Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Síða 27
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 210 Fréttir Einstakir kennarar fá sitt fram í samningum við sveitarfélögin Setja sveitarfélögum stólinn fyrir dyrnar Torfi hefur nákvæmar upplýsingar fyrir trillukarlana um veður og sjólag áður en út er haldið. DV-mynd Júlía Hafnarvogin á Höfn: Allt um veðrið fyrir sjómenn Kennarar í grunnskólum lands- ins eru margir hverjir á forum frá skólum sínum að þvl er virðist. Uppsagnir dynja á sveitarfélögun- um og kennaramál eru í uppnámi í þrem sveitarfélögum í það minnsta. Búist er við vaxandi óróa í stærstu sveitarfélögum landsins. Kennarasamband íslands er sagt standa fyrir skipulögðum hópupp- sögnum fullyrða margir sveitar- stjórnarmenn. Þeir segjast geta kortlagt ferðir Eiríks Jónssonar og félaga um landið. Eftir haustfund- ina með kennurum hafi margir gripið til uppsagna. Þá segja menn að kennarar, til dæmis á Akureyri, hafi ekki getað svarað tilboðum sem þeir fengu öðruvísi en að bera þau fyrst undir Kennarasamband- ið. Kjarasamningur kennara er ársgamall í dag. Hannes Þorsteinsson hjá Kenn- arasambandi íslands sagði að það væri af og frá að sambandið stæði í því að hvetja kennarastéttina til uppsagna. „Það gerist hjá okkur eins og mörgum öðrum í þenslunni að það verður launaskrið. Hjá öör- um stéttum þykir það reyndar ekk- ert tiltökumál þó verið sé að semja aðeins út fyrir en þegar við eigum í hlut þykir það víst stórmál," sagði Hannes. Hannes segir að haustfundir Kennarasambandsins hafl ekkert með prívatuppsagnir kennara að gera. Uppsagnarbréfln hafa dunið yfir sveitarfélögin á Hvolsvelli, Árborg og á Seltjamamesi. í Reykjavík og Kópavogi hefur orðið vart við tals- verðan óróa í hópi kennara, eitt- hvað er að gerast, enda hafa kenn- arar fengið dræmar undirtektir í þeim sveitarfélögum þegar þeir Karl Björnsson, bæjarstjóri og for- maður launanefndar sveitarfélag- anna. viðra kröfur sínar um bætt launa- kjör. í Hafnarflrði eru viðræður við kennara hafnar. Víða um land hefur hins vegar verið samið um betri kjör og það gert með ýmsu móti eftir sveitarfélögum. Þetta hefur verið gert í skugga upp- sagna, til dæmis í Bessastaða- hreppi og á Akureyri. í Reykjanes- bæ, á Akranesi og í Garðahæ em sveitarfélögin að kaupa aukna vinnu frá kennurum og viða í minni sveitarfélögum úti um land hafa kjör kennara verið bætt. „Við höfum auðvitað miklar áhyggjur af þessu ástandi og erum óánægðir með þessar hópuppsagn- ir, því þetta er ekkert annað, þótt þær séu skilgreindar sem einstak- lingsuppsagnir," sagði Karl Bjöms- son, bæjarstjóri í Árborg, en hann kemur að þessu máli frá tveim hliðum, auk þess að vera bæjar- stjóri og æðsti yfirmaður fjöl- margra kennara i skólum sveitar- félagsins er hann formaður launa- nefndar Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Karl sagði að fyrir sveitarfélögin væri afar erfltt að bregðast við slíkum þrýstingi. Hann sagðist vilja minna á að félög kennara hafl við flutning skólans frá ríkinu til sveitarfélaganna lagt þunga áherslu á að sveitarfélögin kæmu fram sem einn samningsaðili gagn- vart kennurum. Einmitt það hefði verið hluti þess að kennarar sætt- ust á flutninginn. Síðan hefðu sveitarfélögin falið launanefndinni fullnaðarumboð til samningagerð- ar. Svo gerist það að launanefhdin semur við kennara um meiri hækkun en til allra annarra en þá er tekin sú stefna að vinna gagn- vart sveitarfélögum hverju fyrir sig. Það sé ekki í þeim anda sem upphaflega var ráð fyrir gert. -JBP DV, Höfn: Hafnarvogin á Hornaflrði var opin og til sýnis gestum útvegs- manna og Hafrannsóknastofnunar þann 17. okt. sl. og einnig hafnsögu- báturinn Björn Lóðs. Torfl Frið- finnsson hafnsögumaður var á vakt á voginni og upplýsti fólk um í hverju starf hafnsögumanna á Homafirði væri fólgið. Tölvubúnaður Hafnarvogarinnar er margþættur. Þar er til dæmis ölduhæð sýnd í og utan við Horna- Qarðarós ásamt veðurlýsingu frá veðurstöðinni i Hvanney. Einnig nákvæmar tölur um allar breyting- ar sem verða á straumum og dýpi i og við innsiglinguna og er hér fátt eitt nefnt af allri upplýsingatækn- inni hjá Torfa hafnsögumanni. Um 180 fraktskip hafa verið lóðsuð inn til Hafnar á ári og flestir aðkomubátar fá lóðsinn til að fylgja sér inn um ósinn. -J.I. (í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöfða 2 • Reykjavík Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf: 587 7605 Nissan Almera SLX ‘98, Nissan Primera 1,6 GX ‘98, Nissan Infiniti 3,0 '93, Subaru Impreza 1,6 LX'97, Subaru Legacy 2,0 GL'91, ek. 1 þús. km, 4 d., ssk. ek. 3 þús. km, 4 d., 5 g. ek. 50 þús. km, 4 d., ssk. ek. 22 þús. km, 5 d., 5 g. ek. 179 þús. km, 5 d., ssk. Verð 1.450.000. Verð 1.580.000. Verð 2.650.000. Verð 1.350.000. Verð 710.000. Fiat Uno 45S arctic '94, ek. 50 þús. km, 5 d., bsk. Verð 470.000. VW Vento GL '93, ek. 79 þús. km, 4 d., ssk. Verð 1.040.000. MMC Lancer GLXi '91, ek. 118 þús. km, 4 d. ssk. Verð 660.000. Nissan Primera 2,0 SLX '96, ek. 40 þús. km, 4 d., ssk. Verð 1.520.000. Peugeot 309 XS '88, ek. 148 þús. km, 3ja d., 5 g. Verð 190.000. Nissan Terrano II '97, ek. 50 þús. km, 5 d., 5 g. Verð 2.150.000. Peugeot 405 GTX '95, ek. 42 þús. km, 5 d., ssk. Verð 1.090.000. Subaru Legacy 2,0 GL '96, ek. 49 þús. km, 5 d., 5 g. Verð 1.750.000. Nissan Terrano SE '95, ek. 54 þús. km, 5 d., ssk. Verð 2.150.000. Frábær greiðslukjör: Engin útborgun og lán til allt að 48 mánaða. Fyrsta afborgun getur verið eftir allt að 3 mánuði. Visa/Euro- raðgreiðslur til allt að 36 mánaða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.