Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 T>V nn Ummæli Flokkur án möguleika? „Flokkur sem næstum því ! vill ganga í Var- | I sjárbandalagið á i ekki mikla ! ^ mögulbika." , Ólafur Örn Har- ^ aldsson alþing- ismaður um sameiningar- framboðið, í Degi. Grín og gaman „Ef þetta verður meira svona grín og gaman, þá eru ekki margar leiðir i stöð- unni.“ Guðmundur Óskarsson, form. Landssambands ís- lenskra slökkviliðsmanna, sem hafa íhugað úrsögn úr BSRB í Degi. Spennustigið of hátt „Fyrir leikinn leitaöi mað- ur eftir því að hafa spennustig- ið svolítið hátt til þess að fá hraðan leik og fyrir vikið spennti maður sjálfan sig upp líka.“ Þorbjörn Jen- son landsliðsþjálfari sem rekinn var af velli, í DV. Borgin gerði sniðugan hlut „Ég held að Reykjavíkur- borg hafi gert þama mjög sniðugan hlut og ég er ekki vanur að hæla Reykjavíkur- listanum.“ Jón Gunnar Zoéga, lög- maður Bónuss, eftir að borgin hafði selt Bónusi Nýja bíó, í Degi. Hrossakaupaframboð „í mínum huga er spum- ingin hvort við eigum að fara í hrossakaupa- framboð sem samið er um i bakherbergj- um eða hvort fólkið á að fá að tala.“ Birgir Dýrfjörð rafvirki, um prófkjör hjá sameiningarframboðinu, í DV. Konur tapa á prófkjöri „Margir hafa orðið til þess að benda á þá staðreynd aö konur beri yfirleitt skarðan hlut frá borði í opnu prófkjöri og framboð sem kennir sig við jafnrétti og kvenfrelsi má ekki hætta á það.“ Kolbeinn Óttarsson Proppé, form. Alþýðubandalagsfé- lags Reykjavíkur, í DV. Hornbjarg Ný lína Drangaskörð Selsker' Gömul lína, Rifsnes -T íi Síðastliöinn mánudag fór flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, í eftirlits- og könnunarflug á miðin úti fyrir Vest- fjörðum og kannaöi hafís. Næst landi var ísjaðarinn 40 sjómílur norðvestur af Straumnesi og 50 sjómílur norðvest- ur af Barða. Par sem ísinn var kannaður var þéttleikinn víðast 7-9/10 og 4-6/10. Innan við isbrúnina var mikið af stór- um borgarísjökum. ' Sigbjörn Brynjólfsson bóksali: Áhugi á ættfræði fer vaxandi DV: Egilsstööum: Austur á Fljótsdalshéraði, nánar til- tekið við norðurenda Lagarfljótsbrúar, stendur Bókabúð Sigbjarnar Brynjólfs- sonar á Hlöðum. Samhliða almennri bóksölu og verslun með ritfóng, skóla- og gjafavörur er þar í boði mikið úrval af gömlum bókum frá ýmsum tíma. Verslunin er því sannkallað gósenland fyrir grúskara og bókaorma og flestir sem sýkst hafa af hinni vel þekktu bókasöfnunarástríðu ganga út klyfjað- ir með sælubros á vör. Segja má að vagga verslunar á Hér- aði sé á Hlöðum, Á fyrstu áratugum aldarinnar var Framtíð- in á Seyðisfirði þar með verslun í skúr sem Sigbjörn Björnsson, bóndi á Ekkjufelli, afi Sig- bjöms kaup- manns, keypti þegar verslunin lagði upp laupana. Hann leigði síðan skúrinn Sigurði Þor- steinssyni sem verslaði þar til dauðadags 1951. Um það leyti hafði Sigbjörn lokið námi í Verslunar- skólanum og hóf að versla við brúar- sporðinn, fyrst á eigin vegum, síðan sem verslunarstjóri Verslunarfélags Austurlands. Fyrir 25 árum söðlaði hann um og sneri sér að bókaverslun. Hver var ástæðan? Maður dagsins „Það gerðist nú þannig að Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi var hér í sumarfríi og kom í verslunina hjá mér í þeim erindum kaupa sér í mat- inn, m.a. eitthvert krydd sem ég átti ekki til. Ég hafði þá nýlega keypt „Geimstöðina", skúr sem hér stóð, af Gunnari Gunnarssyni sem flestir þekkja betur undir nafninu Gagarín. Örlygur kom til mín þar sem ég var að snúast í kringum skúrinn í þeim erindum að skamma mig fyrir lélega þjón- ustu en samtalið snerist fljótlega um það hvað ég ætlaði að gera við þetta húsnæði og hvort það væri ekki tilvalið að nota það undir bókabúð. Endir- inn var sá að hannbaðmig að hitta sig næst þegar ég kæmi i bæinn og gerði ég það. Örlygur kom þá á fundi með mér og nokkrum bókaútgefendum, m.a. Valdimar i Iðunni , sem þá var formaður Félags íslenskra bókaútgef- anda og í framhaldi af því fékk ég leyfi til bóksölu en á þeim tíma þurfti leyfi til að reka slíka verslun." Sigbjörn tók fljótlega upp þá auka- búgrein að vera með gamlar bækur, bæði vegna þess að þær eru honum hugstæðar og eins taldi hann þörf á slíkri þjónustu en það hefur svo sann- arlega komið á daginn. „Það liggja margir með bækur heima sem þeir líta aldrei í og hafa ekki áhuga á að eiga og koma því með þær hingað. Oftar en ekki leynast innan um bækur sem einhvem vant- ar í safniö sitt eða langar til að eign- ast og svo kemur hér skólafólk sem er að leita að einhverju í sambandi við námið. Þetta kemur þeim lika vel sem eru að grúska og þeir era margir. sér- staklega finnst mér áhugi á ættfræði fara vaxandi og þá ekki síður hjá ungu fólki. Þegar ég spyr Sigbjöm hvort bók- sala hafi minnkað segir hann svo vera. „Héraðsmenn hafa alltaf verið miklir bókamenn en ég held að fólk svona almennt lesi minna af bókum en áður. Hvað bóksöluna varðar finnst mér skorta á að bókaútgefend- ur styðji við bakið á okkur bóksölum. Mér finnst þeim standa nær að styrkja okkur heldur en að senda far- andsala þvert og endilangt um landið og vera með fjölda fólks í vinnu við að hringja um allar trissur að bjóða bækur sem við gætum selt á svipuð- um kjörum." Sigbjörn Brynjólfsson. -AÞ Pachora leikur á tónleikum í Loftkastalanum í kvöld. Hljómsveitin Pachora: Frábærir spilarar í kvöld heldur hljóm- sveitin Pachora tónleika í Loftkastalanum. Um er að ræða fjögurra manna hljómsveit sem leikur tón- list úr ólíkum áttum, Mið- jarðarhafsstemning er nokkur, blönduð tónlist Balkansskag- ans, bibop- djass og áhrif frá Búlgaríu og Tyrklandi svo eitthvað sé nefnt. Einn ís- lendingur er í Pachora, bassaleikarinn Skúli Sverris- son, sem lengi hefur átt heima í New York og hefur leikið þar með helstu djass- og avant garde- spilurum borgarinnar. Aðr- Skemmtanir ir eru Jim Black á ásláttar- hljóðfæri, Chris Speed klar- inettleikari og Brad Shepik, sem leikur á saz sem er portúgalskur gitar og raf- magnssaxófónn. Bræðslumark Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnOröi. Guöbergur Bergsson les úr nýrri bók sinni.. Guðbergur les í Gerðarsafni Upplestur á vegum Ritlistar- hóps Kópavogs veröur haldinn í Gerðarsafni í dag kl. 17. Gestur að þessu sinni verður Guðbergur Bergsson rithöfundur og mun hann lesa úr nýútkominni bók sinni um Sæmimd Valdimarsson myndlistarmann. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Upplestur Þriðja FS-kvöldið í tilefni af þrítugsafmæli Fé- lagsstofnun stúdenta stendur stofnunin fyrir fimm kvölda skemmtun. Þriðja skemmtunin er í kvöld á Sóloni íslandusi og er það upplestrarkvöld. Fram koma Arthúr Björgvin Bollason, Auður Ólafsdóttir, Ámi Bergmann, Guð- rún Eva Mínervudóttir, Haraldur Jónsson og Kristín Ómarsdóttir. Dagskráin hefst kl. 21. Á síðasta kvöldinu á Sóloni íslandusi, 5. nóvember, koma nokkrir Leikhús- sportleikarar sér og öðrum á óvart. Lokaatburðurinn er stórdansleikur á Broadway föstu- daginn 13. nóvember. Bridge Þó að langt sé síðan þetta spil var spilað í keppni þá rýrir það ekkert gildi þess. Spilið kom fyrir í bridgekeppni árið 1933, fyrir 65 árum. Lokasamningurinn var 4 hjörtu í suður en sagnhafi var Norð- maðurinn Johannes Bruun. Vestur ákvað að spila út tígulkóngnum í upphafi en skipti síðan yfir í tromp þegar harm barði blindan augum: é AK753 «4 D4 ♦ 8 * ÁK753 é 9862 75 ■f ÁK1074 * D10 N V A S é DG104 V Á63 ♦ D * G9642 é - •é KG10982 ♦ G96532 * 8 Spilið kom fyrir í handgjöf enda þekktust tölvugjafir ekki á þessum tíma. Margir telja að tölvugjafir séu gjarnari til þess að vera með villtar skiptingar spilanna en þetta spil rennir ekki stoðum undir þær kenn- ingar. Austur drap á hjartaásinn í öðrum slag og spilaði áfram hjarta. Útlitið var ekki bjart fyrir sagnhafa sem sá fram á að hann hefði ekki nægilega marga slagi í blindum til að losna við tapslagi sina í tígli. Hann tók þriðja slaginn í blindum á trompdrottninguna, lagði niður ás og kóng í spaða og trompaði spaða heima. í þessari stöðu tók hann síð- asta trompið af austri, spilaði laufi á kónginn og lágum spaða að heiman. Austur varð að setja drottninguna og Bruun henti tígli heima! Austur átti eingöngu lauf eftir, varð að spila blindum inn á laufkóng og Bruun losnaði við síðasta tígulinn í fimmta spaðann í blindum. Austur hefði átt að finna bestu vörnina. Það skaðaði hann ekkert að láta spaða- drottninguna í ás norðurs í upphafi og þegar legan í litnum kæmi í ljós væri auðvelt mál að henda ávallt hæstu spöðunum. Á þann hátt, kæmist vestur inn á spaðaníuna til að taka fjórða slag varnarinnar. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.