Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Page 2
2 MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 Fréttir Stuttar fréttir dv Hægagangur í framkvæmdum við deildir Landspítala gagnrýndur: Biðlistar eftir hjarta- þræðingum lengjast - sjúklingar liggja á göngum og í skúmaskotum vegna þrengsla Um 300 sjúklingar eru nú á biðlistum lyflækningadeildar Land- spítalans vegna hjartasjúkdóma. 40 sjúklingar bíða þess að komast í stórar hjartaaðgeröir, 60 eru á biðlista eftir æðaútvíkkunum, aðrir 60 vegna annarra hjartasjúkdóma og 180 manns bíða eftir þræðingum. Þess má geta að fjölgað hefur um 100 manns á síðastnefnda biðlistan- um frá í vor vegna sumarlokana og lokana deilda af öðrum ástæðum. T.d. hefur ein fjögurra deilda á lyf- læknissviði verið lokuð vegna við- gerðar. Þegar þeirri viðgerð lýkur og deildin verður opnuð, verður annarri deild á sviðinu lokað vegna viðgerða. Þessar lokanir raska mjög 60 teknir í Kópavogi Mjög mikið var um hraðakstur í Kópavogi um helgina. Alls voru sextíu manns teknir fyrir of hrað- an akstur við mælingar lögregl- unnar á laugardaginn. Þar af voru þrjátíu og sjö ökumenn teknir á Dalvegi fyrir of hraðan akstur á einni og hálfri klukku- stund. -GLM Laumufarþegi tekinn - sendur til írlands Karlmaður frá Júgóslavíu var handsamaður um borð í skipi við Reykjavíkurhöfn síðastliðið fóstu- dagskvöld. Maðurinn kom með flugi frá írlandi, þar sem hann hefur búið undanfarið ár, á fostu- daginn og hugðist lauma sér um borð i skip sem var á leið til Kanada. Hann var hins vegar um- svifalaust sendur úr landi aftur til írlands þegar hann fannst. -GLM Frá flokksþinginu. DV-mynd Teitur Sighvatur Björgvinsson: Friðarþing „Þetta þing var haldiö við mjög sérstakar aðstæður þar sem tekin hafði verið ákvörðun um að stefna að sameiginlegu framboði í kosningunum í vor. Það var hlut- ur sem Alþýöuflokkurinn tók af- stöðu til fýrir tveimur árum og alla þessa vegferð hefur flokkur- inn haldið mjög saman. í öðru lagi var mjög góð samstaöa á þinginu. Þrátt fyrir skiptar skoð- anir um einstök mál voru engin átök á þinginu, hvorki um menn né málefni. Þetta var því sann- kallað friðarþing," sagði Sighvat- ur Björgvinsson, formaður Al- þýðuflokksins, um flokksþing krata sem fram fór í Reykjavík um helgina. Endurkjörið var í öll helstu embætti flokksins en engin mót- framboð bárust. -hlh starfsemi á lyflæknisdeildum, auk þess sem biölistar lengjast, eins og fram kemur hér að framan. „Við höfum áhyggjur af því að farið sé óþarflega hægt í fram- kvæmdimar af sparnaðarástæðum. Okkur er umhugað um að þessir gangar séu opnaöir sem fyrst, þannig að hægt sé að vista sjúklinga sem koma inn og jafnframt til að vinna á biðlistunum," sagði Þórður Harðarson, prófessor á lyflækninga- sviöi, við DV. „Biðlistar vegna hjartaþræðinga og æðaútvikkana hafa verið. okkur mjög erflðir vegna plássleysis." Ástandið á deildunum er meö þeim hætti að þar eru stöðugar yfir- „Við erum að mótmæla þeirri stöðu og því vægi sem þessum félög- um er skapað innan BSRB. Það verð- ur að koma til róttækra breytinga. Ef svo verður ekki, þá hljótum við hvert og eitt að taka öll okkar mál til end- urskoðunar. Það er allt inni í mynd- inni í því,“ sagði Guðmundur Vignir Óskarsson, formaður Landssambands slökkviliðsmanna. Megn óánægja rik- ir meðal félagsmanna sex fagstéttarfé- laga innan BSRB með vægi félaganna í bandalaginu. Þau krefjast breytinga á skipulagi BSRB þannig að tekið sé tillit til félaga sem hafa farið ört vax- andi meðan önnur hafa jafnvel minnkað. Vegna þessarar óánægju ákváðu stjórnir félaganna að mæta ekki á bandalagsráðstefnu BSRB í gær en héldu sameiginlegan fund. Um er að ræða Félag íslenskra leikskólakenn- ara, Landssamband slökkviliðs- manna, Ljósmæðrafélag íslands, Sjúkraliðafélag íslands, Tollvarðafé- lag íslands og Þroskaþjálfarafélag ís- lands. í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnanna segir m.a. að þrátt fyrir grundvallarbreytingar sem hafi orðið á samningsrétti og félagaskipan BSRB 1986 hafi skipulagsform banda- lagsins tekið litlum breytingum í þá veru að tryggja nýjum félögum ásætt- anlegan sess innan heildarsamtak- lagnir, þ.e.a.s fjöldi sjúklinga er oft langt umfram það sem deildimar eru skráðar fyrir. „Sjúklingar liggja hér á göngum og í skúmaskotum," sagði Þórður. „Það segir sig sjálft, að það er erfitt að koma inn sjúkling- um af biðlista því langflestir þeirra sjúklinga sem em lagðir inn á þess- ar deildir koma inn bráðveikir á bráðamótttöku. Lyflækningadeildir í Reykjavík þjóna ekki biðlista eins og áður var nema hvað varðar þræð- ingar og útvíkkanir æða.“ Hér á landi era gerðar einna flest- ar þræðinga- og útvíkkunaraðgerðir í samanburði við önnur Evrópu- lönd. Aðspurður sagðist Þórður álita að ekki væri of mikið gert af anna. Þar virðast hefðir og gamlar venjur enn vera ríkjandi. Ekki hafi reynst vilji til aö rétta hlut fagstéttar- félaganna innan bandalagins, heldur hafi hann verðið rýrður með skipu- legum hætti að mati fulltrúa þeirra. 1 því sambandi megi nefna að þegar skipaðir hafi verið fulltrúar BSRB í stjóm nýs lífeyrissjóðs hafi fulltrúi borinn fram af fagstéttarfélögunum verið felldur í kosningu innan stjóm- ar BSRB. Óviðunandi sé fyrir fag- stéttafélögin að ríkja skuli slíkt ójafn- vægi sem raun beri vitni bæði í for- „Viðbrögöin era þau að reyna að finna leiðir til að leiða þessi mál til lykta á þann hátt sem allir geti við unað,“sagði Ögmund- ur Jónasson, formað- ur BSRB við DV í gær vegna uppkom- innar stöðu, þegar stjómir sex fagstétt- arfélaga innan BSRB kusu að mæta ekki á ráðstefnu bandalagsins en þinga á öðrum stað. Ögmundur sagði að mönnum hefði þótt betra að fulltrúar umræddra fag- slíkum aðgerðum hér. „Árangur okkar í meðferð hjartasjúkdóma er í samræmi við tíðni aðgerða. Nýlega birtust niðurstöður stærstu rann- sóknar sem gerð hefur verið í heim- inum á afdrifum sjúklinga sem leggjast inn á spítala með kransæða- stíflu. Dánartalan hjá okkur er sú lægsta í 22 löndum sem þar era bor- in saman. Við erum t.d. nær helm- ingi lægri en háskólasjúkrahúsið í Glostrup í Kaupmannahöfh. Dánar- tala af völdum hjartasjúkdóma hef- ur fallið meira hér á landi en á öðr- um Norðurlöndum. Við teljum þetta stafa af því að við tökum virkari af- stöðu til sjúkdóma sem komnir era á alvarlegt stig.“ -JSS ystu BSRB og varðandi ýmsar tilnefn- ingar bandalagsins. Skorar fundur- inn á stjóm BSRB að taka til gagn- gerrrar endurskoðunar uppbyggingu og skipulag bandalagsins. „Við eigum eftir að fá svör við kröfum okkar," sagði Guðmundur Vignir. „Stjóm BSRB hefur boðað fund allra formanna bandalagsins 27. nóvember. Þar verða mótmæli okkar rædd. Fyrr en svör liggja fyrir höfum við ekki myndað okkur neina skoðun á því sem tekur við.“ stéttarfélaga hefðu mætt og ágrein- ingsmálin hefðu verið tekin til um- fjöllunar eins og gert hafði verið ráð fyrir í boðaðri dagskrá ráðstefnunn- ar. „Ég hef ekki trú á því að þetta leiði til klofnings BSRB,“ sagði Ögmundur. „Þessar deilur eru ekki nýjar af nál- inni en ágerðust nokkuð á síðasta þingi BSRB. Þetta mál verður einfald- lega tekið til rækilegrar skoðunar á næstu vikum. Það verður kallað eftir tillögum um breytingar á skipulagi BSRB og síðan verður sest yfir þær tillögur. Ég er vongóður um að þetta leysist." -JSS Langt fram úr áætlun Kenneth Peterson, forstjóri Norðuráls, telur slæmt að álverö sé eins lágt og raun ber vitni. Hann segir að það komi þó ekki niöur á framleiðslu og áformum álvers- ins á Grundar- tanga en kostn- aður viö það hefur farið 1,5 millj- arða fram úr áætlun. Hann segir að álverið verði hagkvæmt í rekstri þegar það nær fullum af- köstum í janúar á næsta ári. Það hefur nú náð 25% afköstum. Stöö 2 greindi frá. Gróðursetja 60% Á aðalfundi Landssamtaka skóg- arbænda um helgina kom fram að bændur gróðursetja 60% af þeim trjám sem gróðursett era í land- inu. Sjónvarpið greindi frá. Fjarnám á Austurlandi I vetur munu um 50 manns af Austurlandi stunda fjarnám viö fjórar háskólastofnanir í gegnum Fræðslunet Austurlands. í mörg- um tilfellum er um að ræða fjöl- skyldufólk sem annars hefði ekki getað stundað nám af þessi tagi. Stöð 2 greindi frá. Flóðavarnir á Siglufirði Framkvæmdirnar við snjóflóöa- vamirnar fyrir ofan Siglufjörð hafa gengið betur en menn þorðu að vona. Heildarkostnaður viö framkvæmdimar gæti orðið ná- lægt 300 milljónum króna. Stöð 2 greindi frá. Hætti í flokksstjórn Gylfi Þ. Gíslason er hættur í flokksstjóm Alþýðuflokksins þar sem hann hefur átt sæti í hálfa öld, sem ku vera einsdæmi í ís- lenskri pólitík. Hann tilkynnti þetta á flokks- þingi um helg- ina. Vilja prófkjör Stjóm kjördæmissambands Framsóknarflokksins á Noröur- landi eystra hefur samþykkt að leggja til við kjördæmisþing að fram fari prófkjör viö uppröðun á framboðslista. Val hefúr verið með öðrum hætti síðastliðin 12 ár. RÚV greindi frá. Fordæma aðför Um helgina var haldinn haust- fundur trúnaðarmanna Rafiðnað- arsambands íslands. Þar var for- dæmd aðfór JÁ verktaka á Selfossi að trúnaðarmanni rafiðnaðar- manna sem vinna viö að reisa Búr- fellslínu. Nánast hrundi Niðurstaða rannsóknar Hafrann- sóknastofnunar var nýlega kynnt á ráðstefnu um náttúrufarsbreyting- ar á Norður-Atlantshafi. Þar kom fram að sífellt þróaðri tækni við veiðar á síðustu áratugum gekk það nærri íslenska þorskstofninum að hann nánast hrundi. Sjónvarpiö greindi frá. 25 björgunarkerrur Á laugardaginn kynnti og af- henti Landsbjörg, landssamband björgunarsveita, björgunarsveit- unum 25 björgunarkerrur sem innihalda búnað og verkfæri til þess að fást m.a. við björgunar- störf í tengslum við óveður, snjó- flóð og jaröskjálfta. Rúmir 20 milljarðar Kári Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, telur aö kostnaöur við gerð miðlægs gagnagrunns verði líklega mun meiri en heilbrigðisráðu- neytið telur, eða meira en 20 milljarðar. RÚV greindi frá, -SJ Frá fundi fagstéttarfélaganna sex (gær. Fremstur á myndinni er Guðmundur Vignir Óskarsson. DV-mynd JAK. Sex félög innan BSRB hunsuðu bandalagsráðstefnu í gær: Allt inni í myndinni - segir talsmaður félaganna um framhaldið -JSS Ögmundur Jónasson, formaður BSRB: Reynum aö finna leiöir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.