Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Qupperneq 17
Hið títtnefnda góðæri getur ýmisiegt af sér og snobb er eitt af því. Það bregst ekki að alltaf þegar hagur almennings vænkar spretta upp eins og gorkúlur manneskjur sem vilja ekkert frekar en að það sjáist utan á þeim að þær séu farnar að hafa það betra en áður. Þær vilja hífa sig upp um stétt og standard, koma sér upp nýjum smekk, nýjum viðhorfum, nýjum hugmyndum um hvað er gott og gilt, eftirsóknar- og aðdáunarvert. í síðasta góðæri, um miðjan níunda áratuginn, urðu upparnir til og trúðu að þeir bæru með sér splunkuný viðhorf til allra hluta. Nú þegar góðæri er aftur komið spretta upp nýir uppar og afhjúpa að það var ekkert nýtt við uppana á sínum tíma, þeir voru einfaldlega fyrirbrigði sem endurtekur sig í hverju góðæri. Og nú eru þeir mættir aftur, að örlitlu leyti með nýja hluti að eltast við en að langmestu leyti alveg eins. Snobbið er nefnilega alltaf samt við sig. Snofehb/ Alfa Romeo bíllinn. Hann er hreinlega einkenni snobbuppans. Blóm. Afskorin í vasa á stofuborðinu. Þykir kúltíverað að gerast áskrifandi að þeim. Cappuchino kaffi og þá helst nýinnflutt og ferskt og croisant með skinku og osti. DVD-tækið er það sem koma skal en þar sem það er ekki alveg komið þykir mjög flott að eiga það á undan öllum hinum. Fatahreinsanir. Það þýðir ekkert að þvo fínu efnin í þvottavél. Þau þurfa sérmeðferð sem þú getur keypt þér í fatahreinsunum. GK. Herrafataverslun fyrir þá sem vilja vera i þessum pakka. K Klukka. Það verður að vera flott merki á úlnliðnum. Lýtalækningar. Kvenfólk verður sérstaklega að gæta þess að líta rétt út. Q GQ. Karlasnobbblaðinu og IQ því snobbliðið er langt yfir meðallagi í greind, að þeirra mati. R Metnaður fyrst og fremst í starfi. Það er næstum því smart að svíkja starfsfélagann til að komast upp fyrir hann í metorðastiganum. Rex. Það er ekki til snobbaðri staður. Samkynhneigður vinur. Flott að geta sagst eiga einn svoleiðis til að klæða sig víðsýni. Hornspangargleraugu með áberandi umgjörð llmvötn. Og þá ekki bara einhver lykt í glasi. Aue de toilet er ekki málið heldur perfume. Japanskt. Sushi þykir alveg rosalega framandi, spennandi og fínn matur. Bragðið er algjört aukaatriði. N Eðalvín. Nauðsynlegt að hafa skoðanir á rauð- og hvítvíni og aldurinn á viskíinu breytir öllu og að sjálfsögðu verður það að vera „on the rocks“. New York. Þrátt fyrir að borgin sé ekki á blómatíma, þykir eitthvað flott að fara þangað. Opnanir og frumsýningar eru algjör fullkomnun. Lítur út fyrir að vera listneysla en er raunverulega ekkert annað en að sýna sig og sjá aðra. Planet Pulse líkamsræktarstöðin. Þar æfir ríka og flotta fólkið kroppinn. Tækninýjungar eins og ferðatölvur, digital skipuleggjara og farsíma, helst Nokia 8110. U Undirföt úr silki og þau verða auðvitað að líta út fyrir að vera dýr og breyta brjóstum í silicon. Vindlar. Helst stórir og kúbanskir. Best að reykja þá í karlrembuherberginu á Rex. X-ið á réttan stað á kjörseðlinum. Glatað að hafa engar skoðanir á pólitík. Y Yves Sant Laurent. Þrátt fyrir að vera gamall og úreltur er hann frægur og virtur og þá er hann góður. Z Ástarsaga eftir Vigdísi Gríms. Hefur þetta dularfulla sem snobbarana skortir. Þjónustufólk. Að hafa vinnufólk á sinni könnu í öllum geirum þjóðfélagsins. Eins og barnapían mín, lögfræðingurinn minn, læknirinn minn, einkaritarinn minn, húshjálpin mín (Au pair jafnvel), reddarinn minn, sálfræðingurinn minn, endurskoðandinn minn. Æ Ættarnöfn. Helst þá af erlendu bergi brotnu. Oryggi. Þjófavarnabúnaður til að fingralangir fari nú ekki að stela öllu fíniríinu. UtfAMi im er snobbað fyrir? Það þykir ekkert smáfínt að heilsa þessu fólki, að ekki sé talað um ef það heilsar til baka og ein- hver verður vitni að því. Hvað þá að sjást í fylgd þessa fólks. Ekkert smátilhlökkunarefni að geta sagst hafa setið við sama borð og þau: Ingvar Þórðarson, kóngur skemmtanalífsins, Baltasar Kormákur leikstjóri, Lilja Pálmadóttir Hagkaups- heimasæta, Damon Albarn, útlenskur söngvari, Bjarni Ármannsson, bankastjóri FBA, Ásdís Halla Bragadóttir, aðstoðarmaður menntamálaráð- herra, Auður Laxness, ekkja Kiljans, Jón Ólafsson viðskiptajöfur, Tommi xHard Rock, Ólafur Jóhann Ólafsson, Vigdís Finnbogadóttir, Kristján Davíðsson myndlistarmaður, Tinna og Dalla Ólafsdætur, Þorsteinn Gylfason heimspekiprófessor, Kári Stefánsson í íslenskri erfðagreiningu. Og svo eru það leífarnir af gömlu uppunum sem enn- þá halda sínu snobbi: Hjördís Gissurardóttir, Bolli og Svava í 17, Ester og Kalli í Pels- inum, Jón Óttar (féll í herbalife), Sævar Jónsson í Leonardo. Aðrir sem heltust úr lestinni: Svarar Egilsson pappírstígrisdír, Ármann Reynisson í Ávöxtun, Ólafur H. Jónsson, einn sem byrj- aði með Stöð 2, Hans Kristján Árnason (heldur sér þó á floti með Gunnari Dal), Björn Jónasson í Svörtu á hvítu Hjördís Þorgeirs- dóttir, guðmóðir uppanna. Sú sem segist hafa fundið upp heitið uppi. Bjork v\\\\\\ TOUCHSTONE PICIVRF.S •Nýuppar Þetta fólk er alveg búið að stúdera hvernig „flott“ fólk á að klæða sig, hvar það á að borða, hvernig það á að hegða sér og með hverjum það má sjást. Það þykist líka vera fagurkerar og snobbar fyrir ákveðnum atriðum menningarinnar. Toppurinn er að vera búinn að sjá eða lesa stykkin á undan þessu venjulega liði. Útkoman verður fólk sem heldur að það líti út fyrir að vera alið upp í yfirstétt á Bretlandi eða ríkt Hollywood-þotulið. Líklega eru þetta þó bara venjulegir íslendingar inn við beinið sem hafa séð svona hegðun í bíómyndum. Oddur Þórisson, fyrrverandi ritstjóri Mannlífs og Heimsmyndar. Árni Þór Vigfússon framleiðandi. Svavar Öm 19/20-greiðari. Jóhann Meunier, stofn- andi Aldamóta“snobb“ klúbbsins og kynningar- fulltrúi. Jón Gunnar Geirdal, er það sama og Jóhann Meunier. vinstrimaður og laganemi. Arnar Gauti í GK. Lilja í Cosmo. Andrea Róbertsdóttir og hennar ektamaður, Friðrik Weisshappel. Kristín Ólafsdóttir, fyrrverandi Radarmanneskja og Ifka gæinn sem var með henni í þættinum hvaðheitirhannnúaftur? Eyþór Arnalds og allir í þessu OZ-gengi. f Ó k U S 30. október 1998 30. október 1998 f Ókus 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.