Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 Fréttir Gömul og slitin röntgentæki í notkun á þremur heilbrigöisstofnunum: Erfitt aö stilla stærö geislaskammta - 1600 árlegar rannsóknir með tæki á undanþágu á Heilsuverndarstöðinni Röntgentæki sem notað er á lungna- og berkladeild Heilsuvemd- arstöðvarinnar i Reykjavík er rekið á undanþágu hjá Geislavömum rík- isins, þar sem það er orðið „gamalt og slitið og uppfyllir ekki tæknileg- ar kröfur eins og það er orðað í svari Geislavama við fyrirspurn DV um úrelt röntgentæki í notkun hér á landi. Röntgentækin í Heilsu- gæslustöðvunum á HeOu og Hvols- velli fá sömu einkunn hjá Geisla- vörnum, þ.e. þau séu orðin gömul og slitin og uppfylli ekki þær kröfur sem gerðar em til slíkra tækja. Starfsleyfl þeirra rennur út um ára- mót. Sama máli gegnir um tækið á Heilsuverndarstöðinni og verður starfsleyfi fyrir það ekki endumýj- að. Samtals eru 117 röntgentæki í notkun á heilbrigðisstofnunum hér á landi. „Það hafa verið gerðar 1600 rann- sóknir á ári síðustu árin með þessu tæki,“ sagði Þorsteinn Blöndal, yfir- maður á lungnadeild Heilsuvemd- arstöðvarinnar. „Það er gamalt og hefur nýst heilbrigðisþjónustunni langt umfram það sem ráð er fyrir gert. Við höfum sett fram óskir um kaup á nýju tæki mörg ár í röð en ekki fengið. Viðgerðarmennirnir hafa ekki getað gert við þá þætti sem fundið hefur verið að við reglulegar skoð- anir hjá Geislavörnum. Við höfum verið á undanþágu en nú gengur það ekki lengur." Þorsteinn sagöi að eitt þeirra at- riða sem fundið hefði verið að, en ekki væri hægt að laga, væri frávik á stilltum geislaskömmtum og mældum geislaskömmtum. Það þýddi að erfitt væri að stilla tækið þannig að það gæfi nákvæmlega rétta skammta. Frávikið væri þó ekki langt fyrir ofan þá skammta sem mælt væri með. Það sæist á því að ekki þyrfti að endurtaka mikið af myndum. Röntgenmyndir yrðu of ljósar ef skammtamir væru of litlir en kolsvartar ef þeir væru of miklir. „Það er alltaf reynt að halda geisl- uninni i lágmarki," sagði Þorsteinn. Hann sagði enn fremur að nýtt tæki kostaði um 2,5 milljónir króna. Ef það fengist ekki fyrir áramót myndi Heilsuvemdarstöðin þurfa að kaupa þessa þjónustu annars staðar og senda þá sjúklingana þangað. -JSS Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf.: Nýtt skipaskýli vígt DV, Suðurnesjnm: Nýtt skipaskýli fyrir Skipasmíðastöð Njarð- víkur hf., var vígt í síð- ustu viku. Það var Lava hf. dótturfyrirtæki Is- lenskra aðalverktaka hf., sem sá um byggingu skipaskýlisins, sem mun gjörbreyta allri að- stöðu stöðvarinnar til skipaviðgerða. Bygg- ingastjóri Lava við þess- ar framkvæmdir var Bjöm Bjömsson en viö verkið unnu um 30 manns þegar mest var. VST og Arkitektar sf. sáu um hönnun en eftir- lit með verkinu var í höndum Verkfræðistofu Suðurnesja. Framkvæmdir hófust í október á síðasta ári en skipaskýlið er stál- grindarhús, 2100 m að grunnfleti, en inni í því er um 600 m steinsteypt hygging að hluta á tveimur: hæðum. Skýlið er 30 metra hátt og gnæfír yfir aðrar Nýtt skipaskýli fyrir Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. var vigt í siðustu viku. byggingar í nágrenninu. Skipa- smíðastöð Njarövíkur annast við- gerðir, endurbætur og endursmíði skipa. Með tilkomu skýlisins verður hægt að fjölga verkefnum yfir vetr- armánuði en áður var eingöngu DV-mynd Arnheiður hægt að gera við skip utanhúss. Nýja skýlið tekur skip sem era allt að 800 þungatonnum að stærð. -AG Traustur maður Halldór Eitt af því markverð- asta sem gerðist á fundi Framsóknar- flokksins um helgina var sú yfirlýsing Hall- dórs Ásgrímssonar að fiskveiðistjórnarstefna hans væri ekki hugsuð til að skapa arð fyrir fáa útvalda. Þetta er merkilegt fyrir þá sök að enginn maður hefur átt jafnstóran þátt í kvótastefnunni og Hall- dór Ásgrímsson og sú stefna, sem hann mót- aði og styður, hefur ná- kvæmlega og akkúrat leitt til þess að arður- inn hefur safnast á fárra manna hendur. Ekki það að Halldór hafi viljað það, en stefnan er eitt og arð- urinn er annað og stefnan er góð, þótt hún fari úr böndum og stefn- una má bæta með því að standa fast um hana en breyta því sem stefnan leiðir til. Þetta finnst Hall- dóri eftir að hafa skoðað málið. Halldór hefur mikið verið í útlöndum undan- farin ár og ekki mátt vera að því að fylgjast meö fiskveiðistefnunni, nema svona endranær, enda era tvö ár liðin síðan Halldór tjáði sig síðast um fiskveiðistefnuna, en það var einmitt á flokks- þingi framsóknarmanna fyrir tveimur áram sem hann hafði tíma til að hugsa um fiskveiðistefn- una. Enda minnti hann flokksþingsfulltrúa á ræðu sína fyrir tveimur árum, síðast þegar hann mátti vera að því að tjá sig um málið og þá var hann farinn að hafa áhyggjur af framkvæmd stefhunnar, sem að öðra leyti var rétt og jákvæð. Það má heldur ekki gleyma því að Halldór haföi og hefur hagsmuni að gæta vegna þess að fjölskylda hans eignaðist á sínum tíma kvóta í samræmi við stefnuna sem Halldór mótaði og nú verður sá kvóti ekki aftur tekinn og arðurinn hef- ur myndast og nú þarf að huga að því hvort fáir útvaldir hafi notið arðsins án þess þó að breyta stefnunni. Enda segir Halldór að stefnan hafi skilað þeim árangri að útgerðin sé farin að græöa og arðurinn hefur skilað sér, án þess að það hafi beinlínis verið meiningin. Ekki það að taka eigi arðinn af útgerðinni og útgerðin þarf að festa sig í sessi áður en stefnan verður tekin til endurskoðunar en það var ekki ætlun Halldórs að arðurinn af útgerðinni rynni til fárra útvaldra þótt stefnan hafi verið góð og þetta hafi farið svona. Hann er alveg tilbúinn til að skoða þetta upp á nýtt, svo framarlega sem stefnunni verður ekki breytt og útgerðin haldi sínu og arðurinn skili sér til þeirra sem skapa hann, af því að þeir eiga kvótann sem gera út og það var aldrei meiningin að þeir einir græddu. Traustur maður Halldór og á næsta flokksþingi framsóknarmanna, þegar Halldór má vera að því að bregða sér heim frá útlöndum, mun hann aft- ur flytja merka ræðu um fiskveiðistefnuna og get- ur þá vitnað í það sem hann sagði á flokksþing- inu núna. Dagfari Stuttar fréttir i>v Fleygöu gestabókinni Bylgjan greindi frá því að starfsmenn Búnaðarbanka ís- lands hefðu fleygt gestabókinni sem lá frammi í gestaíbúð þeirra í London. Héraðsdómur kvað upp þann dóm að bankanum væri skylt að afhenda fréttastofu Bylgj- unnar og Stöð 2 gloppóttar minn- isbækur um dvalargesti í íbúð- inni. Þegar fréttir bárust um að til væri gestabók sem gefið gæti gleggri upplýsingar fór bankinn fram á að fá gestabókina afhenta. Krefst athugunar Dagur greindi frá því að Jó- hanna Sigurðar- dóttir hefði með bréfi til banka- eftirlits Seðla- bankans krafist athugunar á því hvort eðlilegir viðskiptahættir hefðu verið brotnir með tilraun verðbréfafyr- irtækja til að kaupa hlutabréf „bakdyramegin". Kaldreykt hangikjöt Ríkisútvarpið greindi frá því að íslenskur matreiðslumaður, Guðbjörg Elíson, sem búsettur er í Varberg i Svíþjóð og hefúr þjón- að íslendingum með íslensk mat- væli undanfarin ár, láti nú kaldreykja jólahangikjötið þar í landi þar sem ekki er heimilt að flytja það frá íslandi. Um 600 manns era í viðskiptum við Guð- björgu. Um fjórðungur þeirra eru Svíar. Standa sig hörmulega Ríkisútvarpið greindi frá því að að mati fúlltrúa launþega hjá Alþjóðavinnumálastofnuninni hafi íslendingar staðið sig hörmu- lega illa viö að staðfesta sam- þykktir stofnunarinnar. í frétt- inni sagði að sambandsstjórn ASÍ gagnrýni harðlega hversu illa samþykktunum er framfylgt. í samræmi við lögregjulög Samkvæmt erindisbréfi sem dómsmálaráðu- neytið hefur gef- ið út sinnir lög- reglustjórinn i Reykjavík dag- legri stjórn emb- ættisins í sam- ræmi viö lög- reglulög. í tillög- um VSÓ-ráðgjafar var gert ráð fyrir að varalögreglustjóri sæi um daglega stjóm. Ríkisútvarpið greindi frá. Samningur undirritaöur Dagskráin greindi ffá því að nýlega hefði verið undirritaður samningur á milli Atvinnuþróun- arsjóðs Suðurlands, Mýrdals- hrepps og Skaftárhrepps um þró- unarverkefni í atvinnu- og byggðamálum með það að mark- miði að treysta skilyrði fyrir bú- setu í V-Skaftafellssýslu. Sambýli fýrir fatlaöa Skessuhorn greindi frá því að áætlað væri að framkvæmdir við sambýli fyrir fatlaða á Akranesi hæfust í byrjun næsta árs en bygging þess hefur verið á döf- inni um alllangt skeið. Tafir hafa orðið á málinu vegna ágreinings um kostnað milli svæðisstjómar málefna fatlaðra og félagsmála- ráðuneytis. Fylgir auknu frelsi Júlíus Jónsson, forstjóri Hita- veitu Suður- nesja og formað- ur Samorku, segir að líklegt sé að aukin nýt- ing jarðhita í stað vatnsafls fylgi auknu frelsi á orku- markaði. Ríkisútvarpið greindi frá. Eldingu sló niður í flugvél Ríkisútvarpið greindi frá því að eldingu hefði slegið niður í Fokkerflugvél Flugfélags íslands yfir Vestmannaeyjum í gærmorg- un. Litlar skemmdir urðu á vél- inni og hvorki farþega né áhöfn sakaöi. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.