Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Qupperneq 15
Hljómsveitin Fuck heldur tónleika á Gauknum á miðvikudag og fimmtudag í tilefni af átta ára afmæli Hljómalindar Venjulegir hæglyndismenn með óvanalega dónalegt nafn Tónleikahald erlendra hljóm- sveita á íslandi hefur verið fremur dauft það sem af er á árinu, enda voru Rolling Stones væntanlegir mestallt árið og fáir lögðu í sam- keppni við þau gömlu krumpudýr. Hingað upp á sker er nú væntan- leg hljómsveitin Fuck og kemur hún til með að fokka i eyrum rokkara næstu viku. Þetta er band frá Kalifomíu sem hefur gefið út tvær plötur, Pardon My French og Conduct, hjá einu stærsta rokk- merkinu í New York, Matador Records. Þetta eru fjórir rólyndis- menn og þó að nafnið, Fuck, bjóði upp á ruddaskap og þimgarokk er tónlistin þó frekar smekkleg og hæglát þó oft sé skipt um gir og rokkað drulluhart eða soðin upp brengluð kamivalstemning. Fuck minnir stundum á Velvet Und- ergroimd, Slint eða Giant Sand. Sagan segir að þeir Timmy Prudhomme (söngur), Kyle Statham (gítar og fiðla), Ted Elli- son (bassi og píanó) og Geoff Soule (trommur) hafi kynnst þeg- ar þeir vom lokaðir inni í sama klefanum eftir að hafa verið með drykkjulæti á almannafæri fyrir sex árum. Nafnið hefur bæði vak- ið á þeim athygli og einnig orðið þeim fjötur um fót og nokkmm sinnum hafa þeir verið neyddir til að koma fram sem „Fork“. „Ýmislegt skrýtið gerist þegar maður nefnir bandið sitt Fuck,“ segir Timmy. „Fólk fer að segja manni ýmsar sögur af nafninu. Kiss vildi á sínum tíma kalla sig Fuck og fólk spyr okkur hvort við séum Kiss-aðdáendur. Við héldum að einhver hefði þegar notað þetta nafn en enginn hafði gert það. Fólk verður hissa þegar það heyr- ir í okkur - á von á einhverju allt öðra - en það sýnir bara að það á ekki að dæma bókina eftir káp- unni. Það hefur þó komið i ljós að fólk man alltaf hvað við heitum." Um textagerðina segir Timmy: „Mér finnst hugvitsemi vera gagn- legt stílbragð. Til að vera í takt við allt heimskulega kjaftæðið sem er í gangi í músíkheiminum í dag reyni ég að semja texta sem hljóma eins og heimskulegt kjaftæði. Þannig get ég haft eitt- hvað að segja!“ Tónleikar Fuck era haldnir í til- efni af átta ára afmæli Hljómalind- ar og fara fram á Gauki á Stöng miðvikudaginn 11. og fimmtudag- inn 12. Pomopop spilar með bæði kvöldin en Sigur Rós bætist við á miðvikudaginn og Unun á fimmtu- daginn. Pnnk ng málafprli 1. kafli Byltingin étur bömin sín Pönkarar era ekkert skárri en popparar þegar lögin era annars vegar. Nú hafa þrír fyrram með- limir ræflarokksveitarinnar Dead Kennedys kært söngvara sveitar- innar, Jello Biafra, fyrir að hirða allan ágóða af plötunum og skilja þá eftir slyppa og snauða. Til að forðast gráðuga arma stórra kol- krabbafyrirtækja stofnaði bandið sitt eigið fyrirtæki 1979 og kallaði það Altemative tentacles, Aðrir armar. Jello varð einráður hjá fyr- irtækinu 1986 þegar Dead Kenn- edys lagði upp laupana en nú seg- ir gítarleikarinn East Ray Bay að fyrrum félagar vilji ekki vinna lengur á samyrkjubúi Jellos. „Biafra lætur eins og stórfyrir- tæki. Hann hefur snuðað okkur um stefgjöld og ágóðahlut af plötu- sölu. Þetta er kaldhæðnislegt því að þegar við stofnuðum fyrirtækið vildum við losna undan græðgi stórfyrirtækjanna. Eftir að Jello varð einráður hefur hann orðið að því sem hann hataði. Hann hefur saurgað þann anda sem við lögð- um upp með.“ Jello hefur ekki enn svarað fyr- 6. nóvember 1998 f Ó k U S 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.