Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Page 4
4 MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 Fréttir Stuttar fréttir i>v 8-12% í Baugi boðin lífeyrissjóðum: Undirtektir hafa verið dræmar - FBA og Kaupþing með á áttunda milljarð undir koddanum sem þau þurfa að losna við Stærsta fyrirtækjasala íslandssög- unnar fór fram þann 19. júní í sumar þegar Fjárfestingarbanki atvinnulífs- ins og Kaupþing keyptu hlut ekkju og barna Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaups, í fyrirtækinu. Hið selda var allur hlutur íjölskyldufyrirtækis- ins og eignarhaldsfélagsins Hofs hf. í verslunarrekstri Hagkaups, Nýkaups og Baugs. Fasteignir eru undanskild- ar. Kaupendur að 75% fyrirtækisins voru aðeins tveir; Fjárfestingarbanki atvinnulífsins og Kaupþing og keypti hvor aðili 37,5%. Heildarkaupverð var ekki gefið upp en er áætlað vera ríflega 11 milljarðar króna. Fjárfest- ingarbankinn og Kaupþing eru um þessar mundir að bjóða 8-12% hlut í Baugi, sameiningaifélagi Hagkaups og Bónuss. Undirtektir hafa hins veg- ar verið dræmar samkvæmt athugun blaðsins. Að sögn Svanbjarnar Thoroddsen hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins er verið að bjóða völdum stofn- anaíjárfestum eignaraðild að Hag- kaupsverslunarveldinu áöur en það verður sett á almennan hlutafjár- markað. Að öðru leyti séu hlutir ekki til sölu að svo stöddu. Verið sé að fara í gegnum flókið ferli sam- einingar og und- irbúnings að því að setja hluti í fé- laginu í almenna sölu. Það verði hins vegar ekki mögulegt fyrr en í nóvember. „Fram að þeim tíma er ekkert í gangi annað en það að við erum að ræða við líf- eyrissjóði um hugsanleg kaup á 8-12% eignarhlut. Það stendur yfir núna og við reiknum fastlega með því að það markmið náist.“ Eignar- hald á Baugi, sameinuðu félagi Hag- kaups og Bónuss nú er þannig að 25% eru í eigu Gaums, fyrirtæk- is Bónusfeðga. Af samanlögðum 75% eignarhluta FBA og Kaup- þings hefur Hof keypt 2,5%, fjár- festar í Lúxem- borg 20%, Baugur 5% og ýmsir fjár- festar 3,1%. Sam- tals er því 30,6% í félaginu í eigu annarra aðila en FBA og Kaup- þings. Það þýðir að FBA og Kaup- þing eru með fjár- festingu í Baugi upp á hátt á áttunda milljarð króna. Umdeild kaup Þegar rætt er við menn í við- skiptaheiminum er ljóst að þessi kaup Fjárfestingarbankans og Kaup- þings eru um- deild, ekki síst fyrir þær sakir að mörgum finnst með ólík- indum að ríkið hafi með þessum hætti blandað sér í viðskipta- og at- vinnulífið og að gera það í jafná- hættusömum rekstri og um er að ræða sé sér- kapítuli. Þegar stjórnandi stórs fjárfestingarsjóðs var spurður hvort honum hefði verið boð- inn hlutur til kaups sagði hann ,já“. Hvort hann ætlaði að kaupa, svaraði hann: „nei, hef ekki áhuga á að verða meðeig- andi í þessu ríkisfyrirtæki“. Samkeppnisað- ilar í matvöru- versluninni eru ekki hrifnir af því að t.d. Lífeyr- issjóður verslun- armanna gerist hluthafi í Baugi. Víglundur Þor- steinsson, stjórn- arformaður sjóðs- ins, sagði í sam- tali við DV að líf- eyrissjóðnum hefði verið boð- inn hlutur. Hins vegar lægi ekki fyrir sex mánaða milliuppgjör Baugs né stof- nefnahagsreikningur og fyrr en þau gögn birtast veröi ekki tekin afstaða til kaupa. DV bar það undir Einar Jónsson, einn eiganda verslanakeðj- unnar Nóatúns, hvemig honum litist á að Lifeyrissjóður verslunarmanna yrði meðeigandi Baugs. „Mér finnst það orðið ansi svakalegt að vera farinn að keppa við ríkið og verkalýðsfélögin á matvörumark- aðnum þó að ekki bætist við þann hóp lífeyrissjóð- ur sem við greið- um stórar fjár- hæðir til.“ Eftir þvi sem næst verður komist gengur salan til hinna völdu fjárfesta hægt. Undirtekt- ir hafa verið dræmar og óvíst um þátttöku Líf- eyrissjóðs VR vegna andstöðu sam- keppnisaðila Hagkaups. Kaupmaður sem vildi ekki koma fram undir nafni sagði við blaðið í gær að hann teldi fremur ólíklegt að Lífeyrissjóð- ur VR myndi kaupa hlut í Hagkaupi. „Þó veit maður aldrei því að málið er fyrst og fremst pólitískt," sagði kaupmaðurinn. Lífeyrissjóðurinn Framsýn hefur þó tekið af skarið og sagt nei, takk. Halldór Björnsson, stjórnarformaður Framsýnar, sagði í gær við DV að sjóðnum hefði verið boðið að eignast hlut fyrir nálægt einn milljarð króna, en hafi afþakk- að, að sinni að minnsta kosti. Fjárfestar f Lúxemborg Á dögunum seldi Kaupþing fjár- festum í Lúxemborg 20% hlut í gegnum fjárfestingarfyrirtæki sitt þar í landi. í íslenska fjármálaheim- inum heyrast efasemdarraddir um að um raunverulega sölu sé að ræða. Kaupþing hafi selt sjálfu sér hlutinn. Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri Kaupþings, segir þetta vera algjörlega úr lausu lofti gripið. Kaupendurnir séu alþjóðleg- ir flárfestar sem keypt hafi eignar- hlutann vegna þess eins að um góða fjárfestingu hafi verið að ræða. Þessar getsakir séu algjörlega úr lausu lofti gripn- ar og fráleitar. Aðspurður hverj- ir þessir fjárfest- ar séu sagði hann að sam- komulag væri um að gefa það ekki upp. Hið eina sem hann vildi segja um þetta væri að endurtaka það sem hann sagði fyrir nokkru í samtali við Morgunblaðið að kaupendumir væru ekki sjóðir Kaupþings í Lúxemborg. -SÁ Halldór Björnsson, stjórnarformað- ur Lífeyrissjóðsins Framsýnar. Sigurður Einarsson, framkvæmda- stjóri Kaupþings. Golíat og Davíð Fræg er sagan af því þegar Davíð lagði Golí- at. Síðan þá hefur Dav- íð vaxið og stækkað og hefur verið meiri um sig heldur en flestir aðrir Golíatar hér um slóðir. Nú um nokkurt skeið hafa allir þessu litlu Golíatar rennt öf- undaraugum til Davíðs sem hefur tekið við hlutverki Golíats, vegna þess að litlu Gol- iatamir hafa haldið að þeir gætu lagt Davíð að velli, alveg eins og Dav- íð lagði Golíat að velli í gamla daga. En þetta hefur ekki alveg gengiö eftir og Davíð hefur ekki að- eins haldið áfram að dafna, heldur hefur hann lika stjómað öllum litlu Golíötunum í kringum sig og ráðið því sem hann vill ráða og Golíatar nútímans hafa fengið minni- máttarkennd og fyllst heilagri reiöi yfir þessu óréttlæti að litli Davíð hafi ekki aðeins lagt Golí- at hér áður fyrr, heldur sé litli Davíð orðinn stór og sterkur og Golíatamir hafa ekkert í hann að segja. Þess vegna er það sem litlu Golíatarnir ákváðu að sameinast í einn Golíat og gáfu um daginn út stefnuskrá um það hvemig þeir ætluðu að ná völdum. Ekki féll sú stefna í frjóan jarðveg hjá öll- um og einhver sagði að þaö ætti að fleygja henni og skrifa hana upp á nýtt. Davíð sjálfur las þessa stefnuskrá Golítanna og sagði að hún væri þunnildi. Amma sín hefði alltaf varað hann við að kaupa þunnildi. Nú urðu Golíatarnir fyrst alvarlega reiðir og einn þeirra hélt flokksþing um helgina og lýsti yfir þvi að stefnuskráin sem hefði verið gefin út, væri í sjálfu sér aukaatriði. Aðalstefnumál Golíatanna væri það eitt að fella Davíð. Samein- ing litlu Goliatanna í einn stóran Golíat væri til þess hugsuð að taka Davíð. Fara gegn honum og fella Davíð. Þeir segja að Davíð sé hrokafullur og drýld- inn og hann gefi „vitlaust til baka“. Amma Gol- íats sagði honum að vara sig á fólki sem gefur vitlaust til baka. Og þar sem ömmur Davíðs og Golíats eru farnar að skipta höfuðmáli í ís- lenskri átakapólitík, snýst þessi bardagi um það hvor amman hafi rétt fyrir sér. Amma Davíðs eða amma Golíats. Davíð hefur enn ekki svarað fyrir sig en sjálf- sagt kallar hann ömmu sína til vitnis um það að litlu Golíatar sem ætla að sameinast í einn stór- an Golíat, megi sín lítils gegn Davíð, enda mun þá sagan endurtaka sig og Davíð leggja Golíat aftur, ef Golíat er orðinn stærri en Davíð, eftir sameiningu Golíatana, sem hafa verið minni en Davíð eftir að Davíð stækkaði af þvl að leggja Golíat á sínum tíma. Þessi stöðubardagi er skemmtilegur og mun skemmtilegri heldur en gamla þrefið um pólitík og flokka og lífskjör. Baráttan um atkvæðin snýst um Davíð og sameining Golíata vinstri flokkanna er um það eitt að Davíö sé drýldinn af því að hann átti ömmu sem vildi ekki að hann keypti þunnildi. Flokkar hafa verið lagðir niður fyrir minna. Dagfari Vænn rjúpustofn íárlegum leiðangri fuglafræð- inga nýlega til Hríseyjar voru 232 rjúpur merktar. SamkvæmtRÚV er stofninn í góðu ásigkomulagi en veiðin hefst eftir aðeins tvær vikur. Þórarinn tilnefndur Þórarinn Eld- járn er tilnefnd- ur til Evrópsku bókmenntaverð- launanna, Aristeion, fyrir Brotahöfuð ásamt 6 öðrum bókum í flokki skáldsagna. Þetta eru sömu verð- laun og t.d. Rushdie fékk fyrir fá- um árum. Ensk þýðing Bemards Scudders á Svaninum eftir Guð- berg Bergsson fékk einnig tiinefn- ingu. Verðlaunin verða afhent í dag. Alls vom 33 bækur frá 17 löndum tilnefndar. Interpol á íslandi Ársfundur alþjóðalögreglunnar Interpol árið 2000 verður haldinn á íslandi, sem er á meðal 45 aðild- arríkja. Þetta var ákveðiö í heim- sókn Þorsteins Pálssonar til Par- ísar í höfúðstöövar Interpol. Mbl. greindi frá. íslenskur ráðherra hefur ekki áður heimsótt Interpol meö formlegum hætti. Halldór á Ofveiði á ræt- ur að rekja til ríkisstyrkja i sjávarútvegi sem leiði af sér of stór skip. Þetta sagði Halldór Ás- grímsson m.a. á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna í New York sl. fóstudags- kvöld í NY. Hvatti hann þjóðir heims til aö taka höndum saman um skynsamlega stjómim fisk- veiða. Aukinn hagnaður Hagnaður 15 sjávarútvegsfyrir- tækja á Verðbréfaþingi íslands var nærri 40% meiri á fyrri helm- ingi ársins en á sama tíma í fýrra, einkum vegna hærra afurðaverðs. Samkvæmt Bylgjunni kemur þetta fram í Hagtölum mánaðar- ins. Minni peningalykt Framkvæmdir em hafnar við verksmiðju SR-mjöls á Siglufirði sem miða einkum að því að draga úr loftmengun frá verksmiöjunni þegar verið er að bræða. Peninga- lyktin svokallaöa verður því ekki eins sterk. Samkvæmt Sjónvarp- inu er um fjárfrekar framkvæmd- ir að ræða. Jörundur á hvíta tjaldiö Ágúst Guð- mundsson kvik- myndageröar- maður hyggst setja sögu Jör- undar hunda- dagakonungs á hvíta tjaldið í samvinnu viö enska framleiðandann Andy Pa- terson. Samkvæmt Mbl. mun myndin kosta um 1 milljarð í framleiðslu. Vegabréf uppurin Vegabréfabirgðir í landinu eru á þrotum samkvæmt tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Ástæð- an er fyrst og fremst tafir á af- greiðslu bréfa frá framleiöanda þeirra erlendis. Útgáfa bréfa hef- ur líka verið óvenjumikil í sum- ar. Ekki er von á nýrri sendingu fyrr en um miðjan næsta mánuö. Á meöan verða gefin út svokölluö neyðarvegabréf til íslenskra ríkis- borgara. Stóriðjuskóli Stóriðjuskóli tekur til starfa á morgun á vegum íslenska álfél- agsins. Samkvæmt Sjónvarpinu jafngildir námiö þriðjungi hefð- bundins iðnnáms. -bjb SÞ-þingi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.