Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Síða 27
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
__________________________________ *jl útlönd
Norskir hægrimenn hafa náð tökum á ríkisstjórn sára Kjell Magne Bondevik:
Gráa músin byrsti sig
27
DV,Ósló:________________________
Honum var alltaf líkt við gráa
mús. Enginn tók eftir Jan Petersen.
Formaður norska Hægri flokksins
var þar til nú í vikunni í hlutverki
músarinnar sem læddist í norskum
stjómmálum. Nú er komið á daginn
að ekki er hún betri músin sem læð-
ist en sú sem stekkur.
Jan Petersen tók á þriðjudaginn
séra Kjell Magne Bondevik á
kné sér og „las honum fyrir“
nýja stjórnarstefnu. Og
norski forsætisráðherrann
átti engra annarra kosta völ
en hlýða og segjast vera hjart-
anlega sammála. Á stuðningi
hægrimanna valt hvort hann
héldi stóli forsætisráðherra -
og séra Kjell Magne valdi stól-
inn og stefnu hægri manna.
Eitt skref til hægri
og eitt til vinstri
Vandi séra Kjell Magne var
að fá meirihluta þingmanna
til að samþykkja nýtt fjár-
lagafrumvarp. Norska ríkis-
stjórnin hefur aðeins 43 þing-
menn af 165 að baki sér en
séra Kjell Magne hefur alltaf
haldið því fram að miðju-
stjóm hans geti sótt sér fýlgi til
hægri og vinstri eftir þörfum.
Þetta hefur gengið til þessa en þó
þannig að enginn hefur í raun vitað
hver var stefna stjórnarinnar. Jan
Petersen kallaði þetta flakk milli
hægri og vinstri „vingulshátt" í við-
tali á dögunum, og sagði að vinnu-
brögð norska forsætiráðherrans
einkenndust af „óreiðu“.
Nú ætlaði séra Kjell Magne að
leika sama leikinn einu sinni enn -
smokra fjárlagafrumvarpinu gegn-
um þingið með því að biðla ýmist til
hægri eða vinstri. Þetta gekk ekki.
Síðasti dans á línunni
Verkamannaflokkurinn á vinstri-
vængnum sagðist aldrei samþykkja
fjárlagaframvarp þar sem gert var
ráð fyrir heimgreiðslum til foreldra
til að passa böm sin heima - og rík-
isstofnun til að líta eftir að foreldr-
amir væra í raun og vera heima
með börnunum.
Á hægri vængnum sögðust Fram-
faraflokkurinn og Hægri flokkurinn
ekki samþykkja fjárlagafrumvarp
þar sem gert væri ráð fyrir 20 millj-
örðum íslenskra króna í aukinni
skattheimtu og engin áform væru
um sölu ríkisfyrirtækja. Þar með
vora séra Kjell Magne allar bjargir
bannaðar og enginn hafði lengur
áhuga á að horfa á jafnvægiskúnst-
ir hans á miðjunni.
Svo hófst baráttan um völdin.
Verkamannaflokkurinn undir for-
ystu Torbjamar Jagland vildi fella
stjórnina umsvifalaust og mynda
nýja með hverjum sem var. Enginn
annar vildi það. Framfaraflokkur-
inn undir foystu Carls I. Hagen vildi
hvorki fella stjórnina né samþykkja
fjárlögin. Hægrimenn undir forystu
Jan Petersen buðust til að gefa rík-
isstjórninni nýtt fjárlagafrumvarp
og nýja stefnu í ríkisfjármálum.
Tók við nýrri stefnu
Séra Kjell Magne þáði síðasta
kostinn, enda hélt hann þá forsætis-
ráðherrastólnum, og ný fjárlög
verða væntanlega afgreidd á mánu-
daginn. Öll áform ríkisstjómarinn-
ar um skattahækkanir era úr sög-
unni og fyrir liggur að skera niður
útgjöid ríkisins til alls annars en
hers og lögreglu. Og ríkisstjórnin
hefur lofað að byrja að selja ríkis-
fyrirtæki.
Þar með er séra Kjell Magne
hættur í hlutverki línudansarans í
norskum stjórnmálum. Það eru
hægrimenn sem „lesa honum fyrir
Erlent
fréttaljós
stefnuna" og því er haldið fram að
Jan Petersen hafi nú meiri völd en
hann hefði sem forsætisráðherra
sjáifúr. Carl I. Hagen hikaði við að
setja séra Kjell Magne úrslitakosti,
en það gerði Petersen og náði odda-
aðstöðu við stjórn landsins.
Fallandi olíuverð er
vandinn
Þetta er fyrsti og eini pólitíski
sigur Petersens. Hann hefur leitt
Hægri flokkinn á erfiðum timum
þar sem fylgið hefur leitað til Fram-
faraflokks Carls I. Hagen og Kristi-
lega þjóðarflokksins undir forystu
séra Kjell Magne. Nú mælist fylgi
hægrimanna bara 11% en mun trú-
lega vaxa eftir að formaðurinn hef-
ur sýnt að hann er klókur refur og
ekki grá mús.
Vandinn í norskum stjórnmálum
stafar fyrst og fremst af því að verð
á oliu feliur jafnt og þétt. Það hefur
leitt til þess að hlutabréf falla í
verði, gengi krónunnar fellur, vexti
hækka og nálgast nú 10%. Við
þessar aðstæður er illt að hafa
riksstjórn sem ekki getur tek-
ið af skarið í nokkru máli.
Ný stefna í Schen-
gen-máiinu?
Nú hefur séra KjeU Magne
fengið eins konar yfirforsætis-
ráðherra sem les honum fyrir
stjórnarstefhuna. Þetta kann
að koma sér vel fyrir rikis-
stjórn Davíðs Oddssonar í
Schengen-viðræðunum því
norskum hægrimönnum of-
býður eins og Davíð slapp-
leiki norsku ríkisstjómarinn-
ar við samningaborðið í
Brussel.
Norska ríkisstjórnin er
samansett af þremur miðju-
flokkum - Kristilega þjóðar-
flokknum, Miðflokknum og Frjáls-
lyndum. Allir voru flokkcirnir á
móti aðild að Evrópusambandinu
þegar kosið var um hana fyrir fjór-
um áram. Þessir flokkar eru enn á
•móti öllu sem leiðir til nánara sam-
starfs við Evrópusambandið og þar
með fylgir Schengen-samstarfið um
niðurfellingu landamæraeftirlits
innan Evrópu.
Nú er viðbúið að séra Kjell
Magne fái fyrirmæli frá Jan Peter-
sen um að hætta að draga lappirnar
í Schengen-málinu og koma sér að
verki. Um leið vex óánægjan innan
ríkisstjómarinnar vegna þess að
það sem sameinar hana er einmitt
andúðin á Evrópusambandinu.
Ósigur miðju- og
vinstrimanna
Miðflokksmenn rma hag sínum
Ola vegna þess að þeir sitja nú í rík-
isstjórn sem fylgir hægristefnu.
Miðflokkurinn er á móti einkavæð-
ingu ríkisfyrirtækja og á móti öllu
samstarfi við Evrópusambandið,
hverju nafni sem nefnist. Nú hafa
miðflokksmenn orðið að beygja sig
án þess að fá nokkuð í staðinn.
Verkamannaflokkurin og Thor-
björn Jagland hafa ekki heldur
ástæðu til að fagna. Flokkurinn er
stærsti flokkur Noregs, en nú
áhrifalaus á stjórn landsins og verð-
ur að bíða til næstu kosninga árið
2001 í von um að ná aftur fyrri
valdastöðu. Jagland gat tekið séra
Kjell Magne upp á sína arma en
gerði það ekki.
®
®
®
HOOVER
HOOVER
HOOVER
HOOVER
HOOVER
HOOVER ryksugumar heimsfræsu
amllumkraniany.
PFAFF heimilistækjaverslun fer nú með söluumboð
áþessum ofurvinsælu ryksugum.
7 nýjar tegundir fyrir ólíkar aðstæður,
allir verðflokkar, - en gæðin alltaf þau sömu.
HOOVER ryksugumar fást
í betri raftækjaverslunum.
TÖFRASÓPURINN fyigir í ~
hverti HOOVER ryksugu. 1
PFA F
r IMmilistækjm erslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Nyjustu hljómtækjastæóurnar frá SHARP
CDC-421
' 2X20W • RMS-Surround
• 3ja diska geislaspilari
> Útvarp með 20 stöðva minni
* RDS-tvöfalt segulband • Surround
hátalarar fylgja.
CDC-471
Heimabíóhljómtæki
• 2X40W eða 4X40W • RMS-Dolby pro logic magnari
• Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari
• Útvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.
CDC5H
Heimabíóhljómtæki
• 2X100W eða 4X50W «RMS
• Dolby prologic magnari • Stafrænt tengi
fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari
• Útvarp með 20 stöðva minni
• RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja.
Umboðsmenn um land allt
Hlustaðu á alvöru hljómgæði
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 533 2800