Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 29
37 Sokkabuxur Verið er að þróa netþjónustu og tæki ýmiss konar sem gera manni kleift að ná sambandi við umheiminn hvar sem er, meira að segja f háloftunum. Risaverkefni komið á koppinn: Næsta kynslóð netþjónustu - aðgangur að Netinu mögulegur hvar, hvenær og hvernig sem er Nú stendur yfir umfangsmikil þróunarvinna vegna verkefnis sem risafyrirtækin IBM, Boeing og Toyota standa að ásamt öðrum stór- um fyrirtækjum. Að sögn tals- manna IBM er verið að undirbúa næstu kynslóð netþjónustu og er hér á ferðinni liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að koma tölvutækn- inni í sem ílesta hluti daglegs lifs. Netið út um allt Markmiðið er að búa til kerfl sem gerir Netið mun aðgengilegra en það er nú en í dag er svo til einung- is hægt að komast á Netið í gegnum tölvur. Hin nýja tækni miðar að því að hægt verði að nálgast ýmsa af- markaða þjónustu á Netinu með fyr- irferðarminni tækjum, eins og t.d. skjásímum og litlum skjám sem eru á stólbaki farþegaflugvéla. Þannig gæti maður t.d. haft aðgang að bankareikningnum sinum með hin- um ýmsu græjum hvar sem er, hvort sem það er á heimilinu, í bíln- um eða í flugvélinni. Mikill áhugi er meðal stórfyrir- tækja á þessari hugmynd og mörg þeirra vinna nú saman að ýmsum þáttum þróunarvinnunnar. Meðal þeirra sem að málinu koma eru fjór- ir bílaframleiðendur, nokkrir fram- leiðendur raftækja, fjarskiptafyrir- tæki og flugvélaframleiðendur. Talsmenn IBM segja nauðsynlegt að fá svo marga að þróunarvinn- unni. „Við verðum að byggja saman stórt, samvirkandi kerfi samstarfs- aðila,“ segir Mark Bregman, fram- kvæmdastjóri nýstofnaðrar deildar IBM sem mun sjá um þetta verk- efni. „Hér er ekki á ferðinni mark- aður sem við getum búið til upp á eigin spýtur." Götukort fyrir bflinn Um þessar mundir er verkefni IBM aðallega að hjálpa þeim fyrir- tækjum sem að verkefninu vinna við að flnna út hvers konar þjón- usta muni koma að gagni í hinu nýja kerfi. Til dæmis er hægt að ímynda sér að fólk sem hefur að- gang að kerfinu í bílum sínum geti haft gagn af því að hafa aðgang að götukortum. Jafnframt gæti fram- leiðandi bíla boðið upp á þjónustu sem fylgist með ástandi bílanna sem hann hefur framleitt og gert viðvart þegar komið er að smurningu og þess háttar. í flugvélum væri svo hægt að bjóða talsvert fjölbreytta þjónustu þar sem hver farþegi gæti fundið það sem honum fyndist áhugavert. Að sögn þeirra IBM-manna hefur Boeing-flugvélaframleiðandinn einmitt lagt mikla vinnu í þetta verkefni. Boeing sér fyrir sér mikla möguleika á að bjóða upp á fjöl- breytta þjónustumöguleika fyrir flugfarþega sem mun draga úr leið- indum og tímasóun á löngum flug- leiðum. Enn er ekki ljóst hvenær kerfið verður byrjað að virka fyrir alvöru, en nokkur tími mun án efa líða þar til það verður orðinn hluti af dag- lega lifinu. Fyrirtækin eru enn að þreifa fyrir sér og enn hafa engir formlegir risasamningar verið gerð- ir í þessum efnum. Litill vafi leikur þó á að þetta sé það sem koma skal. -KJA Godzilla ríð- ur á vaðið Fljótlega kemur hin nýja Dreamcast-risa- leikjatölva frá Sega á markað- inn í Japan. Einn af fyrstu leikjunum sem framleiddir eru meö tölvuna I huga byggist á þekktri hetju úr óteljandi bíó- myndum, sjálfri Godzilla. Enn er ná- kvæmum upplýsingum um leikinn haldiö leyndum en örfáar staöreynd- ir hafa þó lekiö. Þetta er fyrstu per- sónu „action“ leikur þar sem þú ert í hlutverki Godzilla. Verkefniö er aö leggja borgir í eyði og berjast viö hin ýmsu skrímsli sem þekkt eru úr Godzilla-kvikmyndunum. Þrívídd í réttarsalnum Fyrirtækiö 3Dfx, sem framleiöir m.a. Voodoo þrívíddarkortin geysivinsælu, hefur stefnt fyrirtækinu Nvidia fyrir aö nýta sér tækni sem 3Dfx hefur einkaleyfi á. Þarna er um aö ræöa tækni sem nýtt er í leikjum eins og Quake II til aö gera Ijós og skugga á sem raunverulegastan hátt. Nvi- dia nýtir þessa tækni í RIVA TNT-þri- víddarkortunum og aðrir framleiö- endur eins og ATI, 3Dlabs og Rendition hyggjast fylgja í kjölfarið. Nvidia kvartar hástöfum yfir lögsókn- inni og segir hana einungis til komna vegna þess aö 3Dfx sé í vondum málum fjárhagslega, en nýlega kynnti fyrirtækiö aö þaö heföi ekki hagnast eins mik- ið á þriöja fjórö- ungi ársins og bú- ist haföi veriö við. Leikjarokk Nú þegartölvuleik- ir gerast sívinsælli leita útgefendur sí- fellt fleiri leiöa til aö markaössetja vöru sína. Ein þekkt leiö er aö nota tónlist þekktra lista- manna í leikjunum. Þetta var t.d. gert í Quake þar sem Nine Inch Nails sömdu tónlistina og í N20: Ni- trous Oxide sem notaði tónlist eft- ir The Crystal Method. Þessi brella veröur nýtt í leiknum Test drive: Off- Road 2 sem væntanlegur er á mark- aðinn fýrir jól. Þar veröur notuð tón- list hljómsveitanna Gravity Kills og Sevendust en báöar þessar hljóm- sveitir hafa selt umtalsvert magn platna vestanhafs. Rómaborg rís Fyrir helgi tilkynnti Microsoft aö viö- bót viö leikinn Age of Empires væri fullkláruö. Hún mun bera nafnið The Rise of Rome og er búist viö henni T hillur bandariskra leikjabúða þann 5. nóvember. Eins og nafniö gefur til kynna er sögusvið leiksins hiö forna rómverska heimsveldi. Viöbót- in var þróuö af Ensemble Studios sem framleiddu leikinn sjálfan. Hönd á plóg lagði einnig Bruce Shelley, sem var einn skapara Age of Emp- ires og hins geysivinsæla leiks Ci- vilization. rsct tonif iont \ið áhyrgjuinst ISO 9002 70 flfii luixnr 30 den ieggir 82o-r> i 11 Söliuiíiilu.': Hcykjavík: Oru-iia líiiuii. Iniugav«*;ú46. Snytiivornvorsfunin S|«w. tlúaUilisbruul 58-60» TiskuhtisiA Gula. haiigavrjn löi, IlargreiAshuU. Rnisk- ur. IfofTvaUakka I, JiúrKnyrtUtofun Safrún, Oraml Hotrl, Hárge»8»ilu,st. Mnndn, f!nt.»v allaual 16, Snyrtix (iruvcrshmin Cliesili.c. Húr- snvrti.-t. Dóra. Lunglioltsvrgi, Hegtihlíluhtiöin, Luuguvegi Vidcúljón- i8. Dnnhaga 20. Kópavogur: Snyrti- vöruvershmin Satwfra. Suiáranum.Hó>. EngihjalÍa 8 ilufiiurljör<Siir: Snyrti- vöruv. Di.-trlla Garðahær; Stiyrtthöll- in, Föröun lií. Cár5at«»rgi 8. Slykkii*- liólnmr: I Minahnrniö Vestmumiaevjar Kh’ltur, Strumlvegi 44. Akur«/yri: \or.slnnin \ nja. Sufturlaiul: Olnlaift, l'.yrarhukki. Tí»kuhÚHÍft. ScHo»i. Ausftirlniui: lámift. Höfn llnriialirfti. ÖflUð a storsoou veroi Heimilistæki hf TÆKNI-OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 Laser Expression K6-266 MMX • AMD K6 266 Mhz • 32MB SDRAM minni • 3.2 GB harður diskur • 32x geisladrit • 4MB S3 Virge 3D skjákort • Hljóðkort og hátalarar • Lyklaborð, mús og motta • 33.6K mótald + 3 mánuðir á Internetinu hjá Islandia • Windows 98 stýrikerfi II//LASER computer | Þá fíiuiur okkur á netmuf m Kíktu é tilboðin okkar ÚRVALÓTSÝN www.urvalutsyn.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.