Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
_______2%
Fréttir
Sími 535 9000
Hvolsskóli
90 ára
DV-mynd Njörður
SKIPHOLT 33 • REYKJAVÍK
SÍMI: 553 5600
DV, Suðurlandi:
Haldið var upp á 90 ára aftnæli
Hvolsskóla á Hvolsvelli 31. október.
Afmælishátíðin hófst með því að nem-
endur skólans gengu í skrúðgöngu frá
gamla skólahúsinu á Stórólfshvoli að
núverandi skólahúsi á Hvolsvelii og
þar var dagskrá í tilefhi afmælisins. í
skólahúsinu var sýning á myndum og
hlutum tengdum skólastarfmu frá
upphafi og í glæsilegu íþróttahúsi,
sem er við skólann, var dagskrá þar
sem núverandi og fyrrverandi nem-
endur skólans komu fram.
Bamaskóli Hvolhrepps, sem þá hét
Stórólfshvolsbarnaskóli, var settur í
fyrsta skipti að Stórólfshvoli 10. októ-
ber 1908. í dagbók skólans frá þeim
tíma er sagt að ástæðan fyrir því að
skólinn var eigi settur fyrr hafi verið
sú að verið var að undirbúa og lag-
færa skólahúsið - svo sem að smíða
tilheyrandi borð og bekki. Skólinn
var settur og hafði aðsetur fyrstu árin
í þinghúsi sveitarinnar. Fyrsta árið
voru nemendur 21.
Skólahald var fyrstu tvo áratugina
í þinghúsinu en árið 1927 var ákveðið
að byggja nýjan skóla á Stórólfshvoli
og var kennt í því húsi ffarn undir
1980 þegar flutt var í núverandi hús-
næði sem er í suðaustuijaðri byggðar-
innar á Hvolsvelli. í dag eru 175 nem-
endur við Hvolsskóla í tiu bekkjar-
deildum, skólastjóri er Unnar Þór
Böðvarsson. -NH
Vonbrigði hjá Skinnaiðnaði hf:
Rekstrartapið
150 milljónir
Líkan af gömlu skólahúsunum skoðuð.
Hannaði
afmælismerkið
DV, Suðurlandi:
í tilefni af 90 ára afmæli Hvols-
skóla á Hvolsvelli, sem haldið var
upp á um helgina, var efnt til sam-
keppni um hönnun afmælismerkis
fyrir skólann. Sá sem bar sigur úr
býtum heitir Kolbeinn ísólfsson og
er 12 ára. -NH
DV; Akureyri:
„Afkoman á árinu veldur vonbrigð-
um en við höfúm þegar gripið til að-
gerða til að mæta þeim áföllum sem
yfir atvinnugreinina hafa dunið síð-
ustu misseri," segir Bjami Jónasson,
framkvæmdastjóri Skinnaiðnaðar hf.
á Akureyri, en fyrirtækið var rekið
með um 150 milljóna króna tapi á síð-
asta rekstrarári fyrirtækisins sem
lauk 31. ágúst.
Stór hluti tapsins, eða um 103 millj-
ónir króna, er til kominn vegna niður-
færslu birgða sem gerð var í varúðar-
skyni til að mæta fyrirsjáanlegum
verðlækkunum á helstu mörkuðum
fyrir fúllunnin mokkaskinn. Eiginfjár-
staða Skinnaiðnaðar er hins vegar
sterk og félagið þvi vel í stakk búið til
að mæta þeirri niðursveiflu sem nú er
á heimamarkaði í atvinnugreininni.
Markaðsástand breyttist mjög við
efnahagsþrengingamar í Asíu undir
árslok á síðasta ári en þær ollu m.a.
lokun markaða í S-Kóreu sem verið
hafði stærsta einstaka markaðssvæðið
fyrir mokkaskinn í heimimun.
Bjami Jónasson framkvæmdastjóri
segir að starfsfólki fyrirtækisins hafi
Hveragerði:
Minningan
dagskrá um
Jón Óskar
verið fækkað og gripið hafi verið til
fleiri aðgerða. Hann segist gera ráð
fyrir að fljótlega náist eðlilegt hlutfall
milli hráefnisverðs og fúllunninnar
vöm. Það skapi jafnvægi áð nýju
ásamt sóknarfærum á mörkuðum fyr-
ir framleiðsluvörur fyrirtækisins. -gk
Kolbeinn ísólfsson
fékk viðurkenningu frá Unnari Þór
Böðvarssyni fyrir besta merkið.
DV-mynd Njörður
Fólk á öllum aldri sækir bókasafnið sér til fróðleiks og skemmtunar. Hér eru ungir Suðurnesjamenn að tefla og lesa
á safninu. DV-mynd Arnheiður
Bókasafn Reykjanesbæjar 40 ára:
ÚTILJÓS
2x9W sparperur
3.990.-
4.200.-
RAFSOL
FLOSSER
BÍLAPERUR!
Gæði
og
góð
ng!
Q.
Menningarhatið
I leikhúsinu
DV, Hveragerði:
Undir yfirskriffimti „Nóttin á
herðum okkar“ verðiu minning-
ardagskrá um skáldið Jón Óskar
8. nóvember í Listaskálanum í
Hveragerði, kl. 14.00. Jón frá
Pálmholti flytur hugleiðingar um
skáldið, lesið verður úr minninga-
bókum Jóns og lesnar smásögur
eftir hann. Leikaramir Baldvin
Halldórsson og Karl Guðmunds-
son lesa frumort og þýdd ljóð
skáldsins. Þá verður ffumsamin
tónlist flutt eftir Carl Möller við
ljóð Jóns Óskars.
7. nóvember verður opnuð hin
árlega haustsýning á myndlistar-
verkum í Listaskálanum. Lista-
verkin eru valin úr fjölda inn-
sendra verka af sérskipaðri dóm-
nefnd. Einar Hákonarson sagði í
samtali við DV að sér virtist að
sýningin yrði áhugaverð. Við-
brögð hefðu verið sérlega góð.
Þetta er síðasta listasýning árs-
ins í skálanum og stendur hún
fram undir miðjan desember. -eh
DV, Suöurnesjum:
Bókasafn Reykjanesbæjar heldur á
þessu ári upp á að 40 ár era liöin frá
því safnið var tekið í notkun og stóð
bókasafnið fyrir menningarhátíð í
Frumleikhúsinu í tilefrú afmælisins.
Guðbjörg Ingimundardóttir, for-
maður menningar- og safnaráðs
Reykjanesbæjar, setti hátíðina og
rakti sögu bókasafhsins. Það var
opnað 7. mars 1958 sem Bæjar- og
héraðsbókasafn Keflavikur. Hilmar
Jónsson var ráðinn bæjarbókavörð-
ur og gegndi því starfi allt til 1992.
Fyrsta visi að bókasafni á Suður-
nesjum má rekja rúm 100 ár aftur í
tímann eða til ársins 1890. Þá var
stofnað Lestrarfélag Keflavíkiu- af
stúkunni Von. Lestrarfélag Kefla-
víkur tók síðan við rekstrinum til
1930. Þá rak ungmennafélag Kefla-
víkur bókasafnið um tíma eða þar
til Keflavíkurhreppur tók við
rekstrinum.
Við sameiningu þriggja sveitarfé-
laga á Suðumesjum 1994 vora al-
menningsbókasöfn þeirra sameinuð í
eitt safn sem nú er Bókasafn Reykja-
nesbæjar.
Núverandi húsakynni era að
Hafiiargötu 57 en þangað flutti safii-
ið 1993. Á safninu starfa nú átta
bókaverðir. Bæjarbókavörður er
Hulda Björk Þorkelsdóttir.
Á afmælishátíðinni var ýmislegt
til skemmtunar, svo sem einsöngur,
ljóðalestur, tónlist og leiklestur. Þá
las Hilmar Jónsson úr verkum sín-
um.
Bókasafninu var færð tölva frá
Sparisjóðnum í Keflavík. Geir-
mundur Kristinsson sparisjóðs-
stjóri afhenti hana og veitti Hulda
Björk gjöfinni viðtöku. -A.G.
GLERAUGNAHÚS
( ( J )
ÓSKARS
LAUGAVEGI 8
ioi REYKJAVÍK
055! 55 j