Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Qupperneq 28
36 FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 I>"V" rga skatta eins og aðrir sem græða „Ég hef alltaf verið stoltur af , því að greiða skatta. Ég tel að veiöileyfagiald sé l rugl, en vil borga mína skatta eins og aðrir gera sem græða.“ Aðalsteinn Jóns- son útgerðar- maður, í Degi. Kannski bara klár náungi „Gæti það ekki veriö að Vil- hjálmur væri bara klár náungi sem kann aö reikna og hefur hæfileika til að kljást við „huldumennina" sem eiga sér það markmið að leggja undir sig fjármálamarkaöinn á ís- landi.“ Elías Jóhannsson fram- kvæmdastjóri, um kaup Vil- hjálms Bjarnasonar í Lands- banka íslands, í Morgunblað- inu. Barist við kolkrabba „Fyrir einhvem sem stendur utan við Kvik- myndasam- steypuna er á brattann að sækja. Ég held að ég geri það hér með opin- bert hve erfitt það er að búa í þessu litla þjóðfélagi og verða stöðugt að berjast við einhvern kolkrabba í faginu.“ Ágúst Guðmundsson kvik- myndagerðarmaður, í Degi. Thatcher og Pinochet „Hann naut vemdar kalda stríðsins og var einkavinur frjálshyggjupostulans Thatcher sem varði hann um daginn um leið og hún mælti með því að einstæðar mæður yrðu sendar í klaustm- í refsingarskyni." Ármann Jakobsson islensku- fræðingur, í DV. Ættu að kæra Sameinuðu þjóðimar „Loks vil ég segja að það er algjör snilld hjá Samtökum um þjóðareign að geta bendlað Sam- keppnisstofnun við fræðsluátak- ið. Ég held að það hljóti að vera spurning hvort þeir ættu ekki líka að kæra Sameinuðu þjóðirnar fyrir að halda ár hafsins og sleppa þannig landinu.“ Bjarni Hafþór Helgason, fram- kvæmdastj. útvegsmanna á Norðurlandi. \ Jón Albert Sigurbjörnsson, formaður Landssambands hestamannafélaga: Hestamennska er ástríða „Hestamenn eru friðsemdarmenn og það lýsti sér best á þinginu sem fór af- skaplega friðsamlega fram. Á þinginu var mikið um að breytt væri keppnis- reglum. Einnig voru umræður um að endurskoða þinghaldið og eitt stórt mál var blaðaútgáfa. Við höfum geflð út hestafréttablað, Hestinn okkar, í þrjá- tíu og níu ár. Nú var ákveðið á þing- inu að sameina það Eiðfaxa og að sambandið myndi standa að rekstri Eiðfaxa. Það er mikil útbreiðsla á þvi blaði, meðal annars eru komnir um 3000 er- lendir áskrifendur, þannig að við töldum rétt að nýta þessa út- breiðslu, segir Jón Al- bert Sigurbjöms- son, ný- kjörinn formaður Landssambands hestamannafélaga. Jón Albert sagði að baráttumálin væru mörg: „Ég hef mikinn áhuga á Maður dagsins reiðvegum. Þetta er mjög stórt mál og stærra en það að fátæk hestamannafélög á lands- byggðinni geti haldið úti Qörutíu til fimmtíu kíló- metra reiðvegakerfi sem nýtist ekki bara hesta- mönnum en er líka hluti af ferðamannaþjónustu. i Það hefur sýnt sig að slík- m reiðvegir eru vinsælir hjá ferðamönnum. Svo er það einnig öryggisatriði að hafa reiðvegi svo menn séu ekki að ríða þar sem bílaumferð er. Á höfuðborgarsvæðinu era reiðvegamálin í lagi. Sums staðar hefur ekki tekist nógu vel til, eins og til dæmis hjá Gusti í Kópavogi, sem hálfpartinn lokað- ist inni, og á Korp- úlfsstöðum er golf- völlur á milli hesta- manna í Reykjavík og Mosfellsbæ en segja má að í heild sé ástandið þokka- legt. Einnig hefur umgengni við land- ið verið ofarlega á baugi hjá okkur. Við erum að vinna að útgáfu á hand- bók fyrir hestamenn um hvernig um- gangast skal landið okkar og við vilj- um vera í góðu samstarfi við náttúru- vemdarsamtök um þessi mál.“ Eitt af stórum málunum hjá Lands- sambandinu eru erlend samskipti: „Það eru til tvö hundruð og fimmtíu erlend hestamannafélög sem eru bara með íslenska hesta og um það bil fimmtíu þúsund manns eru í þessum samtökum, flestir í Þýskalandi, átján þúsund manns, og það er mikil vinna fyrir okkur að halda góðu samstarfi við þessi félög. Hér á landi eru um átta þúsund manns innan Landssam- bandsins en samkvæmt könnun Fé- lagsvísindastofnunar eru það milli tuttugu og tuttugu og fimm þúsund manns sem stunda hestamennsku. Oft er það svo að bara einn í fjöl- skyldu er félagsbundinn, aðrir fylgja siðan i hestamennskunni." Jón Albert er í Fák: „Ég er búinn að fara i gegnum allt ferlið í félags- málum, byrjaði í æskulýðsnefnd fyrir sextán árum og búinn að koma víða við hjá Fáki og Landssambandinu. Ég á nokkra hesta ásamt fjölskyldu minni. Sonur minn, Daníel, er at- vinnumaður í hestamennsku og öll fjölskyldan er á kafi i þessu enda er hestamennska ástríða. Sjálfur fer ég ekki nógu mikið á bak. Það fylgir því þegar maður er á kafi í félagsmálum. Ég er byggingaverktaki að atvinnu og frítími minn fer í Landssambandið enda áhuginn mikill. Það er helst að ég reyni að komast í hestaferðir á sumrin ef tími vinnst til.“ Eiginkona Jóns Alberts Sigur- björnsson er Lára Guðmundsdóttir og eiga þau þrjú Jón Albert Sigurbjörnsson. böm. -HK íslandsmeist- arakeppni í samkvæmis- dönsum Dansnefnd íþrótta- og ólympíusambands íslands stendur fyrir íslandsmeist- arakeppni í tíu samkvæm- isdönsum með frjálsri að- ferð á morgun, 7. nóvem- ber, í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Samhliða verður keppt í K- Dans , A- og D-riðlum i grunn- sporum hjá öllum aldurs- flokkum. Fimm erlendir dómarar dæma keppnina og eru þeir frá Danmörku, -v Keppt verður í tíu sam- kvæmisdönsum í íþrótta- húsinu við Strandgötu á morgun. Noregi, Englandi, Þýska- landi og Hollandi. Keppnin hefst kl. 14. Sandkoli Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Eggert Þorleifsson og Gunnar Helgason leika feðgana. Við feðgarnir Hafnarfjarðarleikhúsið Her- móður og Háðvör sýnir í kvöld leikritið Við feðgamir eftir Þor- vald Þorsteinsson. Sagan gerist í fjölbýlishúsi í höfuðborginni og skyggnist Þorvaldur inn í sál- arkima þess fólks sem þar býr. Þetta er dramatískt verk en kímnin er þó aldrei langt undan. Leikhús í hlutverkum í leikritinu eru Eggert Þorleifsson, sem leikur föðurinn Oddgeir, Gunnar Helgason, sem leikur Steingrím son hans, Björk Jakobsdóttir, sem leikur Valgerði dóttur Odd- geirs, Ari Matthíasson leikur Einar, æskuvin Steingríms, og Þrúður Vilhjálmsdóttir leikur Maríu, vinkonu Einars. Eggert og Ari eru að leika í fyrsta sinn í Hafnarfjaröarleikhúsinu. Aðrir hafa leikið þar áðm'. Leikstjóri er Hilmar Jónsson, leikmynd gerðir Finnur Amar Arnarsson, búninga Þórunn María Jónsdótt- ir og tónlist er eftir Margréti Ömólfsdóttur. Bridge Það getur oft verið stutt bilið á milli lifs og dauða í bridge. I þessu spili, sem kom fyrir í úrslitum Is- landsmótsins í tvímenningi, standa 6 lauf á hendi suðurs en eru vonlaus með hjarta eða tígli út frá austur- hendinni ef norður er sagnhafi. Ef sex lauf eru spiluð i suður er hægt að fría hjartalitinn og henda 4 tígl- um niður í fríslagina í hjarta. Sagn- ir gengu þannig á einu borðanna, vestur gjafari og NS á hættu: 4 G * KG10943 * 875 * Á84 * ÁK107642 «4 - * K1093 * 73 4 - 44 D7 * ÁDG42 * KDG1092 Vestur +Norður Austur Suður 4 4 pass pass 5 * * pass pass 5 4 pass pass 6 * dobl p/h Vestur hindraði í upphafi á 4 spöðum og þegar sú sögn kom til suðurs stóð valið um að segja 5 lauf eða fjögur grönd til að sýna báða láglitina. Suð- ur fann leiðina til lífsins með því að segja 5 lauf en fjög- urra granda sögnin hefði gert norður að sagnhafa í lauf- samningi. Norður átti erf- iða ákvörðun yfir 5 spöðum en pass suðurs hafði reyndar lýst áhuga á áframhaldi. Fyrir 6 lauf dobluð og staðin fengust 36 stig af 38 mögulegum en algeng- asta talan var reyndar 300 í NS fyr- ir 6 spaða doblaða. NS fengu reynd- ar yflr meðalskor fyrir þá tölu eða 24 stig. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.