Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 28
f Ó k U S 6. nóvember 1998 Regnboginn frumsýnir „fyndnustu mynd ársins", There's Something about Mary: Húmor rétt han við öll velsæmismörk Regnboginn frumsýnir í dag „fyndnustu kvikmynd ársins“, There's Something about Mary, sem gerð er af bræðrunum Peter og Bobby Ferrelly, sem komu full- skapaðir grínmyndahöfundar fram á sjónarsviðið þegar þeir sendu frá sér Dumb and Dumber. Önnur mynd þeirra var Kingpin, sem var álíka á skjön við hefðbundna kvik- myndagerð og Dumb and Dumber en ekki alveg eins fyndin. Með There’s Something about Mary toppa þeir sjálfa sig og eru það margir sem hafa gengið út af þeirri mynd með á vörunum: „Af hverju hefur ekki verið gerð svona fyndin mynd áður.“ Auðvitað hefur það verið gert en í nútímanum veröur þó að segjast eins og er aö Ferrelly- bræður hafa nokkra sérstöðu þegar kemur að húmor í kvikmyndum. There’s Something about Mciry fjallar um Ted Stroehmann sem ber það utan á sér að vera „lúser" og þar sem óheppnin eltir hann þá eru ekki margir sem umgangast hann. „Þá má jafnvel kalla hana When Hany Stalked Sally, enda er myndin um tvo lúða sem rembast við að komast yfir sömu konuna.“ Meira að segja sálfræðingur Teds fer á taugum þegar hann er í ná- lægð hans. Þessi aumingja maður, sem er nokkuð langt frá því að vera hepp- inn í lífinu.var þó í eitt skipti hepp- inn í ástum. Þegar hann var sautján ára hitti hann draumadís- ina sína, Mary Jenson, sem bauð honum á ball. Hún var glæsilegasta stúlkan í skólanum en viðloðandi óheppni Teds gerði það að verkum að stefnumótið klúðraðist. í tólf ár hefur Ted hugsað um Mary og ákveður loks að hafa uppi á henni. Góðvinur hans ráðleggur honum að ráða einkalöggu til að finna Mary. Fyrir valinu verður Pat Healy, sem er líkari bílasölumanni heldur en leynilöggu. Healy hefur þó uppi á Mary, en verður ástfangin af henni og ákveður að hafa hana fyrir sjálf- an sig, lýgur að aumingja Ted að hún sé feit móðir fjögurra krakka, þegar hún er í raun enn fallegri en Ted man eftir henni. Healy lætur sér ekki nægja að ljúga að Ted held- m- lýgur hann að Mary til að ganga í augun á henni. Þegar Ted kemst að því hvernig í pottinn er búið hefst mikil samkeppni um hylli Mary þar sem þeir kumpánar Ted og Pat eru ekki einir um að ganga í augun á henni. Það er hin efnilega leikkona Cameron Diaz sem leikur Mary og þykir fara á kostum. í hlutverki hins óforbetranlega lygara Pat Hea- ly er Matt Dillon og Ben Stiller leikur „lúserinn" Ted Stroehmann. Þegar Farrelly-bræður voru spurðir hvemig þeir lýstu nýju myndinni sinni sagði Bobby að hún væri einhvers staðar á milli When Harry Met Sally og Blazing Saddles og bætti síðan við: „Þá má jafnvel kalla hana When Harry Stalked Sally, enda er myndin um tvo lúða sem rembast við að komast yfir sömu konuna.“ Ámóta var svar þeirra bræðra þegar þeir voru spurðir hvort þeir færu ekki yfir mörkin í fáránleik- anum: „Við bræður lifum hinum megin við línuna, ertu að meina hvort við eigum að fara yfir línuna okkar og vera eðlilegir. There’s Something about Mary gerist á öllum stöðum öðrum en á Rhode Island þar sem þeir bræður búa, þó fór kvikmyndatakan þar fram að mestu, af hverju: „Jú, við vildum fara heim til fjölskyldna okkar á kvöldin og svo langaði ýmsa í fjölskyldum okkar að fá að vera með í myndinni.” -HK Sumir fá allt sem þeir vilja, aðrir þurfa að semja en enn aðrir eiga bara að hlýða. Valdamestu leikstjóramir Eitt virtasta kvikmyndatímarit- Af þeim fimm í efsta flokknum ið í Bandaríkjum, The Hollywood Reporter, birtir árlega lista yfir þá kvikmyndaleikstjóra sem best er að fjárfesta í. í efsta flokknum, sem á ensku útleggst Maximun Director Power (yfirþungavigt leikara), eru aðeins fimm leik- stjórar, Steven Spielberg, James Cameron, George Lucas, Mart- in Scorsese og Stanley Kubrick. Flokkamir eru nokkrir og alls komast 500 leikstjórar á þennan lista og sjálfsagt þykir sumum miður að nafn þeirra sé þar því þeir sem eru neðstir eiga sér nán- ast enga von um frama í Hollywood. Það er margt tekið til greina þegar valið er á listann, meðal annars hversu leikstjórinn er góð fjárfesting fyrir aðra, hversu hann sjálfur er klár í að fjármagna myndir sínar, hvemig myndimar hans hafa gengið hing- aðtil. var Steven Spielberg efstur á blaði, hann fékk 99,38 punkta af 100 mögulegum, James Cameron fékk 97,84, George Lucas 87,53, Martin Scorsese, 90,40 og Stanley Kubrick, 87,96. Flokkur númer tvö nefnist Strong Power Director (þungavigt). Eftirfarandi 25 leik- stjórar náðu að vera í honum: Clint Eastwood Robert Zemeckis Francis Ford Coppola Ron Howard Quentin Tarantino Roland Emmerick Mel Gibson Robert Redford Oliver Stone Ridley Scott Luc Besson Barry Levenson Tim Burton Rob Reiner Peter Weir Jonathan Demme Brian De Palma Woody AHen Jan De Bont Richard Donner John Woo Sydney PoUack Joel Coen Wolfgang Petersen Joel Schumacher Næsti flokkur er fjölmennur og nefnist hann Moderate Director Power (milliþungavigt). Tíu efstu í þeim flokki em: Jane Campion John Hughes Danny De Vito Curtis Hanson David Cronenberg Ingmar Bergman Renny HarUn Penny MarshaU David Lynch Richard Attenborough Steven Splelberg er elnn flmm lelkstjóra í yflrþungavlgtarflokki lelkstjóra samkvæmt The Hollywood Reporter. Bíóborgin Popp í Reykjavík ★★ Helsta vandamál Popps í Reykjavlk: rysjöttur taktur, blindandi leiöinlegur á köflum, en meö þónokkrum smart mómentum. En meö nokkrum finum vísúal-sprettum og ánægjulegri leiösögn Páls Óskars um næturlífið þá er Popp í Reykjavík alls ekki slæm sem kynning á tónlistarmenn- ingu nútímans - og tónlistin sjálf er fín. -úd The Horse Whisperer ★★* Bók Nicholas Evans hlaut misjafnar viötökur og var annars vegar lofuö sem glæsilegt meistaraverk og hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loft- bóla. Myndin brúar að mlnu mati biliö, og kannski má kalla hana fallega loftbólu. -ge Bíóhöllin/Saga-bíó Snake Eyes Snake Eyes fer staö meö miklum glans, atburðarasin markviss. Bri- an De Palma nær síðan aö fylgja eftir góðri byrjun á meðan sögusviðiö er Iþróttahöllin. Þegar slöan sagan færist úr höllinni yfir I spilavltiö og ofnotkun fer að veröa á myndskeiðum frá tllræöinu fer myndin aö missa flugiö. I lokauppgjörinu nær De Palma sér aftur á strik. -HK Wrongfully Accused ★★ Myndir Leslie Niel- sen eru farnar að verða svona dálítiö eins og Spaugstofan, þreyttar en enn þá færar um aö kitla upp magahlátur á góðum stundum. Ef þú ert nægilega skilyrt I aulahúmor þá má vel skemmta sér yfir þessari þvælu. -úd Töfrasveröiö ★★ Háskólabíó Prlmary Colors ★★★ Mike Nichols hefur búiö til snjalla og góða kvikmynd sem er beitt I ádeil- unni á atvinnufólk I pólitlkinni, hefur góð- an húmor og er skemmtilega kræf og laus viö fordóma. Þaö er ekki rangt aö draga þá ályktun að fýrrl hiuti myndarinnar sé aö miklu leyti byggöur á framboöi Clintons árið 1992. -HK Smálr hermenn ★★ Eina feröina enn er þaö brúðuhönnuðurinn og brellumeistarinn Stan Winston sem stendur meö pálmann I höndun- um þvl eina merkilega og skemmtilega I annars einhæfri ævintýramynd eru sköpunarverk Win- stons. Leikstjórinn Joe Dante, þekktur hryll- ingsmyndaleikstjóri á árum áöur, hefur fengist við sams konar atriöi og I Small Soldiers, en hefur gert betur. -HK Dansinn ★★★ Ágúst Guö- mundsson með slna bestu kvik- mynd frá þvl hann gerði Með allt á hreinu. Áhrifamikil saga sem lætur eng- an ósnortinn. Vel gerð og myndmál sterkt. Oft á tíöum frumleg þar sem dansinn dunar I forgrunni og eöa bakgrunni dramatískra at- burða. Leikarar I heild góöir og ekki hallað á neinn þegar sagt er aö Gunnar Helgason, Pálína Jónsdóttir og Gísli Halldórsson séu best meðal jafningja. -HK Björgun óbreytts Ryan ★★★★ Stríö I sinni dekkstu mynd er þema þessa mikla kvikmynda- verks. Stórfenglegt byrjunaratriði gæti eitt sér staðið undir ðmældum stjörnufjölda, en Steven Spielberg er meiri maður en svo aö hann kunni ekki að fýlgja þessu eftir og I kjölfarið kemur áhugaverð saga um björgun mannslífs, saga sem fær endi I ööru sterku og löngu atriði þar sem barist er gegn ofureflinu. -HK sinu og spennu- plottinu auðvelt Þessir myndin ge Sporlaust ★★* Leikararnir skila sögufléttan er aö mestu I anda góöra mynda. Þó er aö finna slæmar holur I sem eru leiðinlegar fyrir þá sók að heföi veriö aö komast hjá þeim. hnökrar spilla þó tæplega miklu og ætti ekki að valda vonbrigðum. Paulle ★ Kringlubíó Fjölskylduglldran ★★* Sumar sögur eru svo vel byggðar upp og skemmtilegar aö ekki er hægt aö eyðileggja þær og þessi ágæta út- gáfa af tvíburunum sem skipta um hlutverk er skemmtileg og notaleg þó búið sé að troöa inn á hana misgóöum rokklögum sem ekkert hafa meö myndina aö gera, hún stendur alveg fyrir slnu án þeirra. -HK A Perfect Murder ★★! Andrew Davis, leik- stjóri A Perfect Murder, ræöst ekki á garðinn þar sem hann er hæstur því að fyrirmyndin, Dial M for Murder (1954), telst ekki til bestu mynda Alfreds Hitchcocks. Útkoman er þó ágætis afþreying sem kemur stundum skemmtilega á óvart. -ge -»

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.