Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Blaðsíða 26
c Gamanleikritið Vírus eftir þá Hugleiks- bræBur verður frumsýnt í Hafnarfjarðar- lelkhúslnu kl. 20 á miövikudaginn (til moldar?). Það er uppselt á frumsýning- una og einnig á forsýningar á mánudag- inn (til mæðu?) og þriðjudaginn (til þrautar?). Báðar sýningar hefjast kl. 20. Ekki er enn Ijóst hvenær næst er hægt að krækja sér I miða en það mun koma í Ijós. Sjá viðtal við höfundana á blaðsíðu 31 Fókusi. Sex í svelt er sýnt á stóra sviði Borgar- lelkhússlns kl. 20 á morgun og er upp- selt. Einnig á morgun og fimmtudag. Næst laus sæti fimmtudaginn 26. nóv- ember. Sfmi er 568-8000. Hafnarfjarðarlelkhúslð Hermóður og Háðvör sýnir Okkur feðgana í kvöld kl. 20 og er uppselt. Hins vegar eru sæti laus á morgun á sama tíma. Sími 555- 0553. Solvelg Ragnars Arnalds verður sýnd í kvöld og annað kvöld kl. 20 á stóra sviðinu í ÞJóðlelkhúslnu og er uppselt á báðar sýningar. Næst er laust á sunnu- daginn eftir viku. Síminn er 551-1200. Slv Ragnhlldardöttlr syngur og flytur Brecht-kabarett sinn í Iðnó næstkomandi fimmudagskvöld kl. 20.30. Sími 530- 3030. Mávahlátur verður sýndur annað kvöld kl. 20 í Borgarlelkhúslnu og sérstak- lega fýrir þá sem eiga gul kort. Þeir sem eiga græn kort mega síðan mæta á sunnudaginn á sama tíma. Aðrir geta reynt að ná sér í miða f sfma 568-8000 Maöur í mlslltum sokkum verður sýnd- ur á Smíðaverkstæöl ÞJóölelkhússlns ! kvöld og annað kvöld kl. 20.30 og er uppselt á báðar sýningar. Svo er einnig á sýninguna á miðvikudagskvöldið. Sannkallaður ellismellur þetta leikrit Arnmundar Backman. Næst er hægt að fá miða 19. nóvember og mun það vera fimmtudagur. Sfminn er 551- 1200. lönó sýnir Rommí á morgun og er uppselt. Nokkur sæti eru laus á sunnudagskvöldið en uppselt á fimmudagssýninguna. Þessi ellismellur er ekki sfður vinsæll en allir hinir sem eru á sviðum borgar- innar. Sími 530-3030. Ávaxtakarfan verður sýnd i Óperunnl tvíveigis á sunnudaginn, kl. 14 og kl. 17. Sími 551-1475. ÞJónnlnn verður í súpunnl i kvöld í Iðnó kl. 20 og er uppselt. Það er þó ekki ástæða til að örvænta því hann mætir aftur stuttu seinna eða kl. 23.30 f kvöld. Þá er hægt að fá miöa. Sími 530-3030. Ofanljós er á litla sviöi Borgarleikhúss- Ins kl. 20 á morgun, nokkur sæti laus. Sfmi er 568-8000. Sumarlb '37 verður á litla sviði Borgar- lelkhússlns á sunnudaginn kl. 20. Sími er 568-8000. Helllsbúlnn er sýndur i íslensku óperunnl kl. 21 f kvöld, annað kvöld og á sunnu- dagskvöldiö. Uppselt á allar sýningar. Sím- inn! Óperunni er 551-1475. Þeir Arnar Jónsson og Vllhjálmur HJálmarsson munu skelfa áhorfendur f TJarnarbiól með Svartklæddu konunnl f kvöid og sunnudagskvöld. Miðapant- anir f sfma 561-0280. Llstaverklö veröur sýnt f Loftkastalan- um á morgun kl. 20.30. Laus sæti. Sími 552- 3000. Trúðarnir Barbara og Úlfar bregða á leik í Kaffllelkhúslnu i kvöld kl. 21. Laus sæti. Sfminn er 551-9055. Enn hangir Grease uppi f Borgarlelk- húslnu. Og enn er uppselt. Þú misstir af sýningu f dag, lika á morgun. Næst laus sæti á sunnu- daginn kemur kl. 15. Sími 568-8000. Örn Árnason mun einleika Gamansama harmlelklnn á litla sviöi Þjóöleikhúss- ins í kvöld og annað kvöld kl. 20.30. Sfminn er 551-1200. Lelkllstarskóll fslands sýnir Ivanov eft- ir Anton Tsjekhov í Lindarbæ á morgun kl. 20 (örfá sæti laus), á sunnudaginn kl. 20 og á fimmtudaginn kl. 20. Miöa- pantanir I sfma 552-1971. Helmur Guöríöar veröur vfðfeðmur um helgina. Á morgun verður leikritiö fiutt kl. 20 í Skemmtlhúslnu að Laufásvegi 22. Á sunnudaginn verður það sfðan leikiö í Langholtsklrkju kl. 20.30. Miðasala er f lönó f sfma 530-3030 og f Skemmtihúsinu hálftíma fyrir sýningu. Verzlunarskóll ís- lands. f kvöld mun Listafélag Vf frum- sýna hið árlega leik- rit sem sett er upp í hátíðarsal skólans. Þetta árið varð verk Eugéne lonesco fyr- ir valinu: Sköllótta söngkonan (La Cantatrice Chauve) f þýöingu BJarna Benedlktssonar. Næstu sýningar eru á morgun, hinn og hinn eða alla daga fram á mánudags- kvöld. Miðaverö er 500 kr. í Loftkastalanum verður ellismellurinn FJögur hjörtu sýndur á sunnudaginn kl. 20.30. Laus sæti. Sími 552-3000. 1 Kaffilelkhúsinu er sýnt spennuleikritið Svikamylla. Nokkur sæti eru laus á morgun kl. 21. Sfminn er 551-9055. meira á. www.visir.is Lo-Fi -Nano: ★★ Gengið í svefni og sullað í vatni Maður er nefndur Friðgeir Eyjólfs- son. Hann hafði verið að gutla á rafgítar en sá ljósið þegar hann kynntist tónlistar- möguleikum tölvunnar. Hann græjaði sig upp og gaf nýlega út plötuna Nano undir nafninu Lo- fi. Það verður að segjast eins og er að Friðgeir er glúrinn á tæk- in, miðað við að þetta er ailt tek- ið upp heima hjá honum hljómar platan vel. Hann á þó nokkuð upp á til að teljast verulega góð- ur lagasmiður, til þess eru lögin alltof keimlík innbyrðis og þar að auki ákaflega lík efni sem maður hefur heyrt áður í tripp hopp-deildinni, sérstaklega eru Portishead-áhrifin ískyggilega mikil. Öll lögin 11 fljóta áfram eins og þau séu að ganga í svefni og Friðgeir tengir þau saman með vatnsgutli. Þess vegna skap- ast engir hápunktar eða spenna og platan verður mjög tilbreyt- ingalaus; eftir háiftíma af vél- rænu og ekkert sérlega frumlegu tölvubíti og vofulegu andrúmi er maður til í eitthvað ferskt, en fær það ekki þó á tæplega fimm- tíu mínútna plötu hefði nú alveg verið pláss fyrir uppbrot. Friðgeir fær ýmist fólk til að hjálpa sér á plötunni. Söngkona sem kallar sig Mæsí syngur í 4 lögum og er mjög örugg og góð þó hún hljómi eins og Beth Gibbons úr Portishead i þessu tónaumhverfi. Melódíumar sem hún fær til söngs eru líka alltof einhliða, t.d. hljóma söngmeló- díumar í lögunum „Bad taste“ og „Velvet“ næstum alveg eins. Friðgeir syngur líka sjálfur og gerir það ekki illa, þó hann geri litlar rósir. Ekki er getið hvers dóttir Rakel er, en hún syngur eitt lag, líkt og Erla Guðmunds- dóttir. Þær em báðar ágætar, þó „Mæsí“ sé óyggjandi dúxinn í söngskóla þessarar plötu. Um- slagið er ljótt, en það hefði verið hægt að bjarga því með fmm- legri leturtýpu og með því að hafa letrið öðruvísi á litinn, því svart fer ekki vel á dökkbláum grunni. Það býr margt efnilegt í Ló- fæinu og margir hafa byrjað á verri plötu en þessari. Ég myndi ráðleggja Friðgeiri að horfa víð- ar en í gaupnir sér á tripp hopp- iö, prófa allan fjandann, ekki vera hræddur við að gera fjöl- breytta tónlist og endilega að halda í Mæsí, því þar er komin verulega efnileg rödd. Gunnar Hjálmarsson p 1 a t a f ó k u s 6. nóvember 1998 26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.