Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Síða 6
6
MANUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998
BÓNUSVIDiO
Fréttir
Erindi Friðriks Sophussonar á Fjórðungsþingi Vestfirðinga um nýja kjördæmaskipan vakti einna mesta athygli og
sýndist sitt hverjum um tillögurnar sem eru þar uppi á borðum. DV-myndir H.Kr.
Fjóröungsþing Vestfirðinga um helgina:
Skiptar skoðanir um
nýja kjördæmaskipan
Aðalmál Fjórðungsþings Vestfirð-
inga, sem haldið var á ísafirði um
helgina, var án efa umræður um
breytta kjördæmaskipan. Friðrik
Sophusson, fyrrverandi fjármála-
ráðherra og formaður nefndar um
breytta kjördæmaskipan, kynnti
þær hugmyndir sem uppi á borðinu
eru. Allar þær hugmyndir miða að
jöfnun á vægi atkvæða og fækkun
og stækkun kjördæma. í umræðum
um málið á þinginu kom fram mik-
il andstaða hjá öllum Vestfjarða-
þingmönnum sem tjáðu sig um mál-
ið, nema Gunnlaugi Sigmundssyni.
Gunnlaugur sagðist í öllum megin-
atriðum sammála hugmyndum
nefndarinnar.
„Ég er ekkert óskaplega hrifinn,"
sagði Einar K. Guðfinnsson. „Það er
helst tvennt sem ég vil leggja
áherslu á í þessu sambandi. Ég held
að við þurfum að leggja miklu meiri
áherslu á það landsbyggðarmenn að
það sé ástæða til þess að hafa mis-
munandi vægi atkvæða.“
„Mér finnst að orðið kjördæma-
skipan visi til of þröngra breyt-
inga,“ sagði Kristinn H. Gunnars-
son. „Við eigum að breyta stjóm-
sýslunni í heild. Hún er ekki nógu
góð vegna þess að hluti landsins
hefur ekki þau tök að hann geti
haldið í horfinu.“
„Ég óttast vissulega að þetta per-
sónulega samband sem þingmenn
hafa við kjósendur sína minnki,"
sagði Gunnlaugur Sigmundsson.
„Mér finnst samt að það sé krafa
tímans að stækka þessar einingar.
Ég skynja svo vel að kjördæmi þar
sem fólki hefúr fækkað hefur ekki
sömu stöðu til þess að hafa áhrif á
landsmálin eins og áður. Ég sé því
með þessu stækkun á áhrifum Vest-
fjarða, suður og austur á bóginn.
„Það kemur mér ekkert á óvart
að hugmyndir þingmanna Vest-
íjaröa eru misjafnar," sagði Friðrik
Sophusson. „Það er stuðningur hjá
sumum en aðrir eru andvígir þess-
um breytingum. Þá andstöðu þekki
ég frá fyrri stigum. Ég hygg hins
vegar að þegar menn skoða málið
betur og tillögumar verða gefnar út
þá sjái menn það í skýrara ljósi en
áður að það er nauðsynlegt að ná
niðurstöðu í málið. Ef við geymum
of lengi breytingarnar þá er hætta á
því að þær verði þeim mun róttæk-
ari þegar að þeim kemur sem er
óhjákvæmlegt á næstu árum.
Ég tel miklar líkur á því að tillög-
ur í þá átt sem nefndin er að gera
geti náð fram að ganga. Nefndin mun
fyrri hlutann í október afhenda for-
sætisráðherra tillögur sínar og hann
mun þá væntanlega hafa samband
við formenn annarra stjómmála-
flokka og þá fyrst er hægt að átta sig
á því hvort málið verður lagt fram til
þingflokkanna. Ef það gerist þá hef
ég enga trú á öðra en að málið verði
afgreitt á yfirstandandi þingi og kos-
ið samkvæmt nýjum reglum árið
2003.“ -HKr.
Kristinn H. Gunnarsson og Einar Oddur Kristjánsson stinga saman nefjum
og ekki annað að sjá en að þeir hafi skemmt sér á þinginu.
Slysavarnafélag íslands efndi til mikillar björgunaræfingar um helgina. Fór æfingin fram á fjölmörgum stöðum á suð-
vesturhorni landsins og tók fjöldi manns þátt í henni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fór á vettvang og
kynnti sér það sem um var að vera. Hún fékk að komast að raun um það því hún endaði í flotgalla í sjónum úti fyrir
Viðey. Var ekki að sjá að borgarstjóranum brygði við volkið. Á innfelldu myndinni sést hún gera sig kiára.
DV-myndir S
Skák á Grand rokk
Á helsta athvarfi þyrstra mið-
bæinga í Reykjavík, Grand rokk
kaffl hefur Hrafn Jökulsson
stofnað skákfélag sem meira en
100 manns eru í.
Fyrir skömmu var
haldið fyrsta mót
þess og hvorki
meira né minna
en þrír stórmeist-
arar tóku þátt,
þeir Jón L.
Árnason, Helgi
Ólafsson og Jó-
hann Hjartar-
son og auk þess alþjóðlegi
meistarinn Sævar Bjarnason.
Það var að sjálfsögðu skákskýr-
andi DV, Jón L. Árnason, sem
vann fýrstu verðlaun, 50 þúsund
krónur, sem kostunaraðili móts-
ins, þýsku Jever-verksmiðjurnar,
lagði til...
Lausnarsteinn
Steingríms
Lifskúnstnerinn Steingrímur
T.H. Sigurðsson sem hingað til
hefur einkum verið þekktur fyrir
málverk sín, hefur nú snúið sér að
ritstörfum. Hann
hefur þegar lokið
að rita ævisögu
sína sem ber það
merka heiti
Lausnarsteinn-
inn. Hann hefur
þar að auki fund-
ið sér forleggjara
í Þorsteini
Thorarensen og
bókin mun koma út á heppilegum
tíma fyrir jólabókaflóöið. Stein-
grímur, sem skilgreinir sjáifan sig
sem „blásvart íhald“ í pólitíkinni,
mun fara á kostum í bókinni, ekki
síst í frásögnum af pólitískum at-
burðum þar sem hann hefur verið
á vettvangi...
Ritstjóri á uppleið
Fyrrverandi ritstjóri Stúdenta-
blaðsins, Björgvin Sigurðsson,
og einn af helstu trúnaðarmönn-
um Margrétar Frímannsdóttur,
er meðal upprenn-
andi sfjarna vinstri
vængsins. Hann er
að vísu á leið til
náms á írlandi, en
mun að sögn
verða kallaður
heim fyrir kosn-
ingabaráttuna.
Björgvin er af
Suðurlandi og
traustar heimildir herma að Mar-
grét vilji að hann skipi þriðja sæti
sameinaðra vinstrimanna á Suð-
urlandi...
Lærir af foringjanum
Eftir að OZ-mennimir Guðjón
Már Guðjónsson og Eyþór Am-
alds tilkynntu um stofnun hins
nýja símfyrirtækis þeirra, íslands-
síma, brugðust
bæði Guðmundur
Bjömsson, for-
stjóri Landssím-
ans, og stjórnar-
formaður fyrir-
tækisins, Þórar-
inn V. Þórar-
insson, við með
miklum ósköp-
um og ásökuðu
um trúnaðarbrest vegna starfa
þeirra fyrir Landssímann. í frétt-
um Sjónvarpsins á mánudaginn
var svo viðtal við Halldór Blön-
dal samgönguráðherra sem fagn-
aði stofnun Íslandssíma og sá ekk-
ert athugavert við vinnu OZ-
manna fyrir Landssímann. Vilja
margir því meina að nú hafi ráð-
herra Blöndal munað eftir þegar
hann og forstjóri Landssímans
voru kallaðir á teppið hjá Davíð
Oddssyni eftir aö hafa hækkað
gjaldskrá símans upp úr öllu valdi.
Það er greinilegt að menn læra vel
og mikið af sjálfum foringjanum ...
Umsjón:Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is