Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 34
42 MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 Afmæli i“ÁimÍ' ií/líðiS W V./*. I.v./, V«. I. . • mJwi.i*i . I • /Vv•»/. .‘».11, V*... I., IW.WI. lujúl, Ú..iMlw'Ú,( íwo. ,7 ,C>,J.-.., ^l.í i Runólfur Birgir Leifsson Runólfur Birgir Leifsson, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands, Engimýri 2, Garðabæ, er fertugur í dag. Starfsferill Runólfur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Garðabæ frá íjögurra ára aldri. Þá var hann í sveit á sumrin á Flögu í Skaftártungu. Runólfur lauk stúdentsprófi frá MR 1978, stundaði nám við Tónlist- arskóla FÍH 1983-84, lauk kandídats- prófi í viðskiptafræði ffá HÍ 1984 og stundar nú meistaranám í við- skiptafræði við HÍ og Háskólann í Árósum. Hann hefur auk þess sótt ýmis tölvunámskeið, sótti Time Manager-námskeið 1990, Phoenix- námskeið hjá Stjómunarfélaginu 1993 og Power Point-námskeið hjá Viðskipta- og tölvuskólanum 1996. Runólfur var flokkstjóri í Vinnu- skóla Garðabæjar 197 og 1979, stund- aði verslunarstörf hjá hljómdeild FACO 1978-79, var flokkstjóri í Vinnuskóla Kópavogs 1983, starfaði við mennta- málaráðuneytið á áran- um 1981-90, var þar full- trúi í fjármáladeild 1981-82, viðskiptafræðing- ur í fjármáladeild 1984-86, deildarsérfræðingur í fjármáladeild 1986 og deildarstjóri fjármála og tölvudeildar 1987-90. Runólfúr var rekstrar- stjóri Sinfónínuhljóm- sveitar íslands 1990 og hefur verið framkvæmdastjóri Sin- fóníuhljómsveitar íslands frá því í ársbyrjun 1991. Runólfur sat í samninganefnd ríkisins 1986-89, var formaður Mats- nefndar tónlistarkennara 1984-90, sat í nefnd til að endurskoða reglu- gerð um sérkennslu 1987-88, í nefnd til að endurskoða reglugerð um Reiknistoöiun Hl og í Úthlutunar- nefnd Starfsmenntunarsjóðs FT og FÍH, var formaður nefndar vegna endurskoðunar á rekstri Sjáifsbjarg- Runólfur Birgir Leifsson. ar á Akureyri og formað- m- nefndar um málefni tónlistarskóla 1990, var gjaldkeri stjórnar FÍH 1988- 96, sat í byggingar- nefnd Þjóðleikhússins 1989- 96, hefur setið í Út- hlutunarnefnd Verkefna- og starfsmenntunarsjóðs Starfsmannafélags Sin- fóníuhljómsveitar ís- lands frá 1990, sat í stjóm Sinfóníuhljómsveitar æskunnar 1991-94, í stjórn Samtaka um tónlistarhús frá 1991, i stjóm Tónlistarráðs íslands frá 1991 og í stjórn Tónlistar fyrir alla frá 1994. Runólfur er stofnfélagi í JC Görð- um og var nefndarformaður, vara- forseti og gjaldkeri félagsins á árun- um 1978-82. Hann starfaði í skátafé- laginu Vífli í Garðabæ á árunum 1964-76 og var m.a. flokksforingi þar og sveitarforingi. Fjölskylda Runólfur kvæntist 18.7. 1998 Guð- rúnu Eyjólfsdóttur, f. 14.7. 1960, þroskaþjálfa. Hún er dóttir Eyjólfs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Kiwanis í Evrópu og Sjafnar Ólafs- dóttur húsmóður en þau eru búsett i Belgíu. Börn Runólfs eru Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, f. 18.5. 1981, mennta- skólanemi í Reykjavík; Lilja Björk Runólfsdóttir, f. 10.2. 1988; Leifur Ingimundur Runólfsson, f. 19.11. 1994. Stjúpbörn Runólfs eru Kristín Harðardóttir, f. 30.4. 1976, háskóla- nemi; Sjöfn Hannesdóttir, f. 23.1. 1983; Ólafur Hannesson, f. 26.10. 1992. Systir Runólfs er Hjördís Leifs- dóttir, f. 6.2. 1962, búsett í Hvera- gerði. Foreldrar Runólfs eru Leifur Kristinn Guðmundsson, f. 19.9.1934, vélfræðingur í Garðabæ, og Sigrún Þuríður Runólfsdóttir, f. 6.12. 1939, skrifstofukona. Brúðkaup Til hamingju með afmælið 28. september 80 ára Maria Guðmundsdóttir, Grýtubakka 10, Reykjavík. 70 ára Björgvin Magnússon, Reynigrand 55, Kópavogi. Hann er að heiman. Sigríður A. Guðmundsdóttir, Snorrabraut 56, Reykjavík. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir, Þórunnargötu 2, Borgarnesi. 60 ára Erna Þórdís Guömundsdóttir, Grænaási 2a, Njarðvík. Hulda Hjálmarsdóttir, Arnarhrauni 11, Haftiarfirði. Karl Jóhann Már Hirst, Heiðargerði 23, Vogum. Kristján Vilhjálmsson, Hringbraut 90, Keflavík. Sigursteinn Sveinbjörnsson, Litlu-Ávík, Árneshreppi. Öm Ágúst Guðmundsson, Vesturtúni 19, Bessastaðahreppi. 50 ára Elsa Jónasdóttir, Helgamagrastræti 53, Akureyri. Guðrún Einarsdóttir, Víðihvammi 29, Kópavogi. Guðrún G. Kristinsdóttir, Blöndubakka 14, Reykjavík. Hrafhkell G. Hákonarson, Stuðlaseli 4, Reykjavík. Ingibjörg E. Kristinsdóttir, Arnarhrauni 11, Hafnarfirði. 40 ára Brynhildur Baldursdóttir, Lækjarsmára 104, Kópavogi. Dóra Berglind Torfadóttir, Háagerði 83, Reykjavík. Guðmundur R. Guðlaugsson, Stuðlabergi 80, Hafnarfiröi. Hafþór Guðmundsson, Rauðarárstíg 22, Reykjavik. Halldór Guðmundsson, Kleppsvegi 6, Reykjavik. Helga Björg Helgadóttir, Viðarási 12, Reykjavik. Hilmar Bergmann, Arnartanga 34, Mosfellsbæ. Jóna Bára Jónasdóttir, Miðengi 4, Selfossi. Ragnar Kornelíus Lövdal, Garðhúsum 6, Reykjavík. Sigríður Hreinsdóttir, Dverghamri 36, Vestmannaeyjum. Sólborg Hreiðarsdóttir, Háaleitisbraut 26, Reykjavík. Sverrir Jóhannesson, Breiðvangi 4, Hafharfirði. Valdís Sigrún Valbergsdóttir, Vallholti 21, Akranesi. Þann 18. júlí voru gefin saman í hjónaband í Langholtskirkju af sr. Jóni Helga Þórarinssyni Halldóra Eyjólfsdóttir og Mats Jonsson. Heimili þeirra er að Langholtsvegi 152, Reykjavík. Ljósm. Barna & fjölskylduljósmynd- ir, Gunnar Leifur Þann 16. maí voru gefin saman í hjónaband í Kópavogskirkju af sr. Ægi Sigurgeirssyni Margrét Gunn- arsdóttir og Eyjólfur Gunnarsson. Heimili þeirra er að Tómasarhaga 16. Með þeim á myndinni er sonur- inn Gunnar Trausti. Ljósm. Svipmyndir, Fríður Þann 17. júlí voru gefin saman í hjónaband í Dómkirkjunni af sr. Jak- obi Ágústi Hjálmarssyni Guðrún Helga Guðmundsdóttir og Friðrik Ágústsson. Heimili þeirra er að Reyrengi 10, Reykjavík. Ljósm. Barna & fjölskylduljósmynd- ir, Gunnar Leifur Þann 16. maí voru gefin saman í hjónaband í Hafnarfjarðarkirkju af sr. Valgeiri Ástráðssyni Björg Leifs- dóttir og Þráinn Berg Theodórsson. Heimili þeirra er að Breiðvangi 10, Hafnarfirði. Ljósm. Svipmyndir, Fríður Þann 4. júlí voru gefin saman í hjónaband í Háteigskirkju af sr. Guðmundi Karli Ágústssyni Brynja Stephanie Swan og Guðmundur Rósmar Sigtryggsson. Heimili þeirra er að Austurtúni 6, Bessa- staðahreppi. Ljósm. Barna & fjölskylduljósmynd- ir, Gunnar Leifur Þann 2. maí voru gefin saman í hjónaband í Lágafellskirkju af sr. Halldóri Reynissyni Guðrún Óttars- dóttir og Haraldur Eiriksson. Heimili þeirra er að Dragavegi 4, Reykjavfk. Ljósm. Svipmyndir, Fríður Þann 4. júlí voru gefin saman í hjónaband í Fella- og Hólakirkju af sr. Hreini Hjartarsyni Guðfinna Ár- mannsdóttir og Stefán Þór Viðars- son. Heimili þeirra er að Austur- bergi 10, Reykjavík. Ljósm. Kristján E. Einarsson Þann 30. maí voru gefin saman f hjónaband í Haukadalskirkju af sr. Axel Árnasyni Vilborg Eiríksdóttir og Björgvin Örn Eggertsson. Heim- ili þeirra er að Baugstjörn 9, Sel- fossi. Ljósm. Svipmyndir, Fríður VW bjalla, hvít snotur bjalla '98, ein með öllu, ekin 2 km, rafdr. rúður, þjófav., saml., 2000 vél, 16“ álf., meiri háttar bíll. Verð 2.150.000 staðgreitt. M. Benz 280 GE '87, ekinn aðeins 139 þús. km, tveir eigendur frá upphafi, rafdr. rúður, samlæsing, drifl., álf., alvöru jeppi. Verð 1.590.000. MMC Coit 1500 GLX '91, ek. aðeins 77 þús. km, rafdr. rúður og speglar, hiti í sætum, álf., fallegur og litið ekinn bíll. Verð 600 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.