Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Qupperneq 26
34
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998
Messur
Arbæjarkirhja: Guðsþjónusta á
kristniboðsdegi kl. 11 árdegis. Kafli-
sopi á eftir. Tekið á móti framlögum
til kristniboðsstarfsins að guðsþjón-
ustu lokinni. Barnaguösþjónusta í
safhaðarheimilinu kl. 13.
Áskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guösþjónusta kl. 14. Elínborg Gísla-
dóttir cand. theol. prédikar. Kaffisala
safnaðarheimilisins eftir messu.
Kirkjubíllinn. Árni Bergur Sigur-
bjömsson.
Breiðholtskirkja: Kristniboðsdagur-
inn. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Út-
varpsguðsþjónusta á sama tíma. Guð-
laugur Gunnarsson kristniboði pré-
dikar. Tekið við gjöfum til kristni-
boðsstarfsins. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Am-
fríöur Guðmundsdóttir messar.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Sunnu-
dagaskóli á saman tima. Sr. Jón Hag-
baröur Knútsson prédikar. Léttar
veitingar eftir messu. Kl. 20.30 verður
kvöldmessa með lofgerðarsöng, fyrir-
bænum og altarisgöngu.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestrn- sr.
Jakob Á. Hjálmarsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Bamaguðsþjónusta á sama
tíma. Prestarnir.
Frikirkjan í Reykjavik: Bamaguðs-
þjónusta kl. 11 í safnaðarheimilinu.
Farið verður niður að Tjörn og fugl-
unum gefið brauð. Guðsþjónusta kl.
14 í sal Safnaðarheimilisins við Lauf-
ásveg 13. Kaffisopi i guðsþjónustulok.
Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðar-
prestur.
Grafarvogskirkja: Kristniboðsdag-
urinn. Sunnudagaskóli 1 Grafarvogs-
kírkju kl. 11. Prestur sr. Vigfús Þór
Ámason. Hjörtur og Rúna aðstoða.
Sunnudagaskóli í Engjaskóla kl. 11.
Prestur sr. Sigurður Amarson. Valdis
Magnúsdóttir kristniboði kemur í
heimsókn og segir frá kristniboðs-
starfmu. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur
sr. Siguröur Amarson.
Grensáskirkja: Kristniboðsdagur-
inn. Bamastarf kl. 11. Muniö kirkju-
bílinn. Guðsþjónusta kl. 11. Tekið við
framlögum tU kristniboðsstarfs SIK.
Sr. Ólafur Jóhannsson.
Hallgrlmskirkja: Kristniboösdagur-
inn. Fræðslumorgunn kl. 10. Steinunn
Jóhannesdóttir Hayes, prestur, lækn-
ir og kristniboöi í Kína. Sr. Sigurður
Pálsson. Messa og bamasamkoma kl.
11. Sr. Siguröur Pálsson.
Háteigskirkja: Barnaguösþjónusta
kl. 11. Bryndís Valbjörnsdóttir og sr.
Helga Soffla Konráðsdóttir. Messa kl.
14. Kristniboösdagurinn. Sr. María
Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar
og þjónar fyrir altari. Tekið á móti
gjöfum til kristniboðsins. Notuð frí-
merki vel þegin.
Hjallakirkja: Poppmessa kl. 11. Sr.
íris Kristjánsdóttir þjónar. Poppband
Hjallakirkju leikur létta og skemmti-
lega tónlist. Bamaguðsþjónusta kl. 13.
Prestamir.
Kópavogsklrkja: Bamastarf kl. 11 í
safnaöarheimilinu Borgum. Guðs-
þjónusta kl. 11. Altarisganga. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands
biskups: Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Kristniboösdagurinn. Sr. Maria
Ágústsdóttir héraðsprestur leiðir
stundina ásamt Lenu Rós Matthías-
dóttur. Tekiö við framlögum til
kristniboðsins.
Laugameskirkja: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Margrét Hróbjarts-
dóttir kristniboði prédUtar. Prestur
sr. Bjami Karlsson. Kyrrðarstund kl.
13 í Sjálfsbjargarsalnum i Hátúni.
Kvöldmessa kl. 20.30. Prestar sr.
Bjami Karlsson og sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir.
Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Margrét Hróbjartsdóttir kristniboöi
prédikar. Bamastarf í safnaðarheimU-
inu kl. 11. Bíll frá MosfeUsleið fer
venjulegan hring. Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Bamasamkoma kl. 11.
Opiö hús frá kl. 10. Guðsþjónusta kl.
14. Kristniboðsdagurinn. Tekið við
framlögum til kristniboðsins. Sr.
Frank M. HaUdórsson.
Innri-Njarðvfkurkirkja: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sunnudagaskóli kl. 11 í
Ytri-NjarðvUcurkirkju og böm veröa
sótt aö safnaðarheimUinu kl. 10.45.
Ytri-Njarðvlkurkirkja: Sunnudaga-
skólinn kl. 11. Ásta, Sara og Steinar
aðstoða ásamt fermingarbörnum.
Baldur Rafn Sigurösson.
Óháði söfnuðurinn: Guösþjónusta
kl. 14. Bamastarf á sama tíma. Lát-
inna minnst. Guðfræðinemar koma í
heimsókn. Bryndís Valbjörnsdóttir
guöfræðinemi prédikar.
Selfosskirkja: Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Sóknarprestur.
Seljakirkja: Barnaguösþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Sóknarprestur.
Seltjamameskirkja: Messa kl. 11.
AUra heilagra messa. Prestur sr. Sig-
uröur Grétar Helgason. Bamastarf á
sama tíma.
Skálholtskirkja: Messa kl. 11. Sókn-
arprestur.
Stokkseyrarkirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. li. Messa kl. 14. Sóknarprest-
ur.
Torfastaöakirkja: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Sóknar-
prestur.
Afmæli__________________
Guðbjörn Einarsson
Guðbjörn Einarsson, fyrrv. bóndi
að Kárastöðum í Þingvallasveit, til
heimilis að Frostafold 20, Reykja-
vík, varð áttræður á mánudaginn
var.
Starfsferill
Guðbjöm fæddist á Kárastöðum
og ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Bændaskólann á Hvanneyri og
lauk þaðan búfræðiprófi 1941.
Guðbjöm stundaði grenjavinnslu
og húsasmíðar að námi loknu auk
almennra landbúnaðarstarfa. Hann
hóf búskap á Kárastöðum 1943, fyrst
á móti foreldrum sinum, en faðir
hans lést 1947 og móðir hans lést
1955. Guðbjöm var síðan bóndi á
Kárastöðum til 1979 er hann brá búi
af heilsufarsástæðum.
Guðbjöm var hreppstjóri Þing-
vallahrepps frá 1947 og um árabil.
Hann sat um árabil í hreppsnefnd
frá 1956, var sýslunefndarmaður um
skeið frá 1947, sat í sóknarnefnd
Þingvallasóknar 1942-60, sat í stjóm
Búnaðarfélags Þingvallahrepps og
var formaður þess um árabil.
Fjölskylda
Guðbjöm kvæntist 13.11. 1943 El-
ínu Steinþóru Helgadóttur, f. 19.10.
1916, húsfreyju. Hún er dóttir Frí-
manns Helga Magnússonar, bónda
að Felli í Vopnafirði, og k.h., Matt-
hildar Vilhjálmsdóttur húsfreyju.
Börn Guðbjörns og Elínar Stein-
þóru eru Gunnlaugur Geir, f. 16.12.
1943, vélstjóri í Reykjavík, kvæntur
Ragnhildi Einarsdóttur og á hann
þrjár dætur; Guðrún, f. 3.5. 1945,
húsmóðir og bankastarfsmaður, bú-
sett í Mosfellsbæ en maður hennar
er Böðvar Guðmundsson og á hún
þrjú böm; Erla, f. 10.2. 1947, hús-
móðir og skólaritari í Reykjavík, en
maður hennar er Kristinn
Víglundsson og eiga þau þrjár dæt-
ur; Einar, f. 22.5.1951, framkvæmda-
stjóri i Reykjavík, en kona hans er
Gústa Hjörleifsdóttir og eiga þau
fimm böm; Helgi, f. 14.7.1953, bóndi
og fyrrv. hreppstjóri á Kárastöðum,
en kona hans er Þóra Einarsdóttir
og eiga þau tvö böm; Kári, f. 28.2.
1956, flugumferðarstjóri
og flugstjóri í Reykjavík,
og á hann tvö böm.
Systkini Guðbjörns:
Halldór Einarsson, f.
6.12. 1913, d. 15.12. 1981,
leigubílstjóri og verk-
stjóri hjá Björgun hf.,
var búsettur í Reykjavík,
kvæntur Margréti Jó-
hannsdóttur sem lést
1997 og eignuðust þau
þrjú böm; Sigurður Ein-
arsson, f. 2.8.1915, nú lát-
inn, leigubílstjóri í
Reykjavík, var kvæntur Ellen
Svövu Stefánsdóttur og em böm
þeirra fimm; Jóhanna Einarsdóttir,
f. 21.11. 1916, d. 1.7. 1978, húsmóðir i
Reykjavík, var gift Pétri Ottesen
Ámundasyni og era böm þeirra
þrjú; Björgvin Einarsson, f. 8.5.1921,
d. 16.12. 1985, vélvirki í Reykjavík,
var kvæntur Guðrúnu Guðlaugs-
dóttur og era böm þeirra sex; Elísa-
bet Einarsdóttir, f. 8.6. 1922, hús-
móðir í Reykjavík, gift Jóhannesi
Arasyni, fyrrv. útvarpsþul, og era
böm þeirra þrjú; Guðbjörg Einars-
dóttir, f. 10.5. 1925, d. 7.5. 1927; Geir
Einarsson, f. 9.1. 1927, d. 8.9. 1942;
Guðbjörg Einarsdóttir, f. 20.3. 1928,
fyrrv. bankastarfsmaður í Reykja-
vík; Hallfríður Einarsdóttir, f. 18.11.
1930, fyrrv. bankastarfsmaður í
Reykjavík; Stefán Bragi Einarsson,
f. 12.3. 1933, vélvirki í Reykjavík,
kvæntur Hallveigu Þorláksdóttur og
eiga þau þrjú böm.
Fósturbróðir Guðbjörns er Ámi,
f. 23.12. 1923, kvæntur Grétu
Ámundadóttur og eiga þau tvö böm.
Foreldrar Guðbjöms voru Einar
Halldórsson, f. 18.11. 1883, d. 19.12.
1947, bóndi, hreppstjóri og kennari
á Kárastöðum í Þingvallasveit, og
k.h., Guðrún Sigurðardóttir, f. 7.7.
1892, d. 25.2. 1955, húsfreyja á Kára-
stöðum.
Ætt
Einar var bróðir Magnúsar Skaft-
fjeld bifreiðarstjóra, foður Magnús-
ar eðlisfræðiprófessors, foður Magn-
úsar Más jöklafræðings. Magnús
bílstjóri var einnig afi Gunnars
Ágústs heimspekings og
Steinunnar líffræðings
Harðarbarna. Systir Ein-
ars var Jóhanna Margrét,
móðir Gunnars Ólafsson-
ar skólastjóra. Einar var
sonur Halldórs, b. á Kára-
stöðum, Einarssonar, b. á
Skálabrekku, Jónssonar,
b. á Skálabrekku, Guð-
mundssonar, b. á Skála-
brekku, Arnórssonar, b. á
Gjábakka, Guðmundsson-
ar, á Efra-Apavatni, Jóns-
sonar. Móðir Einars Jóns-
sonar var Guðrún Einarsdóttir.
Móðir Halldórs var Guðríður Hall-
dórsdóttir, b. á Sogni í Kjós, Steina-
sonar, b. á Valdastöðum, Jónssonar.
Móðir Guðríðar var Guðfmna, syst-
ir Einars, pr. á Meðalfelli. Guðfinna
var dóttir Páls, pr. á Þingvöllum,
bróður Jóns, pr. og skálds á Bægisá.
Páll var sonur Þorláks, pr. og sýslu-
manns i Selárdal, Guðmundssonar.
Móðir Einars var Jóhanna Magn-
úsdóttir Skaftfjeld, smiðs og skip-
stjóra í Stykkishólmi, Magnússon-
ar, b. á Mörk á Siðu, Jónssonar.
Móðir Magnúsar var Kristín Teits-
dóttir, í Seli í Reykjavík. Móðir Jó-
hönnu var Jóhanna Mcirgrét Jóns-
dóttir, frá Kálfholti, Sigurðssonar,
og Guðnýar Jónsdóttur.
Guðrún var dóttir Sigurðar, b. í
Heiðarbæ, Loftssonar, b. á Efri-Brú,
bróður Sigurðar, afa þeirra bræðra,
Gunnlaugs, kaupmanns í Hafnar-
firði, föður Áma hrl., Ásgeirs,
fyrrv. framkvæmdstjóra BÚH, og
Stefáns, föður alþingismannanna
Guðmundar Áma og Gunnlaugs, og
Finns Torfa tónskálds. Sigurður var
einnig faðir Sigurðar, afa Salome
Þorkelsdóttur, fyrrv. alþingisfor-
seta. Loftur var sonur Gunnars, b. á
Efri-Brú, Loftssonar, og Guðnýjar
Bjamadóttur. Móðir Sigurðar var
Ingiríður Guðmundsdóttir, b. á Efri-
Brú, Guðmundssonar, og Geirlaug-
ar Pétursdóttur.
Móðir Guðrúnar var Elísabet Eyj-
ólfsdóttir, í Reykjavík, Eyjólfssonar,
og Þorgerðar Guðmundsdóttur, b. á
Kjalarlandi, Péturssonar.
Guðbjörn Einarsson.
Hrefna S. Kjartansdóttir
Hrefna Sóley Kjartans-
dóttir, sauðfjár- og ferða-
þjónustubóndi í Gufudal í
Ölfusi, varð fimmtug í
gær.
Starfsferill
Hrefiia fæddist að
Hvassahrauni og ólst þar
upp til fjögurra ára aldurs.
Hún átti heima að Ingólfs-
hvoli í Ölfúsi til sjö ára ald-
urs og síðan í Hveragerði.
Hún var í Bamaskólanum
í Hveragerði og stundaði
síðar nám við Húsmæðraskólann að
Laugum í Þingeyjarsýslu.
Hrefna og maður hennar hófu
sinn búskap í Reykjavík 1967. Hún
hóf sauðfjárbúskap í Gufudal 1977
og hefúr starfrækt ferðaþjónustu í
Reykjakoti II frá 1985. Þá hefur hún
starfrækt hestaferðir og stundað
garðyrkju í gróðurhús-
um í Gufudal frá 1996.
Fjölskylda
Eiginmaður Hrefnu er
Guðmundur Júlíus
Þórðarson, f. 16.7. 1947,
húsasmiður. Hann er
sonur Þórðar Finnboga
Guðmundssonar og
Ólafar Hagalínsdóttur.
Böm Hrefnu era Ema
Svala Gunnarsdóttir, f.
9.10. 1968, húsmóðir í
Hafnarfirði, gift Oddi
Inga Ingasyni sölustjóra og eiga þau
tvo syni, Fannar Má, f. 8.2. 1994, og
Daníel, f. 13.12. 1997; Elísabet Gunn-
arsdóttir, f. 6.6.1970, þjónn, búsett á
Seltjamamesi, í sambýli með Helga
Þorsteinssyni viðskiptafræðingi en
sonur hennar er Gunnar Ingi, f. 8.3.
1993; Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir,
Hrefna S.
Kjartansdóttir.
f. 4.4.1976, tamningamaður, búsett í
Reykjakoti II; Þórður Finnbogi Guð-
mundsson, f. 19.7. 1986, nemi; Ólöf
Guðmundsdóttir, f. 24.9. 1987, nemi.
Systkini Hrefnu era Hrafnhildur
B. Kjartansdóttir, f. 26.7. 1944, hús-
móðir á Kanaríeyjum; Njáll H.
Kjartansson, f. 30.11. 1945, múrari í
Hafnarfirði; Úlfur Grettir Kjartans-
son, f. 16.10. 1947, d. 8.12. 1965;
óskírður drengur, f. 22.7. 1952, d. í
nóvember s. á.; Smári K. Kjartans-
son, f. 30.8.1953, múrari í Reykjavík.
Foreldrar Hrefnu: Kjartan Hann-
esson frá Stóra-Hálsi í Grafningi, f.
22.9. 1920, bóndi á Ingólfshvoli, og
Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir frá
Króki í Grafningi, f. 25.2. 1926, d.
8.12. 1979, húsfreyja.
Hrefna Sóley tekur á móti gestiun
að Reykjakoti II í Ölfusi laugardag-
inn 7.11. eftir kl. 19.00.
Til hamingju
með afmælið
6. nóvember
85 ára____________
Hans Sigfússon,
Stekkjarhvammi 58,
Hafnarfirði.
80 ára
Halldór Friðriksson,
fyrrv. húsvörður og sýningar-
maður,
Steinholtsvegi 12, Eskifirði,
varð áttræður í gær.
Hann tekur á móti ættingjum
og vinum í félagsheimilinu
Valhöll i kvöld, 6.4., eftir kl.
20.30.
Steinunn Siguriónsdóttir,
Hamraborg 36, Kópavogi.
75 ára
Salvör Sumarliðadóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Jóhannes Runólfsson,
Reykjarhóli I, Fljótum.
60 ára
Anna Guðmundsdóttir,
Kringlunni 15, Reykjavík.
50 ára
Guðrún Jónasdóttir,
Seiðakvísl 34, Reykjavík.
Auður Guðjónsdóttir,
Nesbala 56, Seltjamarnesi.
Þyri Kap Árnadóttir,
Leirutanga 16, Mosfellsbæ.
Þórður Pálsson,
Hlíðarvegi 40, ísafirði.
40 ára
Magnús Magnússon,
Óðinsgötu 21, Reykjavík.
Hörður Harðarson,
Hábergi 5, Reykjavík.
Tómas Öm Stefánsson,
Vættaborgum 123, Reykjavík.
Guðríður Guðfinnsdóttir,
Reynigrand 13, Kópavogi.
Kristin Sigrún
Sigurleifsdóttir,
Miðskógum 6,
Bessastaðahreppi.
Vilborg Gunnarsdóttir,
Akurgerði 7 F, Akureyri.
Anna Petra
Hermannsdóttir,
Neðri-Dálksstöðum,
Svalbarðsstrandarhreppi.
Ámi Sverrir Róbertsson,
Skálanesgötu 12, Vopnafirði.
Margrét Helga Bjömsdóttir,
Hlíðargötu 13, Neskaupstað.
Kristrún Björg
Gunnarsdóttir,
Markarlandi 13, Djúpavogi.
Sigfús B.L.
Jónsson
Með afmælis-
grein um Sigfús
Bergmann Leví
Jónsson í DV
þann 3.11. sl. var
auglýst gesta-
móttaka í tilefni
afmælisins í fé-
lagsheimilinu
Ásbyrgi að Laug-
arbakka, laug-
ard. 7.11. nk..
Gestamóttök-
unni hefur verið aflýst.
Sigfús
Jónsson.