman bent á umboðs- mann Alþingis til sam- anburðar sem sendi rökstuddar áhtsgerðir frá sér og ljúki þar með hlutdeild sinni á opinberum vettvangi. Viðbrögð ráðherranna fyrstu ár umboðsmanns í embætti hefðu reyndar gefið honum ærið tilefni til hástemmdra andsvara en hann hefði látið slíkt eiga sig og uppskorið sam- kvæmt því. -hlh viðjafnanle i Aðeins í x3 daga! í dag, laugardag, opnum við óviðjafnanlega lagerútsölu hjá ESS0 á Geirsgötunni, við Faxaskála. \ ; Dæmi um verð: Geisladiskar frá 180 kr. Pampersbleiur 290 kr. Sólgleraugu frá 190 kr. Kolagrill frá 900 kr. Gasgrill 9.900 kr. Skyrtur 290 kr. Vöfflujárn 1.400 kr. Brauðrist 900 kr. Kuldagallar 4.600 kr. Opið kl. 10-18 báða dagana, 19. og 20. september Olíufélagið hf. ESSO á Geirsgötu við Faxaskála Olíufélagiðhf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.