Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Side 2
2
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Þrjár íslenskar stúlkur bíða eftir að komast frá flóðasvæðunum í Hondúras:
Ræningjar um allt
- fangelsið opnaðist og stúlkum rænt, segir Dagbjört Erla Einarsdóttir skiptinemi
Dagbjört Erla Einarsdóttir
bíður þess að komast frá
fióðasvæðunum.
Frá Hondúras þar sem mikiir skaðar hafa orðið af völdum fellibylsins Mitch.
Það er búið að
stela öllu steini létt-
ara í miðborginni og
vopnaðir hópar fara
um úthverfm ræn-
andi og ruplandi. Það
reyna allir að bjarga
sér í þeirri ringulreið
sem ríkir héma. í
næstu götu vora um
20 vopnaðir menn í
ránsferð og rákust á
íjórar hondúrískar
stelpur. Þeim var ein-
faldlega rænt og hef-
ur ekkert spurst til
þeirra. Þetta gerðist
þó átta vopnaðir
verðir hefðu gætt
húsanna í götunni.
Hér er allt á floti, þús-
undir manna eru
heimilislausar, lík finnast um allt og
hungur og sjúkdómar fara að breiðast
út. Matur kemur að mestu frá norður-
ströndinni en það eru engar samgöng-
ur þangað og ekkert símasamband.
Víðast er bæði vatnslaust og raf-
magnslaust. Vegakerfið er í molum og
vonlaust að útvega bensín. Mér er
reyndar óhætt enn þá þar sem ég bý
við mikla vemd. En það er óbúandi í
þessu landi. Við höfum talað við AFS
og samkvæmt þeim fréttum sem ég
hef er verið að vinna að því að flytja
okkur til annars
lands,“ sagði Dagbjörg
Erla Einarsdóttir, 18
ára skiptinemi í Mið-
Ameríkuríkinu
Hondúras, í samtali
við DV í gærkvöld.
Dagbjört dvelur hjá
fósturfjölskyldu sinni
í úthverfi Teg-
ucigalpa, höfuðborgar
Hondúras, á vegum
skiptinemasamtak-
anna AFS.
Hondúras hefur
orðið mjög illa úti i
hamfórum af völdum
fellibylsins Mitch.
Talið er að allt að sjö
þúsund manns hafi
farist af völdum flóða
sem fylgdu í kjölfarið.
Dagbjörg segir að vindstyrkurinn hafi
ekki verið meiri en hún hefúr upplif-
að heima á íslandi en gríðarlegt úr-
helli hefði staðið linnulaust yfir í
nokkra daga.
Þjófar hafa farið ránshendi um yfir-
gefin heimili og verslanir í höfuðborg-
inni og fleiri borgum og bæjum. Her
og lögregla hafa lýst yfir útgöngu-
banni frá klukkan átta á kvöldin til
sex á morgnana. Stórmarkaðir í borg-
inni eru nánast tómir en þegar von
var á óveðrinu hamstraði fólk. Vegna
skorts er allur matur sem berst til
borgarinnar skammtaður.
Hjálparstarf kirkjunnar á íslandi
sendi í gær 1,5 milljónar króna fram-
lag til hjálparstarfs i Mið-Ameríku,
einkum Hondúras og Nikaragva.
Þrjár íslenskar stúlkur
Auk Dagbjartar eru tvær aðrar ís-
lenskar stúlkur í Tegucigalpa, Silja
Einarsdóttir og Lilja Ósk Marteins-
dóttir. Þær búa skammt frá Dagbjörtu
og eru ekki í hættu. Silja er nýflutt úr
borgarhverfi sem þurrkaðist nánast
út í flóðunum. Stúlkumar komu til
Hondúras í ágúst og var áætlað að
þær yrðu þar fram í júlí á næsta ári.
En Dagbjört segir að ekki sé hægt að
vera þama lengur, þær bíði þess að
komast burtu. Alls eru 92 erlendir
skiptinemar i landinu.
Þaö verður að teljast lán að Dag-
björt er nýflutt frá smábæ við norð-
urströnd Hondúras, Toloa, til höfuð-
borgarinnar. Allt er á floti í Toloa,
bærinn hefur nánast þurrkast út af
landakortinu. Borgarhlutinn sem
Dagbjört býr í var tengdur miðborg-
inni með brúm en þær eru allar
horfnar. Eina leiðin til að ferðast
milli borgarhluta er með þyrlum.
Þær stúlkur komast hvergi eins og
er. En fósturfjölskylda hennar á
nægan mat og vistir. Raftnagn er í
húsinu og símasamband hefur ekki
rofnað.
Hættulegt að vera á ferli
í hamforunum brotnuðu veggir
fangelsis í miðbænum og fangar
sluppu út. Dagbjört segir að vopnað-
ar lögreglusveitir hafi síðan staðið
vörð utan við fangelsið og hótað að
skjóta hvem þann sem reyndi að
flýja. Vegna ástandsins fer Dagbjörg
vart út fyrir hússins dyr.
“Ég hef ekki farið neitt út og hef
ekki hugsað mér það eins og ástand-
ið er. Það fer enginn út nema í for
með öðrum. Ég fór til Lilju í gær og
var ekið báðar leiðir þó þangað sé
ekki nema nokkurra mínútna gang-
ur. Þaö eru þjófagengi um allt og
hættulegt að vera á ferli. Það hefúr
heyrst að ræningjar dulbúi sig sem
hermenn til að komast inn í húsin
og því er engum ókunnugum hleypt
inn,“ segir Dagbjört. -hlh
Stuttar fréttir dv
Koma sér hjákæru
Páll Pét-
urssson félags-
málaráðherra
hefúr tilkynnt að
endurskoðuð út-
gáfa af reglugerð
um vinnuvemd
þungaðra kvenna
í samræmi við til-
skipun Evrópusambandsins komi út
á næstunni. ASÍ hugðist kæra ríkis-
stjómina vegna íslensku reglugerð-
arinnar sem ekki fúllnægir skilyrð-
um tilskipunarinnar. RÚV sagði frá.
Ráðherra braut jafnréttislög
Hæstiréttur komst í gær að þeirri
niðurstöðu að landbúnaðarráðherra
hafi brotið jafnréttislög þegar hann
skipaði Gunnar Gauta Gunnarsson
héraðsdýralækni i Mýrasýsluurndæmi
fyrir fimm ámm. RÚV sagði frá.
Úrvalsvísitalan lækkar
Viðskipti á Verðbréfaþingi í gær
námu alls 283 m. kr., mest með
bankavíxla, 165 m. kr.. og ríkisbréf,
61 m. kr. Viðskipti með hlutabréf
námu 21 m. kr., mest með bréf Mar-
els og Vinnslustöðvarinnar, um 3 m.
kr. með bréf hvors félags.
Bensínleki
Slökkviliðið í Reykjavik var kallað
út klukkan níu i gærkvöldi vegna
bensínleka á númerslausum bíl. Bíll-
inn var við Háteigsveg og þurfti
slökkviliðið að hreinsa upp lekann
með sérstöku efni sem fil þess er not-
að. Líklega hefur gat á tankinum or-
sakað lekann. Slökkviðliðið var aftur
kallað til í gærkvöldi þegar viðvörun-
arkerfrfór í gang. Reyndist það vera
óþarfaútkall.
SÁÁ-kort á lokaspretti
Fjáröflun SÁÁ með sölu SÁÁ
kortsins lýkur um helgina. Síðasti
söludagur er sunnudagurinn 8. nóv-
ember, segir í frétt frá SÁÁ.
Lánin í uppnámi
Tölvukerfi
Húsnæðisstofn-
unar er orðið
gamalt og lúið og
nauðsynlegt að
endumýja það
þegar íbúðalána-
sjóður tekur við
því um áramót,
segir Gunnar S. Bjömsson, formað-
ur undirbúningsnefndar sjóðsins.
Óttast er að kerfið bresti verði það
enn í notkun árið 2000.
Nýr flugvöllur
Öm Sigurðsson arkitekt telur
mögulegt að gera nýjan Reykjavíkur-
flugvöll á grynningunum í Skeijafirði.
Hann hefur kynnt hugmyndina meðal
ýmissa félagasamtaka í borginni.
Sviptir veiðileyfi
Fiskistofa hefúr svipt fimm skip
veiðileyfi vegna rangrar aflaheim-
ildastöðu. Eitt þeirra fékk leyfið á ný
eftir að málið hafði verið lagfært.
Hin vora enn án leyfis í gær.
Davíð til Ósló
Davíð Oddsson fer á sunnudag á
þing Norðurlandaráðs í Ósló. Þaðan
heldur hann tO Bonn tO viðræðna
við þýska ráðamenn og skoðar nýtt
íslenskt sendiráð í Berlín.
Fundur með meinatæknum
Vigdís Magnús-
dóttir, forstjóri
Ríkisspitala, hefur
boðað meinatækna
á fund í dag, fyrsta
formlega fundinn
síðan 47 meina-
tæknar hættu
störfúm á Landsspítala.
ASÍ ítrekar stuðning
Miðstjómarfundur ASl á mið-
vikudag ítrekaði stuðning sinn við
þá aðOa sem stóðu í eldlínunni tO aö
veija gOdandi samninga og lög um
lágmarkskjör og réttindi launafólks
í Technopromexportmálinu.
Sameining
Stjómir útgeröarfélagsins Jökuls
á Raufarhöfti og SR-mjöls sam-
þykktu í vikunni áætlanir um sam-
einingu félaganna undir nafninu SR-
mjöl. Eignarhluti Jökuls í samein-
aða félaginu verður 23%. Hlutafé í
SR-mjöli verður aukið um 282,8
mOljónfr króna og þvi skipt fyrir
hlutabréfm i Jökli. -SÁ
Sindri Freysson - gaf bókmenntunum heilbrigðis-
vottorð. DV-mynd Pjetur
Bókmenntaverðlaun Laxness veitt í gær:
Óþarfir
legsteinar
Það era aUir önnum kafnir við að jarða bókmenntim-
ar, sagði nýbakaður verölaunahöfundur í Þjóðarbókhlöð-
unni í gær. „Á einum legsteini segir að hér hvfli höfúnd-
urinn, hann er látinn, á öðrum segir að hér hvfli bókin,
hún er látin, á þriðja segir að hér hvíli ljóðið, það er lát-
ið og á fjórða steininum er ekkert skrifað því þar undir á
sjálft Orðið að hvíla.“ En þegar nánar er að gætt er þetta
blekking tóm - bókmenntimar era ekki dauðar: „Höfúnd-
urinn og ljóðið og skáldsagan og smásagan og bókin
hlæja að þessu fólki sem bisar viö legsteina ... hlæja lif-
andi hlátri."
Bókmenntaverðlaun HaUdórs Laxness sem Vaka-
HelgafeU stendur að ásamt fjölskyldu skáldsins hlaut að
þessu sinni 28 ára gamall Reykvíkingur, Sindri Freysson,
fyrir skáldsögu sína Augun i bænum. Ríflega 30 handrit
bárust í keppnina og var dómneftid sammála um yffr-
burði skáldsögu Sindra. Hún er „hvort tveggja í senn
óvenjuleg og hefðbundin skáldsaga," segir í umsögn dóm-
nefndar. „Hún er þroskasaga, ástarsaga og saga um glæp
og refsingu þar sem sannleUcur og lygi togast á í huga les-
andans."
Sindri hafði áður sent frá sér ljóðabókina Fljótið sofandi
konur (1992) og smásagnasaftiið ÓsýnUegar sögur (1993).
Hann fær í sigurlaun verðlaunapening, skrautritað verð-
launaskjal og 500.000 króna ávísun. -SA
Tveir ungir ofurhugar vilja komast til Hollywood:
Ahættuleikarar kveiktu í sér
Það brá mörgum í brún við Perluna í gær þeg-
ar tveir menn gengu þar um í ljósum logum.
Þegar betur var að gáð voru þama tveir ungir
ofurhugar, þeir Valdimar Jóhannsson og
Brynjólfur Einarsson, að leika áhættuatriði.
Þeir félagar ætla að markaðssetja sig sem
áhættuleikara og létu kveikja í sér af því tilefni.
Ofurhugarnir tveir fóru í eldvarða búninga og
létu síðan bera jötungrip á jakka og buxur sem
þeir klæddust. Síðan var eldur borinn að og fót
þeirra skíðloguðu. Þeir gengu alelda hvor á móti
öðrum og tókust síðan í hendur. Atriðið stóð í
um hálfa mínútu en síðan var breitt yfir þá
teppi og eldurinn slökktur. Kappamir voru
ómeiddir og eldhressir eftir áhættuatriðið.
“Við ætlum að markaðssetja okkur sem
áhættuleikara. Stefnan er að komast að erlend-
is og leika í kvikmyndum. Draumurinn er
Ofurhugarnir Valdimar Jóhannsson og Brynjólfur Ein-
arsson sjást hér í Ijósum logum fyrir utan Perluna í
gær. Þeir kveiktu í sér og ætla að markaðssetja sig
sem áhættuleikara. DV-mynd ÞÖK
Hollywood en aðrir staðir það sem kvikmynd-
ir eru framleiddar eru einnig með í dæminu,"
segja ofúrhugamir tveir.
Valdimar hefur lært áhættuleik i skóla í
Flórída í Bandaríkjunum. Þar tók hann þátt í
mörgum áhættuatriðum. Hann segist eitt sinn
hcifa ekið bil og átt aö keyra á annan leikara
sem stóð á götunni og átti að hendast yfir bíl-
inn. Valdimar segir að leikarinn hafi lent vit-
laust á bílnum og skollið á framrúðuna. Gler-
brot tættust yfir Valdimar en hann slapp
ómeiddur. Leikarinn slapp ótrúlega vel þrátt
fyrir höggið, að sögn Valdimars. Hann leikur
einnig hlutverk í kvikmyndinni Myrkrahöfð-
inginn eftir Hrafn Gunnlaugsson. Þar leikur
hann mann sem er brenndur á báli. Þaö er
einnig mikið áhættuatriði og krafðist mikils
undirbúnings. -RR