Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 IjV
iMéttir
Heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis:
Klofnaöi í afstödu til
gagnagrunnsfrumvarpsins
- öll stjómarandstaðan á móti því að veita einkarétt - nefndin þó sammála um fjórar breytingar
Heilbrigðis- og trygginganefnd Al-
þingis klofnaði í gær í afstöðu sinni
til gagnagrunnsfrumvarpsins.
Nefndin hefur undanfarnar vikur
unnið hörðum höndum að því að
koma frumvarpinu í það horf að Al-
þingi samþykki það en það tókst
ekki.
„Stjómarandstaðan var öll á móti
því að veita einkarétt á því aö nota
heilsufarsupplýsingar. Inni í fram-
varpinu era ákvæði um aðgengi vís-
indamanna. Það mælir enginn gegn
því að vísindamenn hafi aðgang að
gagnagranninum en ákvæðin sem
era i framvarpinu brjóta klárlega
að femu leyti í bága við samkeppn-
Staða forstjóra:
Sjö vildu
stöðuna
Umsóknarfrestur um stöðu
forstjóra Fjármálaeftirlitsins,
hinnar nýju stofnunar sem leysa
mun bankaeftirlit Seðlabankans
og Vátryggingareftirlitið af
hólmi, rann út í fyrradag. Alls
bárast sjö umsóknir um stöð-
una.
Umsækjendur era Ásta Þórar-
insdóttir, hagfræðingur og
starfsmaður bankaeftirlitsins,
Finnur Sveinbjörnsson, hag-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Sambands ísl. viðskiptabanka,
Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hag-
fræðingur og starfsmaður
bankaeftirlitsins, Jóhann Hall-
dór Albertsson, lögfræðingur og
starfsmaður bankaeftirlitsins,
PáU Gtmnar Pálsson, lögfræð-
ingur í viðskiptaráðuneytinu,
Rúnar Guðmundsson, lögfræð-
ingur hjá Vátryggingaeftirlitinu,
og Tryggvi Axelsson, lögfræð-
ingur í viðskiptaráðuneytinu.
-SÁ
isreglur EES. Meðal annars er inni
ákvæði um að í sérstakri aðgengis-
nefnd eigi að vera fulltrúi rekstar-
leyfíshafans og það er í andstöðu
við þessar samkeppnisreglur, að
áliti Samkeppnisstofnunar. Þess
vegna getur stjómarandstaðan ekki
fylgt því. Við viljum ekki fylgja lög-
um sem brjóta alþjóðlegar sam-
þykktir. Sú leið sem ég vil kanna er
að visindamenn sem starfa á heil-
brigðisstofnunum eða era í sam-
starfi við þær eigi aðgang að gagna-
granninum og að samið verði um
þann aðgang sérstaklega í þeim
samningum sem hvort eð er verða
að fara fram á milli stofnananna og
rekstrarleyfishafa. Þetta yrði hluti
af þeim samningum," sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður heil-
brigðis- og trygginganefndar Al-
þingis, í samtali við DV í gærkvöld.
Sammála um fjórar mikil-
vægar breytingar
Nefndin var þó sammála um f]ór-
ar mikilvægar breytingcir varðandi
frumvarpið. í fyrsta lagi er ráðherra
heimilt að semja um að sá sem fær
einkaréttinn greiði sérstaklega fyrir
hann beint í ríkissjóð. Því fé á að
verja til að efla heilbrigðisþjónust-
una, rannsóknir og þróun. í öðra
lagi er sú mikilvæga breyting að
starfsræksla gagnagrunnsins verð-
ur að vera fjárhagslega aðskilin frá
annarri starfsemi þess sem fær
einkaréttinn. í þriðja lagi er sér-
stakt ákvæði er varðar notkun ætt-
fræðiupplýsinga. Það felst í því að
sá sem fær að reka gagnagrunninn
verður að gera sérstakar vinnuregl-
ur um hvernig eigi að samtengja
ættfræðiupplýsingar við aðrar upp-
lýsingar í gagnagranninum. Þessar
vinnureglur verða að uppfylla skil-
yrði Tölvunefndar. í fjórða lagi var
nefndin sammála um ákvæði þar
sem ráðherra er skipað að setja
reglugerð um sérstaka siðanefnd og
hún á aö meta allar rannsóknir inn-
an fyrirtækis rekstrarleyfishafans
og allar fyrirspurnir sem berast.
Mat nefndarinnar verður að hafa
leitt i ljós að það séu engin siðfræði-
leg eða vísindaleg sjónarmið sem
mæla gegn því að þessar rannsókn-
ir eða fyrirspumir séu unnar í
gagnagranninum.
-RR
Nýju og glæsilegu tónlistarhúsi Karlakórs Reykjavíkur í Skógarhlíð var gefið nafn í gær. Húsið fékk nafnið Ýmir og
það var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sem afhjúpaði veglegt Ijósaskilti með nafni hússins. í tilefni dags-
ins sungu Karlakór Reykjavíkur og Kvennakór Reykjavíkur nokkur létt lög fyrir gesti. DV-mynd Pjetur
Bensínlækkun um helgina
- líklegt aö lítrinn lækki um 1,50 - ríkið hrifsar til sín það sem ætti að koma neytendum til góða, segir FÍB
Þróun bensínverðs
Verð miðast við 95 okt. m/þjónustu.
Útsöluverð
Wm HeimsmarkaSur
»í« 74^« n<M
20
10 w «,» »,« 10,73 l.,7« 1132 W 1.,« .,34 w w w w w w w m
j«u feb. raar. apr. mai' jrau jd. ifú. up. «kt n«v. der. jan. feb. mar. apr. mai. jun. jnt ipí. l«p. ekt név.
Í7 !7 '37 -97 '97 '97 '97 '97 '97 '97 '97 '98 '98 '98 18 '98 18 18 98 '98 18 18 E
Bensínverð á heimsmarkaði er
nú nánast i sögulegu lágmarki. í
kjölfar þess lækkar útsöluverð á
bensíni á íslandi nú um helgina.
Samkvæmt heimildum blaösins
mun lækkunin nema i kringum
1,50 kr. á hvern lítra. Bjarni
Bjamason, framkvæmdastjóri hjá
Olíufélaginu hf., vildi í samtali við
DV í gær ekki segja hvenær eða
hversu mikið bensínið myndi
lækka en staðfesti að verðbreyting-
ar yrðu nú í kringum mánaðamót-
in.
í verðbólguspá Seðlabankans,
sem birtist í október, var því spáð
að bensín myndi lækka. Jafnframt
var þess getið að lækkanir á heims-
markaðsverði bensíns, sem þá vora
komnar fram, hefðu enn ekki komið
að fullu fram í útsöluverði til neyt-
enda hér á landi. „Mismunur út-
söluverðs og tafins kostnaðarverðs í
íslenskum krónum hefur því auk-
ist,“ stendur í verðbólguspánni.
Þetta þýðir í raun það að olíufélögin
hafi tekið stærri hluta af lækkun
heimsmarkaðsverðsins til sín í staö
þess að láta neytendur njóta hennar.
Bjarni Bjamason sagði að þessi
fullyrðing væri ekki raunhæf því að
í dæmið vantaði að taka tillit til
breytinga á gengi dollars en Olíufé-
lagið keypti inn bensín á mánaðar-
legu meðcdgengi dollars og þegar
það breyttst breyttust einnig for-
sendur verðlagningar.
Ríkið tekur á hinn bóginn
langstærstan hluta af útsöluveröi
hvers bensínlítra í sinn hlut. Miðað
viö núverandi útsöluverð, kr. 74,30,
tekur ríkið til sín í formi tolla og
VSK i kringum 52 krónur, eöa um
70%. Þá hefur ríkið hækkað sinn
hlut eftir því sem heimsmarkaðs-
verðið hefur lækkaö með því að
hækka álögur ríkisins, m.a. veg-
gjald og bensíngjald.
„Við höfum verið að sjá breyting-
ar á bensínverði á heimsmarkaði.
Sérstaklega hefur það
lækkað mjög frá síðustu
mánaðamótum og tunn-
an á Rotterdam komin
um og undir 120 dollara
og því má vænta verð-
lækkunar hér heima á
næstu dögum,“ sagði
Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB,
við DV. „Það vekur at-
hygli að lítrinn af bens-
íni, kominn hingað til
lands, hefur kostað í
kringum sjö krónur
þannig að okkur neyt-
endum er gert að kaupa
hann á liðlega tífoldu
verði, sem að stærstum
hluta eru skattar til rík-
isins. Síðast jók ríkið
hlutdeild sína í sumar
um 1,20. „Það er full
ástæða til að vekja at-
hygli á þessum háu
sköttum sem aðeins að
litlum hluta er varið til
vegaframkvæmda. Þess-
ir skattar hafa verið að
aukast á undanfórnum áram. Þróun
sem ætti að koma neytendum til
góða hefur ríkið hrifsað til sín,“
sagði Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags ísl. bifreiðaeig-
enda.
-SÁ
i stuttar fréttir
Fyrirliði í vandræöum
Júlíus Jónas-
son, fyrirliði
landsliðsins í
Íi handknattleik,
lenti vandræð-
um á Kastrup-
flugvelli í
Kaupmanna-
höfn í gær.
Hann tók í misgripum gamalt
vegabréf með sér í ferðina. Óvíst
var um tíma hvort honum yrði
hleypt í gegn en að lokum var sú
ákvörðun tekin að leyfa honum að
halda áfram til Ungveijalands.
Starfsmenn fá 100 þús.
íslandsbanki greiddi í gær öll-
um starfsmönnum sínum sem ver-
ið hafa í fullu starfi allt árið 100
[ þúsund króna launauppbót. Aðrir
starfsmenn fengu launauppbót í
1 réttu hlutfalii við hlut þeirra af
1 fúllu stöðugildi. Bankaráð ákvað
| að greiða þessa launauppbót vegna
góðrar aikomu bankans á árinu.
Sparnaður
j Geir H. Haar-
de fjánnálaráð-
‘ herra kyrmti í
i gær fyrirhugað-
;u aðgerðir og
lagabreytingar
sem eiga að
j stuðla að þjóð-
i hagslegum
| spamaði og þá sérstaklega að auk-
| inni þátttöku almennings.
Hlutabréf TM ruku upp
i Hlutabréf Tryggingamiðstöðv-
j arinnar hf. hækkuðu um 8,2 % í
gær, eftir að fréttir bárust um fyr-
irhugaða sameiningu TM og
| Tryggingar hf.
Netsamband tvöfaldaö
Útlandatenging Landssíma Is-
I lands hf. við Intemetið verður tvö-
fólduð í byrjun næstu viku. Það
I leiðir til greiðari leiða og aukins
| hraða fyrir netnotendur sem tengj-
ast Intemetþjónustu símans eða
j netþjónustufyrirtækjum sem leigja
j millilandasamband af símanum.
Mannabreytingar
Kristinn Halldórsson, forstöðu-
j maður tæknideildar, mun um
næstu áramót taka við nýrri stöðu
j forstöðumanns á Flugflota- og ör-
yggissviði sem heyrir undir Leif
| Magnússon. Við starfi forstöðu-
I manns tæknideildar á Fram-
leiðslusviði, sem heyrir undir
! Guðmund Pálsson, tekur Valdi-
j mar Sæmundsson.
Vaktþjónusta flytur
í Heilbrigðis- og tryggingamála-
1 ráðuneytið gerði nýlega þjónustu-
j samning við Læknavaktina sf.
j Þjónustusvæði Læknavaktarinnar
j stækkar og verulegar breytingar
j verða gerðar á allri aðstöðu og
þjónustu við almenning á svæð-
inu. Þjónusta læknavaktariimar
flytur í nýtt húsnæði í Smáranum
í Kópavogi.
Jón Karl í
Um næstu
áramót tekur
Jón Karl Ólafs-
son við starfi
framkvæmda-
sfjóra Flugfé-
lags íslands af
Páli Halldórs-
syni sem hefúr
sagt starfi sínu lausu. Páll hefur
sagt upp frá og með áramótum eft-
ir 12 ára starf hjá Flugleiðum. Jón
Karl Ólafsson, sem er fertugur að
aldri, hefur verið starfsmaður
Flugleiöa í 16 ár. Hann hefúr með-
al annars verið forstöðumaður
fjáiTeiðudeildar, síðan hagdeildar,
þá leiðastjómunar og nú siðast for-
stöðumaður austursvæðis Flug-
leiða.
Heimsmet í netaðgangi
Fleiri heimili og fyrirtæki hafa
aðgang að Netinu á íslandi en í
nokkru öðru landi, samkvæmt
niðurstöðum tveggja nýrra kann-
ana sem Gallup hefúr gert fyrir
Landssíma íslands hf.
-íbk
staö Pals