Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Síða 23
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
23
Iþróttir
Markahæstur
- Sigurður Ragnar Eyjólfsson skorar grimmt í háskóladeildinni
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, markahæsti leik-
madur Skagamanna í sumai', er nú marka- og
stigahæsti leikmadur A-deildar Bandaríkjanna í
háskólaknattspyrnu það sem af er þessu keppn-
istímabili. Þar leikur hann með Noröur-
Karólínuháskóla í Greensboro, og í fyrrakvöld
skoraði hann 5 mörk í leik með liði sínu og
komst þar meö á topp markalistans.
Sigurður hefúr skorað 21 mark og átt 11
stoðsendingar í 17 leikjum. Tvö stig eru gefin
fyrir að skora mark en eitt stig fyrir stoðsend-
ingu þannig að Siguröur hefur nú alls hlotið 53
stig. Að auki hefur skólalið Sigurðar skorað flest
mörk allra liða i deildinni.
Fjórtánda sæti frá upphafi
Velgengni Sigurðar er einstök þar sem hann
er nú kominn i 14. sæti yfir stigahæstu leikmenn
A-deildar bandarísku háskólaknattspymunnar
ffá upphafi. Sigurður hefúr skorað 70 mörk á
ferli sínum fyrir Norður-Karólínuháskóla í
Greensboro sem setur hann í 20. sæti yfir
markahæstu menn fra stofnun deildarinnar.
Sigurður hefur tvisvar sinnum verið valinn i
úrvalslið háskóladeildarinnar (All-American) og
á mjög góða möguleika á að vera valinn í þriðja
skiptið í lok þessa timabils.
Fer í valið fyrir bandarísku
atvinnudeiidina
„Frammistaða mín á þessu tímabili gefur mér
góðar vonir um að komast í atvinnumennsku
hér. Ég hef heyrt af áhuga nokkurra atvinnuliða
en samningaviðræður mega ekki hefjast fyrr en
að loknu keppnistímabilinu. Það klárast í nóv-
ember eða desember, eftir því hve langt við fór-
um í úrslitakeppninni. Valið inn í MLS-deildina
(Major League Soccer, atvinnudeildina) fer svo
fram í janúar og það verður spennandi að sjá
hvað kemur út úr því,“ sagði Sigurður við DV.
Hann yrði þá fyrsti íslend-
ingurinn til aö leika í þeirri
deild.
Sigurður útskrifast í des-
ember með mastersgráðu i
æfinga- og iþróttasálfræði.
Atla gengur vel
Sigurður Ragnar er ekki
eini íslendingurinn sem er á
listum yfir bestu frammistöðu í há-
skóladeildinni. Atli Knútsson, mark-
vörður Breiðabliks, ver mark Duke-há-
skólans og er í 11. sæti á lista yfir þá sem
hafa fengið fæst mörk á sig yfir öll
Bandaríkin. Hann hefur aðeins fengið á
sig 9 mörk í fyrstu 14 leikjunum.
-VS
Blcsnd i noka
Flugvél meö hið fræga körfuknatt-
leikslið Maccabi Tel Aviv þurfti að
nauðlenda á flugvelli í nágrenni Tel
Aviv i Israel i gær. Liðið var á leið til
Belgrad til að spila við Rauðu stjörn-
una í meistaradeild Evrópu. Enginn
varð fyrir meiöslum og liðið lagði í
hann á ný með annarri flugvél.
Allir 11 leikmennirnir í knatt-
spyrnuliði í Kongó fórust um síðustu
helgi þegar eldingu laust niður á
knattspyrnuvöll í landinu. Frétta-
stofa i Kongó skýrði frá þessu í gær.
Það einkennilega var að ailir leik-
menn heimaliðsins sluppu ómeiddir
frá atvikinu, en 30 áhorfendur urðu
fyrir meiðslum.
Philippe Anziani, fyrrrnn landsliös-
maður Frakka i knattspymu, var í
gær ráðinn þjálfari Sochaux, sem
situr á botni frönsku A-deildarinnar.
Hann tekur við af Bosníumanninum
Faruk Hadzibedjic sem var rekinn
fyrr i vikunni.
Rúnar Sigíryggsson og félagar í
Göppingen sigruðu CSGErlangen á
útivelli, 32-25, i þýsku bikarkeppn-
inni i handknattleik í fyrrakvöld.
Meistarar og bikarmeistarar Kiel
sigruðu C-deildarlið Bremerförde,
31-21, á útivelli.
Hollenska liðið Waalwijk rak i gær
þjálfara sinn, Peter Boeven, úr starfi.
Liðið hefur leikiö afar illa á þessu
tímabili og ekki unniö einn einasta
leik, gert þrjú jafntefli og tapað sjö.
Aðstoðarmaður hans mun taka við
liðinu tímabundið, eða þangað til aðq
nýr þjálfari flnnst.
Japanir lögðu Egypta, 1-0, í
æfingalandsleik i knattspymu í
Osaka í gær. Masashi Nakayama
skoraði sigurmarkið i leiknum sem
var fyrsti leikur Japana undir stjórn
Frakkans Phiilipe Troussier.
Frakkinn Valerien Ismael fór í gær
frá enska liðinu Crystal Palace eftir
skamma dvöl hjá liðinu. Hann gekk í
raðir Palace í janúar sl. frá franska
liðinu Strassbourg en núna fer hann
til Lens. Leikmaðurinn náði sér
aldrei á strik hjá Palace og líkaði
heldur ekki lífið í London.
Marcelo Rios frá Chile, sem er
annar á styrkleikalista tennismanna,
er kominn áfram á sterku móti í
Stuttgart, Hann sigraði Þjóðverjann
Tommy Haas 6-3, 7-5. Af öðrum
úrslitum má nefna að Króatinn
Goran Ivanisevic sigraði Wayne
Ferreira frá Suður-Afríku 6-4, 7-6,
(8-6). Þá sigraði Svíinn Jonas
Björklund ítalann Gianluca Puzzi
94, 3-6, 6-2.
-VS/JKS/GH
I kvöld
Úrvalsdeildin 1 körfubolta:
ÍA-Keflavik.................20.00
Skallagrímur-Þór A..........20.00
Grindavík-Haukar............20.00
Njarðvik-KR.................20.00
Valur-Tindastóll............20.00
Magnús sleit hásin
- spilar ekki meira meö Willstátt í vetur
Handknattleiksmaðurinn Magnús Sigurðs-
son, sem lék með Stjörnunni um árabil, sleit
hásin í leik með liði sínu, Willstatt, í þýsku
bikarkeppninni í fyrrakvöld. Allt bendir til
þess að hann spili ekkert meira með liðinu á
þessu timabili.
Willstátt, sem er með sterkari liðum í suð-
urriðli þýsku B-deildarinnar, lék við A-deild-
arlið Dutenhofen og tapaði, 29-33, í fram-
lengdum leik. Staðan var 19-10 í hálfleik en
Magnús slasaðist um miðjan síðari hálfleik
þegar staðan var 18-14, WiUstátt í hag. Duten-
hofen náði að jafna, 25-25, og knýja fram sig-
ur í framlengingunni.
Meiðsli Magnúsar eru mikið áfall fyrir lið
Willstátt, en hann er þar yfirleitt markahæsti
maður og var valinn í úrvalslið B-deildarinn-
ar eftir síðasta tímabil. Eins og fram kom í
DV í gær hugðist Þorbjörn Jensson landsliðs-
þjálfari fylgjast með Magnúsi í leik með liði
sínu þegar hann fer til Þýskalands í næstu
viku. Magnús er örvhent skytta og hefði get-
að nýst landsliðinu til að skipta við Ólaf Stef-
ánsson.
Gústaf kominn af stað
Gústaf Bjarnason lék sinn fyrsta mótsleik
með Willstátt gegn Dutenhofen en hann gekk
til liðs við félag-
ið í sumar. Hann
hefur verið frá
vegna meiðsla til
þessa en var í miklum
ham í æfingaleik gegn
frönsku liði í síðustu viku.
Það er því ljóst að íslending-
arnfr tveir spila ekki meira saman
með liðinu í vetur en þessar 45 mínút-
ur sem Magnús entist í fyrrakvöld.
Þórður Guðjónsson á batavegi:
„Stefni á að spila
með á Mallorca"
Þórður Guðjónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er á batavegi
eftir meiðslin sem hann varð fyrir í
landsleiknum við Rússa á dögunum.
Lærvöðvi rifnaði og hann hefur ver-
ið frá æfingum og keppni í hálfan
mánuð.
Hann er bjartsýnn á að geta leik-
ið með Genk þegar liðið mætir Mall-
orca á fimmtudaginn í næstu viku
en það er síðari leikur liðanna í 16
liða úrslitum Evrópukeppni bikar-
hafa. Sá fyrri, sem fram fór í Belgíu
í síðustu viku, endaði 1-1 og það
verður því á brattann að sækja fyr-
ir Genk á spænsku sólareyjunni.
„Ég er farinn að hlaupa og má
byrja að snerta bolta um helgina. Ég
stefni fullum fetum að því að geta
spilað á Mallorca og held að það
ætti að takast," sagði Þórður í
spjalli við DV í gær.
„Það er ljóst að leikurinn
verður mjög erfiður eftir jafn-
teflið okkar í heimaleiknum.
Spánverjarnir eru geysi-
lega sterkir, þeir eru
efstir í deildinni og
með mikið sjálfs-
traust. En við
erum reyndar
efstir líka og á
góðu skriði, og
eigum alveg
að geta náð
góðum úr-
slitum á *
Mallorca. W
Við sýndum
styrk okkar gegn Duis-
Vogts þjálfar S-Afríkumenn?
Berti Vogts, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja, heldur í
næstu viku til Jóhannesarborgar í Suður-Afríku en forsvars-
menn knattspyrnusambandsins hafa óskað eftir fundi með
honum um hugsanlegt landsliðsþjálfarastarf. Vogts lét af
störfum með þýska landsliðið í september og síðan þá hafa
nokkrir aðilar verið í viðræðum við hann en þar er á ferð
snjall þjálfari sem náöi frábærum árangri með þýska lands-
liðið. Knattspyrnusambandiö hefur rætt við nokkra ein-
staklinga, þar á meðal Carlos Alberto sem gerði Brasilíu
að heimsmeisturum 1994. -JKS
burg í síðustu umferð og höf-
um fullan hug á aö ná lengra í
keppninni," sagði Þórður.
Bjarni skoraði þrennu
með 23 ára liði
Genk
Svo kann að fara að
Bjarni, bróðir Þórð-
ar, gangi til liðs við
Genk á næstunni.
Bjarni hefur æft
, með liðinu þessa
, viku og lék með 23-
ára liði félagsins
T/ gegn Kapellen í bik-
' arkeppninni i þessum
aldursflokki í fyrra-
kvöld. Bjarni gerði sér
lítið fyrir og skoraði
þrennu í 7-1 sigri. Jóhannes Karl,
bróðir þeirra, skoraði eitt mark
þannig að bræðurnir sáu um meiri-
hluta markanna.
Það skýrist væntanlega um helg-
ina hvort Genk óskar eftir því að fá
Bjama á leigu frá Newcastle eða vill
jafnvel kaupa hann.
„Hann hefur staðið sig vel en ef
Genk ákveður að reyna að fá hann
er eftir að koma í ljós hvað
Newcastle gerir. Spurningin er í
hvort þeir verði of dýrir því verðlag
á leikmönnum er mjög hátt í
Englandi. Það er ekkert einfalt að
komast frá ensku liði hingað til
Belgíu," sagði Þórður Guðjónsson.
-VS
Þórður er
bjartsýnn
á að geta
spilað
Evrópu-
leikinn
mikilvæga
á Mallorca.
Jafntefli gegn Póverjum
íslenska U-16 ára landslið drengja í knattspyrnu gerði í gær
jafntefli gegn Pólverjum, 2-2, í öðrum leik sínum í riðlakeppni
Evrópumótsins í Póllandi. Keflvikingurinn Grétar Gíslason og
Ólafur Páll Snorrason, leikmaðm- Bolton, gerðu mörk íslenska
liðsins. Þá unnu Hollendingar lið Liechtenstein, 4-1. Þegar
tveimur umferðum er lokið í riðlinum eru Holland og Pólland
með 4 stig, ísland 2 og Liechtenstein. Efsta liðið í riðlinum fer
áfram í úrslitakeppnina sem fram fer í apríl á næsta ári.
Síðasta umferðin í riðlinum er á morgun. Þá mætir ís-
land liði Liechtenstein og Pólland leikur gegn Hollandi.
-GH