Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 27
The Antz í Háskólabíói: I dag frumsýnir Háskólabíó nýjasta smellinn frá drauma- smiðju Stevens Spielbergs og fé- laga, Maurar (Antz) sem er lýst sem rómantískri gamanmynd, ólíkri öllum öðrum sams konar myndum. Ekki er hægt að efast um þessa útskýringu því róman- tíkin og gamanið gerist í þorpi þar sem íbúarnir eru maurar og íbúafjöldinn talinn í milljörðum. Aðalpersónan er Z-4195, sem er óbreyttur vinnumaur, einn úr hópnum. Z hefur háleitar hug- myndir, hann vill kynnast prinsessunni enda ástfanginn af henni, en þar sem hann hverfur inn í fjöldann á hann nánast enga möguleika á að hitta prinsessuna. Z er þó ekki á því að deyja ráða- laus og fær vin sinn stríðsmaur- inn Weaver í lið með sér til að ná athygli prinsessunnar. Forlögin taka síðan völdin af Z og óvænt verður hann hetja í nýlendunni þegar honum tekst óviljandi að koma í veg fyrir valdatöku hins metnaðargjarna herforingja Hin spillta prinsessa Bala heimtar að Z-4195 skili henni á heimaslóðir. A barnum eftir langan og strangan vinnudag. Frá vinstri, drottningin (Anne Bancroft), Z-4195 (Woody Allen), Bala prinsessa (Sharon Stone), Azteca (Jennifer Lopez), Weaver (Sylvester Stallone), Hershöfðinginn (Gene Hackman) og árið 1995 fór Tim John- son meö grófa tillögu af kvikmynd gerðri í tölv- um í höfuðstöðvar DreamWorks. Á þeim bæ leist mönnum vel á hugmyndina enda var það á verkefhaskrá að gera tölvuteiknimynd og varð úr að Antz varð samstarfsverkefni þess- ara tveggja fyrirtækja og Tim John- son fékk það verkefni að leikstýra myndinni ásamt Eric Darnell. Antz er aðeins önnur kvikmyndin sem er að öllu leyti gerð í tölvum, sú fyrsta var Toy Story. -HK Mandible. Brátt er Z orðin foringi uppreinsarmanna sem berjast gegn óréttlæti í nýlendunni. Antz er að öllu leyti gerð í tölv- um og þykir hafa tekist vel að nýta sér tækni og framfarir í þess- um geira kvikmyndagerðar á mjög svo skemmtilegan máta. Hinar miklu vinsældir sem Antz hafa notið í Bandaríkjunum stafar ekki bara af vel heppn- aðri tölvugrafik heldur má einnig þakka stjörnuliðinu sem ljær raddir sínar og þá fyrst og fremst Woody Allen sem taiar fyrir Z-4195, en hann setur sterkan svip á myndina. Aðrar Hollywoodstjömur sem ljá raddir sínar eru Dan Aykroyd, Anne Bancroft, Jane Curt- in, Danny Glover, Gene Hackman, Jennifer Lopez, John Mahoney, Paul Máz- Hér hefur Weaver skipt um hlutverk við Z-4195 einn dag og gerir hosur sínar grænar fyrir fallegri vinnukonu, Azteca. ursky, Sylvester Stallone, Shar- on Stone og Christopher Wal- ken. Þess má geta að enginn þess- ara leikara hafði áður talað inn á teiknimynd. Hingað til hefur oftast verið sett íslenskt tal á teiknimyndir. Það hefur ekki verið gert við Antz svo nú geta væntanlegir áhorfend- ur heyrt hvemig þessir frægu leikarar standa sig. Eini leikarinn Meirí _ frá. Brannagh Kenneth Branagh er sá leik- ari og leikstjóri sem mest hefur haldið á lofti í kvikmyndum leik- ritum Shakespeares, hefur leik- ið í og leikstýrt þremur, Henry V (1989), Much Ado about Nothing 1993) og Hamlet (1996), lék í Othello auk þess sem hann var einn viðmælenda A1 Pacino í Looking for Richard. Branagh sem hefur að undanfomu leikið í þremur bandariskum kvikmynd- um, The Gingerbread Man, The Proposition og Celebrity, hefur þó alls ekki yfirgefið Shakespe- are. Hann hefur nú stofnað kvik- myndafyrirtæki sem hefur það að markmiði að kvikmynda öll leik- verk Williams Shakespeares og að sjálfsögðu heitir fyrirtækið Shakespeare Films Co. Meðeig- endur hans eru framleiðandinn David Barron og hönnuðurinn Tim Harvey. Fyrsta kvikmyndin sem þeir fé- lagar ætla að gera er Love's Labo- urs Lost (Ástarglettur) og ætlar Branagh að færa söguna yfir á fjórða tug þessarar aldar og gera kvikmynd í söngleikjastíl þar sem tónlistin verður í anda Cole Porter og Irving Berlin. Branagh mun sjálfur leikstýra og leika í myndinni og er áætlað að tökur hefjist snemma á næsta ári. Tvær næstu Shakespearemynd- irnar verða Macbeth og As You Like It (Sem yður þóknast) og verða þær gerðar á hefðbundinn hátt. 6. nóvember 1998 f Ó k U S 27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.