Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 22
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 Iþróttir Bland í poka Gunnlaugur Jónsson og félagar . hans í Kongsvinger geröu 2-2 jafntefli gegn Kjelsás, í fyrri úrslitaleik lið- anna um laust sæti í norsku A-deild- inni i knattspymu. Síðari leikurinn, sem fram fer á heimavelli Kjelsás, er á dagskrá á laugardaginn. Benny Lennartsson er tekinn við enska B-deildarliðinu Bristol City af John Ward en undir hans stjóm er liðið í 20. sæti af 24 liöum í deildinni. Lennartsson, sem er 55 ára gamall, var tæknilegur ráðgjafl sænska landsliðsins þegar það vann brons- verðlaunin á HM í Bandaríkjunum árið 1994. Blackburn, Neuicastle og Aston Villa slást nú um að krækja í Dion Dublin framherja Coventry. í fyrra- dag samþykktu forráðamenn Coventry að taka 720 milljóna króna tilboöi frá Blackbum í Dublin en 1 gær settu Newcastle og Aston Villa sig í samband við Coventry með það i huga að fá Dublin i sínar raðir. Jean-Marie Pfaff, fyrrum landsliða- markvörður Belga í knattspymu og Bayem Múnchen, hefúr verið ráðinn þjálfari belgíska A-deildarliðsins Ostend eftir að hollenski þjálfarinn Dennis van Wijk var látinn taka pokann sinn. Breski kylfingurinn Nick Faldo segist enn eiga möguleika á að vinna einn af stóm titlunum í golfi. Faldo, sem þrívegis hefur unnið sigur á US Mastersmótinu og þrisvar sinnum fagnaö sigri á opna breska meistara- mótinu, hefur ekki vegnað vel á þessu ári. Hann reyndi fyrir sér á mótum i Bandaríkjunum en hefur nú ákveðið að reyna að komast í Evrópu- úrvaliö sem leikur í Ryderkeppninni. Nú er þaö orðiö ljóst að ekkert verð- ur leikið í NBA-deildinni í körfuknattleik fyrr en i fyrsta lagi í desembermánuði. Samningar á milli eiganda NBA-liðanna og leikmanna- samtakanna hafa enn ekki náðst en keppnin i deildinni átti að hefjast 3. nóvember. Hertha Berlin féll úr þýsku bikar- keppninni í knattspymu í gær þegar liöið tapaöi fyrir B-deildarliöinu Bor- ussia Berlin, 4-2. Bayem Múnchen lagði Duisburg á útivelli, 4-2 og Werder Bremen sigraði Fortuna Dússeldorf, 3-2. Á italiu vom fyrri leikimir i 3. um- ferð ítölsku bikarkeppninnar. Úrslit- in: Udinese-Vicenza 0-0, Sampdoria, Bolgona 0-0, Fiorentina-Lecce 1-0, Atalanta-Roma 1-1, Inter, Castel 1-0, Bari-Parma 1-2. Rangers tapaði fyrir MotherweU i skosku A-deildinni í knattspymu í gær, 1-0, og Dundee lagöi Dunferm- line, 1-0. Sigfús Sigurósson og samheijar hans í Caja Cantabria töpuðu með 9 marka mun fyrir Barcelona, 24-33, i spænsku A-deildinni 1 handknattleik í gær- kvöldi. Börsungar em með 5 stiga for- skot í deildinni, em með 21 stig en Cantabria er í 4. sæti með 13 stig. Bad Schwartau, lið Sigurðar Bjarnasonar, tapaði fyrir Dudenstadt, 22-19, i þýsku bikar- keppninni i handknattleik í gær. Essen, lið Patreks Jóhannessonar og Páls Þórólfssonar, lagði Freden- beck, 27-25, Róbert Duranona og fé- lagar hans í Eisenach sigmðu Niederpleis, 25-20 og Dormagen, lið Róberts Sighvatssonar og Héðins Gilssonar lagöi Dússeldorf, 21-14. -GH Gianluca Viaili var maður gær- kvöldsins í ensku deildarbikar- keppninni í knattspyrnu. Vialli stillti sér upp í byrjunarliðinu gegn Aston Viila og gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú af fjórum mörkum sinna manna. Viila, toppliðið i A-deildinni sem hafði fyrir leikinn ekki tapað nein- um leik á tímabilinu, byrjaöi betur þegar Mark Draper kom því yfir en eftir það tók Lundúnaliðið leikinn í sínar hendur. Vialli skoraði tvö fyrstu mörk sinna manna og norski landsliösmaðurinn Tore Andre Flo skoraði þriðja markð með glæsileg- um skalla. Vialli innsiglaði svo sig- ur sinna manna þegar hann skoraði 4. markið og skömmu síðar fékk skaphundurinn Dennis Wise að líta rauða spjaldið fyrir grófa tæklingu. Norðmennirnir björguðu United Norðmennirnir Ole Gunnar Sol- skjær og Erik Nevland björguðu heiðri Manchester United þegar þeir skoruöu með stuttu millibili í siðari hálfleik framlengingar gegn B-deildarliðinu Bury. United hvíldi marga af sínum bestu leikmönnum enda margir stórleikir fram undan hjá liðinu. Fyrsta mark Vivas fyrir meistarana Ensku meistaramir í Arsenal höfðu betur gegn Derby á Pride Park, 1-2. Sjálfsmark frá vamar- manni Derby kom Arsenal yfir og Argentínumaðurinn Nelson Vivas opnaði markareikning sinn fyrir Arsenal þegar hann skoraði annað markið. Dean Stinridge náði svo að minnka muninn fyrir Derby. Ástralinn Harry Kewell tryggði Leeds sigurinn á B-deildarliði Brad- ford með glæsilegu marki. Neal Ardley var á skotskónum í liði Wimbledon og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri á Birmingham. Blackbum skreið í 4. umferðina með 1-0 sigri á Crewe þar sem Chris Sutton skoraði eina mark leiksins. Ibrahim Bakayoko frá Fílabeins- ströndinni skoraði sitt fyrsta mark fyrir Everton þegar liðið hafði betur gegn Middlesbrough í framlengdum leik. -GH Þýski tenniskappinn Boris Becker sýndi og sannaði í gær að hann er ekki dauður úr öllum æðum. Becker gerði sér þá lítið fyr- ir og sigraði Spánverjann Carlos Moya í 3. umferð á Eurocard-mót- inu í tennis sem nú stendur yfir í Stuttgart. Becker tapaði fyrsta settinu, 6-7, en vann tvö næstu, 6-4 og 6-4. Becker hefur átt við þrálát ökkla- meiðsli að stríða undanfamar vikur en ef marka má leik hans í gær er hann á góðum batavegi. „Þaö kom mér á óvert í hversu góðu formi ég var í þessum leik,“ sagði þessi fyrrum heimsmeistari eftir sigurinn á Moya í gær. Flestir reiknuðu með öraggum sigri Spán- verjans enda vann hann í sumai' sigur á opna franska meistaramót- fö'ii ENGLAND Deildarbikarinn, 3. rnnferð: Birmingham-Wimbledon .... 1-2 Mardsen - Ardley 2. Chelsea-Aston Villa..........4-1 Vialli 3, Flo - Draper Crewe-Blackbum...............0-1 - Sutton. Derby-Arsenal................1-2 Sturridege - Carsley sjálfsmark, Vivas. Leeds-Bradford ..............1-0 Kewell. Middlesbr-Everton .. e.framl 2-3 Summerbell, Ricard - Ferguson, Bakayoko, Hutchison. Man.Utd-Bury .......e. framl 2-0 Solskjær, Nevland. Arsenal mætir Chelsea í gærkvöldi var svo dregið til 4. umferðar og litur drátturinn þannig út: Leicester-Leeds Liveroll-Tottenham Manchester United-Nott.Forest Luton-Bamsley Arsenal-Chelsea Everton-Sunderland Newcastle-Blackburn Bolton-Wimbledon Leikirnir eiga að fara fram 9. nóvember. -GH inu og er í 4. sæti á styrkleikalistan- um á meðan Becker er 67. í röðinni. „Ég var mjög ánægður með spila- mennsku mína,“ sagði Becker sem mætir Króatanum Goran Ivanisevic í næstu umferð en hann lagði S-Afríku- búann Wayne Ferreira, 64 og 7-6. Öruggt hjá Sampras Bandaríkjamaðurinn Pete Sampras átti ekki í teljandi erfið- leikum með Þjóðverjann Nicolas Ki- efer og sigraði, 6-3 og 6-4. Chilebú- inn Marcelo Rios sigraði Þjóðveij- ann Tommy Haas, 6-3 og 7-5, Bandaríkjamaðurinn Jean-Michael Gambill kom á óvart og lagði Spán- verjann Alex Corretja og Bretinn Greg Rusedski mátti hafa sig allan við að sigra Ástralann Jason Stoltenber, 7-6, 6-7 og 7-6. -GH Jordi Cruyff, ieikmaður Manchester United, fær hér skemmtilega byltu frá varnarmanni Bury í leik liðanna á Old Trafford í gærkvöld. Reuter Stjórinn setti þrennu Helgi þjálfar HK Helgi Ragnarsson var í gær ráðinn þjálfari knattspymuliðs HK úr Kópavogi, sem féll úr 1. deildinni i haust. Helgi þjálfaði síðast lið FH fyrir tveimur áram en hann hefur veriö áður hjá HK og stýrði liðinu upp um tvær deildir á áranum 1992-1993. -VS Boris Becker, sem er hér til vinstri ásamt Andre Agassi, hafði ástæðu til þess að brosa eftir sigurinn á Carlos Moya í gær. Reuter Tennis: QPR ræddi við Gunnleif KR-ingamir Gunnleifúr Gunn- leifsson, Siguröur Öm Jónsson og Bjami Þorsteinsson léku með varaliði Wimbledon gegn Charlton í deildakeppni varaliðanna í ensku knattspymunni í gærkvöld. Charlton sigraði, 2-1. Gunnleifúr og Bjami léku allan leikinn en Sigurður fór af velli þegar korter var liðið af síðari hálfleik. Margir að skoða Margir fuiltrúar enskra félaga voru á leiknum og einn þeirra, frá B-deildarliðinu QPR, óskaði eftir viðræðum við Gunnleif. Hann kemur heim í dag og fer síðan til Manchester United, en þeir Sig- urður Öm og Bjami verða hjá Wimbledon til mánudags. -VS Becker í ham

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.