Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Síða 7
Enn eitt fórnariambið í Bjarkai^gryfjuna:
Magga Stína er einnig föst á miðri
leið og hefur fengið afleita dóma í
Bretlandi og verið sökuð um að vera
léleg eftiröpun á Björk.
verr í þessum ofsóknum,
plötur þeirra hafa víðast
fengið afleita dóma og er
talað um tónlist þeirra
sem lélega eftiröpun á
tónlist Bjarkar. Englend-
ingar eru þröngsýnastir
og sjá örsjaldan út fyrir
gryfjuna. í nýjasta tölu-
blaði Melody Maker fær
plata Móu, „Universal",
t.d. afar lélega dóma,
hálfa stjömu af fimm.
Þar segir m.a: „Móa er á
algjöru Bjarkar-trippi og
hún kemur ekki með
neitt nýtt í partíið. Það
er engin ástæða til að
kaupa þessa tilgangs-
lausu plötu, hún verður
spiluð í öllum skóbúðum
í miðbænum innan
skamms."
Flestum ætti þó að
vera ljóst að tónlist
Bjarkar og Móu er alló-
lík og í raun er ekkert líkt með
þeim annað en kynferðið og þjóð-
emið. Það virðist nóg; sé söngkon-
an íslensk lendir hún umsvifa-
laust í Bjarkargryfjunni, eins og
brauðmola sem er sópað hugsun-
arlaust af borði metnaðarlausra
blaðamanna.
Það er ljóst að
Bjarkar um alþjóðlegan
tónlistarheim hefur ver-
ið mikil kynning á ís-
landi og íslenskri tónlist.
Nú veit allt sæmilega
upplýst fólk á Vestur-
löndum að á íslandi býr
svalt nútímafólk, sem
býr ekki lengur í torfkof-
um og spilar á langspil.
Sá ömurlegi böggull fylg-
ir þó skammrifi að það
virðist ekki vera pláss
fyrir nema eina íslenska
poppsöngkonu í útlönd-
um, ef undan er skilið
glópalán Öldu, sem á eft-
ir að koma i ljóst hvort
verði langlíft. Gusgus
hafa líka sloppið að
mestu við samlíkinguna,
enda forðast að minnast
á Björk í viðtölum og
söngkonan þeirra er líka
meira höfð með til að
hoppa á sviðinu.
Sé tónlistin sungin af
kvenmanni er hún um-
svifalaust flokkuð ofan í
Bj arkar-gryfj una og það-
an er erfitt að komast.
Bellatrix og Lhooq hafa
lent í þessari gryfju; sé
fjallað um tónlist band-
anna í erlendum blöðum
skýtur Bjarkarsamlík-
ingin fljótlega upp kollin-
um. Þó hafa Móa og
Magga Stína lent sýnu
„Móa er á algjöru Bjarkar-trippl
og hún kemur ekki með neitt
nýtt í partíið. Það er engin
ástæða til að kaupa þessa til-
gangslausu plötu, hún verður
splluð í öllum skóbúðum í mið-
bænum Innan skamms," segir
Melody Maker um Móu. Hún
virðlst því enn föst í neðsta
þrepi á leið sinni á topplnn.
m a t u r
LÆKJARBREKKA ★★ Bankastræti 2, s. 551
4430. .Matreiöslan rambar út og suður, góð,
frambærileg eða vond eftir atvikum." Op/'ð
mánudaga-miívikudaga 11-23.30, fimmtu-
daga-sunnudaga 11-0.30.
MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s.
893 4523 .Notaleg og næstum rómantísk
veitingastofa með góöri þjónustu og frambæri-
legum Ítalíumat fyrir lægsta verö, sem þekkist
hér á landi." Opi6 11.30-14.00 og 18.00-
22.00.
MIRABELLE ★★★ Smlöjustíg 6., s. 552
2333. .Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir í
profiteroles og créme brulée." Op/ð 18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561
3131. .Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi til-
brigði af góðum pöstum en lítt skólað og of upp-
áþrengjandi þjónustufólk." Op/'ð 11.30-23
virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er
opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar.
LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstrætl 9, s.
561 8555. .Sjálfstraust hússins er gott og
næg innistæða fýrir þvf." Op/'ð 12.00-14.30 og
18.00-22.30 virka daga og um helgar frá
18.00-23.30.
RAUÐARÁ ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
.Túrista-steikhús." Op/'ð frá kl. 18 og fram eftir
kvöldi. Hversu lengi fer eftir aðs ókn.
SKÓLABRÚ ★★★ Skóla-
brú 1, s. 562 4455. .Mat-
reiðslan er fögur og fin,
vönduð og létt, en dálítið
frosin. Þjónustan er kurteis
og hófsöm." Op/'ð frá kl. 18
alla daga.
SMIÐJAN ★★★ Hafnarstrætl 92, Akureyrl,
s. 462 1818 .Smiöjan hefur árum og senni-
lega árum saman verið eini staðurinn á Akur-
eyri þar sem er þorandi að boröa fisk." Op/'ð
18.00-22.00.
VIÐ TJÖRNINA
★★★★ Tempk
arasundl 3, s. 551
8666. „Nú virðist
Tjörnin endanlega
hafa gefið foryst-
una eftir og raunar
annaö sætiö líka,
gerir oftast vel, en
ekki alltaf og mis-
tekst raunar stund-
um.“ Op/'ð 12-23.
ÞRÍR FRAKKAR ★★★★ Baldursgötu 14, s.
552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís-
lenskrar matargerðarlistar og fiskhús iandsins
númer eitt." Op/'ð 12-14.30 og 18-20 virka
daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og
taugardag.
meira á.
www.visir.is
bíður þin!
„íþessum heimi er aðeins til tvenns konar ógæfa. Önnur er
að fá ekki það sem þú vilt, hin er að þú fáir það."
(OscarWilde)
Hnyttin setning, fyndin og harmræn í senn. Við skiljum hana sem
harmræna af því við þekkjum sögu höfundarins og vitum að
þröngsýnt þjóðfélag lét hann gjalda kynhneigðarsinnar.
í dag viljum við trúa því að fordómar í garð samkynhneigðra séu á
hröðu undanhaldi og vitum að fordómar þrífast best í illa upplýstum
skúmaskotum. Því viljum við hjá Bóksölu stúdenta benda á að hjá
okkur fæst úrval bóka um samkynhneigð. Ef þú veist hvað þú vilt og
sérð það ekki í hillunni, þá grípur sérpöntunarþjónustan inn í og
bjargar málunum.
Þú getur líka pantað bækur beint af heimasíðunni www.boksala.is.
Bóksala stúdenta ertil húsa í Stúdentaheimilinu við Hringbraut,
sími: 5700 777.
„Rose is a rose is a rose is a rose. “
(Gertrude Stein)
bók/fcl*. /túder\tfc.
-op/n búð
6. nóvember 1998 f Ó k U S
7