Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1998, Síða 25
Unun stingur í
á 22 í tilefni af útkomu
Fókus ákvað að
ofan af þessum
öskra sagnakennda
Hvað hefurðu verið
að gera þetta árið?
„Fyrstu tvo mánuðina var ég
að vinna á „take out“-staðnum
Gott i gogginn, svo fór Unun til
Danmerkur og hélt tónleika þar
og ég fór þaðan með bílaleigubíl
til Þýskalands. Síðan höfum við
verið að taka upp plötu og í
haust fór ég í heimspeki i Háskól-
anum og ég er líka póstur hálfan
daginn. Það er svona frekar mik-
ið að gera hjá mér þessa dagana
og i fyrsta skipti á ævinni er ég
að nota fílófax til að halda utan
um þetta allt saman.“
En hversu náið er samband
ykkar dr. Gunna, veistu
hvar hann er í augnablikinu?
„Hann er örugglega að kúka ,
núna. Er klukkan ekki hálfþrjú?
Hann gerir það yfirleitt um það
leyti."
Bjóstu ekki fyrir nokkrum
árum í kjallaranum hjá
Þór Eldon?
„Jú, ég held ég hafi búið þar í
nokkur ár.“
Hvernig var það?
„Bara. Þessi íbúð er mjög fin
og burtséð frá því hver bjó á efri
hæðinni þá var fínt að búa
þarna. Þór breytti því hvorki til
hins betra né hins verra.“
Og býrðu í einhverjum
kjallara núna?
„Já, þvi miður, enn þá. Það er
reyndar mjög finn kjallari. Ég
held að ég sé búin að búa i þrem-
ur kjöllurum í Reykjavík.“
Þú hefur samt ekki aUtaf
húið í kjallara, er það?
„Nei. Ég bjó einu sinni í litlu
einbýli og á annarri hæð í Hafn-
arstræti, í svona kommúnu. Þetta
er í sama húsi og Kaffi Thomsen
er núna, var spilatorg þá.“
Og er það satt að þú búir
með gæja frá Keflavík?
„Nei. Ég á engan kærasta en ég
er frá Keflavík og hef því átt
kærasta þaðan en það var einum
kærasta síðan.“
í einum texta á nýju plötunni
segistu skoða Atlasinn á
nóttimni þegar þú ert
andvaka. Gerirðu það?
„Nei. Hugmyndin að þessum
texta er frá dr. Gunna. Hann á
mikið af hugmyndunum á bak
við þessa texta og svo vinnum
við þá saman.“
Drapstu einu sinni á míníbar?
„Nei, ég hef aldrei drepist á
mínibar. Ert þú eins og allir hin-
ir, heldurðu að það sem söngkon-
an syngur sé eitthvað sem hún
hafi upplifað? Bara svo þú vitir
það, þá er textagerð ekkert öðru-
vísi en skáldsagnagerð. Sama
hugmyndafræðin á bak við það.
Höfúndurinn setur sig í spor ein-
hvers sem gæti gerst og spinnur
út frá því. Svo textamir hjá
Unun eru yfirleitt skáldskapur."
Hvað með Heiðu
og barneignir?
„Mig langaði alveg rosalega
mikið að eignast þrjú böm þar til
fyrir sex dögum. Þá var ég að
ganga upp Hringbraut í svörtum
leðurfrakka sem ég var nýbúin
að kaupa mér. Og það virðist sem
það séu álög á þessum frakka því
með hverju skrefinu sem ég tók
fór mig minna og minna að langa
í börn. Ég fór bara að hugsa um
að fara kannski til Berlínar og
ferðast og eitthvað svoleiöis áður
en ég eignast börn. Þetta er ör-
ugglega yfimáttúrlegur frakki því
mig er búið að langa mjög mikið
í krakka undanfarin tvö ár.“
Af hverju fékkstu
leiða á hanakambnum?
„Ég var ekki beint komin með
leiða á honum sem slíkum, held-
ur því að vera alltaf eins. Ég er
þannig manneskja að ég þarf
and í kvöld á efri hæðinni
u afurðarinnar. ú 7'
__eyra Heiðu í Unun og fletta
pönk-hippa sem hefur verið að
exta iundanfarin þrjú, fjögur ár.
breytingu. Spuming hvort þetta
sé þessi slöngu-effekt. Slöngur
skipta reglulega um skinn og ætli
ég sé ekki eins.“
Er það satt að þú hafir
alltaf snúið bolnum öfugt
þegar þú vannst í sölu-
turninum Svarta svaninum?
„Já, það er alveg dagsatt."
Af hverju?
„Af því það var svona stór
mynd af svani frarnan á bolnum
og önnur við öxlina og mér leið
eins og ég væri í íþróttafélagi.
Svo ég spurði bara eigandann
hvort ég mætti ekki snúa bolnum
öfugt. Hann sagði að ég væri
skrýtin og þannig komumst við
að samkomulagi. Það ótrúlega við
þetta er að það em bara fjögur ár
síðan og mér líður eins og þau
„Mig langaði alveg rosa-
lega mikið að eignast
þrjú börn þar til fyrir sex
dögum. Þá var ég að
ganga upp Hringbraut í
svörtum leðurfrakka sem
ég var nýbúin að kaupa
mér. Og það virðist sem
það séu álög á þessum
frakka því með hverju
skrefinu sem ég tók fór
mig minna og minna að
langa í börn.“
seu fimmtan pví það er svu margt
búið að gerast síðan.“
Hvernig finnst foreldrunum að
eiga rokkdóttur?
„Þau eru mjög stolt af mér,
held ég. Sérstaklega þar sem þau
eiga bara eitt bam og hafa því
ekki um neitt að velja. Ég held
því að þau muni alltaf bakka mig
upp í hverju sem ég tek mér fyrir
hendur. En mamma hefur líka
alltaf haft það á tilfinningunni að
ég yrði á sviði í framtíðinni. Ég
var frekar athyglissjúk sem
krakki og var alltaf að leika og
svona.“
Eru þau rokkarar?
„Þau voru hippar. Eignuðust
mig ung og við vorum frekar sæt
hippafjölskylda. Pabbi er ofsalega
góður á gítar en ekki jafn góður
songvari. Maumia syngur aiiui a
móti vel en er ekki jafn flink á
gítarinn. Og ég er svona að vona
að ég hafi erft kostina frá þeim.“
Verðurðu hjá þeim
á aðfangadagskvöld?
„Já.“
Afgreiðslukonan kallar yfir sal-
inn að það sé síminn til einhverr-
ar Ragnheiðar. Heiða hleypur í
símann og kemur skælbrosandi
til baka, stuttu seinna.
„Ég er líka að fara á sjóinn,"
segir hún og hlær. „Gunni var aö
hringja og spurði hvort ég vildi
fara á sjó. Það er útgáfupartí hjá
Stuðmönnum. Ekkert smá snið-
ugt hjá þeim,“ heldur Heiða
áfram og þar með lýkur þessari
yfirheyrslu. -MT
6. nóvember 1998 f Ókus