Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 3
meömæli s f n i Hvað er að gerast? Fyrir börnin.................4 Veitingahús .................6 Myndlist....................10 Popp.....................12-13 Klassík.....................18 Sveitaböll..................18 Sjónvarp.................21-24 Leikhús ....................26 Bíó......................28-29 Hverjir voru hvar...........30 Fókus fylgir DV á föstudögum §f okus Margir kannást við pistlahöfundinn unga, Huldar Breiðflörð Fyrir viku kom út fyrsta bókin hans, Góðir íslendingar. Krakkarnir í Bang Gang: Ekki venjulegar manneskjur 4 Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af Heiðu í Unun. Fókus fer á sveitaball: Poppstjörnur í essinu sínu 18-19 Páll Óskar Hjálmtýsson: Leitar að „mister right“ Heiða í Unun: Heimspeki- nemi, póstur og poppari 25 Antz: Rómantískir tölvumaurar 27 Það er eitthvað við Cameron Diaz Leiðarvísir fyrir barferðina: Vilt’í glas, elskan? 30 Boxer-nærbux- ur eru nau&- synlegar hverj- um þeim er ekki vill pipra uppi í eirv hveiju þakherbergi, litilsvirtur af öllum kon- um. Samkvæmt ummælum viömælenda Fókuss á blaBsíóu 10 (grein um hvaö karlar mega ekki gera i rúminu) virka all- ar aörar nærbuxnategundir á konur eins og köld vatnsgusa. Fuck á Gaukn- um á miöviku- og fimmtudags- kvöldiö í næstu viku. Hreint ágætisband frá Kaliforniu sem er á sömu leiö og öll íslensk bönd - uppleiö í átt til stjarnanna. Og mikilvaegt skref á leiö þeirra er Gaukurinn, drengirnir þrá aö veröa frægir þar því eins og skrifað stendur: Sá sem ekki getur meikað það á Gauknum getur hvergi meikaö það - nema kannski i Kántribæ. Eins og steinn sem hafiö fágar eftir Guð- berg Bergsson. Eöa raunverulega hvaða bók sem er. Bara að þaö séu til 100 til 200 stykki í Bónusi þegar þar að kemur. Málið er að kaupa nógu margar bækur á tilboðsverði - til dæmis 1.990 kr. - og geyma þangað til eftir jól. Safna þeim síðan saman og fara með þær i einhveija góða bókabúð og skipta þeim fyrir innleggsnótur. Þá eru bækur ekki lengur á tilboði heldur kosta 3.450 kr. eða eitthvaö ámóta. Gróðinn af svona spákaupmennsku með 100 bæk- ur er því 146.000 kr. Gallinn er innleggs- nóturnar. En það má alltaf standa við búöarkassann og bjóðast til að borga fýr- ir fólk gegn 10 prósent afslætti. Heildar- gróði af 100 bókum veröur þá 131.400 kr. Það er 66 prósenta ávðxtun eigin fjár - ef einhver vill vita það. Klósett elns og Elvis skeit úr sér liftóruna i. Loksins, loks- ins - segir maður nú bara. Klósettið sem Elvis iét hanna fyrir sig hefur verið fjöldaframleitt og er komið á markað. Nú geta allir þeir sem éta eins og Elvis - eitthvaö á þriðja tug hamborgara á dag, sjö lítrar af sjeik, nokkrir kassar af kartöfluflögum og margt, margt fleira - skitið eins og Elvis. Colombo- stóllnn er Lazy-Boy fýrir fína fólkið. Þessi góðkunni stóll var búinn til 1969 og þótti ómissandi í allar myndir sem áttu að vera smart frá þeim tíma og langt fram á áttunda ára- tuginn. Fiestir flandvinir Rogers Moore sem 007 hölluðu sér til dæmis aftur í svona stól þegar þeir voru að upphugsa einhver djöfulleg ráð til að tortíma jörð- inni. Fyrir utan að vera orðinn smartur á ný þá er Colombo frábær sjónvarpsstóll - enda uppfundinn sem slíkur. Hugleiksþríburamir Þorgeir, Sævar og Ármann hafa veríð að senda frá sér leikrit undanfarín ár. Þetta em orðin sex verk í fullrí lengd sem þessir kumpánar hafa komið að og nú er það sjöunda komið til manns. Það heitir Víms og verður fmmsýnt næstkomandi miðvikudag. og sniðugt. Hins vegar eru þetta stór orð. Ég er búinn að vera í blaða- mennsku og hef ekki verið að gefa mig út fyrir að vera rithöfundur. Þessi fyrsta bók mín kemur bara í beinu framhaldi af því sem ég hef verið að gera.“ Svo varstu aö fá styrk úr Kvik- myndasjóöi: „Já, sem handritahöfundi var mér úthlutaður annar lokastyrkur Kvik- Frá hægri: Þorgeir, Sævar og það er Armann sem gægist þarna út á milii rimlanna. myndasjóðs fyrir kvikmyndahand- ritið ViÚiljós. Sjón og Magga Örnólfs fengu hinn styrkinn fyrir handrit sem þau eru að vinna að saman.“ Er nœsta skref þá ekki aó koma þessu handriti eitthvaó áfram? „Já, nú tekur við að undirbúa handritið fyrir framleiðslu og sækja svo um framleiðslustyrk. Annars verð ég auðvitað í því á næstunni að kynna Góða íslendinga.“ Þeir sitja þétt saman á kaffístof- unni Súfistanum sem er á annarri hæð Máls og menningar. En þar vinn- ur einmitt einn þeirra, hann Sævar. Og af einhverjum ástæðum eru þeir allir að háma í sig mat. Ármann étur súkkulaðiköku en hinir tveir eitt- hvert mexíkanskt gúmmilaði. Vió hvaö vinniö þiö hinir? Ármann: „Ég vinn á auglýsinga- stofunni Hugtök. Er í textagerð hjá þeim.“ Þorgeir: „Ég er að vinna hjá Banda- lagi íslenskra leikfélaga ásamt því að starfa með Hugleik." „En það er náttúrlega ekkert starf. Það tekur bara allan tíma frá manni," segir deildarstjóri verslunar Máls og menningar á Laugaveginum, hann Sævar. Hinir flissa létt og halda áfram að háma í sig kræsingar. Ármann borð- ar hraðar en hinir og virðist vera sjó- aðri í kaffihúsaáti. Enda eini ein- hleypi maðurinn á svæðinu. Vírus er sjöunda leikritiö ykkar, eöa hvaö? Sævar svarar því játandi fyrir hönd þessara ólíku og óskyldu þrí- bura sem eru án efa með og afkastamestu leikritahöfundum þessa lands. Súsanna Svavarsdóttir sagði í Mannlífi á dögunum aö hún œtlaöi að fara aö sjá Vírus til aö hlœja. Er þetta fyndiö? Sævar: „Já. Það er svona það sem við erum að vona.“ Hvemig varð verkið til? Settust þið bara niður og byrjuðuð að skrifa? „Nei,“ segir Sævar. „Fyrir ári síð- an kom Eggert Kaaber, forsvarsmað- ur Stopp-leikhópsins, til okkar og spuröi hvort við vildum skrifa leikrit fyrir hópinn." Þorgeir: „Og hann var með grunn- hugmynd. Hún var að þetta ætti að gerast í núttmanum og I einhverju fyrirtæki." „Við komum síðan með að þetta væri skrifstofa," segir Ármann og flissar. „Var tvöfalt siðgæði síðan ekki út- gangspunkturinn hjá Eggerti?" spyr Sævar félagana. „Jú. En þetta er nokkuð dýpra. Fimm- ef ekki sexfalt siðgæði," svar- ar Ármann og bætir því við að verk- ið fjalli líka um tölvuvandann sem myndast þegar árið 2000 rennur upp. „Nei, nei, nei,“ segir Sævar þá. „Verkið fjallar um fólk en ekki tölv- ur. Það gerist bara í tölvufyrirtæki. Við höfum ekkert vit á tölvum en erum þekktir fyrir að skrifa okkur í kringum vanþekkinguna okkar.“ Armann: „Ég held nú samt að það sé misskilningur. Er ekki sterkt aug- lýsingatrix að segja fólki að á sýning- unni sé að flnna lausnina við tölvu- vandanum sem skapast áriö 2000?“ Félagar Ármanns vilja ekki alveg skrifa upp á yfirlýsingar hans og því væri fróðlegt að vita hvemig sam- starfið gengur hjá þríburunum? Þorgeir: „Dökka hliðin á því að skrifa saman er að við eram bara einn höfundur hvað launin varðar." „Það er spuming hvað ég púkka lengi upp á þá,“ segir Ármann. Sævar: „En þetta vinnst þannig að eftir að sagan er komin þá skiptum við niður á okkur verkefnum og skrif- um síðan hver í sínu homi.“ „Og svo endurskrifum við það sem hinir gerðu," segir Þorgeir og glottir út í annað. Ármann bætir því að lokum inn að þeir séu miklu ófeimnari við að end- urskrifa hjá hinum en sjálfum sér. Og nú em þessi þrir herramenn bara búnir að borða og ekkert eftir nema segja: Verið ykkur að góðu. -MT Andrea skiptir um ham: Andrea - aldrei eins 6 Bjarkar-gryfjan: Móu slátrað í Melody Maker Fatboy Slim enn á ferð: Ekki nógu gáfaður 13 Áhugapönkararnir í Örkuml: Kannski einhver hómófóbía í gangi 14 Kaffibarsrott Bðar la id Um hvaö er þessifyrsta bók þín? „Þetta er ferðasaga. Ég fór i ferða- lag um landið í byrjun þessa árs og sagan segir frá því. Ég keypti mér Volvo Lapplander gagngert til þessa og svaf líka í honum á leiðinni. Sag- an lýsir því hvernig það er þegar kaffibarsrotta fer í fyrsta sinn í ferðalag hringinn í kringum landið og hvemig þjóðin og landið birtast slíku borgarbarni.“ Hvernig datt þér þetta í hug? „Ég fékk þessa hugmynd eiginlega bara upp úr þurru. Mig langaði í ferðalag og var orðinn leiður á Reykjavík og öllu sem hennir f; meira að segja sjálfum mér, og aði að takast á við eitthvað stætt. Eins og venjulega datt ____ fyrst í hug að fara til útlanda en átt- aði mig þá á því að ég hef aldrei ferðast neitt af viti um ísland. Þessi hugmynd mín varð svo að þrá- hyggju og á endanum kýldi ég á þetta." Hvaö finnst þér um aó hafa veriö kallaóur best þekkti óútgefni höfund- urinn á íslandi? „Þessi titill var nú bara búinn til á mig og mér finnst það bara fyndið 6. nóvember 1998 f Ókus 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.