Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Page 27
-
: jhr-*-“-—
með
í næstu viku, eða
13. nóvember, verður
frumsýnd í Banda-
ríkjunum Meet Joe
Black, sem skartar
Brad Pitt í aðalhlut-
verki. Mynd þessi er
dulúöug um leið og
hún er rómantísk og
vekur örugglega upp
ýmsar tilfinningar
hjá áhorfendum. Pitt
leikur Dauðann sem
tekur sér hvíld á með-
al lifandi og verður
ástfanginn af dóttur
viðskiptajöfurs. Þessi nærri
þriggja tíma kvikmynd er leikstýrð
af Martin Brest (Scent of a Wom-
an). Auk Brad Pitt leika í mynd-
inni Anthony Hopkins og Claire
Forlani.
Meðan á tökum stóð átti Brad
Pitt í miklum erfiðieikum í einka-
lifinu, hann og Gwyneth Paltrow
hættu að vera saman svo að segja
rétt fyrir brúðkaupið og faðir hans
var mikið veikur. í nýlegu viðtali
Brad Pitt asamt Claire Forlani í Meet Joe Black.
segir Brad Pitt að þótt margt gott
megi segja um Meet Joe Black þá
sé hann ekki ánægöur með leik
sinn í myndinni. Hann hafi alltof
oft verið með hugann við annað en
kvikmyndina til að geta skilað
góðri vinnu: „Hlutverkin koma og
fara og þú ert alltaf á einhverju
stigi í einkalífinu, sem hefur góð
eða slæm áhrif á þig, það á ekki að
hafa áhrif á vinnuna en gerir það
ósjálfrátt."
Nú þegar Bruce Willis og Demi
Moore eru skilin þá hefur fækkað
frægum leikarahjónum í
Hollywood, nokkur eru þó eftir,
þar á meðal Tom Cruise og
Nicole Kidman, Alec Baldwin og
Kim Basinger, Warren Beatty
og Annette Benning, John Tra-
volta og Kelly Preston og
Nicholas Cage og Patricia
Arquette. Fyrir nokkru var lýðn-
um gert ljóst að Travolta og
Preston mundu leika saman í
fyrsta sinn í kvikmyndin The
Shipping News, sem byggð er á
frægri skáldsögu og nú er frágeng-
ið að Nicholas Cage leikur aðal-
hlutverklið í nýjustu kvikmynd
Martin Scorsese, Bringing Out
the Dead og mótleikkona hans
verður eiginkonan Patricia
Arquette. Þetta er samt ekki í
fyrsta sinn sem hjónakornin leika
saman, þau léku í kvikmynd Tony
Nicholas Cage, sem er hér f hlut-
verki sínu í Snake Eyes, lelkur
ásamt eiginkonu sinni, Patriciu
Arquette, í Bringing Out the Dead.
Scotts True Romance fyrir fimm
árum og kynntust viö tökur á
þeirri mynd. Handritshöfundur að
Bringing Out the Dead er Paul
Schrader, sem skrifaði handritið
að einni frægustu kvikmynd Scor-
sese, Taxi Driver.
Sambíóin - Fjölskyldugildran: ★★i,
ijhyÆr Wihumr
Lelkstjóri: Nancy Meyers. Handrlt: David
Swift, Nancy Nyers og Charles Shyer. Kvlk-
myndataka: Dean A. Cundey. Tónllst Alan
Silvestri. Aðalhlutverk: Lindsay Lohan,
Dennis Quaid, Natasha Richardson og
Simon Kunz.
Fjölskyldugildran (The Parent
Trap) er gerð eftir bamasögu sem
fjallar um tvíbura sem vora að-
skildir í frambernsku, hittast á
ný og hafa hlutverkaskipti. Sagan
hefur verið kvikmynduð áður.
Hún hefur verið brunnur fyrir
flölda kvikmynda sem byggðar
hafa verið á hugmyndinni sem
fyrst kom fram í sögunni sem
upprunalega er ensk. Frægasta út-
gáfan og sú sem Fjölskyldugildran
styðst við er nafna hennar, The
Parent Trap, sem gerð var 1961
með frægustu bamastjömu þess
tíma, Hayley Mills, í hlutverki
tvíburanna. Sú kvikmynd hefur
nú fengið á sig nútíma yfirbragð
og eins og í eldri myndinni er not-
ast við sömu stúlkuna til að leika
tvíburana, Hallie og Annie, sem
„Þótt glamúrinn og glassúrinn
sé stundum yfirkeyrður þá skilur
Foreldragildran eftir sig vellíðan
og ungir áhorfendur fóru út með
bros á vör.“
hafa búið sín í hvorri heimsálf-
unni hjá sitt hvoru foreldri. Þegar
þær hittast í sumarbúðum þola
þær í fyrstu ekki hvor aðra en
verða að sjáifsögðu himinlifandi
þegar þær uppgötva sannleikann
og gera með sér samkomulag um
að koma foreldram sínum saman
á ný. Sú sem leikur tvíburana
heitir Lindsay Lohan og er ein-
staklega skemmtOeg, hefur prakk-
arlegt andlit sem samræmist vel
ráðabrugginu og þaö virðist sem
þessari ungu leikkonu sé ekkert
ómögulegt, hún leikur á tilfmn-
ingaskalann af mikilli list.
Sagan er það skemmtileg og
Lindsay Logan það góð að aðrir
annmarkar ná alls ekki að eyði-
leggja skemmtunina þótt stundum
hafi maður það á tilflnningunni
að allt sér reynt til að koma
myndinni niður í ómerkilega for-
múlu þar sem gert er út á frekar
ómerkilega tónlist, sjálfsagt til að
tryggja þaö að unga fólkið haldi
athygli. Málið er að það þarf ekk-
ert aukatrukk, myndin stendur al-
veg fyrir sínu án utanaðkomandi
hjálpar.
Dennis Quaid og Natasha Ric-
hardson leika foreldrana, mynd-
arleg, faileg og rík, og fara létt
meö frekar aðgengileg hlutverk. í
aukahlutverkum era skemmtileg-
ir karakterleikarar og þar stend-
ur sig best Simon Kunz sem leik-
ur yfirstéttarþjóninn breska af
mikilli list.
Það er ávallt fengur að góðum
barnamyndum og þótt glamúrinn
og glassúrinn sé stundum yfir-
keyrður þá skilur Foreldragildran
eftir sig vellíðan og ungir áhorf-
endur fóra út með bros á vör.
Hilmar Karlsson
„Bœkur eru það sem þjóðin á dýrmœtast,
þœr hafa bjargað lífi þjóðarinnar gegnum
einokun, farsóttir og eldgos, að ógleymdri
þeirri fannfergi sem legið hefur yfir hinum
dreifðu bygðum landsins meiri hluta árs í
þúsund ár...”
(Halldór Laxness, Sjálfstœttfólk, bls. 348, útg. Vaka-Helgafell).
Allt um !
r ■ ■_ I ■ i
)labækurnar
á Bylqjunni
^ r . r. i ií IjJ ..
29.október til
12. nóvember.
Kolbrún Bþrgþc
bókrrpenntafræði
bókagagnrýni í Morc
og á
Þjþðforaútir
fram til jóla
BYL GJA Ni
30. október 1998 f Ókus
27
\