Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Qupperneq 37
T>V FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 37 ! I j ! I i I Sarod hefur ekki sést áöur hér á landi, en þaö á sér þúsund ára gamla sögu. Kaffileikhúsið: Sarod, tabla og bassi í kvöld eru tónleikar í KafFileik- húsinu með sarodleikaranum Bruce Hamm, tablaleikaranum Steingrimi Guðmundssyni og bassaleikaranum Birgi Bragasyni. Á tónleikunum munu þeir bæði flytja hefðbundna indverska tónlist en einnig ind- verska tónlist með vestrænun áhrif- um. Þetta er í fyrsta sinn sem ind- verska hljóðfærið sarod kemur til Is- lands en indversk tónlist á sér mörg þúsund ára sögu og sitt eigið tungu- mál sem hún byggir á. Hver nóta og hvert slag hefur sitt orð í þessu tungumáli. Tónleikar Bruce Hamm er amerískur, bú- settur í San Francisco, þar sem hann kennir á sarod í tónlistarskól- anum Ali Akbar College of Music en þar nam Steingrímur einnig tabla- trommuleik. Steingrímur og Bruce hafa spilað saman í Indlandi þar sem báðir hafa numið af sarod og tabla-meisturum. Steingrímur og Birgir starfa saman í hljómsveitinni Milljónamæringunum en Birgir kennir einnig á bassa í tónlistar- skóla Hafnarfjarðar og í Keflavík. Bruce Hamm kom gagngert til Is- lands til að taka þátt í verkefninu Tónlist fyrir alla en það er styrkt af UNESCO, og hafa þeir undanfarið spilað í skólum á höfuðborgarsvæð- inu fyrir ýmsa aldurshópa. Tónleik- arnir hefjast kl. 21. Hið upprunalega Kriya yoga á íslandi Hingað til lands er væntanlegur jógi sem mun leiðbeina fólki í Kriya Yoga hugleiðslu. Kriya yoga er ein öflugasta hugleiðslutækni sem þekkist og var kennd í fyrsta sinn á íslandi í sinni upp- runalegu mynd vorið 1996. Yoginn sem mun kenna tæknina er Peter van Breu- kelen. Kennslan í Kriya yoga fer fram dagana 30. október til 3. nóvember í sal Mannspekifélagsins að Klapparstíg 26, 2. hæð. Fyrst verður ókeypis kynning- arfyrirlestur en sjálft námskeiðið kost- ar 5000 krónur. Skráning er ekki nauð- synleg en fólk ætti að tilkynna þátttöku sina í lok fyrirlestrarins. Fyrirlesturinn verður haldinn föstudagskvöldið 30. október klukkan 21.00 í sal Mannspeki- félagsins en námskeiðiö hefst morgun- inn eftir klukkan 9.00 og stendur fram á þriðjudagskvöld. íslenskufyrirlestur Dr. Jón Axel Harðarson flytur fyrir- lesúu sem nefnist Forsaga og þróun mynda miðstigs og efsta stigs í ís- lensku í boði íslenska málfræðifélags- ins fimmtudaginn 29. október kl. 17:15 i stofu 311 í Árnagarði. Bylting Jörundar 1809 Hollvinafélag heimspekideildar Há- skóla íslands gengst fyrir almennum fundi í dag kl. 17.15 á Astro, Austurstræti, um valdatöku Jörundar hundadagakon- ungs á íslandi fyrir tæpum 190 árum. Samkomur Orkubúskapur legvöðva Þóra Steingrímsdóttir kvensjúk- dómafræðingur verður með erindi á málstofu læknadeildar sem nefnist: Orkubúskapur legvöðva. Málstofan fer fram í sal Krabbameinsfélags íslands, Skógarhlíð 8, efstu hæð og hefst kl. 16.00 með kaffiveitingum. Fjarkönnun og umhverfiseftirlit Dr. Kolbeinn Ámason, Verkfræði- stofnun Háskóla íslands, fjallar um „Fjarkönnun og umhverfiseftirlit“ á málstofu umh'veríís- og byggingarverk- fræðiskorar kl.16.15 í stofu 157 í VR-n, Hjarðarhaga 2-6. Ummhmm í Leikhúskjallarinn: Fmmsamin lög af nýrri plötu Hljómsveitin Ummhmm heldur tónleika i Leikhúskjallaranum í kvöld. Tilefnið er nýútkominn plata með sveitinni sem heitir Haust. Ummhmm hefur starfað siðan snemma á þessu ári en hefur ekki spilað opinberlega áður, að undan- skildum styrktartónleikum SÁÁ í Borgarleikhúsinu í vor þar sem und- irtektir voru góðar. Hljómsveitin hef- ur síðan unnið við gerð plötunnar sem nú er komin I verslanir. Þegar hafa tvö laganna heyrst á öldum ljós- vakans, Plastkortablús og Svik og plott. Þessi lög eru samin af Jónasi Björgvinssyni eins og öll önnur lög plötunnar. Upphitun fyrir tónleika Ummhmm er í höndum dúettsins Gullið í Ruslinu. Meðlimir Ummhmm eru Þórunn P. Jónsdóttir, söngur, Hans Július Þórðarson, söngur, Jónas Björgvinsson, gítar/söngur, Ragnar Emilsson, gítar, Hrannar Hauksson, bassi, Birgir Baldursson, trommm-. Tónleikarnir hefjast kl. 22. Astró , Skítamórall verður með órafmagn- aða tónleika á Astro í kvöld. Tónleik- Ummhmm kynnir nýja plötu í Leikhúskjallaranum í kvöld. Veðrið kl. 6 í morgun: Veðrið í dag Allhvasst og éljagangur Yfir Suður-Noregi er 968 mb lægð sem þokast austnorðaustur. Yfir vestanverðu Grænlandshafi er hæð- arhryggur sem hreyflst hægt aust- ur. I dag verður norðankaldi og él fram eftir degi en síðan norðvestan stinningskaldi eða allhvasst og élja- gangur eða snjókoma á Norður- landi. Norðan- og norðvestankaldi og léttskýjað allra vestast en skýjað með köflum á Suðurlandi. Víða vægt frost á Norðurlandi og í inn- sveitum sunnan til í nótt. Annars verður hiti 0 til 5 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðangola eða kaldi í dag en norð- vestangola i nótt og léttskýjað. Hiti 0 til 4 stig. Sólarlag í Reykjavlk: 17.22 Sólarupprás á morgun: 09.03 Síðdegisflóð í Reykjavík: 12.57 Árdegisflóð á morgun: 01.38 Akureyri Akurnes Bergsstaðir Bolungarvík Egilsstaöir Kirkjubœjarkl. Keflavíkurfl. Raufarhöfn Reykjavík Stórhöfói Bergen Kaupmhöfn Algarve Amsterdam Barcelona Dublin Halifax Frankfurt Hamborg Jan Mayen London Lúxemborg Mallorca Montreal New York Nuuk Orlando París Róm Vín Washington Winnipeg Hálka og hálkublettir Næturfrost var víðast hvar í nótt og því er nokk- ur hálka á vegum og má búast við að hálkublettir verði víðast hvar í dag. Þar sem hefur snjóað er snjóþekja, að öðru leyti eru þjóðvegir færir. Lág- heiði er ófær og á Norðaustur- og Austurlandi eru Færð á vegum Öxarfjarðarheiði, Hellisheiði eystri og Mjóafjarðar- heiði einnig ófærar. Á leiðinni Reykjavík-Akureyri er hálka og hálkublettir og svo er einnig á Hellis- heiðinni og í Þrengslum þegar farið er frá höfuð- borginni austur. Andri Már Myndarlegi drengurinn á myndinni sem fengið hefur nafnið Andri Már fæddist á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 2. ágúst síðastliðinn kl. Bam dagsins 18.21. Hann var við fæð- ingu 3670 grömm að þyngd og 53,5 sentímetra langur. Foreldrar hans eru Hrund Briem og Gunnlaugur Jón Gunn- laugsson og er hann þeirra fyrsta bam. Fjöl- skyldan býr á Akureyri. dagSioCi e arnir verða teknir upp fyrir sjón- varpsþátt sem væntanlegur er um hljómsveitina. Skemmtanir Fogetmn I kvöld skemmta félagamir Maggi Einars og Tommi Tomm gestum á Fógetanum. Um helgina verður hljómsveitin Blái fiðringurinn á Fó- getanum. alskýjaö -1 léttskýjaö 3 slydda 0 skýjaö 2 2 skýjaó 3 léttskýjað 1 alskýjaö 1 heiöskírt 0 léttskýjaö 0 skúr 5 léttskýjaö 6 heiöskírt 15 skýjaó 10 léttskýjaö 12 léttskýjaö 5 skýjaö 11 rign. á síó. kls. 10 skúr á síö. kls. 7 rigning og súld 1 léttskýjaö 8 rigning 9 þoka í grennd 9 léttskýjaö 4 léttskýjaö 14 heiöskírt 17 skýjaö 11 rigning 12 léttskýjaö 17 heiöskírt 5 John Travolta leikur forsetafram- bjóöandann. Forsetafram- bjóðandinn Háskólabió og Bíóhöllin sýna hina ágætu Primary Colors, sem fjallar um forsetaframbjóðanda sem á í vök að verjast. I fyrri hluta myndarinnar er að miklu leyti stuðst við framboð Bills Clintons Bandarikjaforseta þegar hann bauð sig fyrst fram til forseta. Að- apersónan er nánast óþekktur rík- isstjóri og eiginkona hans, sem er lögfræðingur. Þegar rikisstjórinn ákveður að verða forseti stendur eiginkonan við hlið hans í blíðu og stríðu og ’////////, Kvikmyndir þarf á öllum sínum styrk að halda, því margt ófagurt er dregið fram í dagsljósið, sérstaklega hvað varðar kvennafar. I hlutverkum ríkisstjórahjónanna eru John Travolta og Emma Thomp- son og hafa þau fengið góða dóma fyrir leik sinn. I öðrum hlutverkum eru Billy Bob Thornton, Larry Hag- man, Adrian Lester og Kathy Bates. Leikstjóri er Mike Nichols. Nýjar myndir f kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: Kærður saklaus Bíóborgin: A Perfect Murder Háskólabíó:Primary Colors Háskólabió: Smáir hermenn Kringlubió: Fjölskyldugildran Laugarásbíó: The Truman Show Regnboginn: Halloween: H20 Stjörnubíó: Vesalingarnir Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 U 15 16 17 18 19 20 21 22 Lárétt: 1 leyfi, 7 þjáðust, 8 hlemm- ur, 10 geislabaug, 11 heiti, 13 groms, 16 fyrirgefning, 18 rykkorn, 19 þröng, 20 spil, 22 páraði. Lóðrétt: 1 þíða, 2 málmur, 3 innyfli, 4 öls, 5 gangflötur, 6 hrós, 9 röskur, 12 tómt, 14 ákefð, 15 makaði, 17 læs- ing, 19 píla, 21 ekki. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 lugt, 5 æst, 8 eplið, 9 ár, 10 spá, 11 fira, 12 Elsa, 13 gaf, 14 garði, 16 MA, 17 geila, 18 ask, 19 risi. Lóðrétt: 1 les, 2 upplags, 3 glás, 4 tif- aðir, 5 æði, 6 sára, 7 trafali, 12 egna, - 13 gili, 15 rek, 16 mas. Gengið Almennt gengi LÍ 29. 10. 1998 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 68,780 69,140 69,600 Pund 115,610 116,200 118,220 Kan. dollar 44,700 44,980 46,080 Dönsk kr. 10,9970 11,0550 10,8700 Norsk kr 9,3480 9,4000 9,3370 Sænsk kr. 8,8370 8,8850 8,8030 R. mark 13,7380 13,8200 13,5750 Fra. franki 12,4700 12,5420 12,3240 Belg. franki 2,0248 2,0370 2,0032 Sviss. franki 51,5000 51,7800 49,9600 Holl. gyllini 37,0500 37,2700 36,6500 Þýskt mark 41,8000 42,0200 41,3100 jt. lira 0,042220 0,04248 0,041820 Aust. sch. 5,9400 5,9760 5,8760 Port. escudo 0,4070 0,4096 0,4034 Spá. peseti 0,4914 0,4944 0,4866 Jap. yen 0,592400 0,59600 0,511200 irskt pund 104,010 104,650 103,460 SDR 97,030000 97,62000 95,290000 ECU 82,2500 82,7500 81,3200 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.