Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Side 4
f Ó k U S 6. nóvember 1998 Nú er jólaplötuflóðið fyrir aivöru skollið á. í vikunni komu út fjölmargar plötur og allir popparar sem vettlingi geta valdið vilja vekja á sér athygli. I flóðinu miðju er Bang Gang, sem er að gefa út sína fýrstu plötu. Lög bandsins, sem komið hafa út á safnplötum, hafa vakið heilmikla lukku, enda á ferð sterkt melódískt tölvupopp. í Banginu eru Barði Jóhannsson og Esther Talía Casey. Plötuflóð kallar á viðtalsflóð við poppara og eins og plöturnar þurfa viðtölin að vekja athygli, helst að vera flippuð og „öðruvísi“. Bang Gang hitti dr. Gunna og lögð vom á ráðin hvernig hægt væri að gera eitthvað flippað. 'XX ísak Jónsson er hönnuður CD-ROM dlsksins sem mun fylgja frrtt með DV. Ókeypis CD-ROM diskur um bíó Þann tuttugasta og sjöunda þessa mánaðar mun CD-ROM diskur fylgja DV. Þetta er diskur sem inniheldur spurningaleik með fimm hundruð spurningum tengdum kvikmyndum ásamt upp- lýsingum um væntanlegar kvik- myndir. Þá verður sýnt úr helstu myndunum, viðtöl við leikarana og jafnvel heimildarmyndir um gerð sumra myndanna. Heilinn á bak við þetta allt sam- an er ísak Jónsson margmiðlun- arhöfundur. Hugmyndin er algjör- lega hans og hefur hann verið á fullu við að skipuleggja og hanna diskinn undanfarið. „Ég er bara að leggja lokahönd á diskinn þessa dagana. Dæla inn á hann efni og ganga almennilega frá honum,“ segir ísak en það er fyrirtæki hans, Eldvirkni/Marg- miðlun, sem gefur diskinn út. Allra síðasta sýning á Síöasta bænum í daln- um verður á sunnudaginn kl. 14. Enn eru ein- hver sæti laus. islenskt sveitarævintýri sem Super Mario-kyn- slóðin sættir sig við. Sýnt í Hafnarfjarðarleik- húslnu Hermóði og Háðvör. Sími 555 0553. Trúðarnir Barbara og Úlfar verða með sér- staka barnasýningu á sunnudaginn kl. 15 í Kaffllelkhúsinu í Hlaðvarpanum. Þar munu trúöarnir hafa frammi sln barnalegustu trúðs- læti - sem sannast sagna hæfir öllum trúðum best. Enn eru sæti laus. Síminn er 5519055. Mögulelkhúsið við Hlemm sýn- ir Snuðru og Tuðru á morg- un kl. 14. Á sunnudaginn er það síðan Góö- an daglnn, Eln- ar Áskell á sama tíma. Bróðir mlnn, LJónshJarta eftir Astrld Llndgren veröur leikinn tvisvar á sunnudaginn I Þjóð- lelkhúslnu. Uppselt er á tvö-sýningu en enn eru til miöar á sýninguna klukkan fimm. Sím- inn er 5511200. Dlmmallmm verður í Iðnó á morgun kl. 14 og eru enn til miöar. Þetta ævintýri er sprottiö upp úr svo rammíslenskum raunveruleika aö Dimmalimm gengur enn um á meðal vor. Sími 530 3030. meira a. www.visir.is „Það verður náttúrlega að vera grln í gangi,“ segir Barði og hugs- ar sig um. „Þegar allir verða fullir saman - eins og á menningamótt og um verslunarmannahelgi - þá veröa sumir flippaðir og setja upp kabbojhatt og svona sjálflýsandi hálsmen. Það er hægt að fá sér flippvaming. Þegar þú ert orðinn fullur geturðu keypt þér flipp og orðið flippari. Við ættum kannski að gera það? Fara í kraftgalla, kaupa flipp og æpa eitthvað; Siggi! Siiiiiggggi! Myndi það duga?“ Naaa, í poppinu blífa núflippaö- ar hugmyndir betur en flippvarn- ingur. „Við getum þá ekki sloppið ódýrt út úr þessu?“ Nei, poppararnir þurfa að flippa feitar en almúginn. Hvaö segiöi t.d. um að Fókus sendi ykkur aö vinna einn dag í fiski? „En væri það ekki súrt í staðinn fyrir að vera flippað?" spyr Esther. „Það væri kannski dálítiö flippað, en við myndum líklega bara skemma eitthvað.“ Nú, hafiði aldrei verið í fiski? „Aldrei nokkum tímann. Maður er náttúrlega ekki alvöru mann- eskja." „Ég hef verið á trillu," leiðréttir Barði, „einn túr. Það gerði óveður, ég ældi og ákvað að fara aldrei aft- ur á trillu." Hvaö meö að við fœrum saman í fallhlífarstökk? „Úff, það væri flipp upp á líf og dauða," segir Esther. „Ég rétt voga mér í tívolítækin." „Væri ekki galiflippað ef blaða- maðurinn setti hausinn á sér upp í rassinn á viðmælanda?" spyr Barði, „og tæki viðtalið þar.“ Helduróu aó hann kœmist inn? „Það er aldrei að vita. Þú gætir þá sett höndina í staðinn." „Nei, þá er þetta komið út í ein- hvern sora,“ segir Esther og blöskr- ar vitleysan. „Já, en það væri samt flippað." Skór með frönskum rennilás En aö setja ykkur í aö spila fyrir fólk sem hefur engan áhuga á ykk- ur, t.d. gamlingja? „Við höfum nú eiginlega lent í því,“ segir Esther. „Það var á Gauki á Stöng og þar fannst mönn- um við vera heldur í rólegri kantin- um, ekki nógu rokkuð. Þetta vom margir síðhærðir rokkarar með bjór í hönd.“ Hvernig líst ykkur annars á gamla fólkió í dag? „Það er flippað," segir Barði og er strax farið að hlakka til að verða gamalmenni. „Ég ætla að verða með kjaft. Ætla að segja - „djöfuls- ins hávaði er þetta í ykkur, ekki var ég svona" - og enginn fattar húmorinn. Það er örugglega til gamalmennahúmor sem enginn skilur. Svo sitja gamalmennin og hlæja að því - „djöfull var ég pirr- aður við þennan í dag.“ Hvernig líst ykkur á gamal- mennatískuna? „Mér flnnst hún flott,“ segir Esther, „ég er oft í gamlingjapeys- um. Það eru líka margir sem skera sig úr. Ég sé oft gamla konu niðrí bæ sem er alveg klædd eftir ung- mennatískunni í dag. Annars veit ég ekki hvort það sé til einhver gamalmennatíska. “ „Jú, svona skór með frönskum rennilás," grípur Barði fram í. „Þau em yfirleitt snyrtileg til fara, í jakkafötum, en svo í íþróttaskóm með frönskum rennilás. Ég ætla að fá mér svoleiðis, helst á morgun." Við búum á jörð Heitir platan ekki You? „Jú. Ellefu lög, sum hafa komið út áður. Það er kominn tími til að fólk geti heyrt þessa snilld alla á einum stað.“ Allt á ensku? „Já, allt á útlensku, maður." Og hvaö eruöi aö syngja um? „Bara eitthvert kjaftæði. Það er mikið af „you“. Það eru tvær setn- ingar á íslensku, en ég ætla ekki að segja hverjar þær em. Þær eru lágt undir og erfitt að greina þær.“ Ætliöi þá aö meikaöa í útlöndum? „Nei, bara meikaða á íslandi. Er ekki í lagi þó við syngjum á ensku? Það þýðir ekkert að fara sveitaball- aleiðina, láta fólk skilja hvað text- arnir eru lélegir. Nei, í alvöru, það er fáránlegt að vera að tvítaka þetta upp. Auðvitað sendum við þetta eitthvað út. Við búum á jörð, ekki bara á eyju.“ Hvert mynduöi fara ef þið fœruö eitthvaö flippaö út aö boröa? „Fá okkur svínatussu á Select. Svona kartöfludrull með majonesi. Nei, nei, ég tjái mig ekkert um hvort það sé besta bens- ínstöðin." Hvernig finnst ykkur auglýsinga- lagiö frá þeim? „Hræðilegt!" segir Esther og springur úr hlátri. „Hrossalagið?" spyr Barði. „Það er svona hestataktur í því. Dudd duddud duddud duddud. Fínt brokklag!" Stelpustúss Sakniði þess aö vera ekki ungling- ar lengur? „Nei, ekki baun,“ segir Esther. „Ég horfi stundum á unglingana í dag og hugsa bara, guð minn góður, var ég virkilega svona? Það er svo erfitt að vera til á þessum aldri, maður gerir sér grein fyrir því eft- ir á. Alltaf svo mikið af flækjum og eitthvað, óþarfa veseni.“ „Mér finnst það einmitt öfugt,“ játar Barði. „Varst þú ekki í stelpustússi?" spyr Esther sambanga sinn. „Ég var bara í alls konar stússi. Flækjumar era að byrja fyrst núna þegar ég er kominn af þessum aldri.“ „Þú ert líka að taka þetta út núna,“ segir Esther, „hélst upp á af- mælið þitt í bíó um daginn." „Æ-já. Enginn af vinum mínum hafði drukkið og farið í bió áður. Ég ákvað að bjóða fólki heim til mín og síðan yrði fariö í bíó. Ég hellti í þá og það endaði á því að einn vinurinn múnaði í bíó og okkur var hent út, algjör snilld!" -glh t»Vl MIDUR KOMUMST VIÐ ERKI NEÐAR í DAG, VEROUR AD KOMA AFTUR Á MORGUN fl EN EG GÆTI KIÓ KANNSKl REYNT AD KOMA Á MOTl bER...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.