Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998
17
DV
Fréttir
Kvóta- og smábátabraskið gaf 350 milljónir:
Fleytti tveimur
bátum í nýtt kerfi
- forystumenn sjómanna gerðu engar athugasemdir, segir bátasali
Akureyri:
Bæjarráð skip-
ar stýrihóp
DV, Akureyri:
Bæjarráð Akureyrar
hefur skipað stýrihóp
sem á að hafa yfírum-
sjón vinnu við breyting-
ar á stjórnskipulagi bæj-
arsins. Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri er for-
maður stýrihópsins, en
aðrir i hópnum eru Ás-
geir Magnússon formað-
ur bæjarráðs, Jakob
Björnsson bæjarfulltrúi,
Sigríður Stefánsdóttir
sviðsstjóri og Þorgerður
Guðlaugsdóttir aðstoðar-
skólastjóri.
Stýrihópnum er ætlað að hafa yfir-
umsjón og verkstjórn með höndum í
þeim breytingum sem fyrir höndum
eru og er gert ráð fyrir að stýrihóp-
urinn skipi m.a. vinnuhópa um ein-
stök afmörkuð verkefni sem varða
breytingar á stjórnsýslu og starfs-
Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri er formaö-
ur stýrihópsins.
DV-mynd gk
háttum hjá Akureyrar-
bæ. Loks er lagt til að
hópurinn gegni hlutverki
framkvæmdanefndar um
reynslusveitarfélagsverk-
efni Akureyrarbæjar.
Oddur H. Halldórsson,
bæjarráðsmaður L-list-
ans, tók ekki þátt í at-
kvæðagreiðslu um málið
og lagði fram eftirfar-
andi bókun: „Ég tel að
vanda beri vel til breyt-
inga í stjórnskipulagi
bæjarins. Því tel ég mik-
ilvægt að fulltrúar allra
stjómmálaafla í bæjar-
stjórn eigi sæti í stýrihópnum. Þar
sem L-listinn á engan fulltrúa í til-
lögu bæjarstjóra um skipan í stýri-
hópinn get ég ekki stutt þessa til-
lögu og sit því hjá við atkvæða-
greiðslu." Sigfríður Þorsteinsdóttir
af B-lista óskaði bókað að hún
styddi bókun Odds. -gk.
Rækjuvinnsla á ný í Hnífsdal
íshúsfélag ísfirðinga hefur fest
kaup á rækjuverksmiðju Bakka í
Hnífsdal sem staðið hefur ónotuð
undanfarin misseri. Þorbjörn hf. í
Grindavík eignaðist rækjuvinnsl-
una þegar Bakki hf. í Bolungarvík
rann saman við fyrirtækið. Rækju-
vinnslan í Hnífsdal er talin mjög
fullkomm og hefur farið í gegnum
strangt gæðamat erlendra rækju-
kaupenda.
Aðaleigandi íshúsfélagsins,
Gunnvör hf. á ísafirði, hefur yfir að
ráða um 2000 tonna rækjukvóta og
er stefnt að því að hefja rækju-
vinnslu í Hnífsdal fyrir áramót.
Gunnar Þórðarson hefur verið ráð-
inn tU að stýra rækjuvinnslunni og
þegar eru farnar að berast umsókn-
ir um störf hjá fyrirtækinu í Hnífs-
dal.
-HKr.
DV, Akureyri:
Gjaldþrota einstaklingur og
báta- og kvótasölur í Reykjavík og
Hafnarfirði virðast vera í aðalhlut-
verkunum í kvóta- og bátabrask-
inu sem viðgekkst sl. vetur, ef
marka má viðmælendur DV. Af
samtölum við fjöldamarga að
dæma virðist ljóst að þessir aðilar
hafi hagnast um hundruð miUjóna
króna vegna „gata í kerfinu" og
eru ekki aUir þeir peningar vel
fengnir. Eins og DV skýröi frá í
síðustu viku hefur verið um yfir
300 miUjóna króna gróða að ræða
vegna lagasmugu sem fannst og
leiddi tU þess að kvóti var seldur
af 15 smábátum á aflahámarki og
bátunum siðan laumað inn í daga-
kerfíð þar sem þeir geta nú stund-
að óheftar veiðar.
Einn þessara báta er Svalan sem
bar einkennisstafma SK-37 og var
í eigu Bergeyjar á Hofsósi. Uni Pét-
ursson, einn eigenda Bergeyjar,
segir að báturinn hafl verið seldur
einkaaðila i Hafnarfirði. „Skömmu
síðar var okkur tjáð að þessi aðUi
væri gjaldþrota og vildum þá
hætta við söluna. Þá var búið að
selja kvótann af bátnum sem var
hátt í hundrað tonn. Kvóta- og
bátaleiga í Reykjavík kom þá inn í
málið. Salan gekk svo eftir og við
fengum okkar hlut sem var 41
miUjón króna,“ segir Uni Pétm-s-
son.
Þorgrímur Ómar, sonur Una og
félagi hans í útgerð Bergeyjar, seg-
ir að kaupendunum hafi greini-
lega verið ljóst að Svalan myndi fá
15% viðbótarkvóta sem gekk eftir.
„Þeim var það fuUkunnugt og svo
seldu þeir aUan kvótann af bátn-
um, úreltu hann og komu honum
síðan inn i dagakerfið. Þá var bát-
urinn orðinn söluvara á nýjan
leik. Þarna var gjaldþrota ein-
staklingur á ferðinni og Báta- og
kvótasalan í Reykjavík stóð á bak
við þetta,“ segir Þorgrímur Ómar.
Ljóst virðist að kvótinn af bátnum
hafi verið seldur fyrir um 40 mUlj-
ónir, báturinn kominn inn í daga-
kerfið og getur „malað þar giUl“
fyrir eigendur sína. Til að Svala
kæmist inn í kerfið var báturinn
Dropi með aflareynsluna 0 úreltur.
Sá sami og keypti Svölu frá Hofs-
ósi kom einnig bátnum SnæfeUi
yfir í dagakerfið eftir að hafa úrelt
annan hobbíbát á móti. Þetta var
mögulegt vegna smugu í lögum
sem ekki tókst aö loka fyrr en 15
bátar voru sloppnir í gegn.
Sjálfsbjargarviðleitni?
Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands smábáta-
eigenda, hefur kaUað það siðleysi
að færa báta á miUi kerfa, en
Heimir Bergmann, starfsmaður
Báta- og kvótasölunnar ehf., er
ekki sama sinnis. „Þetta er eins
og hvert annað buU. Menn hafa
stundað aUa vega hluti til að
reyna að endurnýja bátana sina
og svo ég nefni dæmi eru menn að
taka smábút úr bát til að geta
smiðað nýjan bát út af úreldingar-
reglum. Er það löglegt eða sið-
laust eða er þetta bara sjálfsbjarg-
arviðleitni?
Þetta eru fuUkomlega eðlileg
viðskipti en Örn Pálsson má hafa
sínar skoðanir á þeim gjömingi
að færa báta á miUi kerfa. Ég var
hins vegar i sambandi við Örn á
meðan þetta gekk yfir og heyrði
aldrei neinar athugasemdir," seg-
ir Heimir Bergmann.
Samkvæmt heimUdum DV eru
dæmi um að sami aðUi hafi náð
tveimur bátum á miUi kerfa eftir
að hafa selt kvótann af þeim. Sá
segist litið hafa hagnast á því þar
sem hann hafi keypt bátana dýru
veröi. í því tilviki liggur þó fyrir
að sá sem um ræðir hefur yfir að
ráða tveimur nýtísku bátum í
dagakerfinu í stað tveggja „hland-
koppa“ eins og einn viðmælenda
orðaði það.
-gk