Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Side 40
'inningstölur miðvikudaginn 28.10. ’98 4 17 21 41 42 48 Fjöldi vinninga VinningAupphœð Vtnnmgar Heildarvinningóupi 41.650.730 Á í&landi 1.183.590 FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR o s LO < I vi o kLO •> Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 Nauðgunarmál: Einstaklega hrottaleg atlaga Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu að kyn- ferðisleg atlaga manns, Hauks Arnar -»Aðalsteinssonar, 28 ára, að 46 ára konu í vegkanti við Reykjanesbraut í ágúst hafi verið einstaklega hrottaleg. Dómurinn taldi samt ekki sannað að um nauðgun hefði verið að ræða held- ur tilraun til nauðgunar. Hér er um einn þyngsta dóm að ræða fyrir brot þar sem kynferðisbrot gegn fullorðn- um er ekki fullframið. í dóminum segir að „brotavilji" Hauks Arnar hafi verið sterkur og at- lagan hafi staðið yfir í langan tíma gegn konu sem hann þekkti ekki og hafði ekkert gert honum. Við ákvörð- un refsingar var einnig höfð hliðsjón af því að verknaðurinn hefur haft mjög alvarlega áhrif á þolandann. Var Haukur Örn einnig dæmdur til að greiða konunni á áttunda hundrað "þúsund króna í bætur. Haukur Örn hefur setið i gæslu- varðhaldi frá 10. ágúst. -Ótt Ráðherrar ættu að vera í her- * mannabuxum í Fókusi, sem fylgir DV á morgun, er viðtal við Hilmi Snæ Guðnason, skærustu leikstjömu íslendinga. Þar ræðir hann um Myrkrahöfðingjann, Engla alheimsins og erótísku mynd- ina hans Friðriks Þórs en Hilmir fer með stærstu hlutverkin í þessum myndum öllum. í blaðinu er kynnt ríkisstjórn bama sem Fókus myndaði og hélt einn ríkisstjómarfund með. Á fundinum kom fram að íslendingar mega búast við mörgum nýjungum í stjórnmálum á næstu áratugum, með- al annars þeim að ráðherrar klæðist hermannabuxum. Dr. Gunni popp- skríbent og Úllhildur Dagsdóttir kvik- , yppayndarýnir gagnrýna bæði Popp í Reykjavík. Maraþonfundur um samfylkingarmál: Samkomulag um tvö þingsæti Seint í gærkvöld var gert sam- komulag milli A-flokkanna og fulltrúa Kvennalistans um að hlutur kvenn- anna yrði tryggður við framboð Sam- fylkingar í Reykjavík við alþingis- kosningamar í vor. Ekki er um að ræða formlegt samkomulag heldur er á ferðinni eins konar heiðurskvenna- samkomulag þar sem A-flokkarnir skuldbinda sig til að tryggja Kvenna- listanum sömu áhrif og nú, hvemig svo sem stillt verði upp á listann. í þessu felst væntanlega að Kvennalist- inn fái vægi á framboðslista sem dugi til að fá tvo þingmenn. Þetta sam- komulag verður lagt fyrir landsfund Kvennalistans sem haldinn verður í Reykholti um helgina. Steinunn V. Óskarsdóttir, ein þriggja fulltrúa Kvennalistans í níu manna undirbún- ingshópi Samfylkingar, sagði í sam- tali við DV í morgun að hún teldi að fengist hefðu þau loforð sem dygðu til að réttlæta þátttöku Kvennalistans í Samfylkingunni. „Við fómm með það í farteskinu að við höfum umboð til segja konum að þær þurfi ekkert að óttast hvað varð- ar okkar hlut í Reykjavík. Við teljum okkur hafa ákveðna tryggingu fyrir því að okkar hlutur líkt og hinna verði tryggður. Það má orða það þannig að það verði jafnræði milli að- ila. Það hvfiir á landsfundi Kvenna- listans að taka endanlega ákvörðun þannig að eitthvað varð að gerast svo að við kæmum ekki tómhentar á fund- inn,“ segir Steinunn. Aðspurð hvort konur mundu kaupa heiðurskvennasamkomulag þar sem ekkert væri skriflegt svaraði Stein- Guðný Guð- björnsdóttir. unn: „Konur verða bara að treysta okkur eður ei“. Guðný Guð- bjömsdóttir.alþing- ismaður Kvenna- listans i Reykjavík, sagðist i morgun ekki hafa heyrt af niðurstöðu níu manna nefndarinn- ar í gærkvöld. Hún sagðist hafa lagt áherslu á að Kvennalistinn fengi tryggingu fyr- ir áhrifum innan Samfylkingárinnar og að því gefnu sæi hún ekkert því til fyrirstöðu að sam- þykkja sameigin- legt framboð. „Ég hef lagt áherslu á að ekki yrði um opnar ávísun að ræða. Aðal- atriðið er að við vitum hvað er í pakk- anum. Allt sem liggur á borðinu auð- veldar okkur að taka upplýsta ákvörð- un, hver sem hún svo verður," sagði Guðný. Ekki er eining meðal þeirra sem að Samfylkingu standa um það hvernig uppstfilingu verði háttað. Alþýðu- flokkurinn krefst opins prófkjörs en Alþýðubandalagið vill að stillt verði upp á listann. í samkomulaginu við Kvennalistann er gert ráð fyrir að konum verði tryggð áhrif sem dugi til tveggja þingmanna hvaða leið sem farin verði. -rt Steinunn V. Óskarsdóttir. Ástandið í Rússlandi skaðar: Allt fast í útflutningi „Það hefur nánast ekkert selst í tvo mánuði," segir Bjarni Sölvason, deildarstjóri hjá söluskrifstofu ís- lenskra sjávaraafurða í Reykjavík, um sölumál í Rússlandi þar sem efnahagsöngþveiti ríkir. ÍS flytur til Rússlands afurðir úr loðnu, sild, gullaxi og karfa. Þrátt fyrir að ekk- ert hafi gerst síðustu mánuði segir Bjarni að ÍS hafi þegar slegið sölu- met í Rússlandi þar sem þegar hafi verið seld 23 þúsund tonn fyrir 1,4 milljarða króna það sem af er árinu. íslenskar sjávarafurðir eru með mestan útflutning íslenskra fyrir- tækja til Rússlands. Fyrirtækið er með 77 prósent loðnuafurða, 89 pró- sent síldarafurða og tæplega 98 pró- sent útflutning annarra afurða til Rússlands. „Þetta ár byrjaði mjög vel og heildarveltan er þegar orðin meiri en allt síðasta ár. Við erum þegar búnir að selja meira en allt árið í fyrra. Bjami segir að eftir að gengi rúblunnar var fellt um miðjan ágúst hafi allt setið fast. „Við gengisfellinguna dróst kaup- mátturinn saman um 60 prósent hjá almenningi. Menn hafa gripið til þess að lækka verð um 40 til 60 pró- sent til að koma vörunni út. Mér skilst að það sé þó nokkuð af birgð- um þarna úti þótt við séum ekki í þeirri stöðu,“ segir hann. Bjami segir að framtíðarviðskipti við Rússland velti á því hversu stöðugt gengi rúblunnar verði. Hann segir ÍS-menn fylgjast grannt með framvindu mála. -rt Segulfrávik komu fram hjá dulspekingnum William G. Roll frá ríkisháskólan- um í V-Georgfu þegar hann mundaöi tæki sfn við „huldufólkssteininn" Grá- stein við Vesturlandsveg í gær. Steinninn er tvískiptur og var fluttur árið 1971 þannig að vandamál sköpuðust eins og frægt varð á sfnum tíma. Grá- steinn stendur nú rétt við jaðar væntanlegrar breikkunarakreinar á móts við afleggjarann að Grafarholti. DV-mynd GVA Veðrið á morgun: Léttskýjað fyrir vestan Á morgun verður norðvestan- gola eða kaldi vestan til og létt- skýjað, en stinningskaldi norð- austan til með snjókomu eða élja- gangi. Skýjað með köflum á Suð- urlandi. Víða verður vægt frost á Norðurlandi, og einnig sunnan til að næturlagi. Ánnars verður hiti 0 til 5 stig, hlýjast suðaustan til. Veðrið í dag er á bls. 37. iSUBUJflV* iSUBUJflY* ^SUBUIAY' MERKILEGA MERKIVELIN brother pt 2 (slenskir stafir 5 leturstærðir 6 leturgerðir, 6, 9 og 12mm prentborðar Prentar í 2 línur Verð kr. 6.995 Nýbýlavegi 28 Slmi 554 4443 Veffanq: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.